Litli Bergþór - 01.12.2014, Page 36

Litli Bergþór - 01.12.2014, Page 36
36 Litli-Bergþór Fjölgun ferðamanna til Íslands undanfarin ár hefur ekki farið framhjá nokkrum manni og síst þeim sem vinna í þjóðgörðum, friðlýstum svæðum og öðrum ferðamannastöðum landsins. Þessi fjölgun hefur vakið upp nauðsynlegar umræður um gjaldtöku á helstu ferðamannastöðum sem hafa aldrei verið undir meira álagi. Í umræðunni kemur alltaf fyrir orðið ferða- mannastaður. En hvað er ferðamannastaður? Er það vegöxl þar sem tveir erlendir ferðamenn hoppa úr bíl sínum til að taka mynd af íslenskum hesti með fjall í baksýn? Eða er það svæði sem hefur formlega umgjörð og er í skilgreindri eigu, einkaeigu eða opinberri eigu. Ferðamannastaðir á Íslandi eru flestir í eigu ríkis eða sveitarfélaga og margir friðlýstir á einhvern hátt. Umræða undanfarna mánuði hefur snúist að mestu leyti um það hvaða aðferð skal beitt til að rukka fyrir aðgang að náttúruperlum landsins og hvaða náttúruperlur verða fyrir valinu. Minna hefur farið fyrir umræðu um rekstur og stjórnun þjóðgarða og friðlýstra svæða og hvaða uppbygging verði að eiga sér stað til þess að hægt sé að taka á móti ferðamönnum. Mjög lítið hefur verið rætt um hvaða rekstrarskilyrðum ferðaþjónustu skuli búin í þjóðgörðum og friðlýstum svæðum eða hvort að ferðaþjónustan sem atvinnugrein beri einfaldlega einhverja ábyrgð á því ástandi sem skapast þegar hundruðir ef ekki þúsundir ferðamanna heimsækja helstu náttúruperlur landsins á sama tíma. Í þeim löndum sem við viljum bera okkar okkur saman við þá gilda mjög skýrar reglur um stjórnun og rekstur ferðaþjónustu innan þjóðgarða og friðlýstra svæða. Þar má nefna þjóðgarðastofnun Bandaríkjanna og Kanada, Umhverfisstofnun Nýja-Sjálands og Ástralíu svo dæmi séu tekin. Ferðaþjónustufyrirtæki eru einfaldlega starfsleyfisskyld og lúta þeim kröfum og reglum sem settar eru af þeim stofnunum sem við eiga. Samhliða því eru innheimt gjöld fyrir afnot ferðaþjónustu af svæðum í opinberri eigu. Ef viðskiptatækifærin snúast um takmarkaða auðlind eru þau boðin út. Á Nýja-Sjálandi eru þjóðgarðar og friðlýst svæði helstu ferðamannastaðir landsins og því er góð stjórnun og skýr stefna lykilatriði. Stjórnun ferðaþjónustu innan þjóðgarða er mjög fyrirferðarmikil í starfi Umhverfisstofnunar Nýja-Sjálands (DOC) en þar er mjög einfalt kerfi sem gerir ráð fyrir því að gjald sé tekið af þeim sem vilja nýta þjóðgarða og friðlýst svæði í viðskiptalegum tilgangi. Grunnreglan er að þeir sem hafa fjárhagslegan ávinning af því að vera inni á svæðum undir stjórn Umhverfisstofnunar Nýja-Sjálands, þjóðgörðum, þjóðskógum og öðrum verndarsvæðum verða að gera um það samninga og borga fyrir afnot. Þetta kerfi á við alla notkun í viðskiptalegum tilgangi m.a. beitarafnot, námavinnslu, skógarhögg, kvikmyndatökur yfir í ferðaþjónustu svo fátt eitt sé nefnt. Þar sem ferðaþjónustan er stærsti notandi þjóðgarða borga þeir fyrir öll afnot af slíkum svæðum. Verðskráin er byggð upp fyrir mismunandi notkun og tímalengd og samningar geta verið fyrir einn atburð eða til fleiri ára. Ferðaskrifstofurnar fella síðan gjöldin inn í verð til ferðamanna. Hins vegar greiða skattborgarar Nýja-Sjálands og ferðamenn á eigin vegum ekki aðgangseyri að þeim svæðum sem Umhverfisstofnun Nýja-Sjálands stýrir. Grunnhugmyndin með leyfisveitingum og gjaldheimtu er að Umhverfisstofnun Nýja-Sjálands ráðstafar landinu fyrir skattborgarana og innheimtir leigu fyrir það. Annað sem er mjög mikilvægt með þessu kerfi er að það fæst einstök yfirsýn yfir starfsemi og landnotkun innan svæðanna sem er nauðsynleg fyrir alla áætlanagerð til framtíðar. Hugleiðing um gjaldtöku í þjóðgörðum og friðlýstum svæðum Þessi mynd er tekin á norður eyjunni við skiltið af einum frægasta þjóðgarði Ný sjálendinga Tongariro þjóðgarðinum sem er á heimsminjaskrá fyrir bæði náttúru og menningu. Myndir frá ferð höfundar til Nýja-Sjálands. Hér má sjá fjallasýn í Tongariro.

x

Litli Bergþór

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.