Litli Bergþór - 01.12.2014, Síða 38

Litli Bergþór - 01.12.2014, Síða 38
38 Litli-Bergþór Haustið 1959 réðst ég til vinnu með Stefáni Kristjánssyni byggingameistara frá Geirakoti, en þá um vorið hafði ég lokið sveinsprófi í húsasmíði. Helsta verkefni okkar árið 1960 var bygging húss í Þorlákshöfn fyrir Egil Thorarensen. Var það teiknað af Skarphéðni Jóhannssyni . Áberandi bygging, stóð þá eitt sér á hæð sunnan A-götu. Um mitt það ár kemur Þórarinn Þorfinnsson á Spóastöðum í Biskupstungum að máli við Stefán og falast eftir að hann taki að sér að ljúka byggingu félagsheimilis í Reykholti þar í sveit. Stefán hafði reynslu á því sviði, hafði m.a. unnið við byggingu félagsheimilisins að Flúðum. Við Stefán hófum störf við félagsheimilisbygginguna um miðjan nóvember 1960. Okkur var fengin svefnaðstaða að Espiflöt og fekk ég rúm eldri dótturinnar hennar Sirríar en hún var þá við nám að Laugarvatni. Ekki grunaði mig þá að sú frábæra stúlka yrði konan mín eins og síðar varð. Um stuttan tíma borðuðum við þar einnig en annars borðuðum við í mötuneyti Barnaskólans, sem var þá í kjallara gamla skólahússins. Í mötuneytinu unnu þá systurnar frá Brautarhóli, Margrét og Hrefna og einnig Katrín frá Fellskoti. Minnist ég þess að okkur þótti maturinn góður, nokkuð betri en í mötuneytinu í Þorlákshöfn, sem var þar í gömlu húsi. Tek ég samt fram að með nýja frystihúsinu þar þá batnaði aðstaða og matur mjög. Ég minnist á þetta vegna þess að fljótlega vorum við beðnir að segja álit okkar á matnum í Reykholti og var það vegna kvörtunar frá foreldrum barns sem var þar í skólanum. Létti viðkomandi ráðamanni greinilega við álitsgjöf okkar. Þegar skólanum lauk um vorið þá fengum við gistingu þar á heimavistinni. Atviks sem gerðist þar við matborðið minnist ég enn, var það að mig minnir fyrsta daginn sem ég var þar að einn skólasveinninn staðnæmdist við borðið þar sem við sátum. Hann horfði á mig nokkra stund og ég hugsaði hvað hann myndi nú segja, fann á mér að einhver athugasemd kæmi, líklega um smá vörtu sem var þá á nefinu. Svo loks kom spurningin „Af hverju eru eyrun á þér svona lítil?“ Ég vissi ekki hverju svara skyldi því aldrei hafði mér vitandi eyrnastærð mín verið áður til umræðu. Alveg kjaftstopp fór ég að loknu borðhaldi og leit í spegil svona eins og til að sannfærast um að þau væru óbreytt, sem og vartan á nefinu. Félagsheimilið var teiknað á Teiknistofu Gísla Halldórssonar en af honum höfðum við lítil kynni því að flest samskipti teiknistofunnar varðandi verkið annaðist Ólafur Júlíusson byggingafræðingur, kom hann nokkrum sinnum í heimsókn meðan á verkinu stóð og voru samskiptin góð. Vinnutími var frá hálf átta að morgni til hálf tólf að kvöldi og oftast farið heim á föstudagskvöldi. Stefán passaði mjög upp á að vinnutímamörk væru virt. Sem dæmi vil ég nefna að fljótlega eftir að við hófum þar vinnu þá vann í nokkra daga með okkur Þórarinn á Spóastöðum og þá gerðist það eitt sinn er Stefán kallar „Kaffi“ að Þórarinn lítur á úr sitt og segir „mína vantar nú fjórar mínútur í“. Stefáni líkaði ekki of vel þessi athugasemd og svaraði á þá leið að við færum ekki eftir vitlausri klukku hér. Reyndist klukka Þórarins heldur sein og og afsakaði hann það. Eftir þetta sagði Stefán oft þá hann kallaði í kaffi „Hana vantar fjórar mínútur“. Annars voru öll samskipti við Þórarinn hin ágætustu. Fljótlega bað hann okkur að lána vinnulaun okkar hvað við gerðum, sagði þó að hann ætlaði að greiða eitthvað svo við kæmumst af. Við yrðum að Aratunga Minningar Árna Sverris Erlingssonar, frá byggingu hússins 1960 – 1962 Eiríkur í Miklholti. Á vígsluhátíðinni. Ljósmynd ÁSE.

x

Litli Bergþór

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.