Litli Bergþór - 01.12.2014, Page 43

Litli Bergþór - 01.12.2014, Page 43
Litli-Bergþór 43 Dýragarðurinn í Slakka, Laugarási í Biskupstungum, hefur verið starfandi í rúm 20 ár. Síðastliðið vor var opnuð myndasýning í Slakka, þar sem sýndar voru myndir frá þessum 20 árum, sem og myndir eftir bróðurson Helga Gunnar Stein Úlfarsson í made by Iceland Við það tækifæri voru teknar nokkrar myndir til viðbótar, sem sjá má hér á síðunni og í næstu opnu. Helgi Sveinbjörnsson, eigandi Slakka, hefur rekið dýragarðinn frá upphafi með fjölskyldu sinni. Þau hjónin, hann og Björg heitin kona hans byrjuðu smátt með nokkrar endur, hund og kött. Það voru heimilisdýrin þeirra, sem þau höfðu á lóðinni við gróðurhúsið. Varð þessi litli dýragarður þvílíkt aðdráttarafl fyrir ungviðið í hverfinu og á tjaldstæðunum hér í kring, að þetta vatt uppá sig og varð að lokum þeirra helsta atvinna. Á sýningunni mátti t.d. sjá hluta af fyrsta smáhýsinu sem Helgi byggði árið 1993. Undanfarin ár hefur Helgi boðið öllum leikskólabörnum hér í uppsveitunum, ásamt foreldrum þeirra og kennurum, að koma í heimsókn í dýra- garðinn í ágústlok. Það er, áður en útidýragarðurinn lokar fyrir veturinn og eftir að börnin eru byrjuð í leikskólanum eftir sumarfrí. Þar hafa þau getað skoðað dýrin og á eftir hefur verið boðið upp á veitingar með stuðningi ýmissa fyrirtækja. Hafa þetta verið skemmtilegar og eftirminnilegar heimsóknir fyrir alla. Gleðileg jó l Dýragarðurinn í Slakka Myndasýning í tilefni 20 ára afmælis 2013 Inngangurinn að Dýragarðinum í Slakka.

x

Litli Bergþór

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.