Morgunblaðið - 07.09.2018, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. SEPTEMBER 2018
94% ökumanna finnst þeir öruggari með EyeSight tækni
Þú fyllist hugarró þegar þú veist að bíllinn þinn skerst í leik og aðstoðar þig við að koma í veg fyrir árekstur. Varar þig við
þegar aðvífandi ökutæki er á blinda punktinum. Og gerir þér kleift að leggja bílnum áreynslulaust í þröngt stæði með aðstoð
myndavélar sem sýnir nálægð við gangstéttarbrún. Slakaðu á. EyeSight er staðalbúnaður í Subaru Forester LUX, bensín.
Subaru Forester Premium, sjálfskiptur. Verð frá: 4.990.000 kr.
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
GE bílar
Reykjanesbæ
www.gebilar.is
420 0400
Bílasalan Bílás
Akranesi
www.bilas.is
431 2622
Bílasala Akureyrar
Akureyri
www.bilak.is
461 2533
Bílaverkstæði Austurlands
Egilsstöðum
www.bva.is
470 5070
IB ehf.
Selfossi
www.ib.is
480 8080
BL söluumboð
Vestmannaeyjum
481 1313
862 2516
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
8
9
3
2
8
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Vísbendingar eru um að aukin fjár-
festing í menntun eftir efnahags-
hrunið eigi þátt í vexti hugverkageir-
ans síðustu ár.
Tölvufræðingum
fer fjölgandi.
Katrín Jakobs-
dóttir forsætis-
ráðherra var
mennta- og
menningarmála-
ráðherra 2009-
2013.
Á því kjörtíma-
bili var tekin
ákvörðun um að
greiða fyrir menntun fólks sem
missti vinnuna í kjölfar efnahags-
hrunsins, bæði á framhaldsskóla- og
háskólastigi. Birtist það í fjölgun
nemenda, bæði í framhaldsskólum
og sérstaklega háskólum en skólarn-
ir opnuðu dyr sínar fyrir miklum
fjölda nemenda á þessum tíma. Sú
fjölgun varð ekki síst í raungreinum,
stærðfræði og í tölvunarfræðum.
Fram kom í Morgunblaðinu í
fyrradag að hlutur hugverkageirans
í þjóðarframleiðslu nálgast 200 millj-
arða. Spurð um þennan vöxt, með
hliðsjón af fjölgun tölvunarfræðinga,
segir Katrín að fjárfesting í mann-
auði eftir efnahagshrunið hafi skilað
árangri. Sá árangur sé jafnvel um-
fram væntingar.
Styrktu fólk til að mennta sig
„Við fórum í átaksverkefni sem ég
hef verið mjög stolt af síðar meir. Við
hvöttum fólk sem missti vinnuna í
hruninu til að sækja sér menntun.
Bæði voru búnar til námsbrautir
en um leið tryggt að fólkið missti
ekki atvinnuleysisbætur ef námið
var ekki lánshæft. Síðar á þessu
kjörtímabili settum við aukna fjár-
muni í rannsóknar- og tækniþróun-
arsjóð og inn í skapandi greinar. Það
er mín trú að þetta hafi verið algjört
lykilatriði og sé áfram lykilatriði í
nýsköpun. Vöxtur hugverkageirans
er mjög góð tíðindi. Af því að það
skiptir svo miklu máli að við séum
með fleiri stoðir undir okkar efna-
hagslífi og fleiri stoðir sem snúast
um og byggjast á hugvitinu.“
Katrín boðar frekari framlög til
nýsköpunar.
„Hluti af stefnumótun núverandi
ríkisstjórnar er að fjárfesta meira í
nýsköpun og þróun í gegnum nýjan
þjóðarsjóð en sú fjárfesting gæti
numið milljörðum á næstu árum.
Samhliða því verður mótuð nýsköp-
unarstefna fyrir Ísland.“
– Rætt er um að sterkt gengi
krónu og hækkandi launakostnaður
hafi skert samkeppnisstöðu Íslands.
Hefur ríkisstjórnin skoðað mögu-
legar mótvægisaðgerðir?
„Auðvitað skiptir máli að viðhalda
efnahagslegum og félagslegum stöð-
ugleika. Þar spila annars vegar sam-
an ríkisfjármál, peningastefna og
vinnumarkaðurinn og við erum að
leggja okkar af mörkum í því efni.
Hins vegar skiptir máli að stjórnvöld
komi með virkari hætti að þessum
geira. Það gerum við með stefnumót-
uninni og sérstakri áherslu á að við
séum að byggja þetta upp til lengri
tíma og með því að taka frá peninga
til fjárfestinga,“ segir Katrín.
Fjárfesting í
mannauði hafi
skilað miklu
Brautskráningar, fjöldi nemenda og nýnema í háskólum 2006-2016
Heimild: Hagstofa Íslands
2006-07 2007-08 2008-09 2009-10 2010-11 2011-12 2012-13 2013-14 2014-15 2015-16
Brautskráningar 3.560 3.713 3.458 4.113 4.346 4.108 4.029 4.287 4.419 4.593
Nemendur á háskóla-
og doktorsstigi (alls) 15.848 16.658 16.944 18.067 18.846 19.156 19.127 19.890 18.929 18.590
Nýnemar
Á háskóla- og doktorsstigi 3.130 3.379 3.667 4.375 3.875 3.790 4.083 4.077 3.708 3.431
Í raunvísindum, stærðfræði
og tölvunarfræði 312 329 323 515 500 506 594 671 545 476
Brautskráningar 2006-2016. Breyting á tímabilinu: +29,0%
5.000
4.000
3.000
2.000
1.000
Fjöldi nemenda á háskóla- og doktorsstigi 2006-2016
Breyting á tímabilinu: +17,3%
20.000
15.000
10.000
5.000
Nýnemar á háskóla- og doktorsstigi 2006-2016
Breyting á tímabilinu: +9,6%
4.000
3.000
2.000
1.000
Nýnemar í raunvísindum, stærðfræði og tölvunarfræði 2006-2016
Breyting á tímabilinu: +52,6%
600
400
200 Forsætisráðherra boðar milljarða
styrki til hugverkageirans á Íslandi
Katrín
Jakobsdóttir
Hugverkaiðnaður og menntunarstaða
Menntunarstaða
Þús. manns 25-64 ára
Grunnmenntun
Háskóla-
menntun
Hugverkaiðnaður:* Þús. starfsfólks Verðmætasköpun, % af landsframleiðslu
Heimild: Vinnumarkaðs-
rannsókn Hagstofu Íslands
*Heimild: SI
15
12
9
6
3
0
9%
8%
7%
6%
5%
4%
2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017
12,9 13,2 13,5 13,5 13,6
13,8 14,3 14,2
2007 2012 2017
5,8%
7,3%
49,4
49,3 56,4 73,6
47,0 39,7