Morgunblaðið - 07.09.2018, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 07.09.2018, Blaðsíða 23
MINNINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. SEPTEMBER 2018 ✝ Kristján Að-alsteinsson fæddist í Reykjavík 29. desember 1948. Hann lést á krabba- meinsdeild Land- spítalans 28. ágúst 2018. Foreldrar hans voru Aðalsteinn Sigurðsson bók- bindari, f. 26. febr- úar 1910, d. 19. ágúst 1969, og Sigurleif Þór- hallsdóttir, f. 11. desember 1917, d. 7. janúar 1984. Systkini Kristjáns eru 1) Þórhallur Aðal- steinsson, f. 16. febrúar 1944, maki Svanhildur Sigurjónsdótt- ir, f. 1. apríl 1944, þau eiga þrjú börn, 2) Sigrún Edda Að- alsteinsdóttir Crowe, f. 14. mars 1953, maki Alan Roy Crowe, f. 11. febrúar 1954, þau eiga eina dóttur. Kristján giftist Guðrúnu Pét- ursdóttur íþróttakennara 17. október 1970. Foreldrar hennar voru Pétur Guðmundsson bóndi, f. 8. júlí 1912, d. 9. apríl 1997, og Anna Guðjónsdóttir, f. 9. júní 1922, d. 23. júlí 2012. færslunámskeiðum hjá Stjórn- unarfélagi Íslands á árunum 1974 til 1982. Á meðan hann var forstjóri Bókfells hf. tók hann einnig þátt í félagsmálum og var átta ár í stjórn Félags íslenska prentiðnaðarins, m.a. sem ritari stjórnar og síðasta árið varafor- maður. Stjórn Félags íslenska prentiðnaðarins fól Kristjáni ýmis stjórnar- og nefndarstörf, m.a. stjórnarsetu í Lífeyrissjóði bókagerðarmanna 1979 til 1988, í sambandsstjórn Vinnu- veitendasambands Íslands, í samninganefnd félagsins og í Öryggisnefnd prentiðnaðarins. Á árunum 1988 til 2000 var hann fjármálastjóri Máls og menningar eða þar til félagið sameinaðist Vöku-Helgafelli í hlutafélaginu Eddu miðlun og útgáfu hf. þar sem hann var einn af yfirmönnum bókhalds- sviðsins. Á vegum Máls og menningar var hann í stjórn Fé- lags íslenskra bókaútgefenda í tvö ár og endurskoðandi þess fé- lags í þrjú ár. Kristján hætti störfum hjá Eddu miðlun og út- gáfu hf. og tók við sem fjár- málastjóri Miðbaugs, sem rekur þrjár gleraugnaverslanir, þang- að til hann hætti að vinna í lok maí á þessu ári. Útför Kristjáns fer fram frá Fossvogskirkju í dag, 7. sept- ember 2018, og hefst athöfnin klukkan 15. Börn Kristjáns og Guðrúnar eru: 1) Georg Pétur Kristjánsson, f. 23. maí 1972, unnusta Ósk Sigþórsdóttir, þeirra börn eru Kristján Jarl og Agatha; 2) Silla Þóra Kristjánsdótt- ir, f. 8. október 1975, gift Hálfdáni Kristjánssyni, þeirra börn eru Kristófer Hauk- ur og Baltasar Haukur; 3) Anna Kristjánsdóttir, f. 3. maí 1978, gift Gústafi Steingrímssyni, þeirra börn eru Grímur Kári og Ari Steinn. Kristján ólst upp í Reykjavík, gekk í Melaskóla, því næst Laugarnesskóla, útskrifast úr Verzlunarskóla Íslands 1969 og lauk Cand. Oecon í viðskipta- fræði við Háskóla Íslands 1974. Hann var forstjóri Bókfells hf. frá 1969 til 1972 og 1974 til 1988. Sumarið 1974 vann hann í fjármáladeild menntamála- ráðuneytisins. Jafnhliða for- stjórastarfinu hjá Bókfelli kenndi hann á fjölmörgum bók- Ljúfi og ástríki pabbi, þú kvaddir okkur allt of fljótt og þið mamma vart farin að njóta tímans að loknum starfsferli. Nærvera þín var alltaf svo notaleg og hlý. Þú lést mig allt- af finna hvað þú værir ánægður að sjá mig eða heyra í mér í síma. Þú varst mjúka týpan, innan sem utan, og slóst ekki hendinni á móti góðum kræs- ingum. Þegar kom að skólagöngu minni og tónlistarnámi varstu alltaf svo áhugasamur. Alltaf var spurt út í öll próf, sama hversu lítil þau voru, nánast áð- ur en ég var búin með prófið! Það skipti engu þó ég væri flutt að heiman og komin í háskóla, áfram var spurt enda fylltist þú stolti yfir því sem ég gerði. Það er ekki hægt að segja að íþrótt- ir hafi verið þitt hugðarefni en við áttum okkur þó fjölskyldu- sport sem voru skíðin. Helgarnar að vetri til voru vel nýttar á mínum yngri árum og tók ég mín fyrstu skíðaspor í fanginu á þér þriggja ára gömul. Þetta voru gæðastundir hjá okkur fjölskyldunni. Þú hafðir virkilega gaman af því að ferðast og naust útiveru og göngu í góðra vina hópi. Þér fannst mikilvægt að við þekkt- um landið okkar. Bílferðir úti á landi voru nýttar sem kennslu- stundir þar sem þú þuldir upp nöfn á því sem fyrir bar enda sjálfur mjög fróðleiksfús. Ég hafði nú ekki alltaf þolinmæði fyrir þessu sem barn og fannst oft nóg um þessar upptalningar en stend mig svo sjálfa að þessu í dag gagnvart mínum börnum. Þessi upptalning hætti aldrei hjá þér, jafnvel ekki eftir að ég var orðin fullorðin í bíl með ykkur mömmu. Í ófáum ferðunum til ömmu og afa í Fljótshlíðinni vorum við svo spurð spjörunum úr um heiti fjalla á leiðinni. Pabbi var svo mikið séntil- menni sem vildi vera vel til fara og hafa snyrtilegt í kringum sig. Borðið í vinnunni var sjálf- sagt hið eina sem skar sig úr en það einkenndist af skipu- lagðri óreiðu, sem ég erfði greinilega frá þér. Þú hafðir mjög einfaldan smekk, jakkaföt voru lengi vel við nánast öll tækifæri enda lít- ið til af öðrum fatnaði í skápn- um. Það var jafnframt lýsandi fyrir þig að klæðast alltaf skyrtum við ýmiss líkamleg verk eins og garðslátt, máln- ingarvinnu eða hvað annað sem þurfti að gera. Háttvísi og kurteisi lýsir þér vel ásamt því að búa yfir miklu jafnaðargeði. Þegar þú varst óánægður tækl- aðir þú það svo snyrtilega að ekki var hægt að merkja það enda fórstu rólegu leiðina að hlutunum. Árið í ár var erfitt sökum sjúkdómsins sem tók eðlilega mikinn toll af þér en þú hélst ótrauður áfram enda ætlaðir þú þér svo miklu meira. Ég er svo þakklát og ánægð að þú skyldir geta verið mér við hlið á brúðkaupsdaginn í maí og geta tekið þátt í þeim degi. Það er dýrmæt minning. Þú varst líka ánægður og umhugað að lyfjameðferð myndi ekki skyggja á gleðina. Betri föður er ekki hægt að óska sér. Þið mamma áttuð svo fallegt sam- band, dansandi saman nær alla tíð og naust þú þín einna best að ferðast með mömmu sem sér nú á eftir sínum lífsförunaut. Við kveðjum þig með sorg í hjarta og verður þín sárt sakn- að. Takk, elsku pabbi, fyrir allt saman! Anna Kristjánsdóttir. Elsku pabbi. Ég minnist yndislegs tíma með þér. Kapphlaup síðasta spölinn heim sem krakki. Ég man ekki hvort okkar vann en brosið, gleðina og hláturinn í okkur til hvort annars man ég vel, sem var á meðan kappinu stóð. Og svo heldur fólk að það sé ekki keppnisskap í þér, við tvö vitum betur. Margra klukkutíma spila- mennska við fjölskyldan, með bróður þínum og fjölskyldu hans með tilheyrandi hlátra- sköllum, sem heyrðust víst í næsta raðhús. Auk góðs fé- lagsskapar er það aðeins keppnisskapið og vonin um að vinna í næsta leik sem heldur manni í spilamennsku langt fram á nótt. Með einstaklega gott skap svo umtalað er og sást ekki ástæðu til að æsa þig við fólk, þótt þér þætti gaman að rök- ræða við fólk var það alltaf í góðu. Þú áttir gott með að skapa vellíðan meðal fólks, finna fleti og sjá sanngjarna niðurstöðu. Þið mamma bjugguð okkur systkinunum einstaklega ljúft og gott heimili. Þið rifust aldr- ei, heldur töluðuð saman á yf- irvegaðan hátt til að komast að niðurstöðu og virtust þannig bæði eiga gott með að bakka eins og nauðsynlegt er. Virtist svo auðvelt að sjá, enda báruð þið virðingu fyrir hvort öðru, stóðuð ekki og sussuðuð hvort á annað, né töluðuð hvort ann- að niður, heldur vilduð allt fyrir hvort annað gera. Ég vil meina að þetta hafi verið einstakt samband og til mikillar eftir- breytni. Þú áttir stóran þátt í að skapa heimili þar sem ekkert skorti og tókst með miklum ágætum að uppfylla óskir okk- ar, með glöðu geði. Við fjöl- skyldan skiptum þig miklu máli, eins og þú okkur, það var okkur augljóst enda fór frítími þinn aðallega í að vera með okkur og vera okkur öllum til handa. Aldrei hefur vantað upp á hvatninguna. Jafnvel þegar ég var orðin 28 ára stóðstu með mömmu úti á Nesi að hvetja mig og vinkonuna áfram í hálf- maraþoni, þið keyrðuð síðan og voruð mætt á Kleppsveginn til að hvetja okkur þar og svo mætt á undan okkur í mark til að hvetja og taka á móti okkur þar. Þetta er bara dæmi um hvernig þið foreldrarnir hafið stutt og hvatt mig á svo óeig- ingjarnan hátt, út í gegnum allt lífið. Gat alltaf treyst á hjálp við lærdóminn hjá þér ef ég þurfti á því að halda. Man að ég hugs- aði oft að hver fjölskylda þyrfti að eiga einn svona virkilega kláran og umhyggjusaman að. Hvattir og hughreystir þegar þurfti til. Með hlýju faðmlagi sem þú áttir sem betur fer nóg af og hughreystingu breyttir þú tár- um í aðstæður þar sem ekkert var ómögulegt. Þegar þú sást að ég var óróleg fyrir þau próf sem ég hafði gjarnan hvað mestan metnað fyrir gafstu þér jafnan marga klukkutíma þar sem þú sast hjá mér, bara til að róa mig og hjálpa mér. Mér þykir mjög vænt um þann tíma. Sakna þess að geta ekki lengur komið til þín eftir ráðum fyrir mig og mína og inn í hlýja faðmlagið þitt. Elsku pabbi, þú skilaðir öllu sem skiptir máli að skila inn í þessa veröld, og meira til. Elska þig, dái og sakna þín. Silla Þóra. Elsku pabbi minn, það er erfitt að hugsa til þess að eiga ekki eftir að hitta þig í þessari jarðvist aftur. Að þú sért farinn og þá streyma inn allar minn- ingarnar sem við áttum saman. Þú hafðir einstaka nærveru og alltaf var gott að vera í kring- um þig. Það var alveg sama hvaða lítilræði maður reyndi stundum að endurgjalda fyrir þá miklu hjálp og stoð sem þið mamma hafið ávallt sýnt og veitt okkur, aldrei var skilið við mann án þess að „takk fyrir“ kæmi sterklega fram. Þú varst þakk- látur fyrir fjölskyldu þína og svo umhugað um að allir hefðu það gott. Elsku pabbi, það var alltaf gaman að koma út á Nes í kaffi og spjalla, enda þið mamma miklir gestgjafar og tókuð allt- af svo vel á móti okkur. Það voru yfirleitt skemmtilegustu umræðurnar í eldhúskróknum. Og ekki má gleyma öllum flottu matarboðunum með stórfjöl- skyldunni þar sem þú dekraðir við alla og hjálpaðir mömmu við eldamennsku eins og þið væruð eitt. Og fjölskylduboðið milli jóla og nýárs á afmæl- isdeginum þínum, þar sem vinir þínir og fjölskylda komu saman til að gleðjast með þér, þá var gaman. Ferðalögin sem við áttum saman, skíðaferðirnar í Skála- fell og ekki má gleyma Ak- ureyrarferðinni eftirminnilegu. Gaman var að fylgjast með ykkur bræðrum við aksturinn. Þótt það væri vont skyggni og ekki sæist út úr augum kom- umst við alltaf á leiðarenda með ykkar góðu ratvísi og oft var gert gaman að. Svo allar útilegurnar og þá sérstaklega í Galtalæk þar sem þú varst flottur í „kammer- ráðinu“ og mamma að steikja hamborgarana. Það var sko ekki lítið lagt á sig fyrir krakk- ana. Enda fullt af góðum minn- ingum tengdum útileguferðun- um okkar. Allt það sem þú tókst þér fyrir hendur gerðir þú vel. Hafðir allt svo snyrtilegt í kringum þig, hvort sem það var úti á Nesi, sumarbústaðurinn eða bílarnir þínir sem alltaf voru eins og nýir úr kassanum. Hægt var að spegla sig í lakk- inu á þeim. Smá bíladellu hafðir þú og þekktir vel til allra fornbíla og þakka ég alla þolinmæðina og umburðarlyndið þitt þegar ég fékk að vera í bílskúrnum að dytta að mínum misgóðu jeppa- kostum og alltaf hélstu samt með manni. Þú keyptir þér nýjan bíl í sumar og náðir að fara á hon- um í ferðalag með mömmu um landið og meðal annars til Ak- ureyrar. Ég gleymi aldrei fallega brosinu þínu þegar við heim- sóttum þig í síðasta skipti út á Nes. Þú varst svo sterkur og barst þig vel þrátt fyrir að þú ættir erfitt með að ganga upp tröppurnar heima. Þú varst lít- ið fyrir að kvarta og kveina enda ætlaðir þú þér að ná bata. En svo varstu tekinn svo snöggt frá okkur. Ferðalögin þín með mömmu verða að bíða betri tíma. Þín verður sárt saknað. Þú skilur stórt skarð eftir þig. Elsku pabbi, við munum passa mömmu vel fyrir þig því hennar er mestur missir. Þú varst ástin og kletturinn í hennar lífi. Ég er svo þakklátur fyrir að hafa átt þig sem föður, flott fyrirmynd og góður vinur. Með þakklæti og söknuði kveð ég þig, elsku pabbi. Guð geymi þig. Þinn Georg Pétur. Ég var þeirrar gæfu aðnjót- andi að fá að kynnast þér, elsku tengdapabbi, fyrir 17 árum síð- an. Þú varst einstakur maður, hlýlegur, góður og allir sem kynntust þér heilluðust af þér. Þú varst mikil gæðapersóna og fjölskylda þín var þér allt. Þú varst alltaf svo tignarlegur og flottur og alltaf höfuð fjölskyld- unnar með Guðrúnu þína, sem þú elskaðir svo heitt, þér við hlið. Þú hugsaðir alltaf til fólksins þíns og vildir alltaf fá fregnir af barnabörnunum og varst stolt- ur af öllu því sem þau tóku sér fyrir hendur. Vildir allt fyrir okkur og þau gera og gerðir alltaf þetta auka extra sem einmitt er svo erfitt að útskýra, en þeir sem þekktu þig vita hvað það var. Þú fylgd- ist með þeim með bros á vör – þú hafðir svo fallegt bros, brostir með öllu andlitinu og það var sko alveg ekta. Þú varst svo góður afi. Man eftir skírn Kristjáns Jarls þeg- ar ég spurði þig hvernig þér lit- ist á nafnið. Þú varst fljótur að svara: „Kristján Jarl Georgsson“. Þú varst svo stolt- ur, það er ekki hægt að hafa það flottara og því fylgdi þakk- lætissvipurinn þinn sem maður greindi svo vel og ég man svo sterkt eftir. Þú varst tilfinn- ingaríkur maður og þá sérstak- lega er kom að þeim sem voru þér næstir. Spurðir alltaf mikið um nafna þinn og vildir að honum liði vel og gerðir svo mikið fyrir hann með ást þinni og um- hyggju, fyrir það verð ég þér ævinlega þakklát. Þú varst húmoristi og sagðir skemmtilega frá. Kynntir mig oftar en einu sinni sem uppá- haldstengdadóttur þína og höfðum við bæði gaman af því, þurftum ekki að útskýra það neitt frekar þótt reiknisdæmið væri alveg klárt. Svo ef eitthvað var „magnað eða flott “ kom alltaf „jibbíkól- að“ þitt. Fæ það stundum lánað frá þér ef mig vatnar eitthvað virkilega gott lýsingarorð yfir „magnaðar“ aðstæður og hugsa þá alltaf til þín með hlýju. Samband ykkar Guðrúnar var einkar fallegt og sterkt, það vissu og sáu allir hversu mikið þú elskaðir tengda- mömmu. Manni fannst þú mundir gera allt fyrir ástina þína, hana Guðrúnu. Enda var yfirleitt talað um ykkur í sömu setningu. Þú barst þig vel í veikindum þínum og tókst á við það verk- efni af æruleysi og dugnaði. Þig langaði í meiri tíma með okkur. Guðrún stóð og studdi sinn mann eins og klettur og hjálp- aði þér í einu og öllu, til að þú gætir verið meira heima þegar veikindin þín voru orðin alvar- legri og við sáum vel hversu þakklátur þú varst henni, sem alltaf var ósérhlífin og þinn annar helmingur. Elsku tengdapabbi, ég er óendanlega þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast þér. Ég þakka fyrir allt það góða sem þú hefur gefið mér og fjöl- skyldu minni. Söknuður okkar er mikill. Við munum passa vel upp á elsku tengdamömmu fyr- ir þig og hvort annað í stórfjöl- skyldunni þinni. Við munum halda virðingu þinni og minningu á lofti fyrir barnabörnin sem ég veit að þú munt fylgjast með og leiðbeina áfram í lífinu og ekki síst fyrir okkur sem þú varst svo kær. Með sorg í hjarta og full þakklætis kveð ég þig minni hinstu kveðju. Guð geymi þig. Þín tengda- dóttir, Ósk Sigþórsdóttir. Kristján Aðalsteinsson  Fleiri minningargreinar um Kristján Aðalsteins- son bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. ✝ Gréta Pálsdótt-ir fæddist í Reykjavík 9. des- ember 1938. Hún lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 30. ágúst 2018. Foreldrar henn- ar voru Páll Páls- son og Jóhanna Guðríður Jóhann- esdóttir. Systkini Grétu eru Páll Pálsson, giftur Margréti Ingvadóttur, og Jó- hannes H. Pálsson, giftur Krist- ínu Gunnarsdóttur. Gréta giftist Ragnari Ar- inbjarnar lækni árið 1963. Börn þeirra eru Arnar Arinbjarnar, Guðrún Arinbjarnar og Halldór O. Arinbjarnar. Gréta ólst upp á Kárs- nesbrautinni í Kópavogi og gekk einnig í barnaskóla þar í bæ. Hún á ætt- ir að rekja norður á Árskógsströnd. Hún vann ýmis störf, í Vogue, Reykjavíkur Apó- teki og víðar. Gréta var mjög listræn og sótti ým- is námskeið í gegn- um tíðina. Mesta unun hafði hún af að teikna og mála, sem hún stundaði alla tíð. Garðyrkja átti líka allan hennar hug mátti það glöggt sjá á garðinum hennar á Sunnubraut. Jarðarförin fer fram frá Digraneskirkju í dag, 7. sept- ember 2018, og hefst athöfnin klukkan 13. Þegar ég hugsa um Grétu sé ég hana alltaf umkringda blóm- skrúði í sólskini. Hún byrjaði snemma að rækta garðinn sinn og hélt því áfram til æviloka. Fyrsti garðurinn hennar var við Kársnesbrautina, í þá daga þeg- ar Kópavogur var bara urð og grjót. Ég hafði þann heiður að vera aðstoðarkona hennar við garð- ræktina. Hún bjó meira að segja til vermireit, líklega með hjálp afa síns sem var sjómaður að vestan en sestur í helgan stein með Margréti konu sinni í skjóli Jóhönnu og Páls, foreldra Grétu. Það var mikill friður í húsinu við Kársnesbrautina því að íbú- ar þess voru sannarlega frið- elskandi fólk og glatt í sinni. Gréta var fyrsta vinkona mín í lífinu og ég verð ævinlega þakk- lát fyrir að hafa komist að því hvað sönn vinátta er svo ung að aldri, aðeins sjö ára. Á öllum þeim áratugum sem liðnir eru síðan við vorum að baksa saman í garðyrkjunni varð okkur aldrei sundurorða. Það var bara ekki hægt að reið- ast Grétu, hún var svo ljúf og hlý og tók upp hanskann fyrir alla. Hún var friðarengill eins og mamma hennar og amma. Allar þessar konur tóku ævinlega á móti mér með brosi hvernig sem á stóð. Amma Grétu og mamma komust báðar hátt á tíræðisald- ur og ég bjóst ekki við öðru en það ætti fyrir Grétu að liggja að ná svo háum aldri líka en vá- gestur vorra tíma lætur ekki að sér hæða og hún var hrifsuð burt frá okkur eftir nokkurra vikna harða baráttu. Gréta tók endalokunum með sama æðruleysi og blíðu og ein- kenndu hana alla ævina. Hún kvaddi vini sína með bros á vör, björt og falleg eins og hún var ætíð. Mér fannst stafa af henni ljóma þegar við kvöddumst á spítalanum. „Sjáumst,“ sögðum við báðar í kór og hlógum rétt eins og við værum enn sjö ára. Guðrún Finnbogadóttir. Gréta Pálsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.