Morgunblaðið - 07.09.2018, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 07.09.2018, Blaðsíða 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. SEPTEMBER 2018 Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Ég kom til Dubai í ágúst2016 og bjó þar í nokkramánuði. Þá var 47 stigahiti þar. Ég gat ekki ver- ið úti nema í nokkrar mínútur í einu en farandverkamennirnir voru úti að vinna erfiðisvinnu í þessum hræðilegu aðstæðum frá morgni til kvölds. Mér fannst þetta svakalegt og ég fékk áhuga á að kynna mér hverjir þessir menn væru. Ég fór í hverfin þar sem þeir bjuggu og fékk að skoða aðstæður þeirra, sem voru heldur lakar. Þrjátíu til fjörutíu menn bjuggu saman í einu húsi og sváfu sextán saman í 15 fermetra herbergi. Mér fannst þetta líkast þrælahaldi en það sem kom mér á óvart var hvað þeir voru hamingju- samir, glaðlegir og yndislegar manneskjur,“ segir Óskar Hall- grímsson, ljósmyndari og grafískur hönnuður, en hann fann aftur ástríð- una fyrir ljósmyndun þegar hann myndaði þessa farandverkamenn sem voru frá Pakistan og Indlandi. „Ég elska að segja sögur með myndum. Og ég vil segja sögur þar sem lífið kemur manni skemmtilega á óvart. Aðstæður þessara farand- verkamanna heima fyrir voru svo margfalt lakari en þær sem þeir bjuggu við í Dubai. Þess vegna voru þeir svona glaðir. Þeir voru frá fá- tækrahverfum þar sem ekki var rennandi vatn, ekki rafmagn, engin sorphirða og svo framvegis, en í Dubai voru þeir með rennandi vatn, rafmagn og farsíma. Og ruslið þeirra var alltaf hirt. Þetta var lúxus fyrir þá,“ segir Óskar, sem hélt sýn- ingu með myndum sínum af farand- verkamönnunum. Að búa í Bombay er eins og að vera á annarri plánetu Óskar segir að ferð hans til Dubai hafi verið sú fyrsta af mörg- um til framandi landa. „Röð furðulegra atburða leiddi mig þangað í framhaldi af því að ég útskrifaðist sem grafískur hönnuður úr Listaháskóla Íslands fyrir þrem- ur árum. Fram að því hafði ég unnið við hin ólíkustu ljósmyndaverkefni í lausamennsku. Í Dubai vann ég á auglýsingastofu sem grafískur hönnuður en ég var alltaf að mynda um helgar og þegar ég hafði tíma. Þegar vegabréfsáritun mín rann út fór ég aftur til Íslands og fann að ég var kominn með mikla ævintýraþrá, mig langaði til að fara aftur út í heim. Vinur minn bjó á þessum tíma í Bombay (Mumbai) á Indlandi og ég skellti mér þangað eftir að hafa unnið á sjó heima á Íslandi til að safna fyrir farareyri. Ég fór í einn frystitogaratúr og nokkra aðra túra. Ég lét bara vaða til Bombay án þess að vita hvað ég væri að fara að gera. Ég á ekki konu eða börn, svo það er ekkert sem bindur mig hér heima og engin ástæða til að freista ekki gæfunnar,“ segir Óskar, sem fékk vinnu í Bombay á stað sem á ensku kallast „community working space“. „Þarna var saman komið fólk alls staðar að úr heiminum og úr hinum ólíkustu geirum. Þetta skrif- stofurými var í byggingu sem var áður breskt nýlendubókasafn, gríð- arlega flott og gaman að starfa í þessu umhverfi. Ég vann þarna sem listrænn stjórnandi og sem graf- ískur hönnuður og samstarfsfólkið kom úr öllum áttum, bæði erlent og innlent. Einn var til dæmis vísinda- maður frá NASA, einn af þeim sem voru á bak við New Horizons-geim- skipið sem fór til Plútó. Þetta var ótrúlega gaman og ég kynntist ynd- islegu fólki og byggði þarna upp gott tengslanet,“ segir Óskar, sem meðfram starfi sínu í Bombay sem grafískur hönnuður var líka alltaf að mynda það sem fyrir augu bar í hversdagslífinu, íbúa hinnar óreiðu- kenndu borgar og úr því varð ljós- myndabók hans, sem heitir einfald- lega BOMBAY. „Að búa í þessari borg er eins og að vera á annarri plánetu. Mann- fjöldinn er yfirþyrmandi, þarna ferðast til dæmis 20 milljónir manna með lestarkerfinu á degi hverjum.“ Börn eru vinnuafl fyrir for- eldra svo þau mæta ekki í skóla Óskar bjó í Bombay í fimm mánuði og þegar vegabréfsáritun hans rann út var hann búinn með peningana, svo hann fór heim og skellti sér beint á sjóinn til að afla meira fjár. „Þetta er orðið að mynstri hjá mér og ég kann því vel. Ég kem heim á sjóinn, fer svo til útlanda í nokkra mánuði á vit ævintýra með peningana. Kem þá aftur heim og svo framvegis. Ég fór til Taílands og Víetnam og er núna að fara aftur til Indlands, því þar er ég kominn með þrjú verkefni sem ljósmyndari. Ég mun vinna að kynningarefni fyrir hjálparsamtök, en mörg slík samtök voru með starfsstöð þar sem ég vann í Bombay. Fyrsta ljósmynda- verkefnið mitt verður fyrir samtök sem vinna með krökkum sem búa í fátækrahverfunum í Bombay, þau hafa stofnað fótboltadeildir, byggja fótboltavelli og gefa krökkunum búninga. Allt er þetta leið til að gefa börnunum von, því þó að þessir krakkar hafi aðgang að menntun mæta þau ekki í skólana því þau þurfa að sinna störfum fyrir foreldr- ana sem nota þau sem vinnuafl. Fót- boltinn gefur þeim möguleika á að fá hvíld frá vinnu og fá að vera börn að leika sér. Auk þess fá þau aðgang að menntun í gegnum þetta verk- efni.“ Skapa konum vinnu svo þær öðlist fjárhagslegt sjálfstæði Óskar er mjög spenntur fyrir öðru ljósmyndaverkefni sem bíður hans á Mið-Indlandi, en það snýst um konur í þorpum sem ákveðin hjálparsamtök hafa unnið með. „Samtökin veita þessum konum vinnu við að sauma sarí, sem er bún- ingur indverskra kvenna, en með slíkri vinnu öðlast þessar konur fjár- hagslegt sjálfstæði, sem í framhald- inu veitir þeim aðgang að heil- brigðisþjónustu. Þær fá full laun fyrir vinnu sína en eru ekki að þræla fyrir vestræn fyrirtæki sem vilja græða á ódýru vinnuafli,“ segir Ósk- ar, sem stefnir að því að vera í tvo mánuði á Indlandi í þetta sinn. „Að loknum þessum verkefnum ætla ég til Varanasi á Indlandi að heimsækja íslenskan félaga minn og taka myndir. Indland er svo merki- legt, það þreytir mann með áreitinu en um leið elskar maður það og vill alltaf fara aftur,“ segir Óskar og hlær og bætir við að hann stefni á að fara líka til Víetnam og Kambódíu. „Þegar maður ferðast víða um veröldina eignast maður marga vini sem gott er að eiga að á flakkinu. Mér finnst ég vera rétt að byrja.“ Rúnum ristur Gamalt fólk í fátækrahverfum Indlands hefur reynt margt um ævina, eins og annað fólk sem býr við skort og hefur takmarkaðan aðgang að heilbrigðisþjónustu. Vændishverfi Kamatiphura er stærsta rauða hverfi í Asíu. Langamma passar oft börnin á meðan amma, mamma og dótt- ir vinna í vændi í kofanum sem þau búa í. Hveitimalari í Daravi Í stærsta fátækrahverfi í Indlandi býr rúmlega milljón manns á svæði sem er á stærð við Fellahverf- ið. Malarar mala hveiti í litlum básum hér og þar um Bombay. Vinnur á sjón- um fyrir flakki um heiminn Í hvert sinn sem hann fer frá Indlandi vill hann aldr- ei fara þangað aftur, hann fær nóg af áreitinu. En eft- ir ákveðinn tíma þráir hann að fara þangað enn á ný. Óskar Hallgrímsson er ævintýramaður og kann vel við að ferðast og leika sér þar til hann er orðinn auralaus, þá kemur hann heim og fer á sjóinn og vinnur sér inn fyrir næstu ferð. Fer svo aftur á flakk. Ljósmyndir/Óskar Hallgrímsson Aðalkarlinn Fíkniefnasalinn í hverfinu þar sem Óskar bjó í Bombay. Hér með stórfjölskyldunni. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Ljósmyndari Óskar fann aftur ástríðuna fyrir ljósmyndun úti í Dubai. Farandverkamenn í Dubai Óskar kynntist þeim vel þegar hann vann að ljósmyndaverkefni um þá. Hér eru tveir þeirra í 15 fermetra herbergi sem þeir deildu með 14 öðrum. Af því má sjá hvílík þrengsli þeir búa við. Bók Ljósmyndabók Óskars geymir myndir hans frá dvölinni í Bombay. Ég á ekki konu eða börn, svo það er ekkert sem bindur mig hér heima og engin ástæða til að freista ekki gæf- unnar. www.oskarhallgrimsson.com instagram.com/skari

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.