Morgunblaðið - 07.09.2018, Side 17
FRÉTTIR 17Fréttir
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. SEPTEMBER 2018
Z-brautir &
gluggatjöld
Opið mánud.-föstud. 10-18 Faxafeni 14 | 108 Reykjavík | S. 525 8200 | www.z.is |
Mælum, sérsmíðum og setjum upp
Úrval - gæði - þjónusta
Falleg gluggatjöld
fyrir falleg heimili
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Aðstoðarmenn Donalds Trumps
Bandaríkjaforseta í Hvíta húsinu
hafa hafið leit að ónefndum höfundi
greinar þar sem hann segist vera á
meðal embættismanna sem reyni að
hafa hemil á „verstu hneigðum“ for-
setans til að verja hagsmuni lands-
ins. Greinin virðist staðfesta fullyrð-
ingar í væntanlegri bók eftir Bob
Woodward, einn virtasta blaðamann
Bandaríkjanna, sem lýsir því hvern-
ig embættismenn í Hvíta húsinu og í
ráðuneytum stjórnarinnar hafa
reynt að koma í veg fyrir að forset-
inn taki ákvarðanir sem geti skaðað
efnahag Bandaríkjanna og grafið
undan þjóðaröryggi.
Greinin var birt í The New York
Times í fyrradag og blaðið sagði að-
eins að höfundurinn væri hátt settur
embættismaður ríkisstjórnar
Trumps. Forsetinn sagði að birting
greinarinnar væri skammarleg og
krafðist þess að blaðið birti nafn höf-
undarins. Hann dró í efa að greinin
kæmi í raun og veru frá hátt settum
embættismanni, sagði nafnleysið til
marks um hugleysi og varpaði fram
þeirri spurningu hvort höfundurinn
hefði gerst sekur um landráð.
„Ég tek þátt í andspyrnu“
Fyrirsögn greinarinnar er „Ég
tek þátt í andspyrnunni í stjórn
Trumps“. Hann segir forsetann
standa frammi fyrir prófraun sem
enginn forvera hans í nútímasögu
Bandaríkjanna hafi tekist á við.
Hann skírskotar til rannsóknar sér-
staks saksóknara á afskiptum Rússa
af kosningunum 2016, klofnings
þjóðarinnar í heiftarlegum ágrein-
ingi um Trump og möguleikans á því
að flokkur hans missi meirihlutann í
fulltrúadeild þingsins. Hann segir þó
fleira koma til því að forsetinn standi
frammi fyrir því að „margir hátt
settir embættismenn í stjórn hans
sjálfs vinna af kostgæfni að því innan
hennar að hindra hluta af stefnu
hans og hafa hemil á verstu hneigð-
um hans. Ég ætti að vita það. Ég er
einn þeirra“.
Höfundurinn tekur fram að emb-
ættismennirnir tilheyri ekki „and-
spyrnu“ vinstrimanna. „Við viljum
að ríkisstjórnin nái árangri og teljum
að mörg stefnumál hennar hafi þeg-
ar gert Bandaríkin öruggari og bet-
ur stæð. Við teljum hins vegar að við
höfum fyrst og fremst skyldu að
gegna gagnvart landinu og forsetinn
heldur áfram að starfa með hætti
sem skaðar velferð lýðveldisins. Þess
vegna hafa margir okkar, sem
Trump skipaði í embætti, heitið að
gera það sem við getum til að verja
stofnanir lýðræðisins en hafa hemil á
hvötum hans þar til hann lætur af
embætti.“
Gegn hugsjónum repúblikana
„Siðblinda forsetans er rót vand-
ans,“ heldur höfundurinn áfram.
Hann bætir við að þótt Trump hafi
verið kjörinn sem forsetaefni repú-
blikana hafi hann sýnt lítinn stuðn-
ing við lýðræðis- og frelsishugsjónir
flokksins, t.a.m. frjálshyggju í efna-
hagsmálum, og jafnvel átt það til að
gera atlögu að þeim. „Auk þess að
markaðssetja í stórum stíl þá hug-
mynd að fjölmiðlarnir séu „óvinir
þjóðarinnar“ hefur forsetinn al-
mennt sýnt hvöt til að snúast gegn
frjálsum viðskiptum og lýðræði.“
Höfundurinn tekur þó fram að
stjórnin hafi náð árangri sem fjöl-
miðlar hafi ekki komið nægilega til
skila í „nær linnulaust neikvæðri
umfjöllun um forsetann“. Hann
nefnir sem dæmi afnám íþyngjandi
reglugerða í atvinnulífinu, skatta-
lækkanir repúblikana og aðgerðir til
að efla herinn. „En þessi árangur
hefur náðst þrátt fyrir leiðtogastíl
forsetans – ekki vegna hans – sem er
fljótfærnislegur, deilugjarn, smá-
sálarlegur og árangurslítill.“ Höf-
undurinn segir að hátt settir emb-
ættismenn í Hvíta húsinu,
ráðuneytum og ríkisstofnunum
viðurkenni þegar þeir tali saman
undir fjögur augu að þeim blöskri
yfirlýsingar og gerðir forsetans.
„Flestir þeirra reyna að hindra að
duttlungar hans hafi áhrif á starf-
semi þeirra.“
Að sögn höfundarins fer umræðan
út og suður á fundum með forset-
anum, sem staglist á gífuryrðum, og
hvatvísi hans verði til þess að hann
taki illa grundaðar ákvarðanir sem
séu stundum svo gáleysislegar að
draga þurfi þær til baka. „Það er
bókstaflega ómögulegt að vita hvort
hann skiptir um skoðun mínútu
seinna,“ hefur höfundurinn eftir hátt
settum embættismanni eftir fund í
Hvíta húsinu þegar forsetinn sá sig
um hönd í mikilvægu máli og dró til
baka ákvörðun sem hann hafði tekið
viku áður.
„Ómærðar hetjur“
Höfundurinn segir að óútreiknan-
leg hegðun forsetans sé meira
áhyggjuefni ef ekki væru „ómærðar
hetjur“ í Hvíta húsinu og ráðu-
neytum stjórnarinnar. Sumum emb-
ættismanna forsetans hafi verið lýst
sem skúrkum í fjölmiðlunum en þeir
hafi lagt mikið á sig til að koma í veg
fyrir að „slæmar ákvarðanir“ hafi
áhrif á starfsemi stjórnarinnar utan
veggja Hvíta hússins.
„Það kann að vera lítil huggun á
þessum glundroðatíma en Banda-
ríkjamenn ættu að fá að vita að það
er fullorðið fólk í herberginu,“ held-
ur höfundurinn áfram. „Við erum að
reyna að gera það sem er rétt, jafn-
vel þegar Trump vill það ekki.“
Höfundurinn nefnir utanríkismál
sem dæmi um hvernig embættis-
menn stjórnarinnar hafi gengið á
svig við forsetann. Trump hafi t.a.m.
sýnt að hann hafi dálæti á einræðis-
herrum á borð við Vladimír Pútín
Rússlandsforseta og Kim Jong-un,
leiðtoga Norður-Kóreu, en hafi litlar
mætur á tengslum Bandaríkjanna
við lýðræðisríki sem hafa unnið með
bandarískum stjórnvöldum í ör-
yggismálum. Höfundurinn segir að
þrátt fyrir þetta hafi embættismenn
forsetans fetað aðra slóð, gengið
hart fram gegn löndum á borð við
Rússland og haldið áfram að starfa
með bandamönnunum, umgengist þá
sem jafningja í stað þess að fordæma
þá sem keppinauta. „Hvað Rússland
varðar, til dæmis, var forsetinn treg-
ur til að vísa svo mörgum njósnurum
Pútíns úr landi til að refsa Rússum
fyrir eiturárás á fyrrverandi rúss-
neskan njósnara í Bretlandi. Hann
kvartaði vikum saman yfir því að
hátt settir starfsmenn ýttu honum út
í frekari deilur við Rússa og lét í ljós
óánægju með það að Bandaríkin
héldu áfram refsiaðgerðum gegn
þeim vegna hættulegs framferðis
þeirra. En embættismenn hans í ör-
yggismálum vissu betur – grípa
þurfti til slíkra aðgerða, draga þurfti
stjórnvöld í Moskvu til ábyrgðar.“
Íhuguðu brottvikningu
Höfundurinn segir að í byrjun
kjörtímabils forsetans hafi
embættismenn stjórnarinnar „hvísl-
að“ um það hvort ástæða væri til að
nýta ákvæði í 25. viðauka stjórnar-
skrárinnar til að víkja forsetanum úr
embætti. „En enginn vildi valda
stjórnlagakreppu. Þannig að við ger-
um það sem við getum til að beina
stjórninni í rétta átt þangað til þessu
lýkur, með einum eða öðrum hætti.“
Höfundurinn segir að það sé ekki
mesta áhyggjuefnið hvað Trump hafi
gert forsetaembættinu, heldur hvað
þjóðin hafi leyft honum að gera
Bandaríkjunum. „John McCain
sagði þetta best í kveðjubréfi sínu.
Allir Bandaríkjamenn ættu að gefa
gaum að orðum hans, losa sig úr
flokkstryggðargildrunni, með það
háleita markmið að taka höndum
saman í krafti sameiginlegra gilda
okkar og ástar á föðurlandinu. Við
höfum ekki lengur John McCain. En
við höfum alltaf fordæmi hans –
leiðarstjörnu sem vísar veginn til að
endurheimta heiðurinn í opinberu
starfi og umræðunni í landinu.
Trump kann að óttast slíka heiðvirða
menn, en við ættum að bera mikla
virðingu fyrir þeim.“
„Siðblinda forsetans rót vandans“
Hátt settur embættismaður gagnrýnir framgöngu Trumps í nafnlausri grein Segir embættis-
menn reyna að hafa hemil á „verstu hneigðum“ forsetans til að verja hagsmuni þjóðarinnar
AFP
Umdeildur Donald Trump segir að væntanleg bók Bobs Woodwards byggist
á „upplognum sögum“ sem sagðar hafi verið til að blekkja almenning.
AFP
Virtur Bob Woodward er þekktastur fyrir að hafa skrifað fyrstu fréttirnar
um Watergate-málið sem leiddi til afsagnar Richards Nixons forseta 1974.
Völd tekin af
forsetanum?
» Væntanleg bók blaða-
mannsins Bobs Woodwards
byggist á viðtölum við emb-
ættismenn sem lýsa því hvern-
ig þeir hafa reynt að koma í
veg fyrir að Donald Trump for-
seti grafi undan þjóðaröryggi
Bandaríkjanna, skaði efnahag
landsins og komi af stað
stríðsátökum.
» The Washington Post segir
að í bókinni komi fram að
embættismenn hafi hrifsað
völd úr höndum forsetans.
» Í bókinni er m.a. haft eftir
James Mattis varnarmálaráð-
herra að Trump hafi skilning á
við 10 eða 11 ára gamalt barn
og John Kelly, skrifstofustjóra
Hvíta hússins, að forsetinn sé
„bjáni“. Mattis og Kelly segjast
aldrei hafa sagt þetta.