Morgunblaðið - 15.09.2018, Side 1
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Flugfélagið WOW air skuldar Isavia ohf. um tvo
milljarða króna í lendingargjöld. Af þeirri skuld
er um helmingurinn nú þegar gjaldfallinn. Þetta
herma heimildir Morgunblaðsins.
Þannig mun WOW air ekki hafa greitt lend-
ingargjöld á Keflavíkurflugvelli frá því í vor.
Samkvæmt nýbirtum árshlutareikningi Isavia
hafa innlendar viðskiptakröfur fyrirtækisins
hækkað um 1.220 milljónir króna frá áramótum.
Kröfufjárhæðin miðaðist við stöðu viðskipta hjá
fyrirtækinu fyrir tíu vikum, eða 30. júní síðast-
liðinn. Ekki liggur enn ljóst fyrir með hvaða
hætti Isavia hyggst innheimta skuld flugfélags-
ins.
Skuldabréfaútgáfa frágengin eftir helgi
Þegar Morgunblaðið leitaði viðbragða Isavia
fengust þau svör að fyrirtækið tjáði sig ekki um
málefni einstaka viðskiptavina sinna. Þegar
spurt var út í almennt verklag við úrlausn mála
þegar flugfélög lentu í vanskilum með lending-
argjöld var svarið á þá leið að „Isavia vinnur
með viðkomandi félögum að lausn mála ef upp
koma tilvik þar sem vanskil verða á lending-
argjöldum með hagsmuni Isavia að leiðarljósi.“
Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins vinn-
ur Isavia nú að útfærslu á því í samráði við
WOW air með hvaða hætti skuldin verður gerð
upp við fyrirtækið.
WOW air sendi frá sér tilkynningu um miðjan
dag í gær þar sem greint var frá því að skulda-
bréfaútgáfa að virði 50 milljóna evra yrði frá-
gengin á þriðjudaginn næsta. Ekki hafa fengist
upplýsingar um hvort fjármunir sem aflað verð-
ur með útgáfunni verði nýttir til þess að gera
upp fyrrnefnda skuld við Isavia.
Milljarðaskuld við Isavia
WOW air skuldar tvo milljarða króna í lendingargjöld á Keflavíkurflugvelli
Isavia hefur að undanförnu unnið að útfærslu afborgana í samráði við félagið
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Flug WOW air er annar stærsti viðskiptavinur flugleiðsöguþjónustu Isavia á eftir Icelandair. Félagið hefur safnað upp viðskiptaskuldum við Isavia í ár.
MSegja fjármögnun WOW tryggða »16
L A U G A R D A G U R 1 5. S E P T E M B E R 2 0 1 8
Stofnað 1913 217. tölublað 106. árgangur
NICK CAVE
HEIÐRAÐUR Í
TJARNARBÍÓI
ANDLEG VINNA
JÓGA OG 12 SPORIN 12TÓNLIST 46
Þröstur Leó Gunnarsson er á
krossgötum; eftir sjóslys sem hann
lenti í fyrir rúmum þremur árum
fer hann ekki aftur á sjó og nú hef-
ur hann sagt upp föstum leikara-
samningi við Þjóðleikhúsið. Þetta
tvennt hangir saman en kvíði sem
Þröstur hefur glímt við eftir slysið
gerir það að verkum að álagið sem
fylgir starfi leikarans á ekki lengur
við hann. Framtíðin er óráðin en
þessar vikurnar er Þröstur gesta-
kokkur á hótelinu Hlemmur Square
í Reykjavík. Ítarlega er rætt við
hann í Sunnudagsblaði Morgun-
blaðsins.
Morgunblaðið/Eggert
Kokkur Þröstur Leó Gunnarsson hefur
alla tíð haft mikið yndi af matseld.
Hættur að leika
vegna kvíða
Móðir átta ára
drengs sem
fæddist með klof-
inn góm hefur
um árabil barist
fyrir því að fá
Sjúkratrygg-
ingar Íslands til
að aðstoða við
kostnað á virkri
meðferð fyrir
drenginn. Það
hefur ekki tekist. Reglugerðar-
breyting frá árinu 2013 veldur því
að börn sem eru með klofinn góm
en ekki klofna vör fá nú ekki end-
urgreitt fyrir forréttingar sem geta
komið í veg fyrir veigamikla
kjálkaaðgerð á efri árum. Kostn-
aður þeirra er orðinn 700 þúsund
kr. og meðferð ekki lokið. Sjúkra-
tryggingar og önnur stjórnvöld
hafna beiðni um aðstoð á þeim for-
sendum að ekki sé ljóst hver tann-
vandinn verður í framtíðinni og þau
eigi að sækja um síðar. »18
Aðstoða ekki dreng
með klofinn góm
Ægir Reynt er að
breikka góminn.
Kurr er meðal rithöfunda eftir að
tilkynnt var að ríkisstjórnin hefði
lagt áform um afnám virðis-
aukaskatts á bækur til hliðar.
Stjórnin áformar þess í stað að end-
urgreiða hluta af kostnaði við út-
gáfu bóka. „Hér í húsi hugsum við
mest um hvernig eða hvort þetta
kemur rithöfundum til góða,“ segir
Ragnheiður Tryggvadóttir, fram-
kvæmdastjóri Rithöfundasambands
Íslands. „Vissulega hafa rithöf-
undar áhyggjur af stöðunni. Það
má búast við viðbrögðum héðan ef
stuðningurinn skilar sér á engan
hátt til rithöfundanna,“ segir Ragn-
heiður. »26
Rithöfundar hafa
áhyggjur af málinu Fellibylurinn Flórens veldur miklu
tjóni í Norður-Karólínuríki í Banda-
ríkjunum en hann kom að landi þar í
gærmorgun. „Við stöndum frammi
fyrir margskonar hættum. Við höfum
miklar áhyggjur af því að heilu bæj-
arfélögin kunni að eyðileggjast,“
sagði Roy Cooper ríkisstjóri í gær-
kvöldi. Hann bætti því við að rúm hálf
milljón heimila og fyrirtækja væri þá
þegar án rafmagns og að óveðrið
hefði valdið allt að þriggja metra
háum öldun á ánni Nwuse. „Björg-
unarmenn vinna við hættulegar að-
stæður sem eiga aðeins eftir að
versna.“
Yfirvöld á Filippseyjum vöruðu í
gær við því að fellibylurinn Mang-
khut gæti valdið mikilli eyðileggingu
á norðurhluta Luzon, stærstu eyju
landsins. Þúsundir manna forðuðu sé
frá heimilum sínum í kjölfarið. »24
Óttast mikið tjón
af völdum fellibylja
Viðbúnaður í tveimur heimsálfum
AFP
Aðstoð Sjálfboðaliðar hjálpa börn-
um að komast frá umflotnu heimili.
Stefnt er að því að opna nýtt gallerí
fyrir íslistaverk á Laugavegi upp úr
áramótum. Þar verður jafnframt bar
höggvinn í ís og jafnvel matsala.
Staðurinn mun heita Magic Ice
Reykjavík og tilheyra keðju slíkra
staða í Noregi og á Jómfrúaeyjum.
Norska athafnakonan Kirsten-
Marie Holmen er að baki verkefninu,
ásamt eiginmanni sínum.
Hún segist hafa fengið hugmynd-
ina þegar hún sá hversu hugfangnir
ferðamenn í Noregi voru af snjó og
ís. Sérþjálfaðir listamenn muni gera
skúlptúra sem vísa í Íslandssöguna.
Ísgalleríið verður í nýbyggingu á
Laugavegi 4-6. Uppbyggingin á sér
langan aðdraganda en hún er ein sú
umdeildasta í miðbænum í seinni tíð.
Daníel Þór Magnússon, sjóðsstjóri
hjá Kviku, segir viðræður í gangi við
fjársterka aðila um önnur leigurými í
byggingunni. baldura@mbl.is »14
Gallerí fyrir íslista-
verk á Laugavegi
Norskir fjárfestar opna frosinn bar
Ljósmynd/Magic Ice
Ísveröld Einn Magic Ice-staðanna.