Morgunblaðið - 15.09.2018, Side 2

Morgunblaðið - 15.09.2018, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 2018 MIKIÐ AÐ SJÁ OG UPPLIFA SYDNEY - BONDI BEACH - HUNTER VALLEY - BLUE MOUNTAINS - ULURU - CANBERRA - ALICE SPRINGS NÁNAR Á UU.IS 31. JAN –17. FEB ÁSTRALÍA HEIL HEIMSÁLFA BÍÐUR ÞÍN Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Funduðu um uppsögn Bjarna Más  Stjórnarformaður upplýsir ekki um efni fundarins  Ósamræmi um fjölda óviðeigandi tilvika „Ég get ekki sagt frá því sem var rætt á fundinum en hann var upplýs- andi og mjög góður,“ hefur mbl.is eft- ir Brynhildi Davíðsdóttur, stjórnar- formanni Orkuveitu Reykjavíkur (OR). Stjórn OR fundaði í gær með Bjarna Bjarnasyni, forstjóra OR, vegna uppsagnar framkvæmdastjóra dótturfyrirtækisins Orku náttúrunn- ar (ON). Bjarna Má Júlíussyni var sagt upp störfum sem framkvæmdastjóra ON á miðvikudag og sagði í tilkynningu frá ON til fjölmiðla: „starfslok fyrr- verandi framkvæmdastjóra tengjast tilvikum þar sem framkoma hans gagnvart samstarfsfólki var óviðeig- andi“. Þá var Þórður Ásmundsson ráðinn til bráðabirgða í starfið og mun það verða auglýst á næstunni. Fullt traust? Forstjóri OR og fyrrverandi fram- kvæmdastjóri ON segja að um eitt atvik hafi verið að ræða, en Einar Bárðarson birti á miðvikudag færslu á Facebook-síðu sinni en hún gefur í skyn að um fleiri en eitt atvik hafi verið að ræða og að í kjölfarið á kvörtunum hafi eiginkona hans verið rekin. Brynhildur hefur sagt stjórn OR bera fullt traust til forstjórans. Hún sagði einnig stjórnina telja að við- brögð vegna málsins hefðu verið rétt. Hildur Björnsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins og stjórnarmað- ur í OR, sagði hins vegar á Facebook- síðu sinni: „Þetta var eingöngu haft eftir stjórnarformanni í viðtali og mér brá svolítið við ummælin. Við Björn Gíslason [borgarfulltrúi Sjálf- stæðisflokksins] sátum fundinn og teljum algjörlega ótímabært að lýsa yfir neinum slíkum stuðningi enda málið ekki til lykta leitt.“ Spurningum ósvarað Þá segir hún einnig að henni „þyki rétt að árétta að ýmsum spurningum er enn ósvarað og málinu því ekki lokið“. Hún tengdi málið frásögnum vegna #Metoo og væri það litið alvar- legum augum. Þá bætir hún við að henni þyki rétt í framhaldinu að „vinnustaðamenn- ing samstæðunnar verði skoðuð svo sambærileg hegðun geti ekki endur- tekið sig“. ON er dótturfélag OR sem tók við framleiðslu og sölu á rafmagni OR 2014. Í því felst meðal annars rekstur á jarðgufuvirkjunum á Hellisheiði og Nesjavöllum ásamt vatnsaflsvirkjun í Andakílsá í Borgarfirði. Hjá fyrirtækinu starfa um 60 ein- staklingar og hefur fyrirtækið síð- ustu ár haft forystu um uppbyggingu innviða fyrir rafvæðingu samgangna. Reynt var árangurslaust að hafa samband við Þórð Ásmundsson við vinnslu fréttarinnar. gso@mbl.is Brynhildur Davíðsdóttir Þórður Ásmundsson Skortur á búsetuúrræðum fyrir fólk sem glímir við geðraskanir og fíkn er gríðarlega alvarlegt vanda- mál en geðsvið Landspítalans hef- ur þurft að útskrifa fólk beint á götuna og er þá meðferðin oft unn- in fyrir gýg. 36 lyfjatengd andlát á þessu ári eru til skoðunar hjá Embætti land- læknis. Þetta eru 25 karlar og 11 konur. Meðalaldur þeirra er tæp 47 ár. Af þeim sem hafa látist með þessum hætti eru 11 einstaklingar yngri en 35 ára. Forsvarsfólk fíknigeðdeildar Landspítalans telur að heildar- fjöldi rúma á innlagnardeildum fyrir fólk með fíknisjúkdóma, hvort sem fólk er með geðsjúk- dóma eða ekki, anni ekki eftir- spurn. Kókaínfaraldur hefur geisað hér á landi í á annað ár, sem hefur aukið mjög á álagið þar sem fólk leitar í auknum mæli á fíknigeð- deildina í örvæntingu sinni. Sumir eru með alvarleg og lífshættuleg einkenni, svo sem sjálfsvígshugs- anir. Þetta er meðal þess sem kemur fram í greinaflokknum Gætt að geðheilbrigði sem hefur göngu sína á mbl.is í dag og er í umsjá Guðrúnar Hálfdánardóttur blaða- manns. Greinarnar munu birtast núna um helgina og næstu helgi. Greinaflokkurinn Gætt að geðheilbrigði á mbl.is  Lyfjatengd andlát 25 karla og 11 kvenna eru til skoðunar Morgunblaðið/Hari Geðsvið Skortur er á úrræðum fyr- ir fólk með geðraskanir og fíkn. Ríkissjóður hefur veitt Íslandspósti 500 milljóna króna lán til allt að 12 mánaða til að styrkja lausa- fjárstöðu félagsins. Lánið er veitt með fyrirvara um heim- ild í fjáraukalög- um, að því er fram kemur á vef stjórnarráðsins. Íslandspóstur er að fullu í eigu rík- isins og hefur félagið rekstrarleyfi frá Póst- og fjarskiptastofnun sem kveð- ur á um að það skuli gegna skyldum ríkisins samkvæmt lögum um póst- þjónustu. Í því felst meðal annars að það fer með einkarétt ríkisins til að sinna póstþjónustu, það er að segja póstsendingum bréfa, og sinnir al- þjónustu fyrir hönd ríkisins til að tryggja öllum landsmönnum aðgang að póstþjónustu. Með lánveitingunni tryggir ríkið tímabundið möguleika félagsins til að standa undir þessum skyldum, segir á vef stjórnarráðsins. Vandinn felst í því að bréfasend- ingum hefur farið ört fækkandi og tekjur af þeim dregist saman en kostnaður vaxið vegna fjölgunar íbúða og fyrirtækja. Auknar tekjur vegna fjölgunar pakkasendinga vegna vaxandi netverslunar hafa ekki dugað til að vega það upp. Ríkið veitir Íslands- pósti lán  Tap af alþjónustu vegna færri bréfa Útburður Hjólað með póstinn. Rakel Ósk Einarsdóttir aðstoðar Einar Örn Reynisson við að koma bíl Reynis sterka upp á sýningarpall vegna 35 ára afmælissýningar Ferðaklúbbsins 4x4 sem haldin er um þessa helgi í Fífunni í Kópavogi. Þetta er ellefta sýning klúbbsins, en sú fyrsta fór fram árið 1985 í porti Austurbæjar- skóla í Reykjavík. Á sýningunni er hægt að berja bíla og tæki félagsmanna Ferðaklúbbsins 4x4 augum. Þá er meðal annars lögð áhersla á að gera sýninguna fyrir fjölskyldur og fá börn yngri en 14 ára aðgang að henni endurgjaldslaust, að sögn skipuleggjenda, og er markmiðið að gera betur en á fyrri sýningum klúbbsins. Trukkum og tækjum komið fyrir í Fífunni Morgunblaðið/Eggert 35 ára afmælissýning Ferðaklúbbsins 4x4

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.