Morgunblaðið - 15.09.2018, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 15.09.2018, Blaðsíða 43
bolta, einkum enska boltanum, og er Manchester United-maður af lífi og sál. Auk þess hefur hann lengi haft gaman af stangveiði og er hugfanginn af tengslum Íslands og Skotlands og sögu og örlögum íslensku vesturfar- anna til Kanada. Fjölskylda Eiginkona Róberts er Sigrún Jóna Baldursdóttir, f. 3.4. 1951, sjúkraliði, fótaaðgerðafræðingur, húsfreyja og forstjóri Geitafells og „drottning Ró- berts glæstu vona“ eins og hann kemst að orði. Foreldrar hennar voru Baldur Ásgeirsson, f. 17.10. 1914, d. 19.10. 2003, leirkera- og mótasmiður, og k.h., Þóra H. Helgadóttir, f. 25.11. 1920, d. 25.6. 1992. Börn Róberts og Sigrúnar Jónu eru: 1) Vigdís Linda Jack, f. 13.1. 1970, BA í spænsku og íslensku, sjúkraliði og kennari í Hafnarfirði, gift Björgvini Ibsen Helgasyni og eru börnin Sigrún Ruth Lopez Jack, f. 1993, og Róbert Alejandro Lopez Jack, f. 1997; 2) Baldur Þór Jack, f. 31.10. 1976, rafvirkjameistari og raf- iðnfræðingur í Reykjavík, en sam- býliskona hans er Kolbrún Lís Við- arsdóttir og eru synir þeirra Birkir Hrafn Jack, f. 2012, og Bjarni Þór Jack, f. 2016; 3) Heiða Hrund Jack, f. 5.11. 1978, landslagsarkitekt í Reykjavík, en synir hennar eru Snæ- björn Helgi Arnarson, f. 1996, og Arnþór Bjartur Andrason, f. 2001. Alsystkini Róberts: Davíð Wallis Jack, f. 25.6. 1945, d. 30.6. 2017, flug- virki í Garðabæ; María Lovísa Jack, f. 28.8. 1946, húsfreyja í Svíþjóð; Pétur William Jack, f. 21.12. 1950, d. 31.10. 1983, bifvélavirki í Stykkishólmi. Hálfsystkini Róbert, samfeðra: Ella Kristín Jack, f. 14.6. 1954, hjúkr- unarfræðingur í Noregi; Anna J. Jack, f. 25.7. 1958, kennari í Reykja- vík; Jónína Guðrún Jack, f. 3.3. 1960, lögreglumaður í Reykjavík; Sigurður Tómas Jack, f. 12.9. 1963, markaðs- fræðingur í Reykjavík, og Sigurlína Berglind Jack, f. 2.2. 1965, kennari í Reykjavík. Hálfsystir Róberts, sammæðra: Hildur Eggertsdóttir, f. 24.11. 1930, d. 28.4. 1988, bóndi í Tjaldanesi. Uppeldisbróðir Róberts var Er- lingur Jóhannes Ólafsson, f. 20.4. 1950, d. 12.8. 1967, nemi. Foreldrar Róberts voru séra Ró- bert Jack, f. 5.8. 1913, d. 11.2. 1990, knattspyrnuþjálfari, sóknarprestur og prófastur, og f.k.h., Sigurlína Guð- jónsdóttir, f. 15.2. 1908, d. 2.3. 1952, húsfreyja. Stjúpmóðir Róberts og seinni kona sr. Roberts er Guðmunda Vigdís Jack, f. 24.3. 1929, húsfreyja, bóndi og margra barna móðir, nú búsett í Kópavogi. Á þjóðlegum nótum Sigrún í ís- lenskum búningi, Róbert í skoskum. Róbert Jón Jack Hildur Guðbrandsdóttir húsfreyja á Hrófá og í Hafnarhólmi Þórólfur Magnússon b. á Hrófá í Steingrímsfirði Ingibjörg Þórólfsdóttir húsfreyja í Sundal og á Fossi Guðjón Sigurðsson b. í Sundal og á Fossi í Saurbæ í Dölum Sigurlína Guðjónsdóttir húsfreyja í Kópavogi Sigríður Magnúsdóttir húsfreyja í Bæ Sigurður Guðmundsson b. í Bæ í Króksfirði Steinólfur Lárusson b. í Ytri-Fagradal Halla Sigríður Steinólfsdóttir b. í Ytri-Fagradal Sigríður Guðjónsdóttir húsfreyja í Ytri-Fagradal á Skarðsströnd Sigurður Þórólfsson búfr. og fv. oddviti í Innri- Fagradal og form. Búnaðarsambands Dalamanna Þórólfur Sigurðsson fram- kvæmdastjóri Rekstrarfélags Virðingar Ingibjörg órólfsdóttir úsfreyja og Rotary í Rvík Þ h Þórólfur Halldórsson sýslum. í Rvík Þórólfur Guðjónsson b. í Innri- Fagradal Magnús Guðjónsson b. á Innra-Ósi á Ströndum Loftur Magnússon augnlæknir á Akureyri Þórólfur Magnússon flugmaður Bergsveinn Birgisson rithöfundur í Noregi Ingibjörg Magnea Magnúsdóttir húsfreyja í Rvík Christine Vennard f.Walles, húsfreyja í Glasgow Thomas Vennard skrifstofum. í Glasgow, af írskumættum Maria Lovisa Jack f.Vennard lyfjafræðingur í Bearsden Robert Jack byggingameistari í Bearsden í Skotlandi Maria Jack f.Black, húsfreyja í Glasgow John Jack járnsmiður í Glasgow í Skotlandi Úr frændgarði Róberts Jóns Jack Róbert John Jack fyrst knattspyrnuþjálfari og síðar prófastur á Tjörn á Vatnsnesi og prestur í Kópavogi ÍSLENDINGAR 43 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 2018 ÚRVAL AF GÓÐUM S ÆRUM Laugavegi 29 | sími 552 4320 | www.brynja.is | verslun@brynja.is Brýnum skæri og hnífa Opið virka daga frá 9- 18 lau fr á 10-1 6 A kr. 3.980 lhliða skæri Vinstri andar skæri kr. 3.980 h Þynningarskæri kr. 6.480 Hárskæri kr. 4.980 Bróder Kr. 2 skæri .460 Storka Kr. 3 skæri .960 kæri Stærðir 8“-12“ Verð kr. 5.170 - 8.180 kr. Klæðskeras Ný vefverslunbrynja.is skæri í úrvali Kl V æðskeraskæri erð kr. 4.690Sigurður Sigurðsson fæddist íKaupmannahöfn 15.9. 1879,sonur Sigurðar Sigurðssonar, kennara við Lærða skólann, og Floru Concordiu Jensen frá Hróars- keldu. Sigurður kom sex ára til Íslands en faðir hans hafði drukknað er Sig- urður var fimm ára. Eftir það ólst hann upp hjá skólamanninum Birni M. Olsen, rektor Lærða skólans og síðar fyrsta rektor Háskóla Íslands. Sigurður var við nám í Lærða skólanum en hætti í sjötta bekk og lærði síðan lyfjafræði í Kaupmanna- höfn. Hann var aðstoðarlyfjafræð- ingur í Kaupmannahöfn og í Reykja- víkur Apóteki og sýsluskrifari í Arnarholti á Mýrum á árunum 1907- 13 og kenndi sig síðan við þann stað. Sigurður stofnaði og var fyrsti lyf- sali Vestmannaeyja Apóteks 1913- 31. Hann bjó í húsi við Vest- mannabraut í Eyjum sem hann nefndi Arnarholt, var atkvæðamikill í ýmsum félags- og þjóðþrifamálum í Eyjum, var t.d. stofnandi Björg- unarfélagsins í Vestmannaeyjum, stóð fyrir kaupum á björgunar- og varðskipinu Þór fyrir hönd félagsins og fór þá sjálfur utan að ganga frá kaupunum, en skipið varð fyrsta varðskip Íslendinga. Hann var auk þess formaður ekknasjóðs og kom upp sjóminjasafni í Vestmannayjum svo það helsta sé nefnt.. Sigurður var nýrómantiskt skáld. Hann gaf út ljóðabókina Tvístirnið, ásamt Jónasi Guðlaugssyni 1906; Ljóð, 1912, endurprentuð og aukin 1924 og aftur 1933, og Síðustu ljóð, 1939. Ljóðasafn hans kom út 1978. Þá birtist úrval ljóða hans í ágætri bók Hannesar Péturssonar, Fjögur ljóðskáld, um Sigurð, Jónas Guð- laugsson, Jóhann Sigurjónsson og Jóhann Gunnar Sigurðsson, útg. 1957. Þekktasta ljóð Sigurðar er án efa ljóðið Í dag, sem mikið hefur ver- ið sungið við einsöngslag Sigfúsar Halldórssonar. Frá Vestmannaeyjum flutti Sig- urður til Reykjavíkur árið 1931 og var þar síðan búsettur. Sigurður lést 4.8. 1939. Merkir Íslendingar Sigurður Sigurðsson Laugardagur 90 ára Sumarrós Garðarsdóttir Svanhildur Björnsdóttir 85 ára Svala Magnúsdóttir 80 ára Katrín Ingvarsdóttir Kjartan Bergsteinsson Sigurður Tryggvi Konráðsson 75 ára Friðrik Rafn Kristjánsson Guðrún Pálsdóttir Hafdís Sigurðardóttir Jón Þór Sigurðsson Sigurður Ingimarsson Theodór Aðalsteinn Guðmundsson 70 ára Bragi B. Steingrímsson Bragi Jens Sigurvinsson Guðrún Sigurborg Viggósdóttir Róbert Jón Jack Sigurður Sigurðsson 60 ára Áslaug Pálsdóttir Ásmundur Þórir Ólafsson Bára Jónsdóttir Guðmundur Gíslason Guðmundur Stefánsson Halldór Jón Theódórsson Haukur Kristinn Eyjólfsson Heiðrún Rósa Sverrisdóttir María Magnúsa Benónýsdóttir Ryszard Kazimierz Krecidlo Steinunn Pálsdóttir Zdzislawa Kopczewska 50 ára Anna Björk Magnúsdóttir Anna Margrét Sveinsdóttir Arnar Geir Kortsson Halldór Jón Jóhannesson Hulda Guðmundsdóttir Höskuldur Steinarsson Jón Viðar Magnússon Liutauras Karaliunas Malgorzata Krymska Viktor Pálsson 40 ára Björn Guðmundsson Guðrún Finnborg Þórðardóttir Halldór Steinsson Hildur Símonardóttir Ívar Björnsson Jenný Hildur Clausen Jóhanna Sesselja Erludóttir Jóhann Jónsson Kristín Guðmundsdóttir Piotr Krzysztof Szemraj Sævar Líndal Helgason Tadeusz Krzystof Rodaszewski Þorsteinn Hannesson 30 ára Andrés Pétur Guðfinnsson Arnar Karlsson Catalin-Mihai Chelbea Dagný Rós Stefánsdóttir Eiríkur Þórir Baldursson Fannar Dúi Ásbjörnsson Fanney Davíðsdóttir Ireti Akinroyeje Jonas Westmark Kjartan Fannar Kjartansson Magndís Blöndahl Halldórsdóttir Mia Pauliina Pellikka Sandri Freyr Gylfason Sigríður K. Hrannardóttir Steinunn Baldursdóttir Tara Jonsson Venu Gopal Reddy Patlolla Wentzel S.R. Kamban Sunnudagur 90 ára Hanna Marta Vigfúsdóttir 85 ára Bjarni Ólafsson Valgerður Sigurðardóttir 80 ára Bjarni Magnússon Gunnar B. Mattason Helga Pálsdóttir Ólafur Guðjónsson 75 ára Brynja Hlíðar Gunnlaug Helga Jónsdóttir Jónína Guðnadóttir Laufey Bjarnadóttir Sigurdís Sveinsdóttir Sigurður Valgarður Bjarnason 70 ára Erlendur Magnússon Guðrún Guðnadóttir María Olafson Ómar Kristjánsson Rósa Kristín Þórisdóttir Svanhvít Hrönn Ingibergsdóttir 60 ára Guðbjörg Leifsdóttir Jadwiga S. Lomotowska Sigríður Lovísa Gestsdóttir Sigríður Sigurðardóttir Þóra Davíðsdóttir Örn Steinar Sverrisson 50 ára Brad Alexander Egan Elise Sara Olsen Helga Björg Dagbjartsdóttir Lára Björgvinsdóttir Margrét Einarsdóttir Margrét Guðmundsdóttir Shabana Zaman 40 ára Alexey Matveev Anna Maria Makowska Arnar Geir Níelsson Árni Ingvar Bjarnason Baldur Smári Ólafsson Elfa Lind Berudóttir Fernando B. Munoz Guðrún Ágústa Önnudóttir Guðrún Finnbogadóttir Guðrún Hinriksdóttir Helgi Indriðason Jóhann Ragnar Júlíusson Kamila Klak Linda Björk Hölludóttir Oddný S. Kristjánsdóttir Pedro M. Da Cunha Hipólito Ragnar S. Þorsteinsson 30 ára Aron Valur Þorsteinsson Árni Freyr Ársælsson Berglind Rós Gunnarsdóttir Birkir Marinósson Björgvin S. Björgvinsson Cezary Gotkiewicz Davíð Blöndal Þorgeirsson Dawid Pierzchala Dániel Szucs Eydís Eva Ólafsdóttir Fróði Frímann Kristjánsson Geir Þórir Valgeirsson Heiða M. Jóhannsdóttir Heiðar Smith Jóhanna Sif Jóhannsdóttir Kristinn Lýður Vigfússon Kristján Örn Kristjánsson Marc Daniel S. Volhardt Margrét H. Gunnarsdóttir Sandra Bjarnadóttir Skarphéðinn Þórðarson Sólveig Heiða Foss Thelma Rut Egilsdóttir Vytautas Merkelis Til hamingju með daginn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.