Morgunblaðið - 15.09.2018, Side 39

Morgunblaðið - 15.09.2018, Side 39
af henni Svövu þarna uppi í Borgarfirðinum og eiga þar vin- um að mæta. Að leiðarlokum þökkum við fyrir samfylgdina, minnumst margra ánægjustunda og varð- veitum hugljúfa minningu um ein- staka eðalkonu. Við vottum Pétri og fjölskyld- unni okkar dýpstu samúð. Fyrir hönd bekkjarsystkina III-bekk RHS 1965-1966, Hjalti Þórisson og Kristjana Leifsdóttir. Þegar ég var unglingur eign- aðist ég pennavinkonu, eins og al- gengt var í þá daga. Þessi vinkona mín var Svava Sjöfn, sem bjó í Skagafirði. Þessi bréfaskrif hættu svo að einhverjum tíma liðnum og við týndum hvor ann- arri. Haustið 1967 fór ég á Hús- mæðraskólann að Varmalandi. Þegar við höfðum komið okkur fyrir var komið að því að við allar tilvonandi skólasysturnar áttum að kynna okkur lítillega. Nema hvað við hlið mér situr þá ung stúlka að nafni Svava Sjöfn, við urðum báðar jafn undrandi að hittast þarna. Við skólasysturnar allar áttum svo frábæran vetur á Varmalandi og kynni okkar hafa alla tíð síðan verið góð og traust. Við höfum á nokkurra ára fresti efnt til hittings víða um land, í heimabyggð hver annarrar. Það eru ógleymanlegar helgar, vel tekið á móti okkur og margt skrafað og margs að minnast. Við höfum í gegnum þessar samveru- stundir fylgst lítillega með lífs- hlaupi hver annarrar og lífið hennar Svövu okkar var enginn dans á rósum, eftir að veikindin fóru að gera meira vart við sig. En hún átti góðan eiginmann og það var mannbætandi að fylgjast með því hversu mikla umhyggju hann Pétur bar fyrir Svövu sinni. Síð- astliðið vor, þegar við fögnuðum 50 ára útskrift frá Varmalandi, komum við saman á Hvanneyri, á fallegu heimili Svövu og Péturs. Það var yndisleg helgi eins og all- ar hinar og gott að eiga þessa samverustund núna í minning- unni. Svava hafði þá nýlega greinst með krabbamein á háu stigi, en að okkar mannanna áliti hafði nóg verið lagt á elsku Svövu áður, að vera með MS stóran hluta ævinnar. Svava skólasystir mín er fallin frá langt um aldur fram. Ég votta Pétri og fjölskyldunni dýpstu samúð okkar hjóna. Góður Guð styrki ykkur í soginni og blessi minninguna um yndislega konu. Jórunn Eggertsdóttir. Í dag kveð ég vinkonu til ára- tuga, Svövu Sjöfn Kristjánsdótt- ur heimasætu úr Skagafirði. Svava kom ung stúlka til náms á Varmalandi. Þá kynntist hún Pétri Jónssyni, borgfirskum bóndasyni, og framtíðin var ráðin. Saman leiddust þau alla tíð síðan. Svava var glæsilegur einstak- lingur, vel gerð til orð og æðis og maður þurfti ekki mikla viðkynn- ingu til að skynja að hún vildi öll- um vel. Lagði sitt til samfélags- ins, kom víða við, sat í sveitarstjórn og var umhugað um landið sitt, sveitina sína og sitt nánasta umhverfi. Svava var ljúflingur heim að sækja, hún og Pétur áttu fallegt heimili á Hvanneyri, þar sem gaman var að koma, drekka kaffi, gleðjast og skiptast á skoðunum. Svava var fjölskyldumann- eskja fram í fingurgóma, hélt vel utan um sitt fólk og undir það síð- asta var hún svo heppin að öll börnin voru flutt að Hvanneyri. Maður fann að Svövu var annt um sína, jafnt í blíðu sem stríðu. Stóð í stafni þegar gaf á bátinn en lét aðra um ljósið þegar betur áraði. Það lýsti Svövu vel, hún þurfti ekki utanaðkomandi upphefð en uppskar ríka virðingu þeirra sem hana þekktu. Samskipti okkar Svövu sneru ekki minnst að samfélagsmálum. Hún var alltaf tilbúin að gefa ráð og ræða málin. Kannski ekki allt- af sammála um öll mál en höfðum sömu sýn. Ég hitti Svövu í síðasta fáum dögum fyrir andlátið. Hún var þrotin kröftum en hélt reisn sinni þar sem hún lá í rúmi sínu og ræddi við mig. Við ræddum ekki veikindi heldur góðar stundir. Hestaferðir, samkomur og lífið. Gott ef við komum ekki við í Skagafirði. Þremur dögum síðar hélt hún í sína hinstu ferð í þessu jarðneska lífi. Eiginmanni Svövu, Pétri Jóns- syni, og allri fjölskyldunni votta ég mína dýpstu samúð og vona og trúi að góður Guð muni halda verndarhendi sinni yfir þeim. Sveinbjörn Eyjólfsson. Það er húmdökkt haustkvöld og litbrigði náttúrunnar minna á vetrardvalann. Lífsljós náinnar vinkonu og samferðakonu er slokknað. Minningin um síðustu heimsóknina sækir á hugann, skuggaský sorgar og saknaðar. Þó að okkur hafi verið ljóst að hinn illvígi sjúkdómur sem Svava hafði barist við af miklum hetju- skap um nokkurt skeið gæti haft sigur kemur hið endanlega boð ávallt illa við og snertir sáran streng. Kynni okkar hófust þegar þau Pétur fluttu hingað að Hvanneyri frá Danmörku árið 1973 og við höfum átt samleið í leik og starfi æ síðan. Í starfi við Bændaskól- ann og síðar Landbúnaðarháskól- ann við margvísleg verkefni. Í samstarfi við fyrirtæki þeirra Péturs við uppbyggingu staðar- ins. Á vettvangi sveitarstjórnar og margvíslegra samfélagslegra verkefna. Á þetta samstarf, sem var mikið og náið, bar aldrei skugga og lagði það grunn að traustum vináttuböndum langra samvista. Þá vorum við með í að stofna þjóðdanshóp til að sýna þjóðdansa á landsmóti UMFÍ árið 1975 og áttum þar síðan ánægju- og gleðistundir um áraraðir. Þau Pétur og Svava voru í hópi þess unga fólks sem á sínum tíma kaus að setjast að og byggja eigið húsnæði hér á Hvanneyri, sem áður hafði einungis þjónað sem samastaður nemenda og starfs- manna skólans. Þetta frumkvæði myndaði grunninn að því sam- félagi sem nú blómstrar hér. Þau hafa allan tímann borið hag stað- arins fyrir brjósti og verið mjög virk í að efla og styrkja samfélag- ið. Fyrirtæki þeirra hafði for- göngu um að byggja húsnæði til þess að skapa fólki möguleika á að setjast hér að. Svava var hamingjusöm í einkalífi sínu og voru þau Pétur eitt í öllu því sem þau tóku sér fyr- ir hendur í smáu og stóru. Sam- hent í gleði og sorg og sífellt gef- andi af sér og miðlandi til þeirra sem áttu samleið á vegferð lífsins. Rausn og myndarskapur í öllum þeirra verkum hvort sem var í leik eða starfi og framtíðin blasti við björt og farsæl. Það var því mikið áfall þegar hún greindist með MS-sjúkdóm í blóma lífsins, alvarlegan sjúkdóm sem einungis myndi unnt að halda í skefjum en bati ekki í sjónmáli. Hún lét það þó ekki á sig fá og sýndi alla tíð mikið æðruleysi og vakti oft undrun og aðdáun fyrir það hversu miklu hún fékk áorkað og gefið af sér í þeirri glímu sem hún háði löngum og löngum. En þá kom annað áfall, illvígur sjúk- dómur og fyrir lá barátta sem far- ið gat á alla vegu, en aldrei lét hún bilbug á sér finna og lífsgleðin og viljinn réði för til hinstu stundar. Hún sem með lífi sínu veitti svo mörgum, svo mikið og gaf af sér til samfélagsins okkar hér á Hvanneyri er horfin okkur, héðan í frá lifir minningin ein. Í dag er hún borin til hinstu hvílu, ævisól hennar hnigin til viðar og bjarmar af nýjum degi hins eilífa lífs í kær- leiksríkum náðarfaðmi hins al- góða Guðs. Við minnumst hennar með virðingu og söknuði í huga. Kæri Pétur, börn og fjölskyld- an öll, við sendum ykkur innilegar samúðarkveðjur á sorgarstund. Megi algóður Guð vera þér og fjölskyldunni styrkur á erfiðri stund. Blessuð sé minning Svövu Sjafnar Kristjánsdóttur. Magnús, Steinunn og fjölskylda, Hvanneyri. Það var fyrir nokkrum áratug- um að leiðir okkar Svövu og Pét- urs lágu saman á Hvanneyri. Þau voru þá af miklum dugnaði að reisa sér íbúðarhús. Nokkru síðar höguðu örlögin því þannig til að við fluttumst í hús handan við göt- una þar sem þau bjuggu. Það kom því einhvern veginn af sjálfu sér að samgangur og einlæg vinátta milli okkar fjölskyldna var mikil, sem var sonum okkar mikils virði. Fyrir það viljum við á þessum tímamótum færa sérstakar þakk- ir. En við vorum greinilega ekki þau einu sem nutu hlýleika þeirra og góðsemi því oftar en ekki þeg- ar okkur var litið yfir til þeirra voru gestir í heimsókn og greini- legt að þau voru einstaklega vina- mörg. Það segir meira en mörg orð um trygglyndi Svövu við ætt- ingja og vini. Það var svo nokkrum árum síð- ar, eiginlega fyrir tilviljun, að nokkur pör á Hvanneyri fóru að æfa og sýna íslenska þjóðdansa og þar voru Svava og Pétur með. Í fyrstu voru þessar æfingar og sýningar nokkuð tilviljanakennd- ar. Síðar, árið 1995, var þessi hóp- ur stofnaður með formlegum hætti og starfar enn, þar voru Svava og Pétur meðal okkar áhugasömustu félaga. Þau voru bæði afar félagslynd og frábærir félagar á svo marga vegu. Þau voru ávallt tilbúin að leggja gott til málanna. Við áttum því margar samverustundir, sem ávallt ein- kenndust af glaðværð og vináttu. Fyrir þessar frábæru stundir vilj- um við færa innilegustu þakkir um leið og við sendum Pétri og fjölskyldunni samúðarkveðjur. Grétar og Hafdís. Svava var mjög mikil vinkona okkar hjóna til tæplega fjörutíu ára. Við kynntumst henni og Pétri fljótlega eftir að við fluttum að Hvanneyri, þá voru báðar fjöl- skyldurnar að hasla sér völl í vinnu og að koma upp fjölskyldu. Allir á fullu í mikilli vinnu. Áhuga- málin og viðhorf til lífsins voru svipuð. Eitt einkenndi þó alltaf Svövu Sjöfn umfram okkur hin, en það var þetta skagfirska blóð sem hún bar. Hún var alla tíð mik- ill Skagfirðingur í hjarta og sál, en hún var fædd og uppalin á Ós- landi í Óslandshlíð. Svava var gullfalleg stúlka, en þrátt fyrir sinn skagfirska uppruna var hún ekki söngvin. Í Skagafirði átti hún mikinn frændgarð, sem hún heimsótti reglulega. Einn dýr- mætan eiginleika hafði hún úr heimagarði, en það var mikil vandvirkni. Hún hafði einstaklega fallega rithönd, sem hún sagði að pabbi sinn hefði kennt sér og meðal annars var fjallskilaseðill Andakílshrepps handskrifaður af henni til margra ára. Hennar helsta áhugamál var fólk og mannlíf. Hún starfaði til margra ára á skrifstofu Bænda- skólans á Hvanneyri, síðar Land- búnaðarháskóla Íslands og kynntist því fjölda ungs fólks sem kom til skólavistar. Hún var eins og uppflettirit varðandi marga nemendur skól- ans. Við fjölskyldurnar áttum sameiginlegt áhugamál, sem við deildum árum saman, en það var hestamennska. Við byggðum saman hesthús á Hvanneyri í Le- golandi. Við riðum út saman í Andakílnum og fórum í hestaferð- ir á sumrin vítt og breitt um land- ið, ásamt fleiri vinum. Svava var alltaf vel ríðandi og reið sínum hestum af kvenlegri hógværð og hafði milda stjórn á okkur körl- unum ef henni fannst við fara yfir strikið á einhvern hátt. Við Pétur reyndum að haga þannig málum á ferðum okkar að eiginkonur okk- ar væru vel ríðandi, helst á fal- legum, viljugum og þjálum hest- um, sem leiddi óneitanlega til þess að við vorum sjálfir inni á milli kannski ekki á truntum, en hest- um sem létu kannski ekki alveg að stjórn eða sýndu ganglag sem hæfði ekki hverjum sem er, svo vægt sé til orða tekið. Hestakost- ur okkar var einfaldlega ekki nægur á þessum árum til lengri ferða. Eitt sinn á ferð í kringum Langjökul bjargaði Svava okkur frá hungurdauða, sögðum við. Við riðum frá Skammá, austur með Réttarvatni í áttina að Áfanga- tjörn þegar skall á niðdimm þoka. Við fundum samt skálann, en svo var ekki með trússbílinn, hann lenti í ógöngum og hittum við hann ekki fyrr en kvöldið eftir á Hveravöllum. En Svava hafði ver- ið svo fyrirhyggjusöm þar sem við áðum við Skammá að taka með brauð og epli, sem við lifðum á í reiðinni yfir Krák að Hveravöll- um. Svava var betri en engin þeg- ar kom að matseld, enda menntuð frá Húsmæðraskólanum á Varmalandi í Borgarfirði, en frá þeim tíma átti hún góðar vin- konur. Það er mikil sorg að sjá á eftir góðri vinkonu en missir Péturs og fjölskyldu er enn meiri, en fátt er eins erfitt og að sjá eftir yndis- legri eiginkonu, þegar tími meiri samveru er fram undan eftir að striti hins daglega amsturs lýkur. Við sendum allri fjölskyldunni okkar bestu samúðarkveðjur. Gunnar Örn og Elísabet á Hvanneyri. Það er svo einkennilegt og ótrúlegt að vera að skrifa minn- ingargrein um hana Svövu. Alltaf finnst manni að það sé nægur tími og alltaf ætlar maður að fara að hittast. Svo allt í einu er það orðið of seint og ekkert nema minning- ar eftir. En sem betur fer eru þær margar og góðar. Þegar við fjöl- skyldan fluttum að Hvanneyri tók hún á móti okkur með sínu fallega brosi, bláu augum og léttu lund. Þau Pétur vildu allt gera til að auðvelda okkur að aðlagast í nýju samfélagi. Og það átti ekki bara við um okkur. Þau voru einhvern veginn félagslegur kjarni í þessu litla samfélagi sem Hvanneyri var, hjálpleg, ljúf og skemmtileg. Svava var líka potturinn og pann- an í félagsmálum staðarins, hjart- að í kvenfélaginu, virk í ung- mennafélaginu og var í hreppsnefnd. Hún bar hag sam- félagsins fyrir brjósti og var yfir- leitt áhugasamari um líðan vina sinna og fjölskyldu en sína eigin. Þegar ég forðum daga var að skrifa lokaritgerð í kennaranámi leyfði hún mér að skrifa hana á heimilistölvuna sína, þar sem ég átti enga. Ég kunni varla fingra- setningu en kom kvöld eftir kvöld og hamraði á tölvuna hennar. Hún leiðbeindi mér af ljúfmennsku sinni, lagaði skrifin til eftir á og kom plagginu í læsilegt horf. Þannig kenndi hún mér að setja upp texta á læsilegan og aðgengi- legan hátt. Það eru svo margar fleiri minningar sem leita á hug- ann. Hestaferðir, matarboð, ferð- ir með börnunum, glaðar og góðar stundir með kærum vinum. Eða laufabrauðsgerðin. Þar var hún leiðtoginn, svo flink og kunni allt svo vel. Kenndi mér að fletja út næfurþunnar kökur og steikja svo upp úr sjóðheitri feitinni sem ég hafði áður verið svo hrædd við. Við vorum yfirleitt nokkrar sam- an og mikið fjör og mikið steikt. Krakkarnir og eiginmennirnir skáru út og svo var borðað saman á eftir. Allt svo yndislegar og skemmtilegar stundir sem nú eru ljúfar minningar sem gott er að eiga og rifja upp. Við Siggi minn- umst Svövu vinkonu okkar með miklum söknuði. Hjartans samúðarkveður send- um við fjölskyldan til ykkar kæri Pétur, Ómar og Íris, Kristján og Anna, Kristín og Öyvind og börn. Ólöf og Sigurður. MINNINGAR 39 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 2018 Sendum okkar innilegustu þakkir til ættingja og vina fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, KRISTÍNAR PÁLSDÓTTUR frá Hjarðarbóli, Eyrarsveit. Sérstakar þakkir sendum við starfsmönnum á Kríulundi, Hjúkrunarheimili Hrafnistu í Boðaþingi, fyrir einstaka hlýju og umhyggju. Pálmar Einarsson Elín Snorradóttir Sigríður Einarsdóttir Hallbjörn Þorbjörnsson Jakobína H. Einarsdóttir Guðlaugur Einarsson Sædís Einarsdóttir Magnús Jónasson Svandís Einarsdóttir Kristján J. Kristjánsson Svava Einarsdóttir Birgir Sigurðsson barnabörn og barnabarnabörn Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, BÓELAR ÁGÚSTSDÓTTUR frá Svanavatni. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Dvalarheimilisins Lundar á Hellu fyrir góða umönnun og umhyggju. Viðar Marmundsson Aðalheiður Viðarsdóttir Ottó Ólafur Gunnarsson Bjarki Viðarsson Sigurbjörg Leifsdóttir Guðbjörg Viðarsdóttir Jón G. Valgeirsson ömmubörn og langömmubörn Við þökkum auðsýnda samúð og vinarhug vegna andláts og útfarar SVÖVU SVEINSÍNU SVEINBJÖRNSDÓTTUR frá Hnausum í Þingi, Fellsmúla 2, Reykjavík. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Heimaþjónustu Reykjavíkurborgar og Viðeyjarstofu á Hrafnistu í Reykjavík fyrir góðan stuðning og prýðilega umönnun um árabil. Fyrir hönd aðstandenda, Ólafur R. Dýrmundsson Jórunn S. Sveinbjörnsdóttir Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð, hlýhug og styrk við andlát og útför sonar míns og bróður, ÞORSTEINS KRISTINS STEFÁNSSONAR, Lokastíg 4, Dalvík. Fyrir hönd aðstandenda, Rannveig Anna Guðmundsdóttir Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar elsku föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, GUÐMUNDAR EYJÓLFSSONAR, Veghúsum 1. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Heimahlynningar og líknardeildar LSH í Kópavogi fyrir einstaka umönnun og hlýju. Guðmundur Kr. Guðmunds. Sandra Rut Gunnarsdóttir Margrét Erla Guðmundsd. Halldór Heiðar Sigurðsson Eyjólfur Brynjar Guðmunds. Idania Guðmundsson Ágúst Ingi Guðmundsson Anna Gunnlaugsdóttir Hulda Björk Guðmundsdóttir Þór Eiríksson Hanna Guðrún Kristinsdóttir Pétur Hjaltested Guðleifur Ragnar Kristins. Heiðrún Gunnarsdóttir Ágúst Guðmundsson barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.