Morgunblaðið - 15.09.2018, Blaðsíða 24
24 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 2018
Fjölbreytt úrval af gæða viftum frá Vent-Axia fyrir eldhúsið, baðherbergið, skrifstofuna,
verkstæðið eða hesthúsið. Við aðstoðum ykkur við rétta valið.
Lo-Carbon Silhouette 125 Centrif-duo Silent
12in Wall fan Hi-line Sabre Plate
DALVEGI 10-14 | 201 KÓPAVOGI | SÍMI 540 7000 | FALKINN.IS
Hreint loft og vellíðan
Það borgar sig að nota það besta
VENT–AXIA VIFTUR
Poul Thomsen, framkvæmdastjóri Evrópudeildar Alþjóðagjaldeyris-
sjóðsins, flytur erindi í Eyri í Hörpu laugardaginn 15. september
kl. 15:00 en þann dag verða tíu ár liðin frá falli Lehman Brothers.
Að erindinu loknu mun Thomsen taka við spurningum úr sal.
Erindi Thomsens nefnist Iceland’s Successful Stabilization
Program and the Role of the IMF.
Poul Thomsen hefur verið framkvæmda-
stjóri Evrópudeildar Alþjóðagjaldeyrissjóðs-
ins síðan í nóvember 2014. Þar áður var
hann m.a. formaður sendinefnda sjóðsins
í samningum við ýmis lönd um lánafyrir-
greiðslu frá sjóðnum, svo sem Grikkland
og Portúgal, og hann fór fyrir sendinefnd sjóðsins í samningum við
íslensk stjórnvöld haustið 2008. Í erindi sínu mun hann m.a. fjalla
um reynsluna af efnahagsáætlun íslenskra stjórnvalda í samvinnu
við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn.
Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
SEÐLABANKI ÍSLANDS
Iceland’s Successful Stabilization
Program and the Role of the IMF
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Ríkisstjóri Norður-Karólínu, Roy
Cooper, sagði í gær að fellibylurinn
Flórens hefði valdið miklu tjóni í rík-
inu og að heilu bæjarfélögin kynnu
að vera í hættu. „Óveðrið veldur mik-
illi eyðileggingu núna í ríkinu,“ hafði
fréttaveitan AFP eftir Cooper. „Við
stöndum frammi fyrir margs konar
hættum. Við höfum miklar áhyggjur
af því að heilu bæjarfélögin kunni að
eyðileggjast.“
Ríkisstjórinn bætti við að rúm hálf
milljón heimila og fyrirtækja væru
nú þegar án rafmagns og óveðrið
hefði valdið allt að þriggja metra
háum öldum í ánni Neuse. „Björg-
unarmenn vinna við hættulegar að-
stæður sem eiga aðeins eftir að
versna.“
Flórens kom að landi á Wrights-
ville Beach í Norður-Karólínu klukk-
an 7.15 í gærmorgun að staðartíma,
klukkan 11.15 að íslenskum. Hann
náði þá styrk 1 sem er lægst stigið á
fimmskiptum kvarða um styrk felli-
bylja og áhrif þeirra.
Almannavarnastofnun Bandaríkj-
anna, FEMA, sagði að mikil hætta
myndi stafa af óveðrinu í allt að einn
og hálfan sólarhring eftir að felli-
bylurinn kom að landi, einkum vegna
mikillar rigningar, sjávarflóða og
vatnavaxta. Fellibylurinn færðist
hægt vestur í átt að Suður-Karólínu
og spáð var aftakarigningu á svæð-
inu í tvo til þrjá daga. Bandaríska
veðurstofan sagði líklegt að úrkom-
an yrði þá jafnmikil og á átta mán-
uðum í venjulegu tíðarfari. Haft var
eftir James Trogdon, samgönguráð-
herra Norður-Karólínu, að Flórens
kynni að valda flóðum sem yrðu
venjulega ekki nema einu sinni í rík-
inu á þúsund árum.
Mæðgur létu lífið
Kona og ungt barn hennar biðu
bana þegar tré féll á hús þeirra í
borginni Wilmington í Norður-Kar-
ólínu. Faðir barnsins slasaðist og var
fluttur á sjúkrahús.
Vegir lokuðust vegna trjáa sem
féllu í óveðrinu og rafmagnslínur
slitnuðu. Orkufyrirtæki sögðu að allt
að þrjár milljónir heimila og fyrir-
tækja kynnu að verða rafmagnslaus
vegna óveðursins. Þau hafa varað við
því að það geti tekið marga daga eða
jafnvel vikur að koma á rafmagni að
nýju. Um 40.000 manns unnu að við-
gerðum á rafmagnslínum.
Björgunarmenn í Jacksonville í
Norður-Karólínu björguðu um 60
manns úr hóteli eftir að hluti þaks
þess hrundi í óveðrinu. Allir gestirn-
ir, þeirra á meðal börn, voru fluttir
heilu og höldnu í öruggt skjól.
Rúmlega 200 manns var einnig
bjargað úr umflotnum húsum í New
Bern, um 30.000 manna bæ í
Norður-Karólínu. Margir íbúanna
komust ekki út úr húsum sínum eftir
að áin Neuse flæddi yfir bakka sína.
A.m.k. 150 manns biðu enn björg-
unar samkvæmt síðustu fréttum í
gærkvöldi. Bæjaryfirvöld í New
Bern sendu fólkinu skilaboð á Twitt-
er: „Við erum að koma til að bjarga
ykkur. Þið gætuð þurft að fara upp á
aðra hæð eða upp á háaloft, en við
komum til að bjarga ykkur.“
Um 4.000 þjóðvarðliðar tóku þátt í
björgunarstarfinu, auk sjálfboðaliða.
Alls var um 1,7 milljónum manna
skipað eða ráðlagt að forða sér frá
heimilum sínum vegna óveðursins og
um 26.000 manns dvöldu í rúmlega
200 neyðarathvörfum í Karólínuríkj-
unum, að sögn CNN. Rúmlega 1.100
flugferðum var aflýst á austurströnd
Bandaríkjanna
Lýst hafði verið yfir neyðarstandi
í fimm ríkjum vegna óveðursins:
Karólínuríkjunum tveimur, Georgíu,
Maryland og Virginíu.
Mikið tjón
af völdum
fellibylsins
Óttast að heilu bæjarfélögin séu í
hættu vegna aftakarigningar og flóða
AFP
Flóð Björgunarmenn bjarga börnum í bænum New Bern í Norður-Karólínu eftir að áin Neuse flæddi yfir bakka
sína. Rúmlega 200 manns var bjargað í bænum eftir að úrhelli sem fylgdi fellibylnum olli miklum vatnavöxtum.
Gæti valdið álíka miklum
flóðum og Harvey
» Óttast var að úrhellið sem
fylgir Flórens myndi valda álíka
miklum flóðum og rigningarnar
sem fylgdu fellibylnum Harvey
á síðasta ári.
» Tjónið af völdum Harvey var
um 125 milljarðar dollara, jafn-
virði 13.700 milljarða króna,
einkum vegna flóða í Houston
og suðausturhluta Texas.
» Fellibylurinn Katrína kostaði
1.800 manns lífið árið 2005 í
strandhéruðum við Mexíkóflóa,
frá miðhluta Flórída til austur-
héraða Texas.