Morgunblaðið - 15.09.2018, Side 22

Morgunblaðið - 15.09.2018, Side 22
BAKSVIÐ Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Síðdegis í gær sendi flugfélagið WOW air frá sér stutta tilkynningu þess efnis að skuldabréfaútboði fé- lagsins yrði lokið kl. 14 næsta þriðjudag. Þá var einnig greint frá því að útgáfan myndi nema að lág- marki 50 milljónum evra, jafnvirði 6,4 milljarða króna. Gangi þessar fyrirætlanir félagsins eftir er endi bundinn á margra vikna óvissu um rekstrarhæfi þess. Upplýst var um mjög þrönga stöðu félagsins hinn 15. ágúst síð- astliðinn. Þá birti Morgunblaðið frétt sem byggðist á fjárfestakynn- ingu sem norska fjármálafyrirtækið Pareto Securities vann fyrir WOW air. Þar kom fram að gríðarlegt tap hefði verið að rekstri félagsins á undangengnum misserum og að eig- ið fé þess hefði í lok júní síðastliðins aðeins numið 1,5 milljörðum króna. Áætlanir WOW og Pareto Sec- urities hafa frá upphafi miðað að því að tryggja félaginu 500-1.000 millj- ónir sænskra króna, jafnvirði 6-12 milljarða króna. Verði skuldabréfa- útgáfan á þá lund sem greint var frá í gær hefur félagið náð lægri mörkum þess markmiðs sem upp- haflega var lagt upp með. Í fyrrnefndri fjárfestakynningu voru ýmsar kvaðir lagðar á WOW air vegna fyrirhugaðrar skulda- bréfaútgáfu. Þannig var m.a. sett það skilyrði að félagið myndi tryggja að eigið fé þess yrði að lág- marki 25 milljónir dollara, jafnvirði 2,7 milljarða króna og að það myndi vaxta um ríflega hálfan milljarða króna á ári yfir lánstímann. Í til- kynningu WOW air í gær kom ekki fram hvaða áhrif skuldabréfaútboð- ið myndi hafa á eigið fé félagsins. Hins vegar er ljóst að félagið er í þörf fyrir umtalsvert fjármagn til að greiða útistandandi skuldir við ýmsa lánardrottna. Meðal þeirra er Isavia en WOW mun skulda fyr- irtækinu tvo milljarða í lendingar- gjöld. Af þeirri upphæð mun helm- ingurinn nú þegar vera gjaldfallinn. Heimildir Morgunblaðsins herma að Isavia og WOW vinni nú að út- færslu á því hvernig skuld félagsins verði gerð upp. Ekki hafa fengist upplýsingar frá Isavia og WOW hvort hluti þeirra fjármuna sem koma munu úr skuldabréfaútboðinu verði nýttir til að gera upp skuldina við Isavia sem að fullu er í eigu ís- lenska ríkisins. Mikill vaxtakostnaður WOW Samkvæmt tilkynningunni frá WOW í gær verður skuldabréfaút- gáfan til þriggja ára og munu bréfin bera 9% vexti ofan á þriggja mán- aða Euribor-vexti. Þó munu vaxta- kjörin aldrei fara undir 9% auk trygginga. Í dag eru þriggja mán- aða Euribor-vextir neikvæðir sem nemur 0,319%. Vextirnir sem lagðir verða á skuldabréfin bera vitni um þá áhættu sem talin er fylgja kaupum á þeim. Þá er einnig ljóst að vaxta- kostnaður WOW air af útgáfunni er umtalsverður. Þannig munu vext- irnir, miðað við Euribor-vexti í dag nema að lágmarki 576 milljónum króna, sé miðað við að lágmarks- útgáfan verði 50 milljónir evra. Morgunblaðið hefur margítrekað á síðustu sólarhringum reynt að ná sambandi við forsvarsmenn WOW air, stjórnendur og stjórnarmenn, en án árangurs. Í tilkynningunni sem félagið sendi frá sér í gær var sérstaklega tilgreint að ekki yrðu veitt viðtöl vegna málsins að svo stöddu en að tilkynningar væri að vænta næstkomandi þriðjudag. Segja fjármögnun WOW tryggða Morgunblaðið/Ómar Flugfélag Skúli Mogensen hefur fram til þess verið eini eigandi WOW air.  WOW sendi frá sér tilkynningu þess efnis að skuldabréfaútgáfu félagsins yrði lokið á þriðjudag  Segja útgáfuna munu nema að lágmarki 6,4 milljörðum króna  Vextirnir verða 9% auk trygginga Versnandi staða » WOW air tapaði 2,4 millj- örðum á síðasta ári. » Eigið fé félagsins nam að- eins 1,5 milljörðum króna um mitt þetta ár. » Hafði eigið fé félagsins þá rýrnað um 4,4 milljarða króna frá áramótum. » Greinendur Pareto Sec- urities spá því að félagið tapi 3,3 milljörðum á þessu ári. » Sömu sérfræðingar telja að félagið muni hagnast um 1,9 milljarða á næsta ári. » WOW hefur safnað skuldum á síðustu mánuðum. 22 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 2018 Rafmagnsstaflarar Lyftigeta: 1000 kg Lyftihæð: 2,4 m og 3 m Verð: 589.000 kr. m/vsk Rafmagnstjakkar Lyftigeta: 1500 kg Verð: 282.897 kr. m/vsk atjakkar a: 2500 kg kr. m/vsk Rými ehf. | Urðarhvarf 4 | 203 Kópavogi | s. 511 1100 | www.rymi.is | rymi@rymi.is Brett Lyftiget Verð: 43.179

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.