Morgunblaðið - 15.09.2018, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 2018
Bókaðu núna á baendaferdir.is
Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 RVK
Verð: 112.800 kr. á mann í tvíbýli.
Skoðunarferðir innifaldar!
sp
ör
eh
f.
Fararstjóri: Aðalheiður Jónsdóttir
Í Brussel og Brugge ríkir hátíðleg jólastemning á aðventunni.
Báðar borgirnar eru með einstaklega huggulega jólamarkaði
innan um virðulegar gamlar byggingar og hefur jólamarkaður
Brussel verið tilnefndur sá frumlegasti í Evrópu. Þar sem landið
er þekkt fyrir dásemdar súkkulaði, mikla matarmenningu og
góðan bjór er ljóst að hér er margs að njóta.
22. - 25. nóvember
Jólaferð til Brussel & Brugge
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
solrun@mbl.is
„Það er sól úti, látum vera sól í
hjarta okkar,“ sagði Guðjón Ólafur
Jónsson, lögmaður Alberts Klahn
Skaftasonar, við lok málflutnings
síns í endurupptöku á Guðmundar-
og Geirfinnsmálinu sem tekin var
fyrir í Hæstarétti gær og fyrradag.
Þessi setning fangar ágætlega and-
rúmsloftið í dómsalnum, en skynja
mátti að flestir væru þangað komnir
með von í brjósti; aðstandendur, lög-
menn og aðrir. Von um réttlæti og
bjartari tíð. Allir vilja það sama.
Hreinsa nöfn þeirra einstaklinga
sem sakfellir voru í máli þar sem
áþreifanleg sönnunargögn voru ekki
til staðar, pyntingar voru notaðar og
játningar hafa verið metnar falskar
og óáreiðanlegar. Stærsta og umtal-
aðasta sakamáli Íslandssögunnar
sem á sér enga hliðstæðu og hefur
fylgt þjóðinni í 44 ár.
Málið var dómtekið í gær, að lokn-
um málflutningi Jóns Magnússonar,
verjanda Tryggva Rúnars Leifsson-
ar, og málflutningi Guðjóns Ólafs.
Þrír verjendur fluttu mál sitt í fyrra-
dag. Krafa allra er að skjólstæðingar
þeirra verði sýknaðir. Það er reynd-
ar einnig krafa ákæruvaldsins sem
gerir málið sérstakt. Lögmenn Sæv-
ars Ciesielski og Guðjóns Skarphéð-
inssonar gera þó einnig kröfu um að
skjólstæðingar þeirra verði lýstir
saklausir. Jón Steinar Gunnlaugs-
sonar, verjandi Kristjáns Viðars Júl-
íussonar, sagði í andsvari sínu það
ekki venju að dómstólar lýstu menn
saklausa, en sagðist þó ekki andsnú-
inn því að það yrði gert. Í sýknu fæl-
ist alltaf yfirlýsing um sakleysi.
Ragnar Aðalsteinsson, lögmaður
Guðjóns, sagði að þótt ekki væri
venja að lýsa menn saklausa þá væri
þetta mál allt öðruvísi en öll önnur
mál sem flutt hefðu verið fyrir dóm-
stólum fyrr og síðar. Menn hefðu
verið pyntaðir og notaðar aðferðir
sem þekkjast í verstu einræðisríkj-
um til að ná fram niðurstöðu. Þrátt
fyrir að lögmennirnir væru ekki
sammála um þetta atriði var að öðru
leyti mikill samhljómur með þeim.
Allir telja þeir mikilvægt að mistök
þau sem gerð voru við rannsókn
málsins á sínum tíma og sakfelling í
Hæstarétti verði leiðrétt. Það sé
mikið velferðarmál fyrir réttarríkið
á Íslandi og geti aukið virðingu fyrir
dómstólum í landinu. Það verði að
skilja við fortíð málsins.
Verða að viðurkenna mistök
„Dómstólar, eins og aðrir, verða
að hafa hugrekki til að viðurkenna
mistök. Nú er komið að þeirri stundu
að hleypa sannleikanum inn,“ sagði
Jón Magnússon, verjandi Tryggva
Rúnars Leifssonar, í málflutningi
sínum í gær
Tryggvi Rúnar var dæmdur í 13
ára fangelsi í Hæstarétti árið 1980
fyrir að hafa banað Guðmundi Ein-
arssyni í janúar 1974, í félagi við
Kristján Viðar og Sævar Ciesielski.
Tryggvi lést árið 2009.
Jón sagði að við rannsókn málsins
hefðu verið gerð ein mestu mistök
sem hafa verið gerð við rannsókn
sakamála hér á landi. Misþyrming-
um og pyntingum hafi verið beitt en
þær hafi ekki síst falist í löngu
gæsluvarðhaldi og einangrun við
ómannúðlegar aðstæður. Framburð-
ur dómfelldu hafi þróast í takt við
þær upplýsingar sem rannsakendur
báru á milli þeirra og þannig hafi
framburðinum verið stjórnað. Sagði
Jón það eitt nægja til að ekki væri
hægt að taka mark á játningunum.
Sakfelling á grundvelli framburðar
komi því ekki til greina.
Albert Klahn var dæmdur í 12
mánaða fangelsi fyrir að hafa hjálp-
að við að flytja lík Guðmundar Ein-
arssonar og fyrir að hafa tálmað
rannsókn málsins. Krefst Guðjón
Ólafur þess að Albert verði sýknaður
enda ljóst að meðákærðu séu sak-
lausir af því að hafa banað Guð-
mundi.
Allir verjendur krefjast þess að
skjólstæðingar þeirra verði sýknaðir
Morgunblaðið/Hari
Lög Oddgeir Einarsson, Jón Steinar Gunnlaugsson, Guðjón Ólafur Jónsson, Ragnar Aðalsteinsson og Jón Magnússon.
Málflutningi í endurupptöku Guðmundar- og Geirfinnsmáls lokið í Hæstarétti Málið dómtekið
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Við erum gríðarlega ánægð með
þann árangur sem við náðum
þarna,“ segir Inga Hlín Pálsdóttir,
forstöðumaður hjá Íslandsstofu.
Íslandsstofa stóð fyrir herferðinni
„Team Iceland“ í aðdraganda HM í
Rússlandi og meðan á mótinu stóð.
Þetta markaðsverkefni var unnið í
samvinnu við yfir fjörutíu íslensk
fyrirtæki, stjórnvöld og KSÍ. Mark-
miðið var að ná til fólks víðsvegar
um heiminn, vekja áhuga á Íslandi
og íslenskri þjóð og fá fólk til að
sækja landið heim.
„Myndböndin sem við gerðum
hafa alls fengið yfir 13 milljónir
áhorfa. Þá birtust 382 blaðagreinar
erlendis þar sem Team Iceland og
þessi herferð voru nefnd auk ann-
arra greina. Við náðum líka í gegn-
um þetta verkefni að safna 52 þús-
und netföngum og það á sama tíma
og ný persónuverndarlöggjöf var að
ganga í gildi. Stærsta málið er auð-
vitað að fá fólk til að bregðast við
efninu og alls fengum við 177 þús-
und viðbrögð. Ég held að það teljist
gríðarlega gott að einhver fari í dag
og skrái netfang sitt á vefsíðu svo
við erum ánægð með þessi 52 þús-
und. Við eigum nú lista með alls 100
þúsund netföngum og því fólki get-
um við sent ítarlegri upplýsingar
um það sem er að gerast á Íslandi,“
segir Inga.
Ný herferð væntanleg
Meðal þess sem fólst í herferðinni
voru myndbönd með forsetahjón-
unum Guðna Th. Jóhannessyni og
Elizu Reid í fótbolta á Bessastöðum
og þeim Önnu Svövu Knútsdóttur og
Steinda jr. sem hvöttu þær þjóðir
sem ekki komust á HM að styðja Ís-
land. Þá var farið í sex ferðir með
blaðamenn og áhrifavalda til Íslands
sem skilaði umfjöllun í miðlum á
borð við Guardian, Telegraph og
Wired, að sögn Ingu. Þetta sam-
starfsverkefni stendur út árið og
svo verður tekin ákvörðun um fram-
haldið. Hinn 25. september verður
ný herferð kynnt.
„Þetta verkefni var ákveðinn
prófsteinn. Það gekk vel að fá alla
til að vinna saman, koma öllum á
sömu blaðsíðu, og við hlökkum til að
halda þessu áfram,“ segir Inga Hlín.
Áfram Ísland Forsetahjónin Eliza Reid og Guðni Th. Jóhannesson voru í
Team Iceland í sumar. Myndband með þeim í fótbolta vakti mikla athygli.
Yfir þrettán milljónir
horft á myndböndin
Kristín Anna, dóttir Tryggva Rún-
ars Leifssonar, segist hafa upp-
lifað blendnar tilfinningar þegar
hún fylgdist með málflutningi í
endurupptökumálinu fyrir Hæsta-
rétti. Þar var hún ásamt móður
sinni og ekkju Tryggva, Sjöfn Sig-
urbjörnsdóttur, og syni sínum,
Tryggva Rúnari Brynjarssyni. „Að
einhverju leyti upplifði ég þetta
sem einhvers konar serimóníu,
eins og þetta sé hátíðleg athöfn til
að binda utan um málið og klára
það,“ segir Kristín.
Dagbækur sem Tryggvi Rúnar
hélt á meðan hann sat í gæslu-
varðhaldi í Síðumúlafangelsinu
eru meðal mikilvægra nýrra gagna
í málinu. Þær komu fram á árinu
2011. Tryggvi og Sjöfn höfðu
ákveðið að farga dagbókunum en
þær sem varðveittust voru í fórum
Kristínar Önnu. Það átti þátt í að
hrinda atburðarásinni af stað.
Athöfn til að klára málið
FJÖLSKYLDA TRYGGVA RÚNARS FYLGDIST MEÐ
Fjölskylda Tryggvi Rúnar Brynj-
arsson, Kristín Anna Tryggvadóttir
og Sjöfn Sigurbjörnsdóttir.