Morgunblaðið - 15.09.2018, Page 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 2018
H
a
u
ku
r
0
1
.1
6
Viðskiptatækifæri á www.kontakt.is
• Lítið framleiðslufyrirtæki sem framleiðir sérhæfða vöru fyrir heimili og
fyrirtæki. Velta um 40 mkr. nokkuð stöðug. Afkoma jöfn og góð.
• Arðsamt fyrirtæki með langa reynslu sem flytur inn og selur
véltæknibúnað aðallega tengdum sjávarútvegi, fiskeldi, en einnig
öðrum iðnaði. Velta undanfarin ár hefur verið á bilinu 150-200 mkr.
og EBITDA 25-40 mkr.
• Rótgróið iðnfyrtæki sem sérhæfir sig í framleiðslu á vörum úr plasti.
Ársvelta á bilinu 250-300 mkr.
• Ein þekktasta hárvöruheildverslun landsins með mjög þekkt merki
fyrir fagaðila. Góð velta og afkoma.
• Fyrirtæki sem sérhæfir sig í greiðslulausnum á afmörkuðu en þekktu
sviði leitar eftir auknu hlutafé. Spennandi fjárfestingakostur með
miklum möguleikum á arðsemi, gangi áætlanir eftir.
• Mjög gott fyrirtæki sem sérhæfir sig í lagningu á þakdúk sem það
flytur sjálft inn. Veltan á bilinu 150-200 mkr. og afkoman mjög góð.
Eigendur tilbúnir að vinna áfram eins og þörf krefur.
• Bakarí með nokkra útsölustaði á höfuðborgarsvæðinu. Gefur ýmsa
möguleika til þróunar.
• Þekkt herrafataverslun með góð merki. Veltan hefur verið stöðug
undanfarin ár og afkoma ágæt. Veltan árið 2017 var um 90 mkr. og
EBITDA mjög góð eða um 20 mkr. Félagið er skuldlétt.
• Einn vinsælasti og þekktasti veitingastaður landsins sem staðsettur er
í miðbæ Reykjavíkur. Mikill og vaxandi hagnaður. Langur
leigusamningur.
Guðni Halldórsson
lögfræðingur,
gudni@kontakt.is
Þórarinn Arnar Sævarsson
fasteignaráðgjafi,
thorarinn@kontakt.is
Gunnar Svavarsson
viðskiptafræðingur,
gunnar@kontakt.is
Brynhildur Bergþórsdóttir
rekstrarhagfræðingur,
brynhildur@kontakt.is
Sigurður A. Þóroddsson
hæstaréttarlögmaður,
sigurdur@kontakt.is
Bernhard - Honda á Íslandi
Vatnagörðum 24 • 104 Reykjavík • Sími 520 1100 • www.honda.is
Umboðsaðilar: Bernhard, Reykjanesbæ, sími 421 7800 • Bílver, Akranesi, sími 431 1985
Höldur, Akureyri, sími 461 6020 • Bragginn, Vestmannaeyjum, sími 481 1535
VERÐ KR. 1.690.000
4X4 • AFLSTÝRI • DCT SJÁLFSKIPT
SJÁLFSTÆÐ FJÖÐRUN • VATNSKÆLT
TRX420FA6
Íslenskt hugvit var meðal þess sem forsetar Rússlands og Kína,
þeir Vladimir Pútín og Xi Jinping, skoðuðu á mikilli viðskipta-
ráðstefnu og sýningu í Vladivostok í Rússlandi í vikunni. Þeim var
meðal annars boðið að skoða líkan af stóru krabbaveiðiskipi frá
Nautic og uppsjávarverksmiðju frá Skaganum 3X, Frost og Raf-
eyri. Fyrirtækin vinna m.a. náið með Knarr Maritime í Rússlandi.
Ráðstefnan sem um ræðir (Eastern Economic Forum) hefur ver-
ið haldin árlega í september frá 2015 í háskólanum í Vladivostok í
Austur-Rússlandi. Tilgangurinn er m.a. að hvetja til erlendra fjár-
festinga í Austur-Rússlandi.
Fyrir rúmum tveimur mánuðum skrifaði Nautic Rus í Rússlandi
undir samning um hönnun á nokkrum krabbaveiðiskipum fyrir
fyrirtækið Primcrab Ltd. Fram hefur komið í Morgunblaðinu að
fyrirtækið er nú í öðru kvótaferli af þremur, en hönnunarsamning-
urinn er fyrsta skrefið áður en farið verður af stað í kvótaút-
hlutun. Þegar úthlutunin liggur fyrir kemur í ljós hversu mörg
skipin verða, að sögn Alfreðs Tulinius, stjórnarformanns Nautic-
fyrirtækjanna.
Um nýja hönnun á krabbaveiðiskipi er að ræða, en skipin verða
64 metra löng og 14 metra breið. Þau verða lokuð, sérstaklega
styrkt og með stóru stefni. Hægt verður að taka krabbagildrurnar
upp í gegnum skipið og á hefðbundinn hátt.
Skaginn 3X, Frost og Rafeyri hafa samið um tvær stórar upp-
sjávarverksmiðjur í Shikotan og Petropavlosk í Austur-Rússlandi.
Uppsetning verksmiðjunnar í Shikotan hófst fyrr í sumar og hafa
íslenskir starfsmenn verið þar síðustu vikur. aij@mbl.is
Tölvumynd/Nautic
Krabbaveiðar Nautic-fyrirtækin vinna að hönnun á fullkomnu 64 metra löngu skipi fyrir fyrirtæki í Rússlandi.
Forsetarnir skoðuðu
tækni frá Íslandi
AFP
Forsetar Vladimir Pútín og Xi Jinping
skoðuðu tækni frá Íslandi í Vladivostok.
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Upplýsingamiðstöð ferðamanna í
Reykjavík (UMFR), sem verið hefur
til húsa í Ráðhúsi Reykjavíkur frá
ársbyrjun 2017, verður lögð niður í
núverandi mynd frá og með 28. októ-
ber nk. Í staðinn verður einungis
lögð áhersla á upplýsingamiðlun á
rafrænu formi. Þetta kemur fram í
tilkynningu frá Reykjavíkurborg.
Hvað vinna margir við upplýs-
ingamiðstöðina og fær þetta fólk
önnur störf hjá borginni?
Því svarar Arna Schram, sviðs-
stjóri menningar- og ferðamálasviðs.
„Hjá UMFR vinna nú samtals fimm
manns í fjórum stöðugildum, auk
sumarstarfsmanna, en þau síðar-
nefndu fá eðli máls samkvæmt ekki
störf áfram. Þrír starfsmenn í tveim-
ur stöðugildum fá, vegna þessara
breytinga, ekki framlengingu á
ráðningarsamningi. Við hjá menn-
ingar- og ferðamálasviði höfum að-
stoðað þau sem óskað hafa eftir því
að finna önnur störf hjá borginni eða
mælt með þeim í sambærileg störf
annars staðar. Auk starfsmanna-
kostnaðar sparast útgjöld við þætti á
borð við öryggisgæslu, þrif og við-
hald.“
Mun afgreiðslutími Ráðhússins
breytast við þetta? Nú er opið alla
daga kl. 8-20.
„Já, afgreiðslutíminn mun vænt-
anlega styttast, að minnsta kosti
fyrst um sinn, en ýmsar hugmyndir
eru um það á vettvangi borgarráðs
hvernig efla megi og nýta anddyri
Ráðhússins í þjónustu við borgar-
búa. Verði slíkar hugmyndir sam-
þykktar er viðbúið að vinna við út-
færslu á þeim hugmyndum hefjist
fljótlega og afgreiðslutími Ráðhúss-
ins stilltur af í samræmi við þá nið-
urstöðu sem þar fæst,“ segir Arna.
Fram kemur í tilkynningunni frá
borginni að með því að leggja upp-
lýsingamiðstöðina niður í núverandi
mynd sé verið að bregðast við gjör-
breyttu umhverfi frá því hún var
sett á laggirnar árið 1987. Ýmsir að-
ilar í ferðaþjónustu sinni nú al-
mennri upplýsingagjöf og bókunar-
þjónustu, ólíkt því sem áður var, auk
þess sem miðlun upplýsinga og þjón-
usta sé í auknum mæli að færast á
netið.
Þrír missa vinnuna
vegna breytinganna
Ljósmynd/BEB
Ráðhúsið Upplýsingamiðstöð ferðamanna hefur verið þarna síðan í janúar
2017. Miðstöðin hafði verið starfrækt í Aðalstræti 2 allt frá árinu 2002.
FINNA.is