Morgunblaðið - 15.09.2018, Side 20

Morgunblaðið - 15.09.2018, Side 20
20 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 2018 Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bragð af vináttu • Hágæðagæludýrafóður framleitt í Þýskalandi • Bragðgott og auðmeltanlegt • Án viðbættra litar-, bragð- og rotvarnarefna Útsölustaðir: Byko, Gæludýr.is, 4 loppur, Multitask, Launafl, Vélaval, Landstólpi. Þór Steinarsson thor@mbl.is „Þörfin fyrir gervifætur á Gaza hefur stóraukist eftir skotárásir leyniskyttna Ísraelshers inn á Gaza, allt frá 30. mars síðast- liðnum. Skotið hefur verið á mót- mælendur, heilbrigðisstarfsfólk, börn og hvern sem er. Meira en 170 manns hafa verið drepnir af leyni- skyttunum og fjöldi særðra nálgast 20 þúsund,“ segir Sveinn Rúnar Hauksson, læknir sem staddur er á Gaza, í samtali við Morgunblaðið. Tölurnar sem hann nefnir koma frá heilbrigðisráðuneytinu í Palestínu og Sameinuðu þjóðunum. Íslenskir gervifætur til Gaza Sveinn Rúnar hefur haft umsjón með verkefninu Íslenskir gervifæt- ur til Gaza eða ALPC (Artificial legs and polio center) frá því að það hófst árið 2009. Verkefnið er hug- arsmíði Össurar Kristinssonar í samvinnu við félagið Ísland- Palestína og gengur út á að útvega særðum borgurum gervifætur og aðra útlimi svo þeir geti lifað eðli- legu lífi. Össur fann upp leið til þess að framleiða gervilimi með töluvert fljótlegri hætti en áður eða á um það bil einni klukkustund í stað nokkurra vikna. Þá hefur Össur látið efnið, sem notað er við framleiðsluna, af hendi endurgjaldslaust í allan þann tíma sem verkefnið hefur staðið yfir. En Sveinn Rúnar fór þó ekki ein- ungis til Gaza til þess að smíða gervilimi heldur nýtti hann ferðina til að styrkja fleiri mikilvæg mál- efni eins samtökin AISHA sem styðja konur og börn sem eru í erf- iðum aðstæðum. Meinaður inngangur á Gaza Hernámsyfirvöld í Ísrael hafa meinað Sveini Rúnari inngöngu á Gaza síðastliðin 5 ár og vegna stríðsátaka á svæðum í kring hafa aðrar inngönguleiðir ekki verið færar. Fyrir viku fékk hann loks aftur leyfi til að fara inn á Gaza og tók hann með sér efni til að fram- leiða 20 sett af gervifótum. „Ég er búinn að vera hérna í nokkra daga og hef ekki komist yf- ir allt það sem er á dagskrá. Ég hef verið að kynna mér almennt ástand og heimsækja vini mína sem og fjölskyldur þeirra. Það vill ein- hvern veginn þannig til að nokkrir af mínum albestu vinum féllu frá meðan ég var í burtu, þar á meðal forstöðumaður verkefnisins ALPC,“ segir Sveinn Rúnar og bætir við: „Tveimur dögum áður en ég kom voru leyniskyttur að skjóta á fólk og 45 manns særðust. Það var eng- inn drepinn þann dag en það var mikið verið að skjóta fæturna und- an fólki og greinilegt að í lang- flestum tilvikum var verið að nota einhvers konar sprengikúlur sem eyðileggja útlimi þannig að læknar neyðast til að aflima fólk sem verð- ur fyrir þessum skotum. Þetta er fólk á öllum aldri, börn, unglingar og fullorðnir þannig að það kom sér vel að við kæmum.“ Sveinn Rúnar segir ástandið á svæðinu hryllilegt, ekki síst eftir að Bandaríkjastjórn skar niður fram- lög til flóttamannahjálparinnar. Mengunin á svæðinu sé skelfilega mikil og komin í drykkjarvatn og í sjóinn. Þá segir hann atvinnuleysið vera um 60% og því fylgi bæði sál- ræn vandamál og fíkniefnavanda- mál. „Þetta land er varla talið byggilegt lengur að mati Samein- uðu þjóðanna,“ bætir hann við. Styrkja konur og börn Frá árinu 2010 hefur Ísland- Palestína ásamt fleirum stutt við samtökin AISHA sem eru samtök fyrir konur og börn sem búa við slæmar aðstæður. Samtökin reka húsnæði og er eitt húsið nefnt eftir Maríu Magnúsdóttur hjúkr- unarfræðingi, sem féll nýverið frá, sem var helsti bakhjarl samtak- anna. „Það sem ég hef fengið að upplifa í dag er að vera á fundi með stórum hópi kvenna þar sem hver og ein sagði sína sögu og hvernig stuðn- ingur okkar hefur hjálpað. Þetta eru allt konur sem hafa þurft að taka ábyrgð á sinni fjölskyldu vegna þess að eiginmenn þeirra hafa fallið frá eða eru af ein- hverjum ástæðum ófærir um að sjá fyrir sinni fjölskyldu,“ útskýrir Sveinn Rúnar í þann mund sem rafmagnið fór af hjá honum. „Þetta upplifir maður oft,“ bætir hann við Þriðja verkefnið sem Sveinn Rúnar sinnir í ferðinni er að fara að skoða aðstæður í læknaskólum og mun hann einnig ræða framhalds- meðferð fyrir fíkla. Ísland- Palestína og utanríkisráðuneyti Ís- lands hafa styrkt heilsugæslu- stöðvar á svæðinu til kaupa á nauðsynlegustu lyfjunum en mikill lyfjaskortur er í Gaza.. „Ég var með fyrirlestur í báðum læknaskólunum hér fyrir 5 árum og ætla að ræða hvernig framhald meðferðar á fíklum er því það er æ stærra vandamál. Þegar ég kom fyrir 5 árum virtist eina leiðin vera sú að stinga mönnum í steininn en núna er komin deild á eina geð- sjúkrahúsinu á Gaza,“ segir Sveinn Rúnar. Fer aftur á Gaza í október Sveinn Rúnar kemur heim til Ís- lands um helgina en stoppar stutt hér á landi því í október fer hann aftur til Gaza. Þá með 50 sett af gervifótum með aðstoð íslenskra kvenna úr samtökunum IWPS (Int- ernational Women‘s Peace Service) sem eru alþjóðafriðarsamtök kvenna. Björk Guðmundsdóttir listamaður átti þátt í að skipu- leggja þá ferð og aðstoðaði við að finna sjálfboðaliða til að flytja gervifæturna til Gaza. Borgarstjóri Betlehem sendi Sveini Rúnari bréf á fimmtudag þar sem hann dásamaði hjálp- arstarfið sem unnið hefur verið. Kominn til Gaza eftir 5 ára útlegð  Hernámsyfirvöld meinuðu honum inngöngu í 5 ár  Fékk þakkarvott frá borgarstjóra Betlehem  Samtök sem styðja við bakið á konum sem sjá fyrir fjölskyldum sínum vegna fjarveru eiginmanna Fagnaðarfundir Sveinn Rúnar Hauksson og Hosni Talal Botch hittust á ný. Hosni var fyrsti maðurinn á Gaza til að fá íslenska gervifætur árið 2009. Ljósmynd/Sveinn Rúnar Hauksson Aflimun Það eru ekki bara sprengikúlur leyniskyttna sem valda aflimunum. Slys og sykursýki eru líka algeng orsök. Lyfjaskortur er mikill á Gaza. Ljósmynd/Sveinn Rúnar Hauksson Gervifótur Bókhaldari ALPC er ánægður með íslenskan gervifót.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.