Morgunblaðið - 15.09.2018, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 15.09.2018, Qupperneq 26
26 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 2018 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Frelsi fjölmiðlaer mikil-vægt. Ætli ríkið sér að hlutast til um það frelsi – sem alls ekki er sjálfgefið – þarf að gera það með varúð og vandvirkni, en ekki af duttlungum. Fyrir skömmu felldi fjölmiðlanefnd úrskurð vegna þáttar um gjaldþrot fyrirtæk- isins Sigurplasts sem sýndur var á sjónvarpsstöðinni Hringbraut. Komst hún að þeirri niðurstöðu að Hringbraut hefði brotið gegn lögum um fjölmiðla „með óheim- illi kostun á fréttatengdu efni“ og jafnframt brotið gegn ákvæði sömu laga „um lýðræðislegar grundvallarreglur, með því að gæta ekki að hlutlægni og ná- kvæmni í hinu fréttatengda efni“. Var sjónvarpsstöðinni gert að greiða hálfa milljón króna í sekt. Þessi úrskurður hlýtur að telj- ast harkalegur. Í þættinum koma fram sjónarmið aðila, sem telja að á sig hafi verið hallað fyrir rétti þegar fyrirtækið fór í þrot. Varla eiga dómar að teljast hafn- ir yfir gagnrýni. En úrskurðurinn vekur fleiri spurningar. Andrés Magnússon vekur athygli á því í dálki sínum, Fjölmiðlarýni, í Viðskiptablaðinu á fimmtudag að meðal þeirra, sem undirrita úrskurðinn, sé Kolbrún Sævarsdóttir, héraðs- dómari í Reykjavík, sem situr í fjölmiðlanefndinni að skipan Hæstaréttar. „Við það væri ekk- ert athugavert, nema vegna þess að þessi sama Kolbrún Sævars- dóttir kvað upp dóminn í máli Sig- urplasts, þessa sama máls og verið er að gera athuga- semdir við,“ skrifar Andrés. „Og dómarar eiga ekki frekar en aðrir að gerast dóm- arar í eigin sök.“ Morgunblaðið leitaði við- bragða vegna þessarar gagnrýni og í frétt í blaðinu í gær svarar Elfa Ýr Gylfadóttir, fram- kvæmdastjóri fjölmiðlanefndar, því til að Kolbrún hafi ekki verið vanhæf. Kolbrún hafi gert nefnd- inni viðvart um tengsl sín við málið eins og lög kveði á um. Hún hafi einnig tjáð nefndarmönnum að hún telji dómsuppkvaðningu sína í máli fyrirtækisins ekki valda vanhæfi. Fjölmiðlanefndin hafi verið sammála um það. Nú má vel vera að allir lands- ins dómarar hefðu komist að sömu niðurstöðu. En stundum er það svo að það er ekki bara það sem er, heldur það sem virðist. Staðreyndin er sú að í þættinum kemur fram gagnrýni á mál, sem kom til kasta dómarans. Þeir, sem eiga að sæta úrskurði stjórn- valds, verða að geta verið vissir um að ekki sé á þá hallað. Leiki á því vafi á sá, sem lúta þarf nið- urstöðunni, að njóta hans. Í úr- skurðinum er fundið að því að Hringbraut hafi ekki gætt hlut- lægni. Á móti má spyrja hvort nefndin hafi gætt hlutlægni í sín- um vinnubrögðum. Eða er hún undanþegin þeim kröfum, sem hún setur öðrum? Fjölmiðlanefnd fór út af sporinu í mál- inu gegn Hringbraut} Dómgreindarleysi SkákfélagiðHrókurinn varð í vikunni 20 ára. Félagið var upphaflega stofnað til afreka á Ís- landsmóti skák- félaga, en tilgangur þess breyttist fljótt og varð út- breiðsla skáklistarinnar að helsta markmiði. Skákin er einstök íþrótt, sem eflir andlegt atgervi og veitir ánægju og skemmtun. Með skákinni má brúa öll kyn- slóðabil og hún þekkir engin landamæri. Og það er aldrei of seint að byrja. Hver byrjandi getur haft í huga að einhvern tímann stóðu allir skákmenn í hans sporum. Hrafn Jökulsson hefur verið burðarás og aflvaki Hróksins frá upphafi. Undir hans for- ustu hefur hróðri skákarinnar verið haldið á loft um allt land. Hrafn lýsir starfinu í grein, sem birtist í Morgunblaðinu í vikunni. Þar kemur fram að á þessum tuttugu árum hafi fé- lagið heimsótt hvern einasta grunnskóla á landinu, farið hafi verið í leikskóla jafnt sem elliheimili og heimsóknir í fangelsi, athvörf og sjúkrahús. Starf Hróksins á Grænlandi er ekki síður mikilvægt. Skákin var lítt þekkt á Grænlandi, en á því hefur orð- ið breyting. Fyrir atbeina Hróksins var fyrsta al- þjóðlega skákmótið á Græn- landi haldið árið 2003. Eins og fram kemur í grein Hrafns eru ferðir skákfélagsins til Græn- lands orðnar í kringum 80 og í vikunni var tvítugsafmælinu fagnað í grænlenska þorpinu Kullorsuaq á 74. breiddar- gráðu. Í dag verður afmælinu síðan fagnað hér á landi með skákveislu í Ráðhúsi Reykja- víkur. Skákin hefur alltaf átt sinn sess hjá Íslendingnum, en það er ekki sjálfgefið að svo verði um aldur og ævi nema merki hennar sé haldið á lofti. Listamaðurinn Marcel Duc- hamp sagði einhvern tímann að hann hefði hitt marga lista- menn, sem ekki væru skák- menn, en allir skákmenn væru listamenn. Hrókurinn undir forustu Hrafns Jökulssonar á heiður skilinn fyrir að hafa lagt sitt af mörkum til að breiða út skáklistina. Á tuttugu árum hef- ur Hrókurinn unnið þarft verk í þágu skákarinnar} Farsælt starf E f ríkisstjórnin væri gamanleikrit væri hún býsna fyndin. Sjálf- stæðisflokkurinn kenndi sig á sínum tíma við frelsi og slag- orðið Báknið burt. Nýtt fjárlaga- frumvarp boðar dæmalausa útgjaldaaukningu og ný bannár í uppsiglingu. Meira að segja Sigmundur Davíð sér að Sjálfstæðisflokkurinn virðist nú vera kominn með kjörorðið Bætt í báknið. Sigmundur bætir við: „Þetta er sérstakt áhyggjuefni því það er ekki að sjá nein merki um að það eigi að verja þessum peningum á skynsamlegan hátt.“ Á meðan sjálfstæðismenn bæta við báknið vilja aðrir ráðherrar stjórna athöfnum þegn- anna í stóru sem smáu. Samgönguráðherra sneri sér að rútufyrirtækjum sem aka frá Reykjavík að Jökulsárlóni og til baka á sama degi. Formaður Framsóknar veit hvað er öðrum fyrir bestu og sagði í viðtali „út í hött að bjóða ferðamönnum upp á slíkar dagsferðir“. Ekki nóg með það: „Þetta er bara bull, þetta þarf að koma í veg fyrir, þessu þurfum við að stýra með ein- hverjum hætti. Fólk verður bara að gista ef það ætlar svona langt. Bílstjórinn getur ekki verið að keyra fimm til sex hundruð kílómetra á þessum tíma og svo er þetta bara galin upplifun fyrir fólkið.“ Það styttist greinilega í að kynnt verði nýtt rútubílafyrirtæki, Framsóknarferðir. VG, sem lét það verða sitt fyrsta verk að falla frá til- lögum fyrri ríkisstjórnar um hækkun á kolefnisgjöldum og dísilgjaldi, telur að betra sé að banna en að láta þá sem menga borga. Á kynningarfundi margra ráð- herra voru kynntar tillögur um að „nýskrán- ingar dísil- og bensínbíla verði óheimilar eftir árið 2030“. En eins og svo oft er skilin eftir glufa fyrir vildarvini: „Bannið verður þó ekki afdráttarlaust því skoða á möguleikann á und- anþágum í sérstökum tilfellum.“ Það verður bara allt bannað sem ekki er sérstaklega leyft. Stærsta hlutverkið í farsa ríkisstjórn- arinnar leikur heilbrigðisráðherrann sem kemur í veg fyrir nýjar, einreknar læknastof- ur. Ráðherrann átti setningu mánaðarins um að það „hjálpaði ekki parkinsonsjúklingi á Þórshöfn ef opnuð yrði ein stofa taugalæknis í Reykjavík“. Í Sjúkratryggingum Íslands starfar einn samviskusamasti embættismaður þjóð- arinnar, Steingrímur Ari Arason. Gefum hon- um orðið um afstöðu ráðherrans: „Það er niðurstaða [Sjúkratrygginga] að það að synja mönnum um aðild að samningnum með þeim hætti sem gert er, standist ekki samninginn.“ Hann heldur áfram: „Það er alveg ljóst að við viljum að það sé staðið við gerða samninga, annars er verið að grafa undan því fyrirkomulagi sem samnings- gerð er og það að tryggja þjónustu sem þörf er fyrir með samningum.“ Steingrímur Ari lætur af störfum eftir nokkrar vikur. Fáránleikanum verður allt að vopni í þessum dapurlega raunveruleikaþætti. Og sjálfstæðismenn láta sér vel líka. Benedikt Jóhannesson Pistill Allt bannað sem ekki er sérstaklega leyft Höfundur er stærðfræðingur og stofnandi Viðreisnar. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen BAKSVIÐ Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is E ins og allir aðrir í brans- anum veltum við þessu fyrir okkur. Meðan við sjáum ekki útfærslu- leiðirnar er hins vegar voða erfitt að reikna þetta út,“ segir Ragnheiður Tryggvadóttir, fram- kvæmdastjóri Rithöfundasambands Íslands. Kurr er meðal rithöfunda eftir að tilkynnt var að ríkisstjórnin hefði lagt áform um afnám virðisauka- skatts á bækur til hliðar. Þess í stað hyggst Lilja Alfreðsdóttir mennta- málaráðherra leggja fram frumvarp á Alþingi í næstu viku sem felur í sér að bókaútgefendur fái 25% af kostn- aði við útgáfu bóka á íslensku endur- greidd. Styrkjum laumað til útgefenda „Hér í húsi hugsum við mest um hvernig eða hvort þetta kemur rit- höfundum til góða. Við vitum ekki hvað felst í „beinum kostnaði“ sem talað er um. Er ekki beinasti kostn- aðurinn sá sem fellur til þegar bókin er sköpuð?“ spyr Ragnheiður. Hún kveðst hafa óskað eftir nánari upplýsingum um útfærslu þessarar leiðar hjá ráðuneytinu en engin svör hafi fengist. „Allur geirinn hefur reynt að pína út upplýsingar en svör- in eru á þá leið að það verði að bíða eftir frumvarpinu.“ Einar Kárason rithöfundur var harðorður í viðtali á Rás 2 í vikunni og sagði þetta ein verstu ótíðindi sem höfundar hefðu heyrt. Ólíklegt væri að rithöfundar myndu njóta góðs af þessum breytingum, nú „eigi að fara að lauma einhvern veginn ofan í rass- vasann á útgefendum einhverjum styrkjum í staðinn, en höfundarnir sitja eftir með sinn skarða hlut,“ sagði Einar. Stjórnarfundur um helgina Mál þessi hafa verið rædd í Face- book-hópi félaga í Rithöfunda- sambandinu. Þar lýsa rithöfundar áhyggjum af því að umræddar greiðslur verði háðar duttlungum fjárveitingarvaldsins hverju sinni. Ljóst sé að höfundar þurfi að krefj- ast hærri prósentu í samningum sín- um við útgefendur og þess að rithöf- undalaun verði hækkuð. Þá koma fram efasemdir um að þetta fyrir- komulag muni lækka verð á bókum. Vísað er til þess að Lilja mennta- málaráðherra hafi lýst því yfir að hún geri ráð fyrir verðlækkun á bók- um í kjölfar þessa. Dagur Hjartarson rithöfundur bendir á að verð á bók- um muni ekki lækka nema forlögin lækki heildsöluverð til bókabúða. Og ef það gerist þá muni höfundarlaun lækka í leiðinni því þau séu reiknuð af umræddu heildsöluverði. Nið- urfelling virðisaukaskatts hefði aftur á móti lækkað verð á bókum án þess að lækka heildsöluverð og því ekki skert laun höfunda. „Vissulega hafa rithöfundar áhyggjur af stöðunni. Það má búast við viðbrögðum héðan ef þessi stuðn- ingur skilar sér á engan hátt til rit- höfundanna,“ segir Ragnheiður. Boðað hefur verið til stjórnarfundar í Rithöfundasambandinu á sunnudag vegna málsins. „Við ætlum að vera í startholunum ef þess gerist þörf,“ segir Ragnheiður. Leggja til „norsku leiðina“ Í umræðum rithöfunda hefur kom- ið fram nokkur vilji til að fara „norsku leiðina“ sem felur það í sér að ríkið skuldbindi sig til að kaupa ákveðið mörg eintök af hverri útgef- inni bók sem svo sé dreift á bókasöfn og skóla þar sem almenningur hafi aðgang að þeim. Hildur Knútsdóttir rithöfundur talar um þúsund eintök af hverri bók í þessu samhengi og myndi eflaust muna um minna fyrir marga höfunda. „Þessi hugmynd hefur verið nefnd í tengslum við bókmenningarstefnu Lilju. Þetta er mjög gagnsæ aðgerð og allir græða á henni, söfnin fá bæk- ur, það skapar aðgengi fyrir fólkið í landinu og höfundarnir fá þá alla vega laun fyrir þessi eintök. Það hef- ur enginn ráðamaður stokkið á þessa hugmynd og hefur hún þó verið kynnt minnst þremur ráðherrum. En Lilja hefur alla vega ekki ýtt henni út af borðinu,“ segir Ragnheið- ur. Rithöfundar óttast að þeir verði útundan Morgunblaðið/Styrmir Kári Bækur Rithöfundar eru ósáttir við að virðisaukaskattur verði ekki afnum- inn af bókum og telja að endurgreiðslur til útgefenda gagnist þeim einum. Ragnheiður Tryggvadóttir Einar Kárason

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.