Morgunblaðið - 29.09.2018, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 29.09.2018, Blaðsíða 2
Fagnar niðurstöðu Hæsta- réttar „Ég get ekki gert annað en að fagna þessu því ég hef verið þessar skoðunar áratugum sam- an,“ segir Hauk- ur Guðmundsson, fyrrverandi rannsóknar- lögreglumaður í Keflavík, sem var einn þeirra sem rannsökuðu hvarf Geirfinns Einarssonar, um sýknu Hæstaréttar í málinu. „Ég held nú að ég hafi verið fyrsti mað- urinn sem sagði opinberlega að ég efaðist um þessa niðurstöðu, sem endaði í þáttunum Sönn íslensk sakamál hjá Sigursteini Mássyni.“ Rannsókn í Keflavík var lokað en síðar tekin upp að nýju í Reykja- vík. „Við lokuðum engu, það var náttúrlega bara dómsmálaráðu- neytið sem ákvað að þessari form- legu rannsókn í Keflavík yrði hætt 5. júní 1975.“ Spurður um hvort hann muni eftir viðhorfi samstarfs- félaga sinna á þessum tíma segir hann að flestir hafi trúað því að málið væri leyst. „Þangað til dóm- urinn kom þá héldu menn að það væri búið að upplýsa þetta. Allir ánægðir með Þjóðverjann og héldu að þetta væri snillingur. Það var engin sérstök umræða um það en svo fór ég að lesa þetta yfir og skoða þetta og þá fannst mér þetta mjög sérkennilegt,“ segir Haukur og bætir við að það sé heilmikill léttir að búið sé að sýkna dómfelldu í málinu. Haukur Guðmundsson  Rannsakaði hvarf Geirfinns upphaflega Óska fjárnáms hjá vistmanni  Eir krefur Lýð Ægisson um 1,3 milljónir  Eignalítill og lítill afgangur af lífeyri Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Hjúkrunarheimilið Eir hefur með aðgerðar- beiðni óskað fjárnáms hjá Lýð Ægissyni, sjötug- um öryrkja í hjólastól með heilabilun, til trygg- ingar skuld að fjárhæð um 1,3 milljónir króna. Lýður bjó um tíma í öryggisíbúð á vegum Eir- borga í Grafarvogi, en Eir öryggisíbúðir ehf. rekur öryggisíbúðirnar og er félagið að fullu í eigu hjúkrunarheimilisins Eirar. Eftir að hann greindist með heilabilun í lok árs 2016 neyddist hann til að flytja úr íbúðinni af heilsufarsástæð- um og í hjúkrunarrými á hjúkrunarheimilinu. Leigusamningi vegna íbúðarinnar var sagt upp, en í samningnum var sex mánaða uppsagnar- frestur. Krafðist Eir því sex leigugreiðslna fyrir íbúðina, 574 þúsund króna fyrir hvern mánuð samtals fyrir íbúðina og hjúkrunarrýmið. Ósátt með samskiptin við Eir Sigurjón Lýðsson, sonur Lýðs, hefur annast samskipti við Eir fyrir hönd föður síns, en hann segir að engar eignir séu til staðar til að greiða skuldina. Hann er ósáttur með samskiptin við hjúkrunarheimilið, sem hafði gefið vilyrði fyrir því að greiðslum fyrir íbúðina yrði fækkað að ósk Lýðs og aðstandenda hans. „Við leituðum til þeirra og útskýrðum stöð- una. Við báðum um styttingu á uppsagnarfrest- inum og þeir sögðu að þetta ætti ekki að verða neitt vandamál. Síðan fengum við bara áfram reikningana og Eir vildi ekkert gera frekar í þessu máli,“ segir hann. Engar veraldlegar eignir til staðar „Það er lítið sem er hægt að gera og það er ekkert fyrir þá að hafa. Hann á enga veraldlega hluti lengur og það sem hann átti fór í brun- anum [í húsnæði Geymslna ehf.] í Miðhrauni í Hafnarfirði. Þetta hefur því miður verið alveg glatað ár fyrir þennan karl,“ segir Sigurjón. Lýður hefur 397 þúsund krónur í lífeyris- tekjur á mánuði og 320 þúsund fara til Eirar vegna hjúkrunarrýmis, þar sem Lýður býr í dag. Það sem eftir er hefur Lýður milli hand- anna til að standa undir öðrum útgjöldum. „Þetta smotterí sem hann fær í vasann notar hann til að fara í klippingu og til að borga af síma. Kannski vilja þau bara hafa það af honum líka,“ segir Sigurjón. „Það tæki hann allavega töluvert langan tíma að greiða þetta til baka,“ segir Sigurjón. Ekki náðist í forsvarsmenn hjúkrunarheim- ilisins Eirar við vinnslu fréttarinnar. Lýður Lífeyristekjur Lýðs eru 397.000 kr. á mán- uði og 320.000 greiðast mánaðarlega til Eirar. 2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 2018 VERÐ FRÁ 179.900 KR. MIKIÐ INNIFALIÐ NÁNAR Á UU.IS MAROKKÓ 13.–20. OKTÓBER Á KONUNGASLÓÐUM Marrakesh Atlasfjöllin Beni Mellal Fes Rabat Casablanca Áhugaverðir staðir á heimsminjaskrá UNESCO heimsóttir Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Stytting á námstíma til stúdentsprófs hefur lítil sem engin áhrif á getu nem- enda í undirstöðugreinunum stærð- fræði og íslensku. Þetta kemur fram í úttekt sem Verzlunarskóli Ís- lands gerði en skólinn hélt sam- ræmd próf fyrir nemendur sem voru að útskrifast á fjórum og þrem- ur árum. Meðaleinkunn nemenda í 3 ára námi var 6,0 og 5,4 hjá þeim í fjögurra ára námi. Í ís- lenskuhlutanum voru árgangarnir með sömu meðaleinkunn eða 6,5 og enginn merkjanlegur munur á dreif- ingu einkunna. Skólinn fékk einnig Maskínu með sér í lið sem gerði könnun meðal kennara og nemenda ásamt rýni- hópaviðtölum og var afstaða beggja hópa almennt jákvæð. „Í fyrsta lagi ætluðum við að rann- saka námsárangur. Meginniðurstað- an þar er að nemendur úr þriggja ára náminu eru ekkert síðri og í mörgum tilfellum betri,“ segir Ingi Ólafsson, skólastjóri, í samtali við Morgunblað- ið. Stærðfræði í fersku minni „Það eru nú kannski skýringar á þessu en við vitum það ekki. Það gæti verið vegna þess að það er styttra síð- an þriggja ára nemarnir voru í stærð- fræðinni. Þar eru ýmsar formúlur sem maður þarf að muna þannig að þau hafa sjálfsagt verið ferskari.“ Nemendur sem voru virkir í fé- lagslífi vildu helst vera í 4 ár í skól- anum, samkvæmt könnun Maskínu. Á heildina litið voru þeir 40 kennarar sem tóku þátt í könnun og rýnihópum ánægðir og fannst styttingin hafa tek- ist vel. Þakkar starfsfólki fyrir Ingi segir að í upphafi hafi hann haft allt á hornum sér við að stytta framhaldsskólann um eitt ár. „Þegar ég kynnti mér málið betur og fór að sökkva mér í þetta þá sá ég að þetta væri mjög vel gerlegt. Ég er persónu- lega mjög sáttur við hvernig þetta tókst hjá okkur. Það er þessum hópi kennara og annarra starfsmanna að þakka. Það voru um 50 manns sem tóku þátt í þessari vinnu,“ segir Ingi. mhj@mbl.is Stytting hefur ekki áhrif  Verslunarskóli Íslands birtir úttekt á styttingu náms í 3 ár Ingi Ólafsson „Ef þetta gerist efast ég um að þetta verði endurtekið nokkurn tímann,“ segir Ísleifur B. Þórhalls- son, tónleikahaldari hjá Senu Live, sem íhugar nú hvort haldnir verði aukatónleikar með Ed Sheeran á Laugardalsvelli næsta sumar. Miðar á tónleika kappans seldust upp á svipstundu fyrir helgi. Verið er að kanna grundvöll þess að bæta við öðrum 30 þúsund manna tón- leikum daginn eftir. Ákvörðun ligg- ur fyrir eftir helgi. freyr@mbl.is Tónleikahaldarar íhuga aukatónleika Mads Mikkelsen, leikarinn danski, tók í gær við heiðursverðlaunum RIFF, Alþjóðlegu kvik- myndahátíðarinnar í Reykjavík, fyrir framúr- skarandi framlag sitt til leiklistarinnar. Verð- launin afhenti Dagur B. Eggertsson borgarstjóri í Höfða í Reykjavík. Á hátíðinni, sem nú stendur yfir, verða sýndar nokkrar kvikmyndir með Mikkelsen í aðalhlutverki og mun hann taka þátt í umræðum um þær. Verðlaunaður fyrir framúrskarandi leik Morgunblaðið/Hari

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.