Morgunblaðið - 29.09.2018, Page 22

Morgunblaðið - 29.09.2018, Page 22
22 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 2018 STUTT ● Fjórir stjórnendur Símans nýttu sér í gær kauprétt í félaginu samkvæmt kaupréttaráætlun fyrirtækisins, en hún fól í sér að allir starfsmenn gátu keypt hlutabréf í félaginu fyrir 600 þúsund krónur á ári í þrjú ár á geng- inu 2,62. Frá þessu er greint í tilkynningu sem send var í gegnum Kauphöllina. Stjórnendurnir sem nýttu kauprétt- inn í Símanum voru þeir Orri Hauks- son forstjóri, Magnús Ragnarsson framkvæmdastjóri, Óskar Hauksson fjármálastjóri og Eric Figueras fram- kvæmdastjóri. Fjórir stjórnendur Sím- ans nýttu kauprétti sína Nýjar tölur Hagstofu Íslands sem birtar voru í gær benda til þess að ferðamenn lengi nú dvöl sína á hót- elum landsins. „Þetta virðast vera sterkar tölur, nánast þvert um landið. Það er áfram mikill vöxtur á Suðurlandi, og við erum að sjá gistinóttum fjölga hjá erlendum ferðamönnum. Þeim fjölgar á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum, Vesturlandi og á Suð- urlandi. Þetta gerist á sama tíma og ferðamönnum fækkaði í ágúst,“ seg- ir Þorsteinn Andri Haraldsson, sér- fræðingur hjá greiningardeild Ar- ion banka, þegar tölurnar eru bornar undir hann. Hann segir að þróunin sé öfug við hvað gerðist á fyrri helmingi ársins. „Framan af ári sáum við að ferða- mennirnir voru að stytta dvöl sína, en þarna snýst það við. Við sjáum þetta líka í neyslutölum, en korta- veltutölur í ágúst voru nokkuð sterkar.“ Þorsteinn segir að hótelnýting sé áfram góð, þó hún haldi áfram að minnka á höfuðborgarsvæðinu, enda hafi framboðið á gistirými aukist um sex prósent nú í ár að hans sögn. „Það er að myndast eðli- legra ástand á höfuðborgarsvæðinu. Nýtingin er að lækka alls staðar annars staðar en á Suðurnesjunum og Vesturlandi.“ Gistinætur voru 1,7 milljónir Samkvæmt tölum frá Hagstofunni voru gistinætur ferðamanna á öllum gististöðum í ágúst sl. rúmlega 1,7 milljónir, en tæplega 1,6 milljónir í sama mánuði í fyrra. „Gistinætur á hótelum og gisti- heimilum voru 714.500, gistinætur á farfuglaheimilum, svefnpokaplássi, tjaldsvæðum o.þ.h. voru 688.500, og 331.000 í gegnum vefsíður á borð við Airbnb. Heildarfjöldi gistinátta í ágúst jókst um 10% milli ára, þar af var 7% fjölgun á hótelum og gisti- heimilum, 16% fjölgun á öðrum teg- undum gististaða og 6% fjölgun á stöðum sem miðla gistingu gegnum Airbnb og svipaðar síður.“ Þá kemur fram að gistinætur er- lendra ferðamanna hafi til viðbótar verið 84 þúsund í bílum utan tjald- svæða og 46 þúsund hjá vinum og ættingjum, í gegnum húsaskipti eða á öðrum stöðum þar sem ekki var greitt sérstaklega fyrir gistingu. tobj@mbl.is Viðsnúningur í gistinóttum  10% fjölgun  Hótelnýting minnkar BAKSVIÐ Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Íslenska sprotafyrirtækið geoSilica er metið á 700 milljónir króna miðað við fyrstu umferð fjármögnunar sem fyrirtækið hefur nú lokið. Nýir hlut- hafar koma að fyrirtækinu með 40 milljónir króna í formi nýs hluta- fjár. Þeir eignast með framlagi sínu tæplega 6% hlut í fyrirtækinu. Í hópi hinna nýju hluthafa eru Guð- mundur Þórodds- son, Hjörtur Gíslason og Guðjón Jónsson. Það er fyrirtækið Spakur sf. sem kom að undirbúningi hlutafjáraukningarinn- ar í samstarfi við forsvarsmenn geoSilica. Fida Abu Libdeh stofnaði geoSi- lica árið 2012 ásamt samstarfsmanni sínum, Burkna Pálssyni. Hún segist afar ánægð með aðkomu hinna nýju hluthafa. „Þetta eru mjög góðar fréttir fyrir okkur og núna getum við haldið áfram að byggja fyrirtækið upp. Með nýju hluthöfunum ætlum við líka að stefna inn á nýja markaði, ekki síst í Skandinavíu. Í hópi þeirra er þekk- ing á þeim markaði sem mun nýtast okkur vel.“ Jarðhitavatnið er grunnurinn GeoSilica vinnur kísilsteinefni sem unnið er úr jarðhitavatni sem fellur til við rekstur Hellisheiðarvirkjunar. Fyrirtækið var stofnað af Fidu og Burkna árið 2012 á grundvelli loka- verkefnis þeirra í orku- og umhverf- istæknifræði. Það tók fyrirtækið þrjú ár að þróa fyrstu vöruna sem frá þeim tíma hefur verið á markaði. „Við seldum vörur okkar fyrir 40 milljónir á fyrstu sex mánuðum þessa árs og það er rétt tæpur helm- ingurinn sem hefur selst erlendis og að langmestu leyti í gegnum þýska vefverslun sem sérhæfir sig í heilsu- vörum. En við erum líka að selja vör- urnar í mörgum verslunum hér á Ís- landi, apótekum, Nóatúni, Nettó, Hagkaup og svo mun þetta einnig fást í Krónunni fljótlega,“ segir Fida. Hún segir að mikil eftirspurn sé eftir vörum eins og þeim sem geoSi- lica framleiðir. Slíkar vörur hafi lengi verið á markaði í Þýskalandi en mun víðar sé fólk að opna augun fyrir alvarlegum afleiðingum steinefna- skorts. „Það eru í raun ekki síst allskyns lífsstílssjúkdómar sem tengjast skorti á steinefnum í líkamanum. Vörurnar okkar hjálpa fólki til að tryggja líkamanum þessi efni. Það sem gerir þau ekki síst spennandi í huga kaupenda er sú staðreynd að þau eru náttúruleg og það skemmir svo sannarlega ekki fyrir að þau eru frá Íslandi,“ segir Fida. Endalaus framleiðslugeta Spurð út í framleiðsluna segir Fida að það séu í raun engir eiginleg- ir flöskuhálsar þegar kemur að henni. „Það er í raun hægt að framleiða endalaust af þessu efni. Við erum í dag að nýta um 1 lítra á sekúndu frá virkjuninni en þar renna í gegn 750 lítrar á hverri sekúndu. Framleiðsl- an hjá okkur byggist á góðu sam- starfi og langtímasamningi við Orku náttúrunnar.“ En það er ekki framleiðslugetan sem Fida segir að áskoranirnar tengist í rekstrinum. „Helmingurinn af þessu er þróun- in og framleiðslan. Það er markaðs- setningin og sölustarfið sem er ann- að eins. Þar liggur gríðarleg vinna að baki og ég held að núna munum við sjá aukinn kraft fara í það. Fjár- magnið sem við fáum inn í fyrirtækið núna verður nýtt til að sækja inn á nýju markaðina.“ Spurð út í vaxtarmöguleikana seg- ir hún að næstu ár verði spennandi. Stefnt sé að því að fyrirtækið verði réttum megin við núllið árið 2020 en að viðtökurnar á mörkuðum erlendis gefi til kynna að vöxturinn geti orðið mjög mikill á komandi árum. Í dag starfa 5 manns í fullu starfi hjá fyr- irtækinu. Merkilegur bakgrunnur Saga Fidu Abu Libdeh er merki- leg fyrir margra hluta sakir. Hún er frá Palestínu en flutti hingað til lands aðeins 16 ára gömul. Hún átti fyrst í stað erfitt með að læra íslensku en innritaðist að lokum í háskólabrú Keilis á Reykjanesi og lauk svo námi í orku- og umhverfistæknifræði. Þá hefur hún einnig lokið MBA-gráðu frá Háskólanum í Reykjavík. Sprotafyrirtækið geoSilica metið á 700 milljónir króna  Fjárfestar koma að fyrirtækinu með nýtt hlutafé  Selja mest til Þýskalands Nýting Vörurnar eru unnar úr vatni úr borholum Hellisheiðarvirkjunar. Velgengni Vörurnar seljast afar vel. Fida Abu Libdeh 29. september 2018 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 109.74 110.26 110.0 Sterlingspund 144.21 144.91 144.56 Kanadadalur 84.0 84.5 84.25 Dönsk króna 17.233 17.333 17.283 Norsk króna 13.506 13.586 13.546 Sænsk króna 12.43 12.502 12.466 Svissn. franki 113.08 113.72 113.4 Japanskt jen 0.9727 0.9783 0.9755 SDR 153.76 154.68 154.22 Evra 128.54 129.26 128.9 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 156.2953 Hrávöruverð Gull 1196.0 ($/únsa) Ál 2056.0 ($/tonn) LME Hráolía 81.8 ($/fatið) Brent bestalambid.isBeztu uppskriftirnar okkar Enn einn dagur í Paradís Bez t á svínið Viðskipti

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.