Morgunblaðið - 29.09.2018, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 29.09.2018, Qupperneq 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 2018 Galleri Ozone | Austurvegi 35 | 800 Selfoss | S. 534 8040 | Skoðaðu úrvalið á | Sendum frítt um land allt St. 36-4 Verð 2 4 . Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Alþjóða hafrannsóknaráðið, ICES, leggur til rúmlega 40% samdrátt í makrílafla á næsta ári. Lagt er til að aflinn fari ekki yfir 318 þúsund tonn 2019, en ráðgjöf þessa árs var upp á 551 þúsund tonn. Í mörg ár hefur makríll verið veiddur umfram ráðgjöf og þannig er áætlað að heildaraflinn í ár verði ríflega ein milljón tonn. Hrygningarstofn makríls er kominn undir varúðar- eða aðgerðamörk og er það í fyrsta skipti sem það gerist frá árinu 2007. Í Noregi hefur komið fram hörð gagnrýni á aðferðafræði við stofnmatið. Enginn heildarsamningur er í gildi um veiðar á uppsjávartegundum í NA-Atlantshafi. Fundir strandríkja um veiðar úr þessum stofnum verða haldnir í London í næsta mánuði og verður fundað um makríl 8.-9. októ- ber. Samkomulag Norðmanna, Evr- ópusambandsins og Færeyinga um makrílveiðar rennur út um áramót. Íslendingar eru ekki aðilar að því samkomulagi, en hafa miðað við 16,5% af aflamarki fyrrnefndra þjóða. Í aflareglu samnings ESB, Noregs og Færeyja hefur verið ákvæði um að aflinn sveiflist aldrei meira upp en sem nemur 25% og aldrei meira niður en sem nemur 20% á milli ára. Þessi tregðuregla átti hins vegar að falla nið- ur færi stofninn undir aðgerðamörk. Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrir- tækja í sjávarútvegi, sagðist í gær ekki vilja tjá sig um ráðgjöfina að svo stöddu. Þrjár ástæður fyrir lækkun Samkvæmt upplýsingum frá ICES, sem einnig er að finna á heimasíðu Hafrannsóknastofnunar, eru þrjár ástæður fyrir minnkun á ráðlögðum afla fyrir árið 2019 samanborið við síð- ustu ráðgjöf. Í fyrsta lagi er hrygning- arstofninn núna metinn minni en í stofnmati síðasta árs. Í öðru lagi hefur hrygningarstofninn farið minnkandi undanfarin ár, veiðiálag hefur verið hátt og nýliðun undir meðallagi síð- ustu ár sem veldur því að spáð er enn frekari minnkun hrygningarstofns á næstu árum. Í þriðja lagi mun stærð hrygning- arstofns verða undir aðgerðamörkum árið 2019 og í samræmi við nýtingar- stefnu er þá dregið úr veiðiálagi. Mið- að verður við 0,17 í fiskveiðidánartölu í staðinn fyrir 0,21 þegar lífmassi stofnsins er yfir varúðarmörkum. Fiskveiðidauði hefur aukist frá árinu 2012 og er meiri en sá fiskveiðidauði sem gefur hámarksafrakstur. Samkvæmt stofnmati stækkaði hrygningarstofninn frá 2005–2011 en hefur farið minnkandi síðan. Nýliðun var að jafnaði góð frá aldamótum til ársins 2014 en árgangar 2015 og 2016 eru metnir undir meðaltali. Spár sýna að stærð hrygningarstofns verður áfram fyrir neðan aðgerðamörk 2019 og 2020 jafnvel þótt afli ársins 2019 verði samkvæmt ráðgjöf ICES. Norðmenn vilja að ICES fari yfir aðferðir og gögn Síðustu daga hafa heyrst háværar gagnrýnisraddir frá Noregi um gæði stofnmatsins. Þannig fóru samtök út- gerðarmanna, uppsjávarfyrirtækja og sjómanna í Noregi fram á það í vik- unni að ráðgjöf um makrílafla yrði ekki birt. Undir gagnrýnina tók norska hafrannsóknastofnunin í gær og fór fram á að Alþjóða hafrann- sóknaráðið færi nákvæmlega yfir gögn og aðferðir sem liggja að baki ráðgjöfinni. Einkum eru það merkingagögn og mikil áhrif þeirra sem hafa valdið gagnrýni og í eftirfarandi kafla um gæði stofnmats á makríl verður ekki annað séð en að ICES taki að hluta undir gagnrýni Norðmanna: „Sumar gagnaraðirnar sem notað- ar eru við mat á stofnstærð eru stutt- ar (t.d. makrílleiðangur að sumri í 8 ár og merkingargögn með 6 ár af end- urheimtum). Þegar ný gögn bætast við stuttar gagnaraðir getur vægi við- komandi gagna í stofnmati breyst og þar með útkoma stofnmatsins. ´ Þannig kemur í ljós að ef merking- argögnin væru ekki notuð í stofnmat- inu eða forsendum breytt hvernig gögnin eru notuð, þá hefur það mikil áhrif á niðurstöður matsins.“ Einnig kemur fram að stofnmatið er viðkvæmt fyrir ósamræmi í mis- munandi inntaksgögnum sem notuð eru. Merkingargögn sem til eru frá árinu 2012 hafa þannig mest vægi inn- taksgagna í núverandi mati. Þá segir jafnframt: „Þörf er á ná- kvæmari greiningu á því hvernig stofnmatslíkanið ákvarðar vægi gagnaraða í stofnmati.“ Vart er hægt að túlka þetta öðruvísi en svo að ICES telji að þörf sé á að farið verði yfir líkanið en hvergi kemur þó fram hvort ICES hyggist gera slíkt á næstu vikum eða mánuðum. Makríll hefur gengið á Íslandsmið í fæðuleit yfir sumarmánuðina í ríflega áratug og er orðinn einn helsti nytja- stofninn. Niðurstöður árlegs makríl- leiðangurs í NA-Atlantshafi sumarið 2018 benda til að talsvert minna magn af makríl hafi verið innan íslenskrar lögsögu en síðustu sumur. Ástæður minni makrílgengdar eru óþekktar. Morgunblaðið/Börkur Kjartansson Á makrílveiðum Áætlað hefur verið að heildarverðmæti makrílafurða frá Íslandi verði 14-16 milljarðar króna í ár. Mikill samdráttur í makrílráðgjöf  Hrygningarstofn kominn undir varúðarmörk  Spáð enn frekari minnkun  Norðmenn efast um gæði stofnmatsins ICES leggur til, í samræmi við langtímanýtingarstefnu, að afli ársins 2019 verði ekki meiri en 1,14 milljón tonn. Ráðgjöf fyrir þetta ár var 1,39 milljón tonn en gert er ráð fyrir að aflinn á árinu verði alls um 1,7 milljón tonn. Frá árinu 2011 hefur veiðidánartala hækkað og hefur frá árinu 2014 verið yfir þeim fiskveiðidauða sem gefur hámarksafrakstur til lengri tíma litið. Hrygningarstofninn hefur minnkað frá árinu 2017 en er enn vel ofan við aðgerðamörk. Árgangar 2016 og 2017 eru metnir undir meðallagi en árgangar 2013–2015 voru stórir. Venjulega hefur ICES birt ráðgjöf á sama tíma í norsk-íslenskri síld og fyrir makríl og kolmunna. Þar sem unnið er að endurskoðun aflareglu í síld mun ICES ekki veita ráð um hámarksafla úr norsk-íslenska síldar- stofninum fyrr en 23. október næstkomandi. Kolmunni niður – síldin bíður ALÞJÓÐA HAFRANNSÓKNARÁÐIÐ 318.000 t. Heildarráðgjöf ICES fyrir 2019. 551.000 t. Ráðgjöfin fyrir árið 2018 1.000.000 t. Áætlað er að heildarafli ársins fari yfir eina milljón tonna. MAKRÍLL » Landsréttur staðfesti í gær dóm Héraðsdóms Reykjavíkur í skaða- bótamáli Ástu Kristínar Andrésdótt- ur hjúkrunarfræðings gegn íslenska ríkinu þar sem ríkið var sýknað af skaðabótakröfu hennar. Ásta Kristín fór fram á fjórar milljónir króna í miskabætur. Ásta Kristín var ákærð fyrir manndráp af gáleysi í kjölfar þess að sjúklingur á Landspítalanum sem var í hennar umsjá lést í byrjun októ- ber 2012. Héraðsdómur sýknaði Ástu Kristínu síðan af ákærunni í desember 2015. Höfðaði hún skaða- bótamálið gegn ríkinu í framhaldinu. Héraðsdómur sýknaði ríkið af kröf- unni 29. nóvember á síðasta ári. Skaðabótakrafan var byggð á því að starfsmenn ríkisins, einkum lög- reglumenn sem komu að rannsókn málsins, hefðu gert mistök við upp- haf málsins sem hefðu leitt til þess að Ásta Kristín tók á sig ábyrgð á and- láti sjúklingsins að ósekju. Ekki var fallist á að bótaskylda hefði skapast vegna framgöngu lögreglu. Fram kemur þannig í dómi Lands- réttar að þrátt fyrir forsendur þær sem fram komi í niðurstöðu Héraðs- dóms Reykjavíkur í sakamálinu um að rannsókn þess hafi verið ábóta- vant verði ekki talið í ljósi gagna málsins að lögreglan hafi sýnt af sér saknæma og ólögmæta hegðun eða að ákæruvaldið hafi ekki farið að lög- um. Þannig verði ekki talið að rann- sókn lögreglu hafi falið í sér ólög- mæta meingerð gegn frelsi, friði, æru eða persónu Ástu Kristínar þannig að það leiði til bótaskyldu rík- isins eða að farið hafi verið gegn ákvæðum mannréttindasáttmála Evrópu og stjórnarskrárinnar um réttláta málsmeðferð. Málskostnaður Ástu Kristínar greiðist úr ríkissjóði en um gjafsókn var að ræða. Ásta Kristín fær ekki miskabætur  Landsréttur staðfesti sýknudóminn Morgunblaðið/Jón Pétur Dómur Ásta var sýknuð af mann- drápi af gáleysi árið 2015.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.