Morgunblaðið - 29.09.2018, Side 24

Morgunblaðið - 29.09.2018, Side 24
24 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 2018 Bogi Þór Arason Jón Birgir Eiríksson Dómsmálanefnd öldungadeildar Bandaríkjaþings samþykkti í gær að leggja til að tilnefning Bretts Kavanaughs í embætti hæstarétt- ardómara yrði staðfest í öldunga- deildinni. Einnig var samþykkt að óskað yrði eftir því við Donald Trump Bandaríkjaforseta að gerð yrði ný rannsókn alríkislögreglunnar FBI á ásökunum kvenna á hendur Kav- anaugh um kynferðisofbeldi. Sam- þykkti Trump tillöguna, en rann- sóknin mun að beiðni nefndarinnar ekki taka lengri tíma en eina viku. Ellefu repúblikanar eru í nefnd- inni og þeir greiddu allir atkvæði með tillögunni. Tíu demókratar eiga sæti í nefndinni og voru allir andvígir tilnefningunni. Þeir höfðu krafist þess að atkvæðagreiðslunni yrði frestað til að alríkislögregan FBI gæti rannsakað ásakanirnar á hendur Kavanaugh. Fyrir atkvæðagreiðsluna var tal- ið óvíst hvort Jeff Flake, repúblik- ani frá Arizona, styddi tillöguna en hann sagði skömmu áður en fund- ur nefndarinnar hófst í gær að hann hygðist greiða atkvæði með henni. Á síðustu stundu gerði hann að skilyrði fyrir stuðningi sínum að óskað yrði eftir fyrrnefndri rann- sókn sem tæki ekki lengri tíma en eina viku. Þótti mjög trúverðug Lokaatkvæðagreiðsla um til- nefninguna fer fram í öldunga- deildinni, en repúblikanar eru með nauman meirihluta í deildinni, 51 sæti á móti 49. Ef allir demókrat- arnir hafna tilnefningunni fellur hún ef tveir repúblikanar greiða atkvæði gegn henni. Ef 50 þingmenn greiða atkvæði með henni og jafnmargir á móti getur Mike Pence, varaforseti Bandaríkjanna, greitt oddaat- kvæði. Talið er að tvær konur úr röðum repúblikana í öldungadeild- inni geti ráðið úrslitum, þær Susan Collins og Lisa Murkowski. Donald Trump Bandaríkjafor- seti áréttaði stuðning sinn við Kav- anaugh eftir að dómaraefnið kom fyrir nefndina í fyrradag og varðist ásökunum sálfræðiprófessorsins Christine Blasey Ford og tveggja annarra kvenna sem hafa sakað Kavanaugh um kynferðisofbeldi. Ford kom einnig fyrir nefndina og sakaði Kavanaugh um tilraun til nauðgunar. Einn stjórnmálaskýr- enda Fox News, Chris Wallace, sagði að vitnisburður hennar hefði verið „mjög tilfinningaþrunginn“, „mjög trúverðugur“ og „þungt áfall“ fyrir repúblikana. Kavanaugh kvaðst vera saklaus af ásökunum um kynferðisofbeldi, virtist vera gráti nær þegar hann sagðist hafa beðið fyrir Ford, og gagnrýndi demókrata harkalega fyrir að standa á bak við þær. Trump sagði að vitnisburður dóm- araefnisins hefði verið „öflugur, hreinskilinn og áhrifamikill“. Meðalfylgi síðustu forseta í könnunum fyrsta 21 mánuðinn í valdatíð þeirra (í %) Fylgi forseta Bandaríkjanna 200 400 600 1. dagurinn 1. dagurinn 200. 400. 600. 615. dagurinn 6 vikum fyrir þingkosningar 41,4 45,3 64,5 44,945.5 68,0 46,0 54,0 36,4 Trump deilir við bandarísku alríkislögregluna FBI Stórauknum fjárlagahalla spáð. Áform Obama um að breyta heilbrigðis- kerfinu mæta andstöðu Fylgi Bush stórjókst eftir hryðjuverkin 11. sept. 2001 Efnahagsleg endurreisnaráætlun (Clinton) Óánægja með stefnu Clintons nær hámarki 44,7 60,9 88,4 36,8 Heimild: projects.fivethirtyeight.com Donald Trump Bill ClintonGeorgeW. BushBarack Obama 2017- 1993-20012009-2017 2001-2009 90% 80 50 20 30 Þingnefnd styður tilnefninguna  Donald Trump óskar eftir rannsókn FBI á Kavanaugh Öflugur jarðskjálfti reið yfir eyjuna Sulawesi á Indónesíu í gær og olli flóðbylgju sem skall á Palu, 350.000 manna borg um 80 km frá skjálfta- miðjunni. Fregnir hermdu að mörg hús hefðu hrunið í náttúruhamför- unum. Ekki var vitað hvort manntjón hefði orðið í skjálftanum, samkvæmt síðustu fréttum í gær. Hann var öfl- ugri en jarðskjálftar sem kostuðu rúmlega 550 manns lífið á eyjunum Lombuk og Sumbawa í sumar, auk þess sem um 400.000 manns misstu heimili sitt. Jarðskjálftinn í gær mældist 7,5 stig og olli mikilli skelfingu meðal Sulawesi-búa sem hlupu út á götur og forðuðu sér frá ströndinni af ótta við flóðbylgju. Almannavarnastofn- un landsins gaf út flóðbylgjuviðvör- un en aflétti henni tæpri klukku- stund síðar. Seinna voru birt myndskeið þar sem flóðbylgja sjást skella á nokkrum byggingum í Palu. Sjór flæddi einnig inn í stóra mosku í borginni, að sögn fréttaveitunnar AFP. Almannavarnastofnun Indó- nesíu sagði að flóðbylgjan hefði verið allt að 1,5 metra há. „Við höfum fengið upplýsingar um að mörg hús hefðu hrunið í skjálft- anum,“ hefur AFP eftir talsmanni al- mannavarnastofnunarinnar. Hann sagði að björgunarsveitir hefðu verið sendar á svæðin þar sem tjónið var mest. Á jarðskjálftabelti Jarðhræringar og eldgos eru al- geng á Indónesíu. Landið er á svæði sem nefnt hefur verið „Eldhringur- inn“ sem liggur umhverfis Kyrrahaf, meðfram Suður- og Norður-Amer- íku, suður yfir Japan, Indónesíu, Fil- ippseyjar og til Nýja-Sjálands. Á Eldhringnum eru meira en 75% eld- fjalla heimsins og þar verða um það bil 90% af öllum jarðskjálftum heims. Lombok 500 km MALASÍA INDÓNESÍA INDLANDS- HAF JAKARTA Bali AUSTUR- TÍMOR Jarðskjálfti í Indónesíu Jövuhaf Miðja skjálfta semmældist 7,5 stig Sulawesi AFP Eyðilegging Verslunarmiðstöð sem hrundi í borginni Palu þegar jarð- skjálfti reið yfir í gær. Mörg hús eru sögð hafa hrunið í hamförunum. Skjálfti olli flóðbylgju  Hús hrundu og fólk flúði í skelfingu Hundruð lögreglumanna í Dan- mörku leituðu í gær að þremur mönnum í mjög viðamikilli aðgerð sem náði til nær alls landsins. Yfir- völd sögðu að mennirnir væru grunaðir um „alvarlega glæpi“ og hefðu verið í Volvo-bíl sem var stol- ið í Svíþjóð fyrir fimm dögum. Bíll- inn fannst síðdegis í gær en ekki kom fram hvort mennirnir náðust. Vopnaðir lögreglumenn og her- menn tóku þátt í leitinni að mönn- unum, að því er fram kom á frétta- vef danska ríkisútvarpsins. Ferju- og lestasamgöngur stöðv- uðust og brúm var lokað vegna leit- arinnar. Eyrarsundsbrúin, milli Svíþjóðar og Danmerkur, var lokuð í um tvær klukkustundir og einnig Stórabeltisbrúin milli Sjálands og Fjóns. Danski herinn staðfesti að hermenn hefðu tekið þátt í leitinni. Ekki kom fram hvers konar glæpi mennirnir eru grunaðir um. DANMÖRK Mjög viðamikil leit að glæpamönnum Funahöfða 7, 110 Reykjavík | Sími 577 6666 ., '*-�-��,�rKu�, KIEL/ - OG FRYSTITJEKI æli- & frystiklefar í öllum stærðum K Bernhard - Honda á Íslandi Vatnagörðum 24 • 104 Reykjavík • Sími 520 1100 • www.honda.is Umboðsaðilar: Bernhard, Reykjanesbæ, sími 421 7800 • Bílver, Akranesi, sími 431 1985 Höldur, Akureyri, sími 461 6020 • Bragginn, Vestmannaeyjum, sími 481 1535 VERÐ KR. 1.690.000 4X4 • AFLSTÝRI • DCT SJÁLFSKIPT SJÁLFSTÆÐ FJÖÐRUN • VATNSKÆLT TRX420FA6

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.