Morgunblaðið - 29.09.2018, Side 46
46 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 2018
Söfn • Setur • Sýningar
LISTASAFN ÍSLANDS
Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár
grunnsýning Þjóðminjasafnsins
Heiðnar grafir í nýju ljósi
– sýning um fornleifarannsókn á Dysnesi við Eyjafjörð
Alfreð D. Jónsson – Hver er á myndinni? Greiningarsýning í Myndasal
Hjálmar R. Bárðarson – Aldarminning á Vegg
Prýðileg reiðtygi í Bogasal
Leitin að klaustrunum í Horni
Safnbúð fjölbreytt úrval gjafavöru
Kaffitár ljúfar veitingar í fallegu umhverfi
Sjónarhorn - Ferðalag um íslenskan myndheim fyrr og nú
grunnsýning Safnahússins
Jónsbók, kirkjulist, skjöl, samtímalist, alþýðulist, plötuumslög,
ljósmyndir, landakort, vaxmynd og margt fleira
Bókverk og Kveisustrengur úr Landsbókasafni Íslands - Háskólabókasafni
Fræðslurými og skemmtilegt fræðsluefni fyrir alla fjölskylduna
Safnbúð Bækur og gjafavörur í úrvali
Júlía & Julia ljúfar veitingar í fallegu umhverfi
Safnahúsið er hluti af Þjóðminjasafni Íslands
Hverfisgata 15, 101 Reykjavík, s. 530 2210
www.safnahusid.is - https://www.facebook.com/safnahusid/
Opið þriðjud.-sunnud. kl. 10-17
SAFNAHÚSIÐ VIÐ HVERFISGÖTU
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS
Suðurgata 41, 101 Reykjavík, s. 530 2200,
www.thjodminjasafn.is • www.facebook.com/thjodminjasafn
Opið þriðjud.-sunnud. kl. 10-17
Sunnudaginn 30. september kl. 14 mun Eiríkur G. Guðmundsson,
þjóðskjalavörður leiða gesti um sýninguna Lífsblómið þar sem
sérstök áhersla verður lögð á skjölin á sýningunni.
LÍFSBLÓMIÐ - FULLVELDI ÍSLANDS Í 100 ÁR
FJÁRSJÓÐUR ÞJÓÐAR Valin verk úr safneign
BÓKFELL eftir Steinu í Vasulka-stofu
SAFNBÚÐ – Listrænar gjafavörur
Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600, www.listasafn.is.
Listasafn Íslands er opið alla daga frá kl. 10-17.
LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR
TVEIR SAMHERJAR – ASGER JORN OG SIGURJÓN ÓLAFSSON
Opið alla daga frá kl. 13-17.
Laugarnestanga 70, sími 553 2906, www.lso.is
Kaffistofa – heimabakað meðlæti
SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR - HEIMILI LISTAMANNS OG SÝNINGAR
KORRIRÓ OG DILLIDÓ - ÞJÓÐSAGNAMYNDIR ÁSGRÍMS JÓNSSONAR
Opið alla daga frá kl. 13-17.
Bergstaðastræti 74, sími 561 9616, www.listasafn.is
Sara Danius, Kjell Espmark og Pet-
er Englund setja það sem skilyrði
fyrir því að snúa aftur til starfa hjá
Sænsku akademíunni (SA) að Kata-
rina Frostenson, eiginkona Jean-
Claude Arnault, hætti formlega
störfum fyrir SA. Frá þessu greinir
SVT. Öll drógu þau fjögur sig í hlé
frá störfum SA í vor, án þess þó að
hætta formlega, eftir harðvítugar
deilur innan SA um það hvernig
taka skyldi á ásökunum þess efnis
að Arnault hefði áratugum saman
beitt konur kynferðisofbeldi og átt
óeðlileg fjárhagsleg tengsl við SA
gegnum eiginkonu sína og vin sinn
Horace Engdahl. Síðla sumars
gerðu Danius, Espmark og Eng-
lund kröfu um að Engdahl myndi
víkja úr SA, en hann þvertók fyrir
það. Nú krefjast þremenningarnir
að Frostenson hætti formlega störf-
um fyrir SA. Samkvæmt stofnsátt-
mála SA þarf atkvæði 12 af 18 með-
limum SA til að taka allar meiri-
háttar ákvarðanir, s.s. að velja inn
nýja meðlimi. Sem stendur eru að-
eins 10 starfandi meðlimir.
„Frostenson hyggst ekki hætta
formlega. Þó er möguleiki á því að
hún skipti um skoðun ef eigin-
maður hennar verður sakfelldur á
mánudag,“ segir nafnlaus heimild-
armaður SVT. Réttarhöld yfir
Arnault vegna tveggja nauðgana
sem hann á að hafa framið í árslok
2011 hófust fyrr í mánuðinum og á
lokadegi þeirra var hann hnepptur
í gæsluvarðhald fram yfir dóms-
uppkvaðningu á mánudag. Sam-
kvæmt heimildum Expressen kem-
ur krafan um formlega afsögn
Frostenson ekki aðeins frá Danius,
Espmark og Englund heldur frá
fleiri meðlimum SA sem hóta því að
hætta ef hún hætti ekki. Samkvæmt
heimildum Dagens Nyheter hefur
sænska hirðin verið upplýst um
þessa afstöðu meðlima SA.
silja@mbl.is
AFP
Umdeild Hjónin Katarina Frosten-
son og Jean-Claude Arnault á leið í
hátíðarkvöldverð hjá Karli XVI.
Gústaf Svíakonungi í árslok 2011.
Krefjast þess að Frost-
enson hætti formlega
Kvikmyndin Styx er einþriggja sem keppa tilLux-verðlaunanna, kvik-myndaverðlauna Evrópu-
þingsins, en hinar tvær eru kvikmynd
Benedikts Erlingssonar, Kona fer í
stríð, og Druga strana svega eða Hin
hliðin á öllu saman eftir leikstjórann
Milu Turajilc. Svo merkilega vill til að
allar þrjár fjalla um konur sem takast
á við miklar áskoranir.
Í Styx segir af konu um fertugt,
Rilke, sem heldur ein á seglskútu frá
Gíbraltar og tekur stefnuna á para-
dísareyjuna Ascension fyrir miðju
Atlantshafi. Byrjun myndarinnar
vekur sannarlega áhuga og forvitni,
apar hlaupa um götur á ónefndum
stað og fljótlega áttar áhorfandinn sig
á því hvar hann er staddur, að því
gefnu að hann kannist við Gíbraltar
og apana þjófóttu sem leika þar laus-
um hala. Þegar kvöldar verðum við
vitni að glæfralegum ofsaakstri
tveggja manna. Gáleysi þeirra veldur
slysi á þriðja ökumanninum sem
læknar og sjúkraliðar koma að með-
vitundarlausum undir stýri. Einn
læknanna er söguhetja myndarinnar,
Rilke, og hugar hún að manninum og
kemur upp í sjúkrabíl. Næsta dag
fylgjumst við með Rilke þar sem hún
undirbýr skútu fyrir sjóferð og mælir
m.a. leiðina frá Gíbraltar að Ascens-
ion á sjókorti. Þetta er sniðug leið hjá
leikstjóranum, að láta áhorfandann
vita með svo einföldum hætti af fyrir-
ætlunum Rilke. Hún gerir sig klára
fyrir sjóferðina og ber sig mjög fag-
mannlega að. Við tekur svo um hálf-
tíma löng sigling án nokkurs tals.
Rilke lendir í vonskuveðri en tekst að
halda bátnum á floti og greinilegt að
hún er þaulvön siglingum (sem leik-
konan mun víst vera). Þegar storm-
inn lægir tekur hún eftir fiskibáti
skammt frá, yfirfullum af flóttamönn-
um. Rilke áttar sig á því að báturinn
er að sökkva og að fólkið er í lífs-
hættu, hátt í hundrað flóttamenn.
Hún kallar á hjálp í talstöðinni og
nær loks sambandi við landhelgis-
gæsluna sem varar hana við því að
koma fólkinu til bjargar. Hún eigi alls
ekki að reyna björgun því hún geti
með henni stefnt bæði fólkinu og
sjálfri sér í bráða hættu. Skútan
hennar muni ekki ráða við þennan
mannfjölda, sem er eflaust rétt.
Rilke á auðvitað erfitt með að hlýða
þessum fyrirmælum og kallar ítrekað
eftir hjálp næstu klukkustundirnar
en fær alltaf þau svör að björgunar-
skip sé á leiðinni. Tíminn líður og
ekkert bólar á björgun. Flóttamenn-
irnir verða sífellt örvæntingarfyllri,
það heyrir áhorfandinn af ópunum,
enda sjá þeir skútu Rilke. Tánings-
piltur reynir að synda að skútunni en
örmagnast á leiðinni. Rilke bjargar
honum úr sjónum og gerir að sárum
hans. Drengurinn missir meðvitund
og þegar hann rankar við sér og áttar
sig á því að bjargvættur hans ætlar
ekki að bjarga fleirum af bátnum
bregst hann að vonum illa við. Og
skútan er auk þess komin það langt
frá bátnum að ekki er hægt að bjarga
fólkinu. Rilke getur ekki annað en
hlýtt tilmælum landhelgisgæslunnar
sem drengurinn veit ekkert um og
myndi heldur aldrei geta skilið.
En er sú ákvörðun hennar rétt eða
röng og eru þessi tilmæli landhelgis-
gæslunnar réttlætanleg? Og hvernig
er að lifa með því að hafa getað bjarg-
að tugum mannslífa en hafa þess í
stað ekkert aðhafst, af ótta við yfir-
völd og mögulega refsingu?
Þetta eru þær stóru spurningar
sem varpað er fram í Styx og vekja
áhorfandann til umhugsunar um
hvort verðmæti mannslífa sé misjafnt
eftir því hver á í hlut. Hvað myndir
þú gera ? Myndir þú bjarga fólki á
flótta eða eigin skinni?
Ein á báti
RIFF 2018 – Bíó Paradís
Styx bbbbn
Leikstjóri: Wolfgang Fischer. Handrit:
Wolfgang Fischer og Ika Künzel. Aðal-
leikarar: Susanne Wolff og Gedion Odu-
or Wekesa. Þýskaland, 2018. 94 mín-
útur. Flokkur: Lux-verðlaunin.
HELGI SNÆR
SIGURÐSSON
KVIKMYNDIR
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Þegar við Sigríður Bjarney Bald-
vinsdóttir fiðluleikari stofnuðum
þessa hljómsveit ákváðum við að
sveitin myndi helga sig flutningi á
verkum eftir konur, enda vantar
okkur fleiri kvenfyrirmyndir í tón-
listarlífinu,“ segir sellóleikarinn og
hljómsveitarstjórinn Ólöf Sigur-
sveinsdóttur um tilurð Íslenskra
strengja sem koma fram á Tíbrár-
tónleikum í Salnum annað kvöld,
sunnudag, kl. 20. Hópurinn kom
fyrst fram í byrjun árs og hefur nú
þegar flutt mörg verk eftir konur.
„Við erum hópur hljóðfæraleik-
ara sem vill spila saman krefjandi
strengjaverk sem heyrast sjaldan.
Það liggur fjöldi strengjaverka hér-
lendis ófluttur og því um auðugan
garð að gresja. Ég hef fengist við
hljómsveitarstjórn bæði hérlendis
og í Þýskalandi,
en þetta er í
fyrsta sinn sem
ég stjórna svona
stórum hópi af
fólki sem starfar
við tónlist.“
Á efnisskránni
eru frumflutn-
ingur á verkum
eftir íslensku
tónskáldin
Högna Egilsson, Svetlönu Veschag-
inu og Mamiko Dís Ragnarsdóttur.
„Það er auðvitað sérlega ánægju-
legt að fá að frumflytja verk eftir
heimsfrægt tónskáld á borð við
Högna.“ Auk þess verða fluttar
nýjar og tilraunakenndar útsetn-
ingar Sigrúnar Kristbjargar Jóns-
dóttur á tónlist hinnar brasilísku
Leu Freire. „Þar fléttar Sigrún
saman strengjarytma við spuna og
úr verður nýr hljómheimur. Síðast
en ekki síst flytjum við í Íslenskum
strengjum Serenöðu fyrir tenór,
horn og strengi, op. 31 eftir Ben-
jamin Britten. Serenaðan er fagur-
fræðilegt meistaraverk sem enginn
ætti að láta fram hjá sér fara. Þetta
er sannkallaður gimsteinn tónbók-
menntanna,“ segir Ólöf og tekur
fram að umrætt verk krefjist mikils
af stjórnandanum.
„Í því verki fáum við til liðs við
okkur stórkostlegan listamann,
Joseph Ognibene hornleikari. Hann
hefur lagt íslensku tónlistarlífi lið
sl. 40 ár og veitir okkur í hópnum
mikinn innblástur. Þorsteinn Freyr
Sigurðsson er afar góður tenór-
söngvari sem er virkilega spenn-
andi að fá í þessa samvinnu,“ segir
Ólöf og spáir því að Þorsteinn
Freyr muni slá í gegn sem ljóða-
túlkandi í Serenöðu eftir Britten á
morgun. Konsertmeistari er Gróa
Valdimarsdóttir.
Morgunblaðið/Hari
Listafólk Íslenskir strengir ásamt Joseph Ognibene hornleikara og Þorsteini Frey Sigurðssyni tenór.
„Fagurfræðilegt
meistaraverk“
Íslenskir strengir á Tíbrártónleikum í Salnum á morgun
Ólöf
Sigursveindóttir