Morgunblaðið - 29.09.2018, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 29.09.2018, Blaðsíða 49
MENNING 49 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 2018 ICQC 2018-20 Tíska & förðun NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is –– Meira fyrir lesendur Fjallað verður um tís förðun, snyrtingu, fa fylgihlutum auk umh húðarinnar, dekur og Sérblað um Tísku og förðun fylgir Morgunblaðinu föstudaginn 5. október PÖNTUN AUGLÝSINGA: Til mánudagsins 1. október SÉRBLAÐ Danssýningin Skýjaborg eftir Tinnu Grétars- dóttur í upp- færslu Bíbí og Blaka snýr aftur í Tjarnarbíó á morgun kl. 15. Sýningin, sem fyrst var frum- sýnd 2012, er ætluð börnum á aldrinum sex mán- aða til þriggja ára. Verkið fjallar um tvær verur sem vakna upp á dularfullum stað þar sem eru sífelld veðrabrigði. Sýningin tekur tæpan hálftíma og í lok hennar er börnum boðið að koma á svið til að leika sér, hitta verurnar og skoða leikmynd- ina. Næstu sýningar verða 7. og 21. október kl. 15. Skýjaborg snýr aftur í Tjarnarbíó Sunna og Stormur Barnabókaflóðið nefnist gagnvirk sýning fyrir börn um barnabækur og furðuheim þeirra sem opn- uð verður í Nor- ræna húsinu í dag kl. 15. List- rænn stjórnandi er Kristín Ragna Gunnarsdóttir rit- höfundur og teiknari. Á sýningunni leiðir Miðgarðsormurinn börn í skapandi ferðalag úr einu rými í annað. Barnabækur byggja brýr og ferðalangar búa sér til vegabréf sem þeir stimpla í á hverjum við- komustað. Börnin fá að taka þátt í að skapa sína eigin sögu og sögu- persónur, geta mátað sig í mismun- andi hlutverkum með grímugerð og búningum, siglt víkingaskipi og skoðað kort af raunverulegum og ímynduðum stöðum úr barnabók- um. Aðgangur er ókeypis. Gagnvirk sýning um barnabækur Tvíburasysturnar Maria og Natalia Petschatnikov opna í dag kl. 16 sýn- inguna Learning to read Icelandic patterns í galleríinu Úthverfu á Ísa- firði. Systurnar hafa dvalið í fjórar vikur í gestavinnustofum ArtsIce- land á Ísafirði og er sýningin byggð á fyrstu hughrifum og rannsóknar- vinnu þeirra þessar vikur sem þær hafa dvalið á Ísafjarðarsvæðinu, skv. tilkynningu. Systurnar eru frá Rússlandi, lærðu myndlist í Banda- ríkjunum og hafa búið og starfað í Þýskalandi frá því að námi lauk. Þær vinna saman að öllum sínum verkum sem eru skilgreind á mörk- um málaralistar og innsetninga og taka fyrir það sem í fyrstu virðast vera hversdagslegir hlutir en með því að nýta ímyndunaraflið og skarpa hugsun ná þær að koma á óvart með hnyttnum sjónarhornum á okkar venjulega heim. Fjárbóndi Hluti af verki af sýningunni. Tvíburasystur opna í Úthverfu Skúlptúrsýning listakonunnar Mel- korku Katrínar Tómasdóttur sem kallar sig Korkimon, verður opnuð í Listhúsi Ófeigs á Skólavörðustíg 5 í dag kl. 16. Sýningin er sú fyrsta sem Korkimon heldur á skúlptúrum sínum en hún vinnur aðallega í tví- víðum verkum: teikningum, klippi- myndum og prentverkum. „Tilgangurinn í skúlptúrunum er ekki endilega neinn, en hvers vegna þarf alltaf að vera gagn að hlut- um?“ segir m.a. um sýninguna í til- kynningu. Skúlptúr Eitt af verkum Korkimon. Korkimon opnar sýningu hjá Ófeigi TÓNLIST Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is Sigrún Jónsdóttir, eða SiGRÚNeins og listamannsnafnið er,kom fyrst fyrir augu mín og eyru sem einn meðlima Wonder- brass, kvenblásturssveitarinnar sem fylgdi Björk í tónleikaferðalag árið 2007. Sigrún lék þá á básúnu og í kjölfarið lék hún t.d. með Sigur Rós og Florence and the Machine. Þessi reynsla ýtti undir þörf fyrir að skapa upp á eigin spýtur, hún skrif- aði verk í LHÍ sem flutt var við út- skrift hennar og í framhaldinu ákvað hún að leggja í útgáfu. Tvær stuttskífur komu út 2016, Hringsjá og Tog, skemmtilega óhlutbundnar plötur. Á fyrri plöt- unni vissi maður vart hvað var handan við hornið í hverri og einni lagasmíð, stíllinn þægilega frjáls og óheftur. Á Tog er eins og aðeins meiri bygging fái að vera og glefsur úr list Bjarkar skjóta upp kolli. Þriðja platan, Smitari (2017), var þá líkari fyrstu plötunni, vel tilrauna- glatt og ekki tomma gefin að því leytinu til. Onælan er hins vegar sjö laga og þar er eins og þræðinum sem var á Tog sé brugðið upp aftur. Onælan er á þann háttinn hennar aðgengilegasta verk, þó að seint fari þessi lög að hljóma í síðdegis- útvarpi Bylgjunnar! Lögin eru mýkri og meira aðlaðandi, harkan og hornin sem einkenna stuttskíf- urnar fá hvíld. Sigrún syngur þá meira, gefur sig meira og er ein- hvern veginn meira í stafni en áður. „Munurinn á Onælan og fyrri EP plötunum mínum er að Onælan er opnari og já aðgengilegri. Bæði í tónmáli og vegna þess að ég er meira að vinna með texta,“ sagði Sigrún pistilritara í stuttu spjalli. Ég greip tækifærið og bar undir hana ákveðna stemningu sem ég hef fundið fyrir í íslensku tónlistar- lífi undanfarin misseri. Það að margar íslenskar konur séu að gera ótrúlega spennandi og tilrauna- kennda tónlist í dag, og svo ég nefni einhver nöfn, Bára Gríms, Kristín Þóra, Gyða, Kristín Anna, Alvia Is- landia, Cyber. Sigrún segist sam- mála. „Það er ótrúlega mikið skemmtilegt að gerast akkúrat núna,“ segir hún. „Bæði er tónlist- arumhverfið hérna frjósamt en af því að margar flottar konur hafa verið að gera spennandi hluti, opn- ar það dyr og hugmyndir fyrir yngri konum sem eru kannski að taka sín fyrstu skref. Það er svona „velkomin“ stemning sem er mik- ilvæg. Allir fá að læra með því að prufa sig áfram. Þetta er styrkjandi stemning einhvern veginn.“ Onælan fjallar kannski í grunn- inn um mýkt – og hina þversagna- kenndu hugmynd að í mýkt felist styrkleiki. Að sögn Sigrúnar, á vef- síðu hennar, fjallar platan um vöxt, lærdóm og tilraunir með að komast handan feðraveldisins. Og í viðtali við Lestina á Rás 1 sagði hún orðrétt: „Platan fjallar um það að vera nógu mjúkur og op- inn til þess að geta haldið áfram að læra, læra um sjálfan sig og heim- inn, og taka burt skjöldinn sem maður setur upp þegar maður að vandræðast með sjálfan sig.“ Nú hef ég það staðfest að næsta plata Jónasar Sig, Milda hjartað, er ekki í ósvipuðum pælingum. Nýjar kynslóðir og endurnýjuð viska? Nafn plötunnar er þá forn-ensk út- gáfa af enska orðinu „anneal“ sem þýðir að hita málm svo hægt sé að beygja hann til og styrkja hann um leið. Umgjörðin um þessa plötu, kynningarmyndirnar og þess hátt- ar, ýjar að því að Sigrún ætli að taka þetta úr fyrir landsteinana. Slíkar hugmyndir eru a.m.k. á borð- inu. „Það eru engin strandhögg á erlendri grundu í höfn,“ segir hún. „En það er samt eitthvað sem ég er að vonast mikið eftir fyrir þetta efni og það sem á eftir kemur.“ Út í óvissuna » Bæði er tónlistar-umhverfið hérna frjósamt en af því að margar flottar konur hafa verið að gera spennandi hluti, opnar það dyr og hugmyndir fyrir yngri konum sem eru kannski að taka sín fyrstu skref. Onælan er fyrsta platan sem SiGRÚN gefur út í fullri lengd en fyrir liggja þrjár stuttskífur sem komu út 2016 og 2017. Óræð Tónlist Sigrúnar fer í óvæntar áttir og ekkert er eins og það sýnist.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.