Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.09.2018, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.09.2018, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23.9. 2018 VETTVANGUR Langt frameftir öldum voru þaðálitin óhrekjandi sannindi aðá Íslandi gætu ekki nema um fimmtíu þúsund manns þrifist með bærilegu móti. Flestir þyrftu reynd- ar að sætta sig við að tóra naumlega, því nýting landsins væri þá komin á ystu nöf þess mögulega. Reynslan hafði kennt okkur að fleiri væri ómögulegt að fæða og klæða með þeim nytjum sem okkur voru skammtaðar. Sambærilegir útreikn- ingar hafa verið gerðir víða um heim og dómsdagsspár um offjölgun mannkyns hafa í gegnum tíðina valdið ugg og ótta. En eitt vill gleymast við slíkar spár. Þær gera sjaldnast ráð fyrir að hægt sé að sækja meiri verðmæti úr sömu land- kostum. Þær gera semsagt ekki ráð fyrir nýsköpun. Á Íslandi erum við svo lánsöm að hafa aðgang að ríkulegum náttúru- auðlindum. Hafið, orkan, vatnið og náttúrufegurðin eru allt auðlindir sem hver um sig hefur orðið undir- staða mikillar verðmætasköpunar. Oft er sagt að velmegun Íslands sé fyrst og fremst reist á miklum land- kostum, en minna gert úr hugviti og nýsköpun. Samt voru allar þessar auðlindir til staðar meðan við héldum okkur fullnýta þær til að fæða fimmtíu þúsund manns. Munurinn liggur í nýrri þekkingu, betri nýtingu og opnun nýrra markaða. Allur mun- urinn er nýsköpun. Spurningunni um það hvort ný- sköpun skipti máli hefur því í raun fyrir löngu verið svarað. En hug- takið líður ef til vill fyrir hughrifin sem orðið ber með sér. Nýsköpun er ekki aðeins krúttleg uppátæki ungs fólks sem fær sniðugar hugmyndir sem skapa vissulega einhver verð- mæti en skipta litlu í heildarmynd- inni. Nýsköpun er þvert á móti mikil alvara fyrir samfélag sem vill horfa til framtíðar og stuðla að frekari verðmætasköpun. Efnahagsstoð sem byggist á óþrjótandi auðlind Hátækni- og hugverkaiðnaðurinn skiptir æ meira máli og myndar nú fjórðu stoð hagkerfisins. Það er helst ólíkt með þessari stoð og hin- um þremur; sjávarútvegi, ferðaþjón- ustu og stóriðju, að hugvitið sem ný- sköpun byggist á er óþrjótandi auðlind. Við viljum auðvitað skila góðu búi til komandi kynslóða og ef við ætlum áfram að auka nýtingu og framleiðni án þess að ganga á tak- markaðar auðlindir liggur beinast við að beina ljósi nýsköpunar til allra sviða samfélagsins. Vinna hafin við mótun nýsköpunarstefnu Þótt ég sé almennt á því að mark- aðurinn blómstri best á eigin for- sendum þá skiptir stuðnings- umhverfi stjórnvalda í þessum málaflokki miklu máli. Umhverfið á alþjóðavísu sýnir þeirri staðreynd skilning. Framsæknustu ríki heims eru einfaldlega að fjárfesta til fram- tíðar með slíkum stuðningi. Við eig- um að gera jafn vel og taka mið af samkeppnisumhverfi þeirra landa sem við berum okkur saman við ef við viljum ekki eiga á hættu að missa fólk, fyrirtæki og lífsgæði frá okkur. Við mótun slíks um- hverfis verður samt að horfa vandlega og heildstætt á hvernig kerfið nýt- ist sem best sem og fjármunirnir sem í það fara. Þess vegna er kveðið á um í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar að mótuð skuli heildstæð nýsköp- unarstefna fyrir Ísland. Ég hef hrundið af stað þeirri vinnu. Fyrsti fundur stýrihóps var í vikunni með fulltrúum frá atvinnulífinu, vísinda- og háskólasamfélaginu, tækni- og nýsköpunarsamfélaginu, þing- flokkum og sprota- og nýsköp- unarsamfélaginu. Stýrihópurinn hefur ásamt verkefnastjórn það verkefni að greina þá þætti sem mest áhrif hafa á Ísland sem ákjós- anlegan vettvang fyrir nýsköpun og samkeppnishæfni við það besta sem gerist í heiminum. Samhliða munu verkefnahópar leggja fram tillögur að aðgerðum sem stuðla að sama marki. Helsti grundvöllur aukinnar vel- megunar okkar Íslendinga er ný- sköpun. Á Íslandi er mikill nýsköp- unarkraftur og markmið stjórnvalda hlýtur að vera að stuðla að því að hann nýtist sem best og að hér geti þrifist heilbrigt, sanngjarnt og frjó- samt umhverfi til nýsköpunar. Að búa til meira úr því sama ’Hátækni- og hug-verkaiðnaðurinnskiptir æ meira máliog myndar nú fjórðu stoð hagkerfisins. Úr ólíkum áttum Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir thordiskolbrun@anr.is Morgunblaðið/Eggert Fólk veltir fyrir sér ýmsum hliðum tilverunnar á netinu. Sagnfræðing- urinn Magnús Lyngdal Magn- ússon deildi skemmtilegri sögu á Facebook: „Keypti mér dökkbláan frakka í gær sem ég vígði í dag. Tók svo leigubíl í hádeginu en um það bil sem ég var að setjast inn sagði leigubíl- stjórinn: „Ertu stöðumælavörður?“ Ég neitaði því og svaraði: „Uh, nei, ég er sagnfræðingur!“ Hann svaraði um hæl: „Jæja, þá skal ég aka þér, en ég á nefnilega í stríði við stöðu- mælaverði!“ – Þarf kannski að fara að endurskoða fatasmekk minn!“ Ómar R. Valdimarsson lög- fræðingur skrif- aði á Facebook: „Fullorðinsár mín hafa ein- kennst af pæl- ingum um hvað eigi að vera í matinn í kvöld og vangaveltum um af hverju mér er illt í bakinu.“ Salka Sól Eyfeld leikur um þessar mundir Ronju ræn- ingjadóttur fyrir fullu húsi í Þjóð- leikhúsinu, hún tísti í vikunni: „Stund- um langar mig bara að vera með gervi- augnhár og langar neglur og brúnkukrem en fatta svo að ég er að leika 11 ára barn allar helgar.“ Þórhildur Ólafsdóttir útvarps- kona tísti: „Allt breyttist eftir að mér var bent á að mörg lög með Sál- inni eru ekki ein- hver væmin ást- arlög heldur lög um það að vera foreldri og elska barnið sitt. Nú græt ég bara þegar þau eru tekin í gítarpartíum í stað þess að ösk- ursyngja með.“ AF NETINU Ármúli 7, Reykjavík | Sími 568 0708 | www.fako.is Po ul H en ni ng se n: „P H -5 /3 “. St an dl am pi m eð st ön g og fe st in ga rú r pa tin er uð u, br ún uð u m es si ng i, m eð sk er m iú rr au ðu /b ro ns uð u zi nk i. H am ar sh ög g: 17 0. 00 0 DK K. Sundkrogsgade 30 2150 Nordhavn, Kbh. Tel +45 8818 1111 Søren Frichs Vej 34 D 8230 Åbyhøj, Aarhus Tel +45 8818 1100 S já ná na r á br uu n- ra sm us se n. dk Hittið sérfræðinga Bruun Rasmussen Verið velkomin í Norræna húsið, Sæmundargötu 11, 101 Reykjavík Þriðjudaginn 2. október kl. 17-20 Þar munu reynslumiklir sérfræðingar okkar meta listaverk af öllu tagi, með sérstakri áherslu á nútímalist, „design“, fornmuni, silfurmuni, skartgripi, armbandsúr, bækur, mynt og frímerki. Matið er án endurgjalds og án skuldbindinga – með hugsanlega sölu á uppboði í huga. Dagana 3. – 4. október er boðið upp á heimsóknir í heimahús, eftir því sem tími leyfir Nánari upplýsingar veita Össur Kristinsson, 5554991 og 6984991, Peter Beck +45 8818 1186 / e-mail pb@bruun-rasmussen.dk Torben Ringtved +45 8818 1225 / tr@bruun-rasmussen.dk Fáið mat á verðmætin ykkar

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.