Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.09.2018, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.09.2018, Blaðsíða 37
þeir gerðu fyrir sjö árum þegar hvatt hafði verið til þess á netinu að Bert og Ernie gengju í heilagt hjónaband. „Bert og Er- nie eru bestu vinir. Þeir voru skapaðir til að kenna leikskólabörnum að menn geti verið góðir vinir enda þótt þeir séu gjörólíkir að gerð og upplagi. Jafnvel þótt þeir séu skil- greindir sem karlkyns persónur og hafi marga eiginleika okkar mannanna (eins og flestar brúðurnar í Sesame Street) eru þeir eftir sem áður brúður og búa ekki yfir kynferðislegum löngunum.“ Aðstandendur bandaríska brúðuþáttarins vinsæla Sesame Street hafa enn og aftur þurft að senda frá sér yfirlýsingu þess efnis að tvær af aðalstjörnum þáttarins, Bert og Ernie, séu ekki samkynhneigðar. Tilefnið eru orð Marks Saltzmans í tímaritinu Queerty en hann var einn af handritshöfundum Ses- ame Street snemma á níunda áratugnum. Þegar hann lagði þeim orð í munn gaf hann sér víst alltaf að þeir væru par. „Ég myndi ekki kunna að skrifa þá öðruvísi en sem ástfangið par,“ segir Saltzman sem sjálfur er samkynhneigður og staðfestir að Bert og Ernie hafi upp að vissu marki verið byggðir á honum sjálf- um og ástmanni hans á þessum tíma, leikstjóranum Arnold Glassman, sem nú er látinn. Saltzman rifjar einnig upp þegar hann varð vitni að því að leikskólabarn í New York spurði móður sína hvort Bert og Ernie væru elskendur. Fyrst leikskólabarn sæi þetta hlyti það að vera öllum ljóst. Aðstandendur Sesame Street svara þessum orð- um með sama hætti og Vinátta Berts og Ernies stendur á eldgömlum merg. Sesame Street BERT OG ERNIE Í SESAME STREET Eru ekki sam- kynhneigðir 23.9. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 37 KVIKMYNDIR Glimrandi leikur dame Judy Dench nær ekki að lyfta Red Joan, nýrri njósnamynd Trevors Nunns, upp úr meðalmennskunni, ef marka má umsögn í breska dagblaðinu The Guardian. Myndin, sem fær tvær stjörnur af fimm, bygg- ist á sannri sögu breskrar konu sem afhjúpuð var á gamals aldri sem njósnari KGB. Dench leikur njósnynjuna á efri árum og hefði mátt vera meira í mynd, að mati blaðsins, en Sophie Cookson leikur hana unga og stendur sig þokkalega framan af. Það sem fer mest í taugarnar á gagnrýn- andanum er hversu „kósí“ myndin sé en ofboðs- lega illa fari á því í sögu þar sem milljónir manns- lífa eru í húfi. Þegar öllu sé á botninn hvolft þyki áhorfendum handtaka Rauðu-Joan varla papp- írsvinnunnar virði. Máttlaus njósnamynd Dame Judy Dench AFP MÁLMUR Philip Anselmo, fyrrverandi söngvari Pantera, virðist á beinu brautinni eftir langvarandi hremmingar, ef marka má viðtal á hlaðvarpinu If I Ruled The World. Þar kom fram að hann hefði endanlega losað sig við öll lyf, lyfseðilsskyld og önnur, fyrir níu mánuðum, auk þess sem hann hefði ekki dreypt á áfengi í heil þrjú ár. Anselmo fagn- aði fimmtugsafmæli sínu í sumar og segir það hafa verið „ljósárum betra“ en bæði þrí- tugs- og fertugsafmælið. „Það er yndisleg til- finning að vakna ótimbraður,“ sagði An- selmo sem sendi nýlega frá sér sólóskífuna Choosing Mental Illness As A Virtue. Yndisleg tilfinning að vakna ótimbraður Phil Anselmo hefur tekið upp heilbrigðari lífsstíl. Korteri áður en málmgoðunum í Judas Priest skolar loksins upp á Íslandsstrendur eru Ian Hill bassa- leikari bandsins til 49 ára og gít- arleikarinn K.K. Downing, sem sagði skilið við Priest árið 2011 eftir 42 ára starf, komnir í hár saman. Ástæðan er sú að Downing var ekki boðið að snúa aftur þegar Glenn Tipton, annar gítarleikari Judas Priest, neyddist til að hætta að túra með félögum sínum fyrr á þessu ári en hann glímir nú við Parkinson-sjúkdóminn. Í staðinn var Andy nokkur Sneap fenginn til að ferðast með bandinu. Í nýlegu samtali við Backstage Axxess sagði Hill að aldrei hefði komið til álita að Downing snéri aftur enda hefði Richie Faulkner tekið við af honum á sínum tíma. Þar með væri það skarð fyllt. Nú þyrfti að fylla skarð Tiptons. „Glenn og Ken eru báðir frábærir gítarleikarar en gríðarlega ólíkir hvað varðar stíl og hljóm. Fyrir vikið gengi ekki að Ken spilaði partana hans Glenns, það hefði aldrei hljómað rétt. Þess vegna hugsuðum við aldrei til Kens.“ Algjört kjaftæði Downing gaf lítið fyrir þessa skýr- ingu í samtali við hlaðvarpið Co- bras & Fire. „Þetta er algjört kjaftæði. Hefði ég gengið til liðs við bandið á ný hefði ég aug- ljóslega tekið við mínu hlutverki á ný – eins og fólk hefði gert ráð fyr- ir. Richie er hvort sem er að spila partana hans Glenns nú þegar. Aldrei hefði komið til greina að ég spilaði partana hans Glenns og Richie mína.“ Downing skaut svo föstum skot- um á félaga sinn. „Það flögraði að mér, Ian, var það of snemma dags eða of síðla kvölds sem þú fékkst þessa hugmynd? Ég veit það ekki. En blessi hann vegna þess að við vorum sem bræður. Vorum saman í barna- og grunnskóla og deildum ferlinum saman. En ég kann ekki við þetta. Það er engu líkara en að Ian sé að segja: Enginn saknar K.K. og Richie hefur komið inn með nýja orku í farteskinu. Einmitt það. Ian minn góður, á síðasta túrnum var ég orkan. Þurfti meira að segja að hægja á mér vegna þess að aðrir höfðu ekki við mér.“ Hill og Downing eru báðir fædd- ir árið 1951, þannig að vináttan stendur sannarlega á gömlum merg. Að sögn Downings var farið að hægjast á Priest á síðasta túrnum, sem hann fór í, vegna þess að Rob Halford söngvari var farinn að styðjast við textavél og Tipton að henda sér í bjór milli laga. Þess vegna fékk Downing nóg. Íslenskir flösufeykjar fá því hvorki að sjá Downing né Tipton, það goðsögulega tvíeyki, í Laug- ardalshöllinni en samanlagður starfsaldur þeirra í Priest er 86 ár. Í þeirra stað mæta á svæðið, Andy Sneap, sem leikið hefur með Hell og Sabbat, og Richie Faulk- ner. Sá ágæti maður afplánaði unglingsárin í Svíþjóð þar sem hann starfaði um fimm ára skeið sem pylsusali. Dagsatt! Rob Halford, söngvari Judas Priest, í essinu sínu á Wacken Open Air-hátíðinni í Þýskalandi í sumar. 45 ár eru síðan hann gekk upphaflega til liðs við bandið. AFP VERÐANDI ÍSLANDSVINI GREINIR Á Geistlegar glósur Richie „pylsusali“ Faulkner leysti K.K. Downing af hólmi árið 2011. AFP Easy2Clean Mött málning sem létt er að þrífa Síðumúla 22 | Sími 517 0404 | serefni.is Opið: 8-18 virka daga 10-14 á laugardögum Svansvottuð betra fyrir umhverfið, betra fyrir þig Þessir myndu mæta í brúðkaupið færi það yfir höfuð fram. Reuters

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.