Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.09.2018, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.09.2018, Blaðsíða 17
23.9. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17 vinskíjs í Coco Chanel & Igor Stravinsky frá 2009 og Struensee greifa í A Royal Affair frá 2012. Spurður hvort hann nálgist slík hlutverk á einhvern hátt öðruvísi en skálduðu persón- urnar svarar hann: „Í raun ekki. Auðvitað er maður meðvitaður um að persónan hafi í eina tíð verið af holdi og blóði og gott getur verið að lesa sér til um þær. En þegar tökur hefjast er það bara eins og hvert annað verkefni; þá velt- ur allt á handritinu, leikstjórninni og túlkun leikarans. Hafandi sagt það þá er ég mikill áhugamaður um sagnfræði og gæti vel hugsað mér að leika fleiri sögulegar persónur. Það er svo forvitnilegt að vita hver við vorum og hvað- an við komum.“ Engin leið er að fá Mads til að gera upp á milli hlutverka sem hann hefur leikið gegnum tíðina; hann er greinilega gott efni í diplómat. „Hlutverkin eru orðin svo mörg og ekki sann- gjarnt að draga eitt sérstaklega út. Ég hef leikið svo mörg hlutverk sem standa hjarta mínu nærri. Hlutverk geta í eðli sínu verið æð- isleg og maður rennur hreinlega inn í þau; þau geta líka verið geggjuð vegna þess að þau beina manni á nýja braut og þau geta verið eft- irminnileg vegna þess að þau komu manni á óvart. Það er leiðinlegt að svara spurningunni ekki beint en því miður get ég ekki tilgreint eitt ákveðið hlutverk.“ Flestir, alltént utan Norðurlandanna, þekkja Mads líklega sem illmennið Le Chiffre í Bond-myndinni Casino Royale frá 2006. Það var sannarlega vendipunktur á ferlinum. „Ég segi ekki að það hlutverk hafi breytt lífi mínu, sem betur fer, en það breytti ferli mín- um sem leikara. Á því er ekki nokkur vafi. Í stað þess að hafa bara eitt eða tvö handrit á borðinu fyrir framan mig var ég skyndilega kominn með heilan bunka. Það er auðvitað risastór sýningargluggi fyrir leikara að kom- ast að í kvikmyndaseríu eins og James Bond og þetta var mikil upplifun fyrir mig. Tilboðum fjölgaði svo sannarlega í framhaldinu en höf- um hugfast að magn er ekki endilega sama og gæði. Það á við um kvikmyndahandrit eins og annað í þessu lífi. En það er alltaf jákvætt fyrir leikara að hafa úr hlutverkum að velja.“ – En hvort er það kostur eða galli að vera danskur/norrænn leikari í hinu alþjóðlega um- hverfi? „Það fer eftir því hvernig á það er litið. Segja má að „dogmað“ hafi komið okkur Dön- um á kortið fyrir um tuttugu árum og allar götur síðan hefur gefist vel að vera danskur leikari á alþjóðavettvangi. Danir eru í tísku. Alltént er það mín upplifun. Bandarískir leik- stjórar – og raunar evrópskir líka – eru stöð- ugt að leita að nýjum andlitum og ekki spillir fyrir að menn kunni eitthvað til verka. Þess vegna hafa þeir sótt töluvert í danska leikara sem hafa fyrst slegið í gegn heima fyrir. Það getur verið minni áhætta en að taka sénsinn á einhverjum sem er ennþá blautur bak við eyr- un. Í þeim skilningi vinnur þjóðernið með mér. Hin hliðin á peningnum er sú að ég er ekki bandarískur sem þýðir að ég verð aldrei Su- perman eða Batman. Til þess að fá slík hlut- verk þurfa menn að vera amerískir út í gegn.“ Mads hefur alla tíð búið í Kaupmannahöfn og ekki séð ástæðu til að flytja til Hollywood, eins og margir erlendir leikarar hafa kosið að gera til að minna á sig og vera í hringiðunni. Á árunum 2013 til 2015 var hann hins vegar með annan fótinn í Kanada, meðan hann lék í sjón- varpsþáttunum um Hannibal Lecter. „Tökurnar stóðu í sex til sjö mánuði í senn, þannig að ég átti ekki annarra kosta völ en að dveljast þar á meðan. Það var mjög skemmti- leg lífsreynsla; ég dýrka Kanada. Fallegt land og frábært fólk. En rosalega kalt. Maður lif- andi. Muni ég rétt féll kuldamet á hverjum vetri sem ég var þarna.“ Gott að hlaða rafhlöðurnar Eins og gefur að skilja er Mads mikið á ferð og flugi vegna verkefna og fyrir vikið finnst hon- um best „að gera ekki neitt“ þegar hann er heima hjá sér. Slaka bara á og verja tíma með fjölskyldunni. Þau Hanne eiga tvö börn, dóttur fædda 1992 og son fæddan 1997. „Ætli ég sé ekki eins og sjómennirnir, vil bara hafa það náðugt með mínum nánustu þegar ég er í landi.“ Og hann er í öruggri höfn núna, á milli verk- efna. „Ég er búinn að vera í stuttu frí og verð að óbreyttu aðeins lengur. Ég er að skoða ýmsa möguleika en ekkert er fast í hendi ennþá. Það er voðalega gott að hlaða rafhlöð- urnar annað veifið,“ segir Mads en auk Arctic kemur At Eternity’s Gate eftir Julian Schna- bel í öll betri kvikmyndahús á næstunni. Mads leikur þar prest en sagan hverfist um lokadag- ana í lífi listmálarans Vincents Van Goghs, sem Willem Defoe leikur. Mads hefur lokið við að leika í tveimur myndum til viðbótar sem frumsýndar verða á næsta ári; Chaos Walking eftir Doug Liman, þar sem hann leikur illa þenkjandi borgar- stjóra, og Polar eftir Jonas Åkerlund. Hann er opinn fyrir því að leika meira fyrir sjónvarp í framtíðinni. „Það væri óskandi. Hannibal var hins vegar mjög stórt, róttækt og spennandi verkefni og ég efast um að mér bjóðist svo feitur biti á næstunni. Róttækni er lykilorð í þessu sambandi, það hefur alltaf ver- ið leiðarstef í mínu lífi, og næsta sjónvarps- verkefni yrði að standast Hannibal snúning.“ – Margir íslenskir sjónvarpsunnendur muna eftir þér úr Rejseholdet sem gerði garðinn frægan á árunum upp úr aldamótum. Minnistu þeirra þátta með hlýju? „Fyndið að þú minnist á það,“ segir hann og skellir upp úr. „Alla jafna legg ég ekki í vana minn að horfa á gamalt efni með sjálfum mér en fyrir hreina tilviljun sá ég einn þátt af Rejseholdet í sjónvarpinu um daginn. Og hafði bara býsna gaman af. En rosalega vorum við ung. Hvernig í andskotanum, hugsaði ég með mér, gat þetta fólk orðið löggur? Það er rétt skriðið yfir tvítugt.“ Hann hlær. „En metnaðinn skorti ekki. Þættirnir byggðust á sönnum sakamálum í Danmörku og nutu vinsælda. Það var margt gott í Rejse- holdet og ég horfi til þessa tíma með bros á vör. Þættirnir eru ekki úr sér gengnir en við vorum ung. Við skulum orða það þannig.“ Ekki er víst að allir viti það en Mads starfaði sem ballettdansari í áratug áður en hann skráði sig í leiklistarskóla, kominn um þrítugt. Hvernig ætli hafi staðið á því? „Ég ætlaði aldrei að verða dansari, það bara gerðist. Ég hafði yndi af starfinu en eftir sjö til átta ár fóru að renna á mig tvær grímur. Ég er mikill áhugamaður um hið leikræna, dramað, og dansinn uppfyllti ekki alltaf þá þörf. Ég átti vini sem voru leikarar og hugsaði með mér: Hvers vegna læt ég ekki á það reyna. Þar ligg- ur áhugi minn. Það má því með sanni segja að ég hafi orðið leikari gegnum dansinn.“ Nýr tónn sleginn Þegar hann lagði upp í þessa vegferð vissi Mads að hann langaði að leika í kvikmyndum. „Hjartað sló í kvikmyndunum og á þær vildi ég horfa. Fljótlega fann ég að tækifæri var til að gera hluti sem enginn hafði áður gert í danskri kvikmyndagerð. Evrópskar myndir frá áttunda áratugnum hafa alltaf heillað mig og þegar ég var að byrja að leika komust danskar myndir ekki með tærnar sem þær höfðu hælana. Hvers vegna ekki? spurði ég mig og fann fyrir brenn- andi löngun til að taka þátt í því að breyta þessu. Það var mín gæfa, að þegar ég braut- skráðist úr leiklistarskólanum var komin fram á sjónarsviðið ný kynslóð kvikmyndaleikstjóra sem deildu þessari sýn og einn þeirra, Nicolas Winding Refn, gaf mér stóra tækifærið.“ Þar er hann að tala um glæpamyndina Pusher sem hefur „költ“-stöðu í danskri kvik- myndagerð á seinni tímum. „Sleginn var nýr tónn í Pusher og fleiri myndum á þessum tíma. Orkan og frumleikinn voru bráðsmitandi og saman tókst okkur að breyta danskri kvikmyndagerð til frambúðar. Ég er gríðarlega stoltur að hafa tekið þátt í því. Í upphafi var þetta draumurinn. Allt sem síðan hefur gerst hefur auðvitað farið langt fram úr mínum björtustu vonum.“ Þá er bara ein spurning eftir; ég fengi fjöl- mörg spörk neðan beltis ef ég sleppti henni. – Bjórgerð stendur í miklum blóma hér í fá- sinninu um þessar mundir. Ætlar þú að smakka einhverja íslenska bjóra meðan á dvöl þinni stendur, eða muntu halda þig við Carls- berg? „Þú segir nokkuð,“ svarar hann hlæjandi. „Svo lengi sem þeir heita Carlsberg mun ég smakka þá!“ Þar með er Mads Mikkelsen rokinn út í haustið, vafalaust á hjólhesti. Kveður þó fyrst. „Sjáumst efra, lagsi! Hafðu það gott!“ Mads Mikkelsen með Maríu Thelmu Smáradóttur og leikstjór- anum Joe Penna þegar Arctic var frumsýnd í Cannes sl. vor. AFP

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.