Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.09.2018, Blaðsíða 27
23.9. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27
vara ferðalanga við að þröngu göt-
urnar breytast ört í útliti eftir að sölu-
menn taka niður básana á kvöldin og
því gott að leggja smáatriði á minnið
svo maður rati örugglega heim! Hér
eru kettir jafnmargir og fólkið, fal-
legir, græneygðir og eyrnastórir
hreiðra þeir um sig á götuhornum, á
húsþökum, í búðum, veitingahúsum
og sérstaklega á fiskmarkaðnum við
höfnina.
Virkismúrarnir teiknaðir af
frönskum arkitekt á 18. öld
Fornleifar hafa sýnt að borgin hefur
verið byggð allt frá steinöld og á
fyrstu öld fyrir krist lét berbakon-
ungurinn Juba annar setja upp lita-
verksmiðju sem framleiddi fjólubláa
liti úr skeljum. Portúgalar byggðu
hér Mogador-virkið á sextándu öld og
Frakkar reyndu að nema hér land á
þeirri sautjándu. Það var hins vegar á
átjándu öld sem virkið í sinni núver-
andi mynd var reist, en það var mar-
okkóski konungurinn Múhameð
þriðji sem sá sér færi á að byggja
hafnarborg nálægt Marrakesh, sem
yrði ómögulegt að ráðast inn í vegna
staðsetningar hennar. Hann fékk
franskan arkitekt til verksins, Théo-
dore Cornut, sem er sami maður og
hannaði virkið í franska bænum St.
Malot en það má sjá mikinn svip með
umgjörð þessara borga þótt loftslag
og andrúmsloft sé gjörólíkt.
Miðbær Essouria kann að vera
eins og ævintýri úr Þúsund og einni
nótt en þar er samt að finna fjölda
frábærra gistiheimila eða „riads“ og
skemmtilega veitingastaði, bæði nú-
tímalega og hefðbundna. Gönguferð
um virkisveggina er heillandi og einn-
ig er gaman að skoða höfnina og fá
sér grillað sjávarmeti á litlum básum
þar í hádeginu. Bæjarbúar eru ein-
staklega vinalegir og almennilegir og
vilja allt fyrir mann gera, sérstaklega
ef maður reynir að tala frönsku. En
sumir vilja líka selja manni fullt af
varningi. Ef enginn áhugi er á slíku
er best að brosa bara og vera kurteis
en ákveðinn og segja nei takk. Al-
mennt mæta ferðamenn hér mikilli
vinsemd og alúð. Heimamenn ganga
oftast í mjög hefðbundnum fötum og
konur með slæðu en það er litið af-
slöppuðum augum á ferðamenn og
ekki tvisvar á konu í sumarkjól eða
stuttbuxum. Þó er gott að vera með
sjal við höndina þegar vindurinn
byrjar að blása, bæði vegna sandagna
í loftinu og vegna þess að það getur
kólnað ansi snögglega á kvöldin.
Sörfarar á ströndinni og
geitur uppi í trjám
Meðal þess sem er gaman að festa
kaup á inni í medina eru skartgripir
úr silfri, teppi, leðurfatnaður og skó-
tau og gripir úr ilmandi Thuya-við.
Einnig er hægt að kaupa sér argan-
olíu en það eru argan-skógar allt í
kringum borgina. Argan-olían er í há-
vegum höfð í Marokkó og er bæði
notuð til eldamennsku og á húð og
hár. Á leiðinni milli Marrakesh og Es-
souria má sjá furðulega sjón þegar
geitur klifra upp í tré rétt við þjóð-
veginn til að gæða sér á argan-
hnetum, sem er víst þeirra uppá-
haldsmatur.
Essouria er fræg brimbrettaborg
og brimbrettakappar flykkjast þang-
að á sumrin. Ströndin við borgina er
falleg og fullkomin til sólbaða en get-
ur verið vindasöm og öldurnar stórar
fyrir venjulegar sundferðir. Aðrar
strandir í nágrenni við borgina eru
Diabat og í smábænum Sidi Kaoki (í
hálftíma fjarlægð) en báðar eru mjög
vinsælar til brimbrettaiðkunar. Þar
er einnig að finna skemmtilega veit-
ingastaði og kaffihús við sjóinn. Sand-
öldurnar við sjóinn í Essouria og Dia-
bat eru líka fullkomnar fyrir ferð á
hest- eða úlfaldabaki, sérstaklega í
lok dags þegar sólin er að setjast og
kastar bleikri birtu á fagurt og tært
hafið við þessa töfrandi sanda Norð-
ur-Afríku.
Úlfaldaferð frá berba-
þorpinu Diabat niður
á strönd við sólarlag.
Krydd, ólífur, súrsaðar sítrónur og arganolía til sölu.
Göturnar í miðborg Essouria eru
litríkar og þröngar.
Maður með fálkann sinn við höfnina í Essouria. Fatasalinn Abib bauð okkur upp á myntute.
jakkafatajoga.is
ÁNÆGJA EFLING
AFKÖST
Essouria er fræg fyrir ferskt og ljúffengt sjávarfang.
borginni og klettana við hafið.
Fallega innréttaður í nútíma-
legum marokkóskum stíl og ró-
andi litum. riaddarmaya.com
Villa Maroc er rétt innan við
borgarvirkið, steinsnar frá, og
er dásamlega fallega hannað
hótel í 18. aldar höll. Innandyra
eru fallegir antíkmunir frá Mar-
okkó og á þakinu eru fallegar
svalir til að snæða morgunverð.
Hótelið býður líka upp á ókeyp-
is ferðir aðeins út úr bænum í
Jardins de Villa Maroc, fyrir hót-
elgesti og alla aðra áhugasama,
en þar eru þeir með dásamlegt
sveitahús með garði og sund-
laug þar sem páfuglar spígspora
um. Það er hægt að fara þangað
í dýrindis hádegisverð og eyða
svo eftirmiðdeginum við sund-
laugina. villamaroc.om
AFÞREYING
Í berbaþorpinu Diabat, í um
10 mínútna fjarlægð frá Ess-
ouria, er Ranch de Diabat, fal-
legur hestabúgarður sem býður
upp á ferðir á hestum eða úlf-
öldum. Vel er farið með dýrin
og fyrirtækið hefur fengið vott-
anir fyrir vistvæna ferða-
mennsku. Mæli með úlfaldaferð
í gegnum Argan-skóg og svo
niður á strönd þar sem þessar
merkilegu skepnur vaða með
mann út í öldurnar. ranchdedia-
bat.com
ÚT AÐ BORÐA
Taros (Place Moulay al Hass-
an) er líflegur og skemmtilegur
bar og veitingastaður á nokkr-
um hæðum. Hann er opinn all-
an daginn en er fullkominn um
sólsetursbil til að njóta kokkt-
eila eða ískalds bjórs. Oft spila
hljómsveitir eða plötusnúðar á
kvöldin.
La Table by Madada (7 rue
Youssef El Fassi) er einn glæsi-
legasti veitingastaðurinn í Ess-
ouria og er sóttur af hipp og kúl
Marokkóbúum. Innréttingarnar
eru fagrar og fágaðar og stað-
urinn líflegur og oftast troð-
fullur þannig að það er best að
bóka borð fyrirfram. Matseðill-
inn er stútfullur af hinu frábæra
sjávarfangi sem Essouria er
þekkt fyrir og blandar marokk-
óskum og miðjarðarhafs-
hefðum saman.
GISTING
Dar Maya er dásamlegur
leynistaður inni í gyðingahverfiu
í Medina. Á bak við litla hurð á
milli sölubása gengur maður
inn á hljóðlátt og fágað riad
(hefðbundið marokkóskt gist-
heimili) sem býður upp á fimm
svítur með baðherbergjum,
setustofur og útisvæði á þakinu
þar sem er hægt að njóta morg-
unmatar og drykkja með stór-
fenglegu útsýni yfir þökin á