Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.09.2018, Side 20
20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23.9. 2018
HÖNNUN OG TÍSKA
Sú sýning sem var beðið eftirmeð hvað mestri eftirvænt-ingu á tískuvikunni í London
var sýning Burberrys á sumarlín-
unni 2019. Ástæðan var sú að þetta
var fyrsta lína ítalska hönnuðarins
Riccardos Tisci fyrir þetta rótgróna
breska tískuhús. Um 800 gestir voru
viðstaddir sýninguna og fremst í
flokki fyrirsæta var Kendall Jenner.
Tónlistin sem hljómaði undir var úr
smiðju Massive Attack en sýningin
fór fram í fyrrverandi pósthúsi sem
er verið að gera upp.
Tisci tók við af Christopher Bailey
í mars sl. og vonast er til að tísku-
húsið njóti sama árangurs og hann
náði þegar Givenchy var undir hans
stjórn. „Ég var mikið að hugsa um
ferðalag þegar ég var að setja saman
mína fyrstu línu fyrir Burberry,“
sagði Tisci sem rifjaði m.a. upp sitt
eigið ferðalag aftur til London frá
því hann sýndi útskriftarlínu sína
þar fyrir 20 árum og hversu margt
hefur gerst í hans lífi frá þeim tíma.
„Ég fékk líka innblástur frá því
hversu mikið London, borgin sem lét
mig langa til að verða fatahönnuður,
hefur breyst,“ sagði hann eftir sýn-
inguna.
„Þessi lína fagnar öllum þeim
menningarheimum, hefðum og venj-
um sem tilheyra þessu tískuhúsi og
fagnar ekki síst hinum dásamlega
fjölbreytileika sem ræður ríkjum í
Bretlandi,“ sagði Tisci sem í sýning-
unni fékk innblástur bæði frá hefð-
unum og kerfinu og líka breskri
pönkmenningu. Sýningin var viða-
mikil og voru alls sýndir 113 al-
klæðnaðir þannig að honum mun
kannski takast að gera það sem
hann stefndi að með línunni; sam-
eina kynslóðir undir merkjum Bur-
berrys og klæða bæði mæður og
dætur, feður og syni. Línan kallast
„Kingdom“ eða „Konungsríkið“:
„Þetta er eins og bútasaumur eða
blanda af breskum lífsstíl.“
Rauði liturinn er skemmtilegt mót-
vægi við ljósbrúna pilsið.
Glansandi rauð regnkápa fyrir þá sem hafa
ekki smekk fyrir brúna rykfrakkanum.
Hér vitnar Tisci í pönk-
menningu Bretlands.
AFP
Töskurnar eru af ýmsum stærðum og
gerðum og bæði fyrir konur og karla.
Konungsríki
Burberrys
Fyrsta sýning Riccardos Tisci hjá Burberry
var aðalviðburðurinn á tískuvikunni í London.
Hann fagnaði fjölbreytileika Bretlands og fékk
innblástur frá ólíkum kimum samfélagsins.
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Hér leikur Tisci sér með hið þekkta
Burberry-munstur og leyfir sér að
nota slæðu sem belti.
Rykfrakkinn, ein þekktasta flík Bur-
berry, hér í nýjum búningi. Það kem-
ur vel út að hafa alklæðnað í sama lit.
Reykjavík
Bíldshöfði 20
Akureyri
Dalsbraut 1
www.husgagnahollin.is
558 1100
Ísafjörður
Skeiði 1
Verð og vöruupplýsingar í auglýsingunni eru birtar með
fyrirvara um prentvillur. Yfirstrikað verð sýnir fullt verð vöru.
Tilboðin gilda til 30. sept. 2018 eða á meðan birgðir endast.
RELIEVE
Hægindastóll með eða án skemils.
Nokkrar útfærslur í áklæði eða leðri.
Brons- eða bláberjalitt áklæði, álfótur
189.990 kr. 222.990 kr.
Skemill
54.990 kr. 62.990 kr.
Svart Fantasy leður
224.990 kr. 264.990 kr.
Skemill
64.990 kr. 76.990 kr.
Grátt eða dökkblátt
bolzano leður
229.990 kr.
274.990 kr.
Skemill
69.990 kr.
79.990 kr.