Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.09.2018, Síða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23.9. 2018
LESBÓK
POPP Ástralska söngkonan Kylie Minogue verður
mögulega loksins eitt af aðalnúmerunum á hinni vin-
sælu Glastonbury-tónlistarhátíð í Bretlandi á næsta ári,
að því er dagblaðið The Sun kveðst hafa heimildir fyrir
frá innanbúðarmanni á hátíðinni. Minogue átti að troða
þar upp fyrir þrettán árum en varð að hætta við eftir að
hún greindist með brjóstakrabbamein. Hún kom fram
sem gestur með Scissor Sisters’ árið 2010 en hefur enn
ekki sungið eigið efni fyrir poppþyrsta á Glastonbury.
Heimildarmaður The Sun segir söngkonuna mjög
spennta yfir þessu tækifæri enda hafi það mikla tilfinn-
ingalega þýðingu fyrir hana. Um er að ræða svokallað
„goðsagnarhlutverk“ sem fólk á borð við Tom Jones,
Dolly Parton og Lionel Richie hefur gegnt áður.
Minogue loks á Glasto?
Kylie Minogue er fimmtug að aldri.
Reuters
KVIKMYNDIR Eftir fimm ára bið er breski
leikstjórinn með stóra nafnið, Steve
McQueen, loksins kominn með nýja mynd en
Widows var frumsýnd á kvikmyndahátíðinni
í Toronto á dögunum. Síðasta mynd
McQueens, 12 Years a Slave, féll sem kunn-
ugt er í frjóa jörð og var meðal annars valin
besta myndin á Óskarshátíðinni. Widows er
af allt öðru tagi, þriller þar sem hópur
kvenna spreytir sig á innbroti eftir að eigin-
menn þeirra týna lífi við sömu iðju. Myndin
hefur fengið góða dóma og þykir líkleg til af-
reka. Með helstu hlutverk fara Viola Davis,
Michelle Rodriguez og Elizabeth Debicki.
Ekkjurnar láta greipar sópa
Viola Davis fer með aðalhlutverkið í Widows.
AFP
Edda Sif Pálsdóttir, einn stjórnenda.
Landinn rís
RÚV Hinn sívinsæli þáttur Landinn
hefur göngu sína eftir sumarfrí í
kvöld, sunnudagskvöld. Landinn
fer sem fyrr um landið og hittir fólk
sem er að gera áhugaverða og
skemmtilega hluti. Umsjónarmenn
eru Gísli Einarsson, Þórgunnur
Oddsdóttir, Edda Sif Pálsdóttir,
Gunnar Birgisson og Halla Ólafs-
dóttir. Dagskrárgerð: Karl Sig-
tryggsson, Magnús Atli Magnússon,
Gunnlaugur Starri Gylfason og Jó-
hannes Jónsson.
STÖÐ 2 Sindri
Sindrason heldur
áfram að kynna
sér fósturkerfið á
Íslandi á sunnu-
dögum í þættinum
Fósturbörnum.
„Við heyrum sög-
ur foreldra sem
hafa misst börn sín
frá sér og eru allt annað en sáttir
við starfsfólk barnaverndarnefnda
og fólksins sem tekur við börnunum
og hræðist ekkert meira en að þau
fari til baka. Við kynnumst líka
fólki sem vill ekkert með kynfor-
eldra sína hafa, syrgir jafnvel ekki
dauða þeirra, og heyrum lýsingu
fólks á því hvaða áhrif það hafði á
þau að vera tekin af foreldrum sín-
um á unga aldri,“ segir í kynningu.
Fósturbörn
Sindri
Sindrason
SJÓNVARP SÍMANS Madam Sec-
retary nefnist bandarísk þáttaröð
um Elizabeth McCord, fyrrverandi
starfsmann bandarísku leyni-
lögreglunnar, CIA, sem var óvænt
skipuð utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, sem sýnd er á sunnudags-
kvöldum. McCord er ákveðin, ein-
beitt og vill hafa áhrif á heimsmálin
en oft eru alþjóðleg stjórnmál snúin
og spillt.
Téa Leoni fer með aðalhlutverkið.
Frú ráðherra
Hún lét ekki mikið yfir sérgrínmyndin Carry On Ser-geant, sem frumsýnd var
síðsumars 1958, og hefði einhver sagt
leikstjóranum, hinum 38 ára gamla
Gerald Thomas, að hann ætti ekki að-
eins eftir að gera eina heldur 30
framhaldsmyndir í sama dúr hefði
hann líklega fengið aðsvif vegna hlát-
urs.
Já, Carry On Sergeant átti bara að
vera lítil og sæt mynd sem ætlað var
að kitla hláturtaugar Breta. Og gagn-
rýnendur fóru hreint ekki á hliðina.
„Hógvær mynd sem skiptir litlu
máli,“ sagði Variety. „Hópi hæfi-
leikaríkra gamanleikara er úthlutað
aðstæðum sem þeir spinna út frá,
hver með sínu nefi, og mun meira
veltur upp úr þeim en samtöl hand-
ritshöfundanna fara fram á.“
The Monthly Film Bulletin talaði
um hefðbundna enska blöndu af
gömlum farsakenndum aðstæðum,
lúnum bröndurum og kómískum
póstkortapersónum. Charles Hawt-
rey og Kenneth Williams komi áhorf-
endum á stöku stað til að hlæja en af-
gangurinn af spauginu sé ýmist of
eða van.
Flestum á óvörum sló Carry On
Sergeant hins vegar rækilega í gegn
hjá kvikmyndahúsagestum; varð sú
þriðja mest sótta það árið í Bretlandi
og malaði gull.
Gerald Thomas lét ekki segja sér
það tvisvar, hóaði aftur í svipaðan
hóp spéfugla og hlóð í tvær myndir til
viðbótar árið eftir, Carry On Nurse
og Carry On Teacher. Báðar hlutu
góða aðsókn og er sú fyrrnefnda
raunar vinsælasta Carry On-myndin.
Myndasería varð til og Thomas linnti
ekki látum fyrr en 34 árum og 28
myndum síðar. Samtals leikstýrði
hann sumsé 31 Carry On-mynd en
þess má geta að hlé var gert á fram-
leiðslunni frá 1978 til 1992, að síðasta
myndin var gerð. Afköstin voru gríð-
arleg og ekki óalgengt að tvær mynd-
ir væru frumsýndar á ári.
Svolítið dónalegar
„Myndirnar eru svolítið dónalegar en
í raun og veru bara saklaust grín og
ættu ekki að koma við kaunin á nein-
um. Því er þó ekki að neita að sitt-
hvað var látið flakka sem aldrei hafði
heyrst á hvíta tjaldinu áður,“ sagði
leikkonan Shirley Eaton, sem lék eitt
af aðalhlutverkunum í Carry On Ser-
geant, í samtali við breska blaðið Ex-
press fyrr á þessu ári.
Eaton, sem var rétt tvítug á þess-
um tíma, kom líka við sögu í Carry
On Nurse og Carry On Constable.
Frægust er hún þó líklega fyrir að
hafa leikið Bond-gelluna Jill Mast-
erson í Goldfinger; þá sem lauk lífi
sínu gullhúðuð á beðinum hjá njósn-
ara hennar hátignar.
Eaton hugsar með hlýju til téðra
mynda og hjúkkumyndin er í mestu
uppáhaldi. „Eins og allar myndir á
þessum tíma var hún gerð á handa-
hlaupum. Ég minnist þess að hafa
leikið Denton hjúkku og klæðst síð-
um hjúkkukjól. Fólk hafði aug-
ljóslega yndi af því hvernig ég sveifl-
aði afturendanum.“
Eaton var sumsé kynbomban til að
byrja með en Barbara Windsor leysti
hana af hólmi frá og með Carry On
Spying árið 1964. Lék þar hina fjall-
hressu Daphne Honeybutt. Alls lék
Windsor í tíu myndum í seríunni. Í
dag er hún orðin 81 árs og hefur
glímt við Alzheimer-sjúkdóminn síð-
ustu árin. Eaton er á hinn bóginn
við góða heilsu en hún hætti al-
farið að leika árið 1969 til að
sinna fjölskyldu sinni.
Er sextíu ára afmæli nokkuð
verra tilefni en hvað annað til að
hefja endursýningar á þessum
ágætu myndum í sjónvarpi hér
á landi? Fróðlegt yrði að
sjá hvernig þær hafa elst!
Einhver?
Bob Monkhouse, Shirley Eaton og Dora
Bryan í Carry On Sergeant árið 1958.
Flestir tengja líklega leikarann
Kenneth Williams við Carry
On-myndirnar enda fór hann
með stórt hlutverk í 26
þeirra, fleiri en nokkur annar.
Williams lék hlutverk sín jafn-
an af ísmeygilegri kímni, eins
og gagnrýnendur orða það
svo skemmtilega. Í lifanda lífi
talaði hann alla jafna vel um
flokkinn en síðar kom í ljós að
honum fannst hann aldrei
hafa fengið nægilega vel borg-
að, auk þess sem myndirnar
væru fyrir neðan hans virð-
ingu.
Williams glímdi við
þunglyndi og átti erf-
itt með að sætta sig
við samkynhneigð
sína. Hann lést
1988 af of stórum
lyfjaskammti. Hann
var aðeins 62
ára
gamall.
Þunglyndi
æringinn
Kenneth
Williams
Áfram með smjerið!
Sextíu ár eru frá því að fyrsta Áfram- eða Carry On-myndin var frumsýnd í Bretlandi. Þær urðu á end-
anum 31 á 34 árum sem gerir flokkinn að þeim stærsta sem um getur í breskri kvikmyndasögu.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is