Morgunblaðið - 04.10.2018, Side 2

Morgunblaðið - 04.10.2018, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. OKTÓBER 2018 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Guðni Einarsson Skúli Halldórsson „Það varð sprenging og svartur reyk- ur fór um skipið en með því að loka öllu strax náðu þeir að hefta það,“ sagði Guðmundur Guðjónsson, varð- stjóri í Slökkviliði höfuðborgarsvæð- isins (SHS) og stjórnandi aðgerða slökkviliðsins um borð í togskipinu Frosta ÞH. „Það var greinilegt af ummerkjum að það hafði blossað þarna upp eldur og verið mikill hiti í upphafi.“ Fimm liðsmenn SHS komu um borð í Frosta ÞH með þyrlu Land- helgisgæslunnar (LHG) um klukkan 18.10 í fyrradag. Auk Guðmundar fóru tveir reykkafarar, aðstoðar- maður reykkafara og einn til að sjá um dælingar o.fl. Þeir voru með reykköfunartæki og hitamyndavél. „Áhöfnin var öll úti á dekki í björg- unargöllum þegar við komum. Þegar eldurinn kom upp í vélarrúminu forð- uðu þeir sér út. Vélstjórarnir voru báðir niðri í vél og sluppu með naum- indum. Annar þeirra brenndist og var fluttur á spítala,“ sagði Guð- mundur. „Áhöfnin brást hárrétt við. Þeir lokuðu vélarrúminu og skor- steinshúsinu og einangruðu það allt. Þeir hleyptu slökkvikerfinu á og það slökkti líklegast eldinn. Þegar við komum um borð var enginn eldur.“ Slökkviliðsmennirnir skoðuðu skipið með áhöfninni og unnu sig í átt að vélarrúminu. Hvert rými var met- ið með hitamyndavél áður en dyr með eldvarnarhurðum voru opnaðar. „Þegar við komum að eldsupptök- unum var þar bara reykur en enginn hiti lengur. Þá fórum við að reyk- ræsta,“ sagði Guðmundur. Skipið var rafmagnslaust og veið- arfærin úti. Slökkviliðsmennirnir að- stoðuðu áhöfnina við að koma ljósavél í gang og tryggja öryggi skipsins með því að koma lensidælum og öðru af stað. Rafmagn var komið á tæp- lega tveimur tímum eftir að þeir komu um borð. Þá var hægt að hífa trollið. Meðan á þessu stóð hélt togarinn Sirrý ÍS við Frosta ÞH svo hann sneri upp í ölduna. Varðskipið Týr tók svo Frosta ÞH í tog. Guðmundur þakkaði fumlausum viðbrögðum áhafnarinnar að ekki fór verr. Koma til hafnar í dag Skipin eru væntanleg til Hafnar- fjarðar um kl. 10 í dag. Skipverji sem slasaðist í eldsvoðanum hefur verið útskrifaður af sjúkrahúsi, að sögn Þorsteins Harðarsonar, skipstjóra á Frosta ÞH. Skipverjinn hlaut annars stigs bruna á handleggjum, herðum og höndum. Aðrir í 12 manna áhöfn- inni sluppu ómeiddir. Eldurinn kom upp þegar Frosti ÞH var að veiðum um 45 sjómílur vestnorðvestur af Straumnesi. Stjórnstöð LHG barst neyðarkall klukkan 15.18 í fyrradag um að eldur væri laus í vélarrúmi Frosta ÞH. Togarinn Sirrý ÍS var kominn að um hálftíma síðar. Stundarfjórðungi eft- ir neyðarkallið fékk stjórnstöð LHG tilkynningu um að búið væri að ein- angra eld í vélarrúmi en að reykur væri um allt skip nema í brúnni. „Við förum strax á neyðarstig þeg- ar tilkynnt er um eld um borð í skipi. Það er ekkert óvissustig eða hættu- stig heldur farið beint á neyðarstig,“ sagði Ásgrímur L. Ásgrímsson, framkvæmdastjóri aðgerðasviðs LHG. „Eldur um borð í skipi getur breiðst mjög fljótt út. Menn geta ekki flúið lengra en í mesta lagi stafna á milli. Reykurinn í skipum er baneitr- aður vegna ýmissa efna um borð, ol- íu, klæðninga o.fl. Hann verður líka mjög heitur. Svo er alltaf hætta á gassprengingum. Það er líka tak- markaðir möguleikar á að bregðast við eldi. Einn er að yfirgefa skipið.“ Ásgrímur sagði ljóst að áhöfnin hefði brugðist rétt við aðstæðum. „Fræðsla og þjálfun sem íslenskir sjófarendur hafa fengið undanfarna áratugi í Slysavarnaskóla sjómanna, meðal annars um hvernig bregðast eigi við eldi í skipum, skilar árangri,“ sagði Ásgrímur. Tvær þyrlur voru sendar á vett- vang og fóru slökkviliðsmennirnir með annarri þeirra. Varðskipið Týr var við eftirlit í Ísafjarðardjúpi og fór strax á vettvang. Björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Ísafirði, Gunnar Friðriksson, fór einnig af stað. Skip í nágrenninu voru beðin um tafarlausa aðstoð og komu togskip og togarar fljótlega að Frosta ÞH. Slasaði skipverjinn var fluttur með þyrlu til Ísafjarðar. Þangað var búið að kalla sjúkraflug- vél frá Mýflugi sem flutti hinn slas- aða undir læknishendur í Reykjavík. Ásgrímur sagði að mjög gott sam- starf hefði verið við útgerð Frosta ÞH sem annaðist samskipti við að- standendur áhafnarinnar. „Það er mikilvægt að aðstandendur fái greið og skýr svör um hvað er að gerast,“ sagði Ásgrímur. Stjórnstöð LHG samhæfði allar þessar aðgerðir. „Sprenging og svartur reykur“  Slökkviliðsmenn segja áhöfn Frosta ÞH hafa brugðist hárrétt við eldsvoðanum  Vélstjórarnir sluppu naumlega  Við eld um borð í skipi á sjó er strax farið á neyðarstig, segir Landhelgisgæslan Ljósmynd/Guðmundur St. Valdimarsson Týr TF-SYN sótti fimm liðsmenn Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins um borð í varðskipið Tý síðdegis í gær. Þeir fóru um borð í togskipið Frosta ÞH vegna eldsvoða. Týr var væntanlegur með Frosta ÞH til Hafnarfjarðar í dag. Kvikmyndastjarnan Shailene Woodley var við- stödd sýningu kvikmyndarinnar Adrift í Bíó Paradís í gær. Hún fer með aðalhlutverkið í kvikmyndinni. Shailene og Baltasar Kormákur, leikstjóri myndarinnar, svöruðu spurningum bíógesta að sýningu lokinni. Sýningin var liður í kvikmyndahátíðinni RIFF. Shailene Woodley er ein skærasta stjarnan í Hollywood um þessar mundir. Þrátt fyrir ungan aldur hefur hún fengið fjölda verðlauna. Hún er formaður dómnefndar í keppni RIFF um aðalverðlaunin Gullna lundann. Á hátíðinni verða sýndar myndirnar The Descendants, Adrift og tveir þættir úr HBO-röðinni Big Little Lies þar sem hún leikur eitt aðalhlutverkið. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Hollywood-stjarna formaður dómnefndar RIFF Aðalleikkona og leikstjóri Adrift sátu fyrir svörum á RIFF í gær Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir hefur undirritað, fyrir hönd íslenska ríkisins, samning við lyfjafyrirtækið GlaxoSmithKline (GS) um kaup- tryggingu á 300 þúsund skömmt- um af bóluefni gegn heimsfar- aldri inflúensu. Samningurinn var undirritaður 10. september. Hann byggist á sambærilegum samningi og Dan- ir hafa gert við GSK og gildir í fjögur ár með möguleika á framleng- ingu, mest tíu ár. „Samningurinn er hluti af vinnu íslenskra stjórnvalda við gerð við- bragðsáætlana vegna heimsfarald- urs inflúensu og er framkvæmd hans á höndum sóttvarnalæknis. Með samningnum er tryggt að Íslend- ingar fái bóluefni eins fljótt og auðið er eftir að lýst hefur verið yfir heimsfaraldri. Þar sem ekki verður hægt að hefja framleiðslu á bóluefn- inu fyrr en heimsfaraldri hefur verið lýst yfir, munu líða um fjórir til sex mánuðir frá upphafi faraldurs þar til bóluefnið fæst afhent,“ segir í Far- sóttarfréttum Embættis landlæknis. Gera má ráð fyrir að bólusetn- ingarátak í heimsfaraldri geti náð til um helmings þjóðarinnar. Þá er borð fyrir báru ef bólusetja þarf tvisvar til að fá fullnægjandi svörun. Samið um inflúensu- bóluefni  Vörn gegn heims- faraldri inflúensu Þórólfur Guðnason

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.