Morgunblaðið - 04.10.2018, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 04.10.2018, Blaðsíða 53
Jafnréttis-pub quiz, áhorf á Friends, leik- reglur karlmennskunnar, jafnrétti á bak við tjöldin, fötlun og andóf, ungt fólk og jafn- rétti, kynjað vald, jafnrétti í sviðslistum og konur í hópi innflytjenda í #MeToo frásögn- um á Íslandi ásamt óvæntum jafnréttisupp- ákomum er meðal þess sem kemur við sögu á Jafnréttisdögum í háskólum landsins dag- ana 1.-5. október. Þetta er í tíunda sinn sem Jafnréttisdagar eru haldnir og dagskráin er þétt skipuð og er henni ætlað að sameina hátíðarbrag og gagnrýna sýn á stöðu jafn- réttismála. Markmiðið er að breyta heim- inum. Hvorki meira né minna, segir Sara Stef, jafnréttisfulltrúi HR í spjalli á K100. Krakkarnir eru breytingin. Hún segir áherslu lagða á þau tækifæri sem skapast með því að setja hugmyndir um normið hið eðlilega og hið undirskipaða undir smásjána. Háskólarnir vinna þétt saman og í anda jafnréttisins segir hún þau vinna saman í öllum landshlutum reglulega. Með Jafn- réttisdögum í háskólum landsins er leitast er við að skapa opna umræðu og aukinn skilning á jafnrétti ásamt því að auka sýni- leika jafnréttismála og virkja slagkraft þeirra fjölmörgu aðila sem vinna að jafn- rétti. Nánari upplýsingar má nálgast á Facebook-síðu verkefnisins, facebook.com/ Jafnrettisdagar. magasinid@k100.is Friends „krufðir“ á Jafnrétt- isdögum Friends Stertabenda-leikhópurinn vinnur um þessar mundir að verkinu Insomnia sem fjallar um goðsögu okkar tíma, Friends-þættina. MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. OKTÓBER 2018 F IM M TU DAGSLEIKU R • M O RGUNBLAÐ SI N S • HAPPA- TALA DAGSINS TIL HAMINGJU - ÞÚ HEFUR FUNDIÐ HAPPATÖLUNA! Farðu inn ámbl.is/fimmtudagur, fylltu út upplýsingar um þig og sláðu inn Happatöluna, en hún er einfaldlega blaðsíðutal þessarar síðu. Vinningshafar verða dregnir út í þættinum Ísland vaknar á K100 í fyrramálið. Að sjálfsögðu hvetjum við þig til að taka þátt á hverjum fimmtudegi, því það er til mikils að vinna. Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Jólastjörnuna 2018 sem er söng- keppni fyrir unga snillinga undir 14 ára aldri. Keppnin er haldin í átt- unda sinn og mun sigurvegarinn koma fram á stórtónleikunum Jóla- gestir Björgvins í Eldborgarsal Hörpu í desember. Á þriðja hundr- að krakkar tóku þátt í keppninni í fyrra og varð Arnaldur Halldórsson þeirra hlutskarpastur. Hann segir keppnina hafa fært sér mörg tæki- færi og er hvergi nærri hættur að syngja. „Þetta var mikið fjör. Ég hafði verið í Sönglist og farið í nokkrar prufur þar sem þurfti að syngja og svona,“ segir Arnaldur og bætir við að það hafi alltaf verið planið að taka þátt sem hann lét svo verða af í fyrra. Sesselja Ómarsdóttir, móðir Arn- alds, segist ekki muna sérstaklega eftir því að hann hafi sungið mikið fyrr en um leikskólaaldurinn. „Hann hefur hins vegar alltaf talað mikið,“ segir hún og skellir upp úr. Hún segist ekki kannast við mikla söng- og leikhæfileika hjá foreldr- unum sem bæði hafa einbeitt sér að raunvísindum. „Hann er svolítið önnur týpa, ef við getum sagt sem svo.“ Á svið í Borgarleikhúsinu Það er nóg um að vera hjá Arn- aldi þessa dagana en hann stundar fimleika og leiklist af kappi auk þess að vera í skólanum. En fáum við að sjá hann eitthvað á sviði á næstunni? „Já, ég er að fara að leika í Matthildi og byrja æfingar núna í nóvember og verður sýn- ingin í Borgarleikhúsinu eftir ára- mót.“ Aðspurður hvort ekki þurfi mikið skipulag til að komast á milli staða þegar svona mikið er að gera segir Arnaldur að hann njóti góðs stuðnings frá Þrúði, ömmu sinni, og að hún sé fínasti einkabílstjóri. Þeir sem hafa áhuga á því að taka þátt geta sent inn YouTube- myndband af söngnum, sem má vera hvaða lag sem er og eftir hvern sem er. Keppnin er sem fyrr ætluð 14 ára og yngri og þurfa allir þátttakendur leyfi forráðamanna. Tekið verður við myndböndum til miðnættis 17. október á mbl.is/ jolastjarnan. Sérstök dómnefnd velur þá tólf söngvara sem standa sig best og verða þeir boðaðir í prufur. Sér- stakir þættir verða gerðir um allt ferlið og sýndir í lok nóvember í Sjónvarpi Símans. islandvaknar@k100.is Amma Þrúður er einkabílstjórinn Arnaldur Halldórsson vann söngkeppnina Jólastjörnuna í fyrra og segir sigurinn hafa fært sér mörg tækifæri. Búið er að opna fyrir umsóknir í keppnina í ár sem unnin er í samstarfi við mbl.is og Sjónvarp Símans. K100/Rikka Jólastjarnan Arnaldur ásamt móður sinni, Sesselju Ómarsdóttur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.