Morgunblaðið - 04.10.2018, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 04.10.2018, Blaðsíða 16
16 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. OKTÓBER 2018 Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Þessa dagana eru liðin rétt ogslétt 50 ár síðan Hamra-borg, bæjarbúðin á Ísafirðivar opnuð. Þar ráða í dag bræðurnir Gísli og Úlfur Úlfarssynir sem fyrir allmörgum árum tóku við keflinu af foreldrum sínum, Úlfari Ágústssyni og Jósefínu Gísladóttur, sem lést fyrr á þessu ári. Þeir Úlfar og Heiðar Sigurðsson hófu rekstur- inn 30. september 1968 í Aðalstræti 22 á Ísafirði, en þar sem aðilar máls náðu ekki saman um húsaleigu var næsta dag, 1. október, flutt í húsið að Hafnarstræti 7. Og þar er enn í dag og verður hin eina og sanna Hamra- borg. Ekki var efnt til neinnar af- mælishátíðar af þessu tilefni, hvað sem síðar verður. Kostur til breskra togara „Fyrst var Hamraborg ný- lenduvöruverslun eða kjörbúð með helstu nauðsynjum fyrir fólkið í bæn- um. Svo þurfti líka kost fyrir skipin; mikið var selt til bresku togaranna sem komu til Ísafjarðar í landlegur. Því sem selja mátti hér voru jafn- framt ýmsar skorður settar fyrstu árin. Mjólk fékkst til dæmis ekki í heildsölu og mátti til dæmis aðeins selja í mjólkurbúðinni hér handan við götuna. Og þangað var farið og náð mjólk og hún síðan seld aftur í Hamraborg,“ segir Úlfar, sem tók al- farið við rekstrinum árið 1971 þegar Heiðar Sigurðsson sneri sér að öðru. „Já, þessi rekstur var talsvert basl fyrstu árin og stundum þurftu ógreiddir reikningar að bíða. En birgjar voru þolinmóðir, þetta tókst allt með tímanum og reksturinn er fyrir löngu kominn á gott ról. Og í dag er Hamraborg kannski öðru fremur veitingastaður, pizzutilboð á þriðjudögum, hamborgarar, pylsur, samlokur, ís og slíkt. Einnig helstu vörur sem fólk þarf til heimilis ef eitthvað vantar í skyndingu. Það er þörf þjónusta, engin verslun á Ísa- firði með jafn langan opnunartíma.“ Bræðurnir Gísli og Úlfur eru gjarnan mættir í Hamraborg upp úr klukkan 6 á morgnana til að undir- búa daginn. „Um leið og fyrsti maður mætir til vinnu hér er búðin opnuð. Sjálfur er ég mest hér baka til að finna til vörur, hnoða pizzudeigið, smyrja samlokurnar, panta inn og fleira slíkt á meðan Úlfur bróðir minn er meira í afgreiðslunni og spjallar við viðskiptavini. Það er verkaskipting sem okkur bræðr- unum hentar mjög vel. Svo er faðir okkar alltaf viðloðandi, hann kemur hér á hverjum morgni í pappírs- vinnu, fer í bankann og fleira slíkt sem þarf. Við bræður vorum byrjaðir að vinna hér 6-7 ára og Moggann, sem faðir minn var umboðsmaður fyrir í 25 ár og einnig fréttaritari á Ísafirði, byrjaði ég að bera út áður en ég varð læs, “ segir Gísli, sem er fæddur árið 1968 og því nánast jafn gamall versluninni. Úlfur er hins vegar sex árum yngri. „Já, auðvitað er vinnudagurinn oft langur og Hamraborg stjórnar lífinu að verulegu leyti. Þetta er hins vegar nokkuð sem ég er vanur og þekki ekkert annað. Við höfum skyldur við samfélagið og afgreiðslu- tíminn fer stundum eftir aðstæðum. Um páskana þegar rokkhátíðin Aldr- ei fór ég suður er haldin hér á Ísa- firði er Hamraborg opin allan sólar- hringinn, enda er þá fjöldi fólks í bænum og allir svangir,“ segir Gísli, sem er með um 20 starfsmenn. Hafa margir Ísfirðingar einmitt byrjað þarna starfsferilinn. Fastagestir úr lögreglunni Gísli segir að margt hafi breyst í rekstri Hamraborgar á síðustu ár- um. Lengi voru þar leigðar út vídeó- spólur, bíómyndir sem nú má nálgast í símasjónvarpi. „Vídeóleigan dó nánast á einum sólarhring og sala á blöðum er miklu minni en áður var. En sumt breytist ekkert, heimagerðu hamborgararnir sem settir eru í örbylgjuofinn standa til dæmis alltaf fyrir sínu, mikil traffík allan daginn og lögreglu- mennirnir af stöðinni sem er hér í næsta húsi eru fastakúnnar og standa um okkur vörð, “ segir Gísli Úlfarsson, kaupmaður í Hamraborg á Ísafirði, að síðustu. Verslun í hálfa öld og fastur punktur í bæjar- lífinu á Ísafirði. Nauð- synjar og skyndibiti, en vídeóleigan dó á einum degi. Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson Kaupmenn Gísli Úlfarsson, Úlfar Ágústsson og Úlfur Úlfarsson. Bræðurnir byrjuðu ungir að vinna í Hamraborg hjá foreldrum sínum og tóku síðar við. Krakkar Allir leiðir liggja í Hamraborg og í gær voru þar þessir kátu krakkar sem komu til þess að kaupa gotterí og spjalla við fólk. Höll Að fyrsta starfsdeginum frátöldum hefur Hamraborg verið í Hafnar- stræti 7 á Ísafirði, sem er einn fárra staða á landinu sem hafa miðbæ. Hamraborg stjórnar lífinu Eikjuvogur 29 - 104 Rvk. s: 781-5100 Opið: Mán-fim: 12-18 fös: 12-16 Haust 2018 Nýjar haustvörur Holtasmári 1 201 Kópavogur sími 571 5464 Str. 38-52
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.