Morgunblaðið - 04.10.2018, Blaðsíða 28
28 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. OKTÓBER 2018
Guðrún Óla Jónsdóttir
gudruno@mbl.is
„Eitt það erfiðasta í starfi geðlækn-
is er að meta hvort sjúklingur sé í
sjálfsvígshugleiðingum eður ei. Það
er algengt að geðlæknir á spítala sé
kallaður til af hjarta- eða skurð-
lækni til að spá fyrir um hættu á
sjálfsvígi hjá við-
komandi sjúk-
lingi. Og þess
auðvitað vænst
að hann hafi
þekkingu til að
gera það,“ segir
Jón Hallur Stef-
ánsson geð-
læknir.
Hann segir
sjálfsmorð og
sjálfsmorðs-
tilraunir vera alvarlegt heilbrigðis-
vandamál og mun algengari en
flestir halda.
Hjálpartæki til að meta áhættu
Jón Hallur varði doktorsritgerð
sína, Clinical Assessment of High-
risk Suicide Attempters: Intent,
Violence and Biomarkers, við Kar-
ólínska sjúkrahúsið í Stokkhólmi 15.
júní síðastliðinn.
Ritgerðin fjallar um hjálpartæki
til að meta hættuna á sjálfsvígum
sjúklinga og byggist á könnunum
sem gerðar voru á tímabilunum
1988-1991, 1993-1998 og 2000-2005.
Til að meta hættu á sjálfsvígi ein-
stakra sjúklinga var stuðst við
sjúkrasögu og klínískt mat. Skoð-
aðir voru 209 sjúklingar sem höfðu
stuttu áður gert sjálfsvígstilraun yf-
ir meðaltímabil sem spannaði tíu til
tólf ár.
Jón Hallur segir að af þessum
209 sjúklingum hafi sautján framið
sjálfsvíg síðar á tímabilinu og voru
karlmenn í meirihluta.
Áhættan eykst við áföll
Rannsóknin leiddi í ljós að meðal
þeirra atriða sem virtust hafa sitt
að segja um hættu á sjálfsvígi var
saga um ofbeldishegðun, hvort sem
sjúklingurinn hafði orðið fyrir of-
beldi eða beitt aðra ofbeldi.
Jón Hallur segir margar rann-
sóknir benda til þess að hættan á
sjálfsvígi aukist ef einstaklingur
hefur orðið fyrir áfalli og það sé
mikilvægt fyrir lækna að vera með-
vitaðir um það.
„Það er því mikilvægt að skoða
hvort sjúklingur hafi upplifað áfall
(e. trauma), hvort sem það var í
æsku eða á fullorðinsaldri.“ Hann
bætir við að hér sé átt við áfall,
bæði hjá þeim sem hafi verið beittir
ofbeldi og þá sem hafi beitt aðra of-
beldi, hvort sem þeir séu á barns-
eða fullorðinsaldri. „Þannig að það
sem sjúklingur upplifði sem ungur
maður gæti skipt máli fyrir hann út
lífið.“
Testósterón tengt árásargirni
Jón Hallur segir fleiri karla en
konur fremja sjálfsvíg og það geti
verið erfitt að skilja hver ástæðan
sé fyrir því, þar sem fleiri konur en
karlar leita til dæmis til geðlækna
almennt í flestum vestrænum lönd-
um. Í rannsókninni hafi verið skoð-
að hvort líffræðilegar ástæður
lægju að baki.
„Við skoðuðum bæði blóðprufur
og heila- og mænuvökva úr sjúk-
lingunum og það kom í ljós að þeir
karlmenn sem voru í minnihluta
áhættuhópsins (n=9) voru að
meðaltali með hærra testósterón í
blóði og heila- og mænuvökva en
aðrir í sama aldurshópi (n=12).
Testósterón hefur verið tengt
árásargirni og það að reyna að
fremja sjálfsvíg er stórtæk ákvörð-
un svo ásamt hvatvísi getur það
verið mikilvægur þáttur í
ákvarðanatökuferlinu.“
Hann bætir við að menningaröfl
komi líka þar inn í. „Til dæmis virð-
ist vera hærri sjálfsvígstíðni í
ákveðnum löndum í heiminum á
mörgum Vesturlöndum frekar en
annars staðar og það er ólíklegt að
það stafi einungis af líffræðilegum
mun.“
Hættan metin út frá aðferðinni
Jón Hallur segir niðurstöður
rannsóknarinnar meðal annars gefa
til kynna að hægt sé að meta hluta
á hættu á sjálfsvígi í framtíðinni út
frá þeim aðferðum sem sjúklingur-
inn notaði við sjálfsvígstilraunina.
„Oftast er almennt meiri áhætta
hjá þeim sjúklingum sem nota til
dæmis byssu heldur en hjá þeim
sem nota lyf. Þess vegna er mikil-
vægt að vita hversu ofbeldisfull til-
raunin er.
Að nota lyf getur líka verið lífs-
hættulegt. Svo er líka almennt
meiri áhætta hjá þeim sem gerir
sjálfsvígstilraun einn úti í skógi
heldur en heima með ástvin í næsta
herbergi. Þess vegna er mikilvægt
að vita hversu einangraður sjúk-
lingurinn var þegar hann gerði til-
raun til sjálfsvígs.“
Jón Hallur segir að mikilvægt sé
að gerðar séu fleiri og stærri rann-
sóknir á þessu sviði svo hægt sé að
koma í veg fyrir sjálfsvíg.
Alvarlegt heilbrigðisvandamál
Mikilvægt að læknar séu meðvitaðir um að áföll auki hættu á sjálfsvígi Karlar eru
í meiri áhættu en konur Fleiri rannsóknir þarf svo hægt sé að koma í veg fyrir sjálfsvíg
Morgunblaðið/Golli
Jón Hallur
Stefánsson
Áhættuhópur Jón Hallur segir
fleiri karla en konur fremja sjálfs-
víg. Hætta á sjálfsvígi aukist ef ein-
staklingur hafi orðið fyrir áfalli í
æsku eða á fullorðinsaldri.
Snorri Olsen tók
við embætti
ríkisskattstjóra
1. október síðast-
liðinn.
Snorri lauk
embættisprófi í
lögum frá Há-
skóla Íslands ár-
ið 1984 og hóf
störf í fjármála-
ráðuneytinu í
apríl á því ári. Hann gegndi þar
m.a. starfi skrifstofustjóra á sviði
skattamála.
Snorri var settur ríkisskattstjóri
á árunum 1995 til 1997 en frá 1.
október 1997 var hann skipaður
tollstjóri og gegndi því embætti
fram til loka september 2018.
Ingvar J. Rögnvaldsson vara-
ríkisskattstjóri hefur gegnt emb-
ætti ríkisskattsjóra síðan Skúli
Eggert Þórðarson lét af störfum og
tók við embætti rikisskattstjóra 2.
maí síðastliðinn. Skúli Eggert hafði
gegnt embættinu í ríflega 11 ár.
Ingvar hefur verið vararíkisskatt-
stjóri frá 1. ágúst 2000.
Sigurður Skúli Bergsson að-
stoðartollstjóri hefur verið settur
tímabundið í embætti tollstjóra frá
1. október, þar til skipað hefur ver-
ið í stöðuna. sisi@mbl.is
Snorri hef-
ur tekið við
embættinu
Snorri Olsen
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum