Morgunblaðið - 04.10.2018, Síða 52
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. OKTÓBER 2018
Reyktur lax
í brunchinn
Söluaðilar:
Hagkaup, Iceland verslanir,
Melabúðin, Nettó, Samkaup kjör-
búðir, Samkaup krambúðir og Pure
Food Hall í flugstöðinni Keflavík.
Með því að velja
hráefnið af kostgæfni,
nota engin aukaefni og
hafa verkhefðir fyrri tíma
í hávegum, framleiðum við
heilnæmar og bragðgóðar
sjávarafurðir.
Þóra Sigurðardóttir
thora@mbl.is
Ofnbakað tómata- og hvítlauks-
pasta með prosciotto og ricotta
(Fyrir 4)
15-20 kokkteiltómatar, skornir í tvennt (notið
tómata í mismunandi litum til að gera réttinn
enn fallegri)
4 matskeiðar ólívuolía
2,5 dl fersk basilíka og ferskt timjan
4 hvítlauksgeirar
Salt og pipar
6 sneiðar prosciutto
4 egg léttþeytt
2 dl rifinn parmesanostur
Ögn af chili-flögum
250 g ferskur ricotta-ostur
400 g af uppáhaldspastanu þínu, ég notaði
spagettí í mína uppskrift.
Leiðbeiningar:
1. Stillið ofninn á 200 gráður.
2. Leggið tómata, ólívuolíu, basilíku og
timjan, hvítlauksgeira (pressið þá létt niður
með hníf) og vel af salti og pipar í eldfast
mót. Blandið vel saman. Leggið síðan pros-
ciotto-skinkuna ofan á og leggið inn í ofn í
um 15 mínútur eða þangað til tómatarnir eru
farnir að falla saman og skinkan er orðin
stökk.
3. Sjóðið pastað samkvæmt leiðbeiningum
á pakkanum. Þegar pastað er tilbúið haldið
eftir 1,5 dl af pastavatni.
4. Þeytið eggin, parmesan og chili flögur
saman í fatinu eða pönnunni sem þið ætlið að
bera réttinn fram í.
5. Blandið pastanu vel saman við eggja-
blönduna, eggin ættu að þykkna og verða að
sósu. Þynnið sósuna út með pastavatninu
þangað til þið eruð ánægð með þykktina.
6. Bætið út í tómötunum og öllum vökv-
anum úr mótinu og blandið vel saman. Bætið
við salti og pipar og að lokum toppið með ri-
cotta-ostinum og ferskum basilíkulaufum.
Pasta að hætti
Jennifer Berg
Þessi uppskrift er í senn einstaklega einföld og ofboðslega góð á bragðið enda
kemur hún úr smiðju Jennifer Berg. Jennifer er mikill matgæðingur og meist-
arakokkur enda var henni á dögunum boðin þátttaka í sænsku útgáfunni af
Master Chef-þáttunum. Hún varð að afþakka sakir anna enda starfar hún um
allan heim sem fyrirsæta. Þess á milli dvelur hún hér á landi þar sem hún býr
ásamt unnusta sínum og hundinum Knúti. Sjálf segir Jennifer að þetta sé einn
af hennar uppáhalds pastaréttum þessa stundina og sé hinn fullkomni réttur
til að deila með fjölskyldunni eða vinum með góðri rauðvínsflösku. Sjálf kjósi
hún að nota ricotta-ost í sinni uppskrift en allt eins sé hægt að nota burrata
eða einhvern annan ferskost.
Matgæðingur Jennifer
Berg heldur úti blogg-
síðunni Jeńs Delicious
Life (.com)
„Þetta hefur gengið ótrúlega vel, “
segir Ársæll Markússon um verk-
efnið en fyrirtækið 1000 ára sveita-
þorp ehf. hefur sett á markað kart-
öflur úr Þykkvabænum í
umhverfisvænum bréfpokum.
Ársæll er maðurinn á bak við
verkefnið en foreldrar hans, Markús
Ársælsson og Halldóra Hafsteins-
dóttir, hafa verið kartöflubændur í
Hákoti í Þykkvabæ í yfir 30 ár. Að-
spurðir segja þeir feðgar að viðtök-
urnar hafi verið framar björtustu
vonum. Það hafi greinilega verið
eftirspurn eftir umhverfisvænum
umbúðum. „Þetta hefur hitt í mark,“
segir Markús og bætir við að það sé
ekki nóg að tala um umhverfisvernd
– það verði að gera eitthvað.
Eins og staðan er í dag eru kart-
öflurnar seldar í tveggja kílóa pok-
um en kartöflunum er pakkað með
höndunum og saumað er fyrir með
handvirkum saumavélum. Vonir
standa til að hægt verði að fjárfesta í
stærri pökkunarvélum til að keppa
frekar við plastið í framtíðinni.
thora@mbl.is
Frumkvöðull Ársæll Markússon með kartöflupokana sem hafa slegið í gegn.
Kartöflur í um-
hverfisvænum
umbúðum rjúka út
Ræktaðu kryddjurtir
í snjallgróðrarstöð
Hvað er betra en ferskar krydd-
jurtir til að bragðbæta matinn? Ná-
kvæmlega ekki neitt – og hvað þá ef
hægt er að rækta þær í svokallaðri
snjall-gróðrarstöð sem er tengd við
app í símanum.
Þetta er mögulega það snjallasta
sem á fjörur okkar hefur rekið lengi.
Gróðrarstöðin er stílhrein og falleg,
með ljósi (auðvitað) og gerir okkur
kleift að rækta ferskt grænmeti í
dimmasta skammdeginu.
Gróðrarstöðin fæst í Eirbergi og
kostar 11.950 krónur.
Snjallstöð Nú
er lítið mál að
vera með
ferskar krydd-
jurtir allan
ársins hring.