Morgunblaðið - 04.10.2018, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 04.10.2018, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. OKTÓBER 2018 Bókaðu núna á baendaferdir.is Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 Reykjavík Verð: 184.800 kr. á mann í tvíbýli. ÖRFÁ SÆTI LAUS Mjög mikið innifalið! sp ör eh f. Aðventublær í Bamberg Aðventan er einstakur tími í Þýskalandi. Borgirnar Nürnberg, Würzburg, Rothenburg ob der Tauber og Bamberg skarta allar sínu fegursta á þessum tíma. Ljósadýrðin er töfrandi og jólamarkaðirnir dásamlegir þegar ljúfur ilmur af jólaglöggi og ristuðum möndlum leggur yfir svæðið. 30. nóvember - 7. desember Fararstjóri: Sigrún Valbergsdóttir Miklar framkvæmdir standa yfir þessi misserin á svonefndum Baróns- reit í miðborg Reykjavíkur. Er stefnt að því að innan tveggja ára verði framkvæmdum lokið við um 160 íbúð- ir þar og á svonefndum Laugavegs- reit sem er þarna skammt undan. Raunar eru miklar framkvæmdir víð- ar í gangi á miðborgarsvæðinu og sér ekki fyrir endann á þeim. Þó þykjast margir greina merki kólnunar í hag- kerfinu og þá ekki síst í ferðaþjón- ustu, en fjöldi hótela hefur verið byggður í Reykjavík á allra síðustu árum. Fjórir kranar sáust á lofti við Bar- ónsreitinn í gær og allt var á fullum snúningi. Hvort kranafjöldinn er táknmynd ofhitnunar í hagkerfinu og hugsanlega váboði, eins og einhverju sinni var haldið fram, skal hins vegar ósagt látið. Morgunblaðið/Eggert Fjórir kran- ar á Bar- ónsreitnum Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Innheimta útsvars er breytileg eftir sveitarfélögum. Í fyrra var lægsta útsvarið 12,44% af skattstofni og hæsta útsvarið 14,52%. Þetta kemur fram í grein Páls Kolbeins í Tíund, blaði ríkisskatt- sjóra, þar sem hann fjallar um álagn- ingu gjalda vegna tekjuársins 2017. Fram kemur í grein Páls að munur á hæsta og lægsta útsvari hafi verið 2,08%, líkt og árið áður. Þetta þýðir að þeir sem bjuggu í sveitarfélagi sem lagði á hámarksútsvar greiddu 20.800 krónum meira í útsvar af hverri milljón sem þeir öfluðu en þeir sem bjuggu í sveitarfélagi sem lagði á lágmarksútsvar. „Fyrir hjón með 15 milljónir í tekjur þýðir þetta skattalækkun upp á 312.000 krónur. Það má því ætla að hjón gætu hækkað kaupið sitt um 892.959 krónur á ári með því að flytja í annað sveitarfélag, en það myndi jafngilda sex prósent kauphækkun,“ segir Páll. Alls voru 213,9 milljarðar lagðir á landsmenn í útsvar af tekjum ársins 2017, sem var 17,6 milljörðrum meira en árið áður. Tekjur sveitarfé- laganna af útsvari jukust því um yfir 9% milli ára. Árið 2016 jukust tekjur einnig um 17,6 milljarða milli ára, eða um 9,8%. Árið 2013 greiddu landsmenn samtals 158 milljarða í útsvar og því hefur útsvarið aukist um 35,4% á fjórum árum. „Þetta er auðvitað mikil hækkun á svo skömmum tíma,“ segir Páll. Hann bendir einnig á að frá árinu 2010 hafi laun, hlunnindi, trygginga- bætur og lífeyri hækkað um 43,8%. Á sama tíma hafa tekjur ríksins af tekjuskatti aukist um 51,7% og tekjur sveitarfélaga um 59,9%. Fram kemur á vef Sambands ís- lenskra sveitarfélaga að útsvarið sé veigamesti tekjustofn sveitarfélaga. Það er dregið af launum launþega ásamt tekjuskatti ríkisins. Útsvars- prósentan getur verið mismunandi frá einu sveitarfélagi til annars. Samkvæmt tekjustofnalögum getur útsvarsprósentan hæst verið 14,52% en lægst 12,44%. Samkvæmt yfirliti Fjársýslu rík- isins innheimta 66 sveitarfélög há- marksútsvar en þrír hreppar lág- marksútsvar. Reykjanesbær innheimtir hæsta útsvarið, 15,05%. Hann fékk undanþágu vegna bágrar fjárhagsstöðu í kjölfar bankahruns- ins. Fengju 6% kauphækkun  Þeir sem bjuggu í sveitarfélagi sem lagði á hámarksútsvar í fyrra greiddu 20.800 krónum meira í útsvar af hverri milljón en þar sem lagt var á lágmarksútsvar Morgunblaðið/Ómar Reykjavík Höfuðborgin er eitt 66 sveitarfélaga með hámarksútsvar. Þór Steinarsson thor@mbl.is Vinnumálastofnun er að gera mjög margt í málum erlendra starfs- manna á íslenskum vinnumarkaði og hefur eftirlit með starfsmannaleig- um í samræmi við lög segir Unnur Sverrisdóttir, aðstoðarforstjóri Vinnumálastofnunar, í samtali við Morgunblaðið. Hún telur þó að mikilvægt að auka samstarf mis- munandi stofnana og leita annarra leiða til að uppræta þau vandamál sem fylgja slíkri starfsemi. Fjallað var um vinnumansal og slæma stöðu erlendra aðila á ís- lenskum vinnumarkaði í fréttaskýr- ingaþættinum Kveik á RÚV í gær- kvöldi. Rætt var við erlenda aðila sem komu hingað til landsins vegna fagurra fyrirheita en voru á end- anum hlunnfarnir af íslenskum vinnuveitendum. Í þættinum kom fram gagnrýni á eftirlitsstofnanir og því haldið fram að þær nýttu ekki nægilega þau úr- ræði sem þeim stæðu til boða. Vinnumálastofnun annast eftirlit með starfsmannaleigum og hefur heimildir til að beita viðurlögum samkvæmt lögum um starfsmanna- leigur. Unnur telur að gagnrýnin eigi ekki að öllu leyti rétt á sér enda hafi Vinnumálastofnun oft krafist úrbóta og í hvert skipti sem það sé gert til- kynni Vinnumálastofnun að hún muni beita dagsektum eða stöðva starfsemi verði ekki orðið við kröf- um um úrbætur. Í skriflegu svari til Morgunblaðsins segir Unnur að hót- anir um dagsektir eða um stöðvun starfsemi dugi nær undantekninga- laust til þess að fyrirtæki geri þær úrbætur sem krafist er af hálfu Vinnumálastofnunar. Hún bendir þó á að Vinnumála- stofnun hafi ekki enn gert neinni starfsmannaleigu að greiða stjórn- valdssekt enda hafi slík heimild ekki verið til staðar fyrr en í sumar þeg- ar ný lög tóku gildi 1. ágúst sl. Í eitt skipti, haustið 2017, hefur Vinnu- málastofnun kært starfsmannaleigu til lögreglu vegna brota á lögum. Vill viðhorfsbreytingu Unnur tekur fram að Vinnumála- stofnun geri allt sem í hennar valdi standi til að aðstoða fólk við að leita réttar síns og eigi að sama skapi í góðu samstarfi við stéttarfélög. Hún telur þó að frekara samstarf stofnana og viðhorfsbreytingu al- mennings þurfi til að uppræta vandamálin sem fylgja starfsemi er- lendra aðila á íslenskum vinnu- markaði. „Ég held að það sé mikilvægt að við förum að beita öðrum aðferðum líka. Að allir fari að vinna saman við að uppræta þetta. Atvinnurekendur, verkalýðshreyfingin, allir opinberir aðilar og almenningur,“ bætir Unnur við. Kallar eftir samstarfi í eftir- liti með starfsmannaleigum  VMST hefur kært eina starfsmannaleigu til lögreglu Morgunblaðið/Árni Sæberg Atvinnulíf 34 starfsmannaleigur eru skráðar hjá Vinnumálastofnun. Þrír hreppar á Íslandi lögðu á lágmarksútsvar í fyrra, eða 12,44% af tekjum. Þetta voru Skorradals- hreppur, Ásahreppur og Gríms- nes- og Grafningshreppur. Langflest sveitarfélög lögðu á hámarksútsvar, 14,52%. Í þeim hópi eru nokkur fjölmenn- ustu sveitarfélög landsins, svo sem Reykjavík, Akranes, Borgarbyggð, Snæfellsbær, Ísa- fjörður, Akureyri, Norðurþing, Fjarðarbyggð, Hveragerði, Ölfus og Árborg. Nokkur stór sveitar- félög eru rétt undir lágmarkinu með 14,48% útsvar, t.d. Hafnarfjörður, Kópavogur og Mosfellsbær. Reykjavík fékk langhæstar útvarstekjur, rúma 80 millj- arða. Þrír hreppar voru lægstir ÚTSVARSPRÓSENTAN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.