Morgunblaðið - 04.10.2018, Síða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. OKTÓBER 2018
Við erum á Facebook
Laugavegi 82 | 101 Reykjavík
Sími 551 4473
Mey
Ull og silki
Bæjarlind 6 | sími 554 7030
Við erum á facebook
Síðar peysur
með vösum
Kr. 11.900
Str. S-XXL
Litir: svart, dökkblátt, drappað
Laugavegi 178 • 105 Reykjavík • Sími 555 1516 (póstsendum)
Opið virka daga kl. 11-18 og laugardaga kl. 11-15.
Mikið af myndum á facebook
Verð 16.900 kr.
• 2 litir:
kóngablátt og svart
• stærðir 36 - 46
Glæsilegir
kjólar
Skeifan 8 | 108 Reykjavík | sími 517 6460 | www.belladonna.is
Str.
38-58
Flott föt, fyrir flottar konur
Skoðið laxdal.is/inspiring color
Skipholti 29b • S. 551 4422
20%
AFSLÁTTUR
af haustlínum
GERRY WEBER
Tilboðsdagar til 6. okt.
Margir ökumenn sem vanir eru að keyra um í þéttbýli
treysta mjög á götulýsingar í mesta skammdeginu. Af
þeim sökum er brýnt að huga vel að ljósaperum í
borgarlandinu og almennu viðhaldi ljósastaura og var
þessi starfsmaður önnum kafinn við slíka iðju þegar
ljósmyndari Morgunblaðsins átti leið hjá.
Morgunblaðið/Hari
Ljósin yfirfarin fyrir skammdegið
Héraðsdómur Reykjaness hefur
dæmt Magnús Jónatansson í 10
mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir
skilasvik í aðdraganda þess að bú
hans var tekið til gjaldþrotaskipta.
Héraðsdómur segir m.a. að skýring-
ar Magnúsar, sem er fæddur árið
1949, hafi verið ótrúverðugar og
haldlausar.
Héraðssaksóknari ákærði Magn-
ús í september 2017 og er ákæran í
tveimur liðum. Í fyrsta lagi fyrir að
hafa 21. júlí 2011 framselt inneign
sína að fjárhæð kr. 6.130.000, hjá
S.G. húsum ehf., fyrir óhæfilega lágt
verð, sem að mun rýrði efnahag
Magnúsar, til verktaka fyrir samtals
kr. 2.500.000. Inneignin var til komin
vegna sölu Magnúsar deginum áður
á leigusamningi fjögurra lóða til 49
ára í frístundabyggð í landi Grafar-
bakka í Hrunamannahreppi.
Héraðsdómur segir að með því að
selja inneignina fyrir óhæfilega lágt
verð hafi Magnús skert rétt lánar-
drottna sinna til að öðlast fullnægju
af eignum sínum. Það var því hafið
yfir skynsamlegan vafa og var hann
því sakfelldur fyrir þá háttsemi.
Útistandandi kröfur 168 millj.
Í öðru lagi var hann ákærður fyrir
að hafa 25. nóvember 2011 stofnað til
nýrra skulda, sem að mun rýrðu
efnahag hans, þegar hann yfirdró
reikning sinn hjá Afli sparisjóði um
8.500.000 krónur og skrifaði undir
tryggingarbréf að fjárhæð kr.
10.000.000, útgefið 25. nóvember
2011 og móttekið til þinglýsingar
þann sama dag, sem veitti Afli spari-
sjóði veð í bifreið Magnúsar með
fastanúmerið X, sem er af gerðinni
Mercedes Benz CL, árgerð 2007, til
tryggingar á yfirdrætti reikningsins
og hafa með því skert rétt annarra
lánardrottna sinna en Afls sparisjóðs
til að öðlast fullnægju af eignum
hans. Fjárhæðin sem Magnús yfir-
dró reikning sinn um var millifærð á
reikning Centrego Int. ehf. en
Magnús var stjórnarformaður fé-
lagsins. Við gjaldþrot Magnúsar var
reikningurinn yfirdreginn um sam-
tals kr. 8.871.963 þar sem vextir og
gjöld höfðu lagst ofan á yfirdrátt
Magnúsar. Þá var árangurslaust
fjárnám gert hjá Magnúsi 23.
september 2011 og námu útistand-
andi kröfur um 168 milljónum króna.
Hlaut 10
mánaða
fangelsi
Dæmdur fyrir
skilasvik í héraði
Íslensku þjónustufyrirtækin
eru á finna.is
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS
VEISTU UM GÓÐAN
RAFVIRKJA?