Morgunblaðið - 05.10.2018, Síða 2

Morgunblaðið - 05.10.2018, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. OKTÓBER 2018 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Guðni Einarsson gudni@mbl.is Úrskurðarnefnd umhverfis- og auð- lindamála felldi í gær úr gildi ákvarðanir Umhverfisstofnunar (UST) um útgáfu starfsleyfa fyrir Arctic Sea Farm hf. og Fjarðalax hf. í Patreksfirði og Tálknafirði. Hún hafði áður fellt úr gildi ákvarðanir Matvælastofnunar um útgáfu rekstrarleyfa til sömu aðila og á sömu forsendum. UST sendi frá sér tilkynningu af þessu tilefni. Þar sagði m.a. að úr- skurðarnefndin teldi „að álit Skipu- lagsstofnunar um mat á umhverfis- áhrifum framkvæmdanna geti ekki verið grundvöllur leyfisveitinga vegna skorts á umfjöllun um val- kosti. Ekki liggur fyrir á þessari stundu hvernig brugðist verður við niðurstöðum úrskurðanna en farið verður yfir mögulegar lausnir með umhverfis- og auðlindaráðuneytinu“. UST telur að útgáfa starfsleyf- anna hafi verið í samræmi við lög og reglur. Stofnunin hefur mælt með því við úrskurðarnefndina að réttar- áhrifum verði frestað á meðan málin verða til meðferðar hjá dómstólum, en rekstraraðilarnir höfðu beðið um það. Þess er vænst að úrskurðar- nefndin taki afstöðu til þeirrar beiðni í dag, að sögn UST. Umhverfisstofnun segir úrskurð- inn sýna „þörf á að skýrt verði nánar í lögum hvert sé hlutverk leyfisveit- enda hvað varðar ábyrgð á áliti um mat á umhverfisáhrifum“. Sigrún Ágústsdóttir, sviðsstjóri hjá UST, sagði í samtali við Morgun- blaðið að úrskurðarnefndin teldi að valkosti hefði skort í umhverfismatið sem eldisfyrirtækin létu vinna. Þau hefðu einungis lagt fram einn kost og svo núllkost. „Framkvæmdaaðili lætur vinna matsskýrslu og Skipulagsstofnun heldur utan um það ferli. Skipulags- stofnun býr svo til álit um mat á um- hverfisáhrifum. Síðan byggja leyfis- veitendur á umhverfismatinu. Við hjá Umhverfisstofnun teljum að um- hverfismatinu hafi lokið með álitinu, en úrskurðarnefndin segir að svo sé ekki,“ sagði Sigrún. Leyfin hefðu verið ógilt á grundvelli þess að um- hverfismatinu hefði verið áfátt. „Það er ekki ljóst hvernig á að vinna úr þessum niðurstöðum því skyldur leyfisveitenda eru ekki útfærðar í lögunum eins og úrskurðarnefndin túlkar þau. Nefndin túlkar þau með þeim hætti að leyfisveitandinn eigi að meta hvort hægt sé að byggja á umhverfismatinu eða hvort því sé áfátt. Þá vandast málið því Skipu- lagsstofnun heldur utan um um- hverfismatsferlið.“ Mikið er í húfi Einar Kr. Guðfinnsson, stjórnar- formaður Landssambands fiskeldis- stöðva, sagði greinilegt á úrskurðum úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála varðandi starfsleyfi og rekstrarleyfi fiskeldisfyrirtækjanna að skýra þyrfti leikreglur varðandi umhverfismat og leyfisveitingar. „Fiskeldisfyrirtækin eru á vissan hátt fórnarlömb í þessu og eins starfsfólkið og byggðarlögin þar sem þau starfa. Fyrir okkur er nauðsyn að það leiki enginn vafi á því hvað skuli taka með annars vegar í um- hverfismati og hins vegar við undir- búning rekstrar- og starfsleyfa. Við viljum að þetta sé sem skýrast svo bæði við og opinberar stofnanir viti nákvæmlega hverjar leikreglurnar eru,“ sagði Einar. Hann sagði að fyrirtækin sem um ræddi væru búin að setja seiði í kvíar. Einnig væri verið að ala meira en sex milljónir seiða í seiðastöðvum sem ætlunin væri að setja út í vor. Það væri því mikið í húfi. Fiskeldisfyrirtækin fórnarlömb  Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála ógilti starfsleyfi tveggja fiskeldisfyrirtækja  UST tel- ur að útgáfa starfsleyfanna hafi verið í samræmi við lög og reglur  Ljóst er að skýra þarf leikreglurnar Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Patreksfjörður Óvissa ríkir um framtíð fiskeldis vegna ógildingar leyfa. Guðni Einarsson gudni@mbl.is Hafnarfjarðarbær hefur fengið heimild Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðis- ráðherra til að fjölga hjúkrunarrýmum í bæjarfélaginu um 33 innan tveggja ára. Þar með verða hjúkrunarrými á Sólvangi rúmlega 90 talsins. Ráðherrann tilkynnti Rósu Guðbjartsdóttur, bæjarstjóra í Hafnarfirði, ákvörðun sína í gær. Átakið er liður í framkvæmdaáætlun stjórnvalda um uppbyggingu hjúkrunarrýma til ársins 2023 sem heilbrigðisráðherra kynnti fyrr á þessu ári. „Þetta er mjög mikilvægt skref og við erum ákaflega ánægð með að fá þessi hjúkrunarrými til viðbótar við þau sem fyr- ir eru,“ sagði Rósa bæjarstjóri í samtali við Morgunblaðið. Í tilkynningu frá velferðarráðuneytinu er vitnað í Svandísi heilbrigðisráðherra, sem segir að sú sókn sem hafin sé í uppbygg- ingu hjúkrunarrýma á landsvísu hafi marg- vísleg áhrif til góðs. Hún sagði þetta hafa í fyrsta lagi áhrif á lífsgæði aldraðra sem væru á biðlistum eftir slíkum rýmum. Einnig styrkti þetta stöðu Landspítalans til að sinna sérhæfðri heilbrigðisþjónustu þar sem útskriftir sjúklinga gengju greiðar fyr- ir sig. Einnig skapaðist aukið svigrúm hjá heilsugæslu og sveitarfélögum til að sinna betur þjónustu við aldraða. Öldruðum fjölgar ört Rósa sagði að Hafnarfjarðarbær hefði dregist aftur úr öðrum sveitarfélögum varðandi fjölda hjúkrunarrýma á undan- förnum árum. Þessi viðbót bætti því úr brýnni þörf. „Það munar gríðarlega mikið um þessa viðbót fyrir Hafnfirðinga. Íbúum hér fjölg- ar jafnt og þétt,“ sagði Rósa. „Það er mikil þörf fyrir hjúkrunarrými á öllu svæðinu. Svo þarf að halda áfram því eldra fólki fjölgar hratt. Fjöldi fólks 67 ára og eldra hefur tvöfaldast í Hafnarfirði frá aldamót- um. Við sjáum fyrir okkur að næsta hjúkr- unarheimili rísi annars staðar í bænum.“ Nýtt 60 rýma hjúkrunarheimili við Sól- vang í Hafnarfirði verður væntanlega tekið í notkun um næstu áramót. Hafnarfjarðar- bær leitaði til velferðarráðuneytisins fyrr á árinu og lýsti áhuga á að nýta húsnæði gamla hjúkrunarheimilisins áfram. Brýn þörf væri fyrir fleiri rými og fjölgunin myndi styrkja rekstrarhagkvæmni hjúkr- unarheimilis við Sólvang. Hafnarfjarðarbær á gamla Sólvangshúsið og hefur sótt um fjármagn til nauðsynlegra endurbóta svo hægt sé að reka þar þau 33 hjúkrunarrými sem um ræðir. Laga þarf húsnæðið svo það uppfylli nútíma kröfur. Kostnaðaráætlun vegna endurbóta á hús- næðinu hljóðar upp á tæpar 600 milljónir króna. Fallist Framkvæmdasjóður aldraðra á umsókn Hafnfirðinga gæti framlag úr sjóðnum numið allt að 40% kostnaðarins. Stefnt er að því að hefja endurbætur á húsnæðinu um leið og nýja hjúkrunar- heimilið verður tekið í notkun. Áætlað er að hægt sé að ljúka endurbótunum og taka rýmin 33 í notkun innan tveggja ára. Rósa sagði mikilvægt að geta ráðist í endurbætur á gamla Sólvangi til að nýta húsið. Með því yrði hægt að byggja upp al- hliða öldrunarþjónustu á Sólvangssvæðinu og njóta stuðnings af heilsugæslunni sem væri þar. Rekstur nýja hjúkrunarheimilisins á Sól- vangi var boðinn út á vegum Sjúkratrygg- inga Íslands. Rósa kvaðst eiga von á að til- kynnt yrði fljótlega um niðurstöðu út- boðsins. Ekkert hefur verið ákveðið um fyrirkomulag reksturs rýmanna 33 sem bætast við í framtíðinni. Hafnfirðingar fá 33 viðbótarrými  Gamli Sólvangur verður endurnýjaður  Nýtt hjúkrunar- heimili um áramót Morgunblaðið/Eggert Sólvangur Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri og Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra skoðuðu ásamt fleirum nýbygginguna í gær. Hafnarfjörður » Íbúar 67 ára og eldri í Hafnarfirði voru 1.495 árið 1999 en 2.851 árið 2016. Þeim fjölgaði því um 91% á þessu tímabili. » Hjúkrunarrými á Hrafnistu í Hafnarfirði voru 146 árið 1999 og 163 árið 2016. » Á Sólvangi voru 96 hjúkrunarrými 1999 en hafði fækkað í 59 árið 2016. » Hjúkrunarrými í Hafnarfirði voru því samtals 242 árið 1999 en fækkaði í 222 árið 2016.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.