Morgunblaðið - 05.10.2018, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. OKTÓBER 2018
Loftkæling
Funahöfða 7, 110 Reykjavík, s. 577 6666
og varmadælur
Veður víða um heim 4.10., kl. 18.00
Reykjavík 5 skýjað
Akureyri 2 rigning
Nuuk 2 léttskýjað
Þórshöfn 7 léttskýjað
Ósló 10 skýjað
Kaupmannahöfn 13 alskýjað
Stokkhólmur 7 heiðskírt
Helsinki 4 léttskýjað
Lúxemborg 16 heiðskírt
Brussel 18 léttskýjað
Dublin 16 skýjað
Glasgow 13 súld
London 16 skýjað
París 20 heiðskírt
Amsterdam 16 skýjað
Hamborg 15 skýjað
Berlín 14 léttskýjað
Vín 15 heiðskírt
Moskva 6 skúrir
Algarve 29 heiðskírt
Madríd 28 heiðskírt
Barcelona 23 heiðskírt
Mallorca 24 léttskýjað
Róm 24 léttskýjað
Aþena 22 léttskýjað
Winnipeg 0 skýjað
Montreal 16 skúrir
New York 22 heiðskírt
Chicago 13 alskýjað
5. október Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 7:49 18:44
ÍSAFJÖRÐUR 7:57 18:46
SIGLUFJÖRÐUR 7:40 18:29
DJÚPIVOGUR 7:19 18:13
VEÐUR KL. 12 Í DAG
Á laugardag Gengur í hvassa suðaustanátt með
talsverðri rigningu eða slyddu eftir hádegi, en þurrt
NA-lands. Heldur hlýnandi veður og lægir V-til um
kvöldið.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Lægir smám saman og léttir víða til, fyrst vestanlands, en él norðaustan-
lands fram á kvöld. Kólnandi veður, frost 0 til 8 stig annað kvöld.
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður
Eflingar, sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær, að stór vinnu-
fundur Starfsgreinasambandsins
hæfist á Selfossi síðdegis í gær, þar
sem lögð yrðu
drög að sam-
eiginlegri kröfu-
gerð aðildar-
félaga Starfs-
greinasambands-
ins.
„Félögin eru
hvert um sig að
leggja lokahönd á
sína kröfugerð og
þess vegna hafa
þetta verið mjög annasamir dagar
hjá okkur í þessari viku,“ sagði Sól-
veig Anna.
Hún segir að stjórn Eflingar hafi
fundað með stóru samninganefnd
Eflingar og haldinn hafi verið eins-
konar maraþonfundur á þriðjudags-
kvöld með samninganefndinni, þar
sem kröfugerð félagsins var fín-
pússuð.
Sólveig Anna segist á vissan hátt
geta tekið undir það sem Ragnar
Þór Ingólfsson, formaður VR, sagði
um bréf Samtaka atvinnulífsins til
verkalýðsfélaga, en hún vilji ekki
einblína á það bréf, heldur undir-
búning Eflingar og SGS fyrir sam-
eiginlega kröfugerð.
Spennt fyrir viðbrögðunum
„Í fyrsta sinn í mjög langan tíma,
er Efling að ganga til samvinnu við
Starfsgreinasambandið í kjara-
samningum og í kvöld munum við
kynna kröfugerð okkar fyrir fé-
lögum okkar í Starfsgreina-
sambandinu á þessum fundi á Sel-
fossi. Ég er mjög spennt að sjá hver
viðbrögðin verða.
Sömuleiðis munu hin 18 félögin í
Starfsgreinasambandinu kynna sín-
ar kröfugerðir og markmiðið með
þessu stóra fundi SGS er svo að
smíða eina stóra sameiginlega
kröfugerð úr öllum 19 plöggunum,“
sagði Sólveig Anna.
Segir kröfugerðina róttæka
Hún kveðst telja að kröfugerð
Eflingar sé mjög róttæk, t.d. hvað
varðar kröfur um aðstæður á vinnu-
stöðum og allan aðbúnað vinnuafls-
ins. Auk þess séu kröfur félagsins
róttækar varðandi styttingu vinnu-
vikunnar og ýmislegt fleira áhuga-
vert sem síðar verði greint frá.
SGS samræmir
kjarakröfur sínar
Kröfugerð fyrir viðræður undirbúin
Sólveig Anna
Jónsdóttir
Haustið færist yfir og baráttan verður dýrum merkur-
innar og fuglum himinsins erfiðari þegar kólnar í
veðri. Lögmál lífsbaráttunnar eru annars ósköp áþekk
hvort sem mannfólkið eða aðrar lifandi verur eiga í
hlut. Alltaf er hart barist um brauðið eins og sást í ríki
andanna í Elliðaárdalnum í gær. Tvær endur bitu hvor
í sinn enda brauðmolans og börðust síðan um að ná
honum öllum. Engum sögum fer af því hvernig keppni
þessari lyktaði, en hitt vitum við að sáttur er sá sem er
saddur og því var til mikils að vinna.
Morgunblaðið/Eggert
Endurnar bítast um brauðmola
Fjölskrúðugt fuglalíf í Elliðaárdalnum í Reykjavík
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Að skipta um alla útveggi er að mati
sérfræðinga hagkvæmasti og örugg-
asti kosturinn til að ráða niðurlögum
rakaskemmda á
vesturhúsi Orku-
veitu Reykja-
víkur við Bæjar-
háls. Burðarvirki
og gólf halda sér
við þessa fram-
kvæmd en unnið
hefur verið að
greiningu á
nokkrum valkost-
um síðasta ár.
Lokaákvörðun
um framkvæmdina hefur ekki verið
tekin en verkfræðihönnun á verkinu
verður boðin út.
„Hönnun er forsenda vandaðrar
kostnaðaráætlunar fyrir viðgerðina.
Ákvörðun um framhaldið verður tek-
in þegar sú áætlun liggur fyrir,“
segir í fréttatilkynningu Orkuveit-
unnar en vesturhúsið hefur nú staðið
autt í rúmt ár. Spurð um hugmynd
að kostnaði fyrir verkið segir Helga
Jónsdóttir, forstjóri Orkuveitunnar,
að það fylgi með verkfræðihönnun-
inni. „Það er í rauninni það sem búið
er að ákveða að fá mat á. Áður en
lokaákvörðun verður tekin ætlum
við að fá verkfræðihönnunina og þá
er hægt að gera vandaða kostnaðar-
áætlun.“ Hún segir að Orkuveitan
ætli að vanda sig í þessu máli og að
þau hafi velt fyrir sér mörgum
möguleikum. Kostnaðaráætlun muni
liggja fyrir þegar í ljós kemur hversu
mikið í byggingunni þarf að endur-
nýja en Orkuveitan taldi rétt að
kynna hvern áfanga í verkinu og að
það væri búið að ákveða að fara út-
boðsleiðina.
Fyrir ári var reynt að gera við
hluta útveggjanna en árangur við-
gerðanna þótti óviðunandi. Hug-
myndir að lausn voru kynntar en
þær hafa verið til skoðunar hjá
Orkuveitunni. Þá leið sem fer núna í
hönnun byggir Orkuveitan á grund-
vallarsjónarmiðum um að beitt verði
„viðurkenndum lausnum og út-
færslum við viðgerð, hagkvæmni í
byggingu og rekstri verði höfð að
leiðarljósi ásamt því að heili hlutar
vesturhússins nýtist eins og hægt er
þ.e. burðarvirki, gólfplata, loftræsti-
kerfi o.fl.“. Þá er stefnt að því að hús-
ið fái hógværara og lágstemmdara
yfirbragð og skrifstofurýmin verði
sveigjanleg og heilsusamleg.
Lóðréttir veggir að þessu sinni
Í samræmi við lágstemmdara yf-
irbragð leggur Orkuveitan til að út-
veggir hússins verði lóðréttir í stað
þess að þrjár hliðar hússins slúti
fram yfir sig eins og nú. „Með því má
beita byggingaraðferðum sem góð
reynsla er af við íslenskar aðstæður.
Áhætta og kostnaður af því að við-
halda núverandi lögun útveggjanna,
hvaða leið sem að öðru leyti yrði far-
in, er talin útiloka slíkan kost,“ segir
í fréttatilkynningu.
Flatarmál hússins mun haldast að
mestu óbreytt. Stjórn Orkuveitunn-
ar fer með ákvörðunarvald um fram-
haldið þegar tillögur ásamt kostnað-
aráætlun liggja fyrir.
Hagkvæmast að skipta um útveggi
Tillögur að viðgerðum á Orkuveituhúsinu kynntar Verkfræðihönnun verður boðin út Vilja hóg-
værara og lágstemmdara yfirbragð yfir nýju húsinu Stjórn OR mun taka ákvörðun um framhaldið
Ljósmynd/Orkuveita Reykjavíkur
Orkuveituhúsið Vesturhlið OR eftir hugsanlegar breytingar skv. teikningu.
Helga
Jónsdóttir