Morgunblaðið - 05.10.2018, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. OKTÓBER 2018
Litina hennar Sæju
færð þú í Slippfélaginu
GÆÐIN
Ein af ástæðum þess að íslenskir hönnuðir velja Slippfélagið.
Votur
Volgur Ber
Borgartúni 22 og Dugguvogi 4, Reykjavík,
Dalshrauni 11, Hafnarfirði
Hafnargötu 54, Reykjanesbæ
Gleráreyrum 2, Akureyri
Opið: 8-18 virka daga og 10-14 laugardaga • Sími: 588 8000 • slippfelagid.is
Almennur kaupmáttur á Íslandihefur vaxið um tugi prósenta
á fáeinum misserum. Það er verið
að tala um kaupmátt, hækkun
launa um-
fram kostn-
að. Ein-
stakar
aðstæður
þarf til svo
að kaup-
máttur fái
náð slíku risi án þess að verð-
bólgudraugurinn vakni.
Þýskaland, forysturíki ESB, hef-ur búið við óbreyttan kaup-
mátt í 18 ár! Kauphækkanir og
verðlag hafa verið samferða þann
tíma. Slíkan „stöðugleika“ myndi
enginn þola hér en hefur þó kosti,
því meira verður úr en í boðaföll-
um verðbólgu.
Á Íslandi hefur kaupmáttar gertbetur en að ná sér eftir
„hrun“. Glannalegt hefði þótt að
spá því fyrir 10 árum. En nú lang-
ar gömlu sögu að lyfta sér á
kreik.
Það er snúið að leiða verkalýðs-hreyfingu í kaupmátt-
arbylgju. Hvað þá á tindi hennar.
Þaðan liggja allar leiðir niður.
Vandi verkalýðshreyfingar á Ís-landi er ekki aflsskortur. Hún
knýr allt fram sem hún vill. Hún
læsist um alla þætti þjóðlífsins.
Viðsemjandinn á litla vörn fremur
en kaupmátturinn. En kannski
lýgur sagan.
Kannski þarf reglubundið aðláta reyna á lögmálin. Síð-
ustu misseri hefur verið prufað að
selja flugmiða á ósjálfbæru verði í
von um að þúsund ára lögmál hafi
breyst. Þó þekkja flugfélög betur
en hinir að ná þarf lendingu. Því
lögmáli hafði ekki verið breytt,
því miður.
Gamla sagan
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Sameinað sveitarfélag Garðs og
Sandgerðisbæjar mun bera eitt af
eftirfarandi nöfnum: Heiðarbyggð,
Suðurnesjabær eða Sveitarfélagið
Miðgarður.
Þetta var ákveðið á sameiginlegum
vinnufundi fulltrúa í bæjarstjórn
sveitarfélaganna í lok síðasta mán-
aðar þar sem unnið var að vali á þeim
nafnatillögum sem bárust og það var
síðan samþykkt á fundi bæjar-
stjórnar hins sameinaða sveitar-
félags í fyrradag. Á fundinum var
enn fremur samþykkt að íbúakosn-
ing um nýja nafnið færi fram
laugardaginn 3. nóvember næst-
komandi.
Allir íbúar með lögheimili í
sveitarfélaginu sem eru fæddir 2002
og fyrr hafa kosningarétt og stefnt
er að því að kosning utan kjörfundar
hefjist 14 dögum fyrr og fari fram í
ráðhúsum sveitarfélagsins í Garði og
Sandgerði.
Fari þátttaka í kosningunni yfir
50% og hljóti ein tillaga meira en 50%
atkvæða er bæjarstjórn skuldbundin
til að fara eftir þeirri niðurstöðu,
samkvæmt því sem fram kemur á
vefsíðu sameinaðs sveitarfélags.
Nýja sveitarfélagið tók til starfa í
júní síðastliðnum að undangenginni
kosningu í nóvember síðastliðnum.
Kosið um nafn í Garði og Sandgerði
Val íbúa stendur á milli Heiðarbyggðar, Suðurnesjabæjar og Miðgarðs
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Garður Sveitarfélagið sameinaðist
Sandgerði og fá þau nýtt nafn.
Allnokkuð bar á ryðsvepp á trjá-
gróðri víða um land í sumar og asp-
arryð breiðist nú út í auknum mæli
á Norður- og Austurlandi. Á vef
Skógræktarinnar segir að þegar á
allt sé litið hafi sumarið verið nokk-
uð hagstætt ryðsveppum veður-
farslega enda þurfi ryðsveppir á
trjágróðri vætu til þess að dafna.
Í sumar hafi fréttir borist víða að
af landinu um mikið ryð á viðju.
Áður hafi það aðallega verið bundið
við hreggstaðavíði, að því er segir á
vefnum. Sem dæmi er nefnt að í lok
júní hafi lerki í Gunnfríðarstaða-
skógi í Austur-Húnavatnssýslu
verið alsett ryðblettum. Þetta hafi
komið á óvart vegna þess að aspar-
ryð hafði ekki fundist þar í níu ár
og virtist útdautt.
Í haust hafi aspir þar verið meira
og minna lauflausar eða með svört-
um blöðum og jörð þakin sýktum
blöðum með vetrargróum. Þá hafi
asparryð aftur skotið upp kollinum
á Fljótsdalshéraði, en talið hafði
verið að það hefði dáið út þar.
Getur orðið vandamál í aspar-
rækt í öllum landshlutum
„Á Akureyri fannst ryð í fyrra og
heldur meira í sumar. Töluvert bar
til dæmis á því í Kjarnaskógi og
Naustaborgum, ekki síst í grennd
við tjaldsvæðið á Hömrum og á
tjaldsvæðinu sjálfu. Einnig virðist
ryð vera að ágerast í Borgarfirði.
Allt ber þetta að sama brunni; ryð
getur orðið vandamál í asparrækt í
öllum landshlutum þegar tímar
líða,“ segir á síðunni skogur.is
Þar segir einnig að fregnir hafi
borist víðs vegar að af landinu um
mikið ryð á viðju. Það er önnur
ryðsveppategund þótt einkennin
séu áþekk. Hins vegar hafi ekki
farið miklum sögum af birkiryði í
sumar.
aij@mbl.is
Ljósmynd/Halldór Sverrisson
Haukadalur Ólíkir klónar af ösp
eru mjög misnæmir fyrir ryðinu.
Ryð á trjágróðri
víða um landið