Morgunblaðið - 05.10.2018, Síða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. OKTÓBER 2018
Kauphlaup / Kringlukast
3.-8. okt. 4.-8. okt.
20-30% afsláttur af öllum vörum
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Okkur finnst þetta skemmtilegt vín
núna. Haustið er allsráðandi og
þarna er verið að nota uppskeru
sumarsins. Vínið passar eflaust
mjög vel með villibráð eða sveppum.
En svo verður líka bara áhugavert
með vorinu að sjá hvernig vínið mun
eldast,“ segir Ragnheiður Axel vín-
gerðarkona.
Ragnheiður og Liljar Már Þor-
björnsson hafa stofnað Og natura,
brugghús þar sem notast verður við
íslenskt hráefni sem þau telja að
hafi verið vannýtt við framleiðslu
áfengra drykkja. Þau kynntu fyrstu
afurðir sínar í gær; bláberjabjór og
krækiberjavín.
Ragnheiður Axel hefur þróað vín-
ið Axel sem er borðvín unnið úr
krækiberjum. Þetta mun vera eina
borðvínið sem framleitt er hér á
landi um þessar mundir. „Mér finnst
krækiber vera vannýtt hráefni. Það
er forvitnilegt í víngerð enda eru í
því tannín og olía sem þú færð ekki í
öðrum berjum hér,“ segir Ragnheið-
ur en hún hefur kosið að lýsa víninu
sem náttúrulegu víni. Um þessar
mundir er svokallað náttúruvín afar
vinsælt í ákveðnum kreðsum en
helstu páfar innan þeirrar hreyfing-
ar vilja meina að vín hennar falli
ekki undir þá skilgreiningu. Ástæð-
an er sú að notast er við sætu úr
döðlum og eplum við víngerðina.
„Við tíndum villt krækiber og not-
uðum svo vínpressu til að pressa
hrásafa úr þeim. Síðan var hann
settur á stórar plasttunnur til gerj-
unar. Þá setjum við eplasafa út í til
að gefa sykur. Síðan er þetta látið
standa og gerjast í tiltölulega lang-
an tíma áður en því er tappað á
flöskur. Þetta er alveg náttúrulegt
vín, það eru ekki notuð nein kemísk
efni. Allt sem er notað eru hreinar
náttúruafurðir,“ segir hún. Vínið
verður selt á veitingastöðum og
stefnan er sett á að það fáist einnig í
vínbúðum fyrir jólin.
Liljar Már hefur þróað bláberja-
bjór sem ber nafn hans. Hann segir
að bjórinn sé gerður úr handtíndum
íslenskum bláberjum. „Bjórinn hef-
ur djúpan berjatón og er mjög góð-
ur með villibráð,“ segir hann.
Stefnan er sett á frekari fram-
leiðslu og vöruþróun. „Hugsunin er
að Og natura sé samstarfsvettvang-
ur. Við ætlum að reyna að fá hæfi-
leikaríkt fólk til að þróa bjór og
fleiri drykki með okkur,“ segir
Liljar.
„Okkur finnst núna vera pláss á
markaðnum. Fólk er meira tilbúið
en áður að smakka eitthvað nýtt.
Náttúrulegar afurðir eru vinsælar
og þær mega alveg vera bragð-
sterkar,“ segir Ragnheiður Axel.
Íslenskt hráefni
vannýtt auðlind
Framleiða borðvín og bjór úr berjum
Morgunblaðið/Hari
Berjaveisla Ragnheiður Axel og Liljar Már Þorbjörnsson kynntu í gær
borðvín og bjór sem gerð eru úr íslenskum berjum sem tínd voru í sumar.
Í frétt í Morgunblaðinu í gær var
tekið dæmi af hjónum með 15 millj-
ónir í árstekjur og sagt réttilega að
312.000 krónum munaði á skatt-
greiðslum þeirra á ári eftir því hvort
þau væru búsett í sveitarfélagi með
lágmarks- eða hámarksútsvar.
Í Tíund, blaði Ríkisskattstjóra sem
Morgunblaðið vitnaði í í frétt sinni,
var því ranglega haldið fram að
aukning ráðstöfunartekna hjónanna,
sem fylgdi því að flytja á milli sveit-
arfélaganna, jafngilti launahækkun
upp á 892.592 krónur á ári. Hið rétta
er að hún jafngildir launahækkun
upp á rúmar 495.000 krónur á ári.
LEIÐRÉTT
Jafngildir hækkun
upp á 495.000
Lyfjastofnun gerir engar athuga-
semdir við læknabekki Læknavakt-
arinnar, en tveir sérfræðingar stofn-
unarinnar fóru í eftirlitsferð þangað
í gær eftir að tveggja ára gömul
stúlka klemmdist á milli rafknúinna
arma á bekk þar um síðustu helgi.
Að sögn Sindra Kristjánssonar,
lögfræðings Lyfjastofnunar, tóku
sérfræðingar stofnunarinnar mynd-
ir og myndskeið, ræddu við starfs-
fólk og könnuðu virkni tækisins.
Einnig var farið yfir notkunarleið-
beiningar bekkjarins og samkvæmt
þeim er bekkurinn rétt uppsettur.
Forathugun þeirra gagna sem afl-
að hefur verið hefur leitt í ljós að
ekkert er að tækinu og það virkar
sem skyldi. Næstu skref eru því að
óska eftir upplýsingum frá Lækna-
vaktinni um þjálfun starfsfólks og
hvernig kennslu á tækin er háttað.
„Það eru engar athugasemdir
gerðar við tækið eða aðstöðuna mið-
að við þær upplýsingar sem liggja
fyrir. Það er hins vegar ekki hægt að
útiloka að eitthvað komi upp við nán-
ari athugun á gögnum, en eins og
sakir standa eru engar athuga-
semdir í bígerð við tækið sjálft,“
sagði Sindri í samtali við mbl.is.
Gunnar Örn Jóhannsson, fram-
kvæmdastjóri Læknavaktarinnar,
sagði í samtali við mbl.is fyrr í vik-
unni að allir læknabekkir hefðu ver-
ið gerðir óvirkir á meðan ítarleg
rannsókn færi fram. Var það ákvörð-
un Læknavaktarinnar og Sindri seg-
ir því ekki þörf á því að Lyfjastofnun
gefi sérstaklega grænt ljós á að
bekkirnir verði teknir aftur í notkun.
Bekkirnir á Læknavaktinni eru
nýlegir og voru teknir í notkun í
fyrra. Á þeim er slá og ef á hana er
ýtt lyftist bekkurinn upp eða niður.
Öryggislás á að koma í veg fyrir að
bekkurinn fari upp og niður án þess
að ýtt sé á slána. Gunnar sagðist
ekki vita til sambærilegs slyss hér á
landi og sagði framleiðendur
bekkjarins aldrei hafa fengið til-
kynningu um slys áður.
Engar athugasemdir
Lyfjastofnun segir læknabekki Læknavaktarinnar í lagi
Ekki vitað um sambærilegt slys og þegar barn slasaðist
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Læknavaktin Lyfjastofnun segir
læknabekki þar vera í lagi.