Morgunblaðið - 05.10.2018, Síða 17

Morgunblaðið - 05.10.2018, Síða 17
FRÉTTIR 17Erlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. OKTÓBER 2018 Gríptu tækifærið og fáðu þér nýjan ŠKODA á besta verðinu strax í dag. Hlökkum til að sjá þig! Škodaðu verð 5 ár a áb yr gð fy lg ir fó lk sb ílu m H E K LU að up pf yl ltu m ák væ ðu m áb yr gð ar sk ilm ál a. Þ á er að fin na á w w w .h ek la .is /a by rg d i HEKLA · Laugavegi 1 0-174 · y javík · Sími 590 5000 · hekla.is Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · BVA Egilsstöðum Besta Škodaverðið 3.750.000 kr. Škoda Octavia Limo Ambition / 1.6 TDI / Dísil / Sjálfskiptur Listaverð: 4.090.000 kr. 340.000 kr. Afsláttur Besta Škodaverðið 4.580.000 kr. Škoda Superb Limo Ambition / 2.0 TDI / Dísil / Sjálfskiptur Listaverð: 5.060.000 kr. 480.000 kr. Afsláttur Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Þau tíðindi urðu í vikunni að Nóbels- verðlaunin í eðlisfræði féllu í skaut konu í aðeins þriðja skipti í sögu þeirra og daginn eftir varð önnur kona sú fimmta til að fá Nóbelinn í efnafræði. Það hafði aldrei gerst áð- ur að konur fengju Nóbelsverð- launin í þessum greinum á sama árinu. Vísindakonur fögnuðu tíðind- unum, sögðu að menn væru loksins vakna til vitundar um afrek kvenna í vísindum en framlag þeirra væri enn vanmetið og þær fengju enn lægri laun en karlmenn. Tilkynnt var á þriðjudag að kanadíski vísindamaðurinn Donna Strickland hlyti Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði í ár ásamt tveimur öðrum vísindamönnum og hún er fyrsta konan til að fá verðlaunin í 55 ár. Daginn eftir var skýrt frá því að bandaríski lífefnafræðingurinn Frances Arnold hlyti Nóbels- verðlaunin í efnafræði ásamt tveim- ur öðrum vísindamönnum. „Það er eins og heimsbyggðin sé að vakna til vitundar um hugvits- semi og snilld kvenna í vísindum,“ hefur fréttaveitan AFP eftir Jess Wade, prófessor í eðlisfræði við Im- perial College í Lundúnum. Aðrir bentu á að aðeins nítján konur eru á meðal rúmlega 600 vís- indamanna sem hafa fengið Nóbels- verðlaunin í eðlis-, efna- og læknis- fræði og sögðu að konur í vísindum stæðu enn frammi fyrir gömlum hindrunum. „Ástandið er miklu betra en fyrir nokkrum áratugum en við eigum enn mikið óunnið í þessum efnum,“ hefur AFP eftir Meg Urry, prófessor í eðlisfræði við Yale- háskóla. „Konur sem hefja háskóla- nám í eðlisfræði taka strax eftir því að komið er fram við þær með öðrum hætti en karlmenn, og þetta er enn verra þegar konur með dökkan hör- undslit eiga í hlut.“ Peter Dorhout, formaður félags bandarískra efnafræðinga, tekur í sama streng í viðtali við USA Today og segist bíða eftir þeim degi að það teljist ekki svo fréttnæmt að konur fái Nóbelsverðlaun í eðlis- og efna- fræði. „Konur hafa alltaf gegnt mikilvægu hlutverki í vísindum og stærðfræði, en samt hefur framlag þeirra ekki alltaf verið viðurkennt,“ hefur blaðið eftir Rachel Levy, aðstoðarframkvæmdastjóra Stærð- fræðisamtaka Bandaríkjanna (MAA). Konur skrifuðu um helming dokt- orsritgerða í vísindum sem lagðar voru fram í Bandaríkjunum á síðasta ári. Konur skrifuðu 39% doktors- ritgerða um efnafræði en aðeins 18% ritgerða um eðlisfræði. Vann launalaust við háskóla Fréttavefur Fortune segir að þrátt fyrir Nóbelinn og brautryðj- andastörf á sviði leysitækni sé Strickland enn aðeins aðstoðar- prófessor við Waterloo-háskóla í Kanada. Hún þótti ekki verðskulda sérstaka síðu á alfræðivefnum Wiki- pedia fyrr en hún fékk Nóbelinn í eðlisfræði. Ennfremur hefur verið bent á að Maria Goeppert-Mayer, sem fékk sömu verðlaun árið 1963, þurfti að vinna árum saman launa- laust við háskóla í Bandaríkjunum vegna strangra reglna gegn frænd- hygli þar sem eiginmaður hennar var á meðal kennaranna. Auk verðlaunahafanna í eðlis- og efnafræði hafa tólf konur fengið Nóbel í læknisfræði, 16 konur friðar- verðlaunin og 14 bókmenntaverð- laun Nóbels. Aðeins ein kona hefur fengið Nóbelinn í hagfræði, þ.e. bandaríski prófessorinn Elinor Ost- rom, sem fékk verðlaunin árið 2009. Segja framlag kvenna í vísindum enn vanmetið  Fengu Nóbel í eðlis- og efnafræði í fyrsta sinn á sama ári Nóbelsverðlaunahafar Marie Curie, eina konan sem hefur fengið tvenn verðlaun: Eðlisfræði (1903) Efnafræði (1911) Konur sem hafa fengið Nóbelsverðlaun Heimild: Nobelprize.org EðlisfræðiEfnafræði Læknisfræði Bókmenntir Friður Hagfræði 79 1 104 16114 14 216 12209 3 180 5 Konur Konur og Nóbelinn Alls hafa rúmlega 600 manns fengið Nóbelsverðlaun í vís- indum, þar af aðeins 19 konur og ein þeirra tvisvar: Eðlisfræði 1903 – Marie Curie 1963 – Maria Goeppert-Mayer 2018 – Donna Strickland Efnafræði 1911 – Marie Curie 1935 – Irene Joliot-Curie 1964 – Dorothy Crowfoot Hodgkin 2009 – Ada Yonath 2018 – Frances Arnold Læknisfræði 1947 – Gerty Cori 1977 – Rosalyn Yalow 1983 – Barbara McClintock 1986 – Rita Levi-Montalcini 1988 – Gertrude Elion 1995 – Christiane Nuesslein- Volhard 2004 – Linda Buck 2008 – Francoise Barre- Sinoussi 2009 – Elizabeth Blackburn 2009 – Carol Greider 2014 – May-Britt Moser 2015 – Youyou Tu Barn drekkur vatn í búðum fyrir fólk sem missti heimili sitt í jarð- skjálftanum og flóðbylgjunni á Sulawesi í Indónesíu á föstudag. Vitað er um 1.424 sem létu lífið og 2.500 manns slösuðust. Björgunar- sveitir leita enn í húsarústunum að rúmlega 100 manns sem er saknað. AFP Enn leitað í húsarústunum Stjórnvöld í Bandaríkjunum, Bret- landi og Hollandi sökuðu í gær leyni- þjónustu rússneska hersins, GRU, um viðamiklar netnjósnir, sem beindust m.a. að Alþjóðlegu efna- vopnastofnuninni (OPCW). Dómsmálaráðuneytið í Bandaríkj- unum kvaðst hafa ákært sjö útsend- ara GRU og ákærurnar væru liður í samstarfi við Breta og Hollendinga í baráttunni gegn netnjósnum Rússa. Þær hefðu m.a. beinst að efnavopna- stofnuninni, alþjóðlegum íþrótta- samtökum á borð við Alþjóðaknatt- spyrnusambandið (FIFA), Alþjóða- lyfjaeftirlitinu (WADA) og banda- rísku kjarnorkufyrirtæki. Ræða fleiri refsiaðgerðir Fyrr um daginn skýrðu öryggis- yfirvöld í Hollandi frá því að fjórum njósnurum Gru hefði verið vísað úr landi í apríl fyrir njósnir sem beind- ust að Alþjóðlegu efnavopnastofnun- inni þegar hún var að rannsaka eiturárásina á Sergej Skrípal, fyrr- verandi rússneskan njósnara í Bret- landi. Rússarnir fjórir eru sagðir hafa verið staðnir að því að reyna að brjótast inn í þráðlaust netkerfi skrifstofu efnavopnastofnunarinnar í Haag. Í fartölvu þeirra fundust m.a. gögn sem bentu til þess að þeir hefðu verið í Malasíu og njósnir þeirra þar hefðu beinst að rannsókn á farþega- þotunni sem var skotin niður yfir austurhéruðum Úkraínu árið 2014. Ríkisstjórn Bretlands sakaði leyniþjónustu rússneska hersins um að hafa staðið fyrir þekktum net- árásum, sem beindust m.a. að fyrir- tækjum í Rússlandi og Úkraínu, Demókrataflokknum í Bandaríkjun- um og sjónvarpsstöðvum í Bretlandi. Jeremy Hunt, utanríkisráðherra Bretlands, sagði að breska stjórnin væri að ræða við ráðamenn í sam- starfsríkjum hennar um frekari refsiaðgerðir gegn Rússlandi. Rússar hafa neitað slíkum ásök- unum um netnjósnir og lýst þeim sem „vestrænu njósnaæði“. Sakaðir um víð- tækar njósnir  Frekari refsiaðgerðir gegn Rússum?

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.