Morgunblaðið - 05.10.2018, Síða 23

Morgunblaðið - 05.10.2018, Síða 23
MINNINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. OKTÓBER 2018 síðan var farið í kaffihús á eftir og við kvöddumst alltaf glaðar og endurnærðar. Guðrún þurfti allt- af að vera mikið á ferðinni, hún og Svavar maðurinn hennar voru mjög samrýnd hjón og gerðu mikið saman, fjallgöngur, hjóla- ferðir utanlandsferðir, jeppaferð- ir og margt annað eða slappa bara af í Fannafoldinni. Guðrún var mikil fjölskyldu- manneskja og naut þess að eiga góðar stundir með Svavari og sonum sínum sem voru stolt hennar og gleði. Einnig átti Guð- rún stóra fjölskyldu, fjögur systkini, frændsystkini, mágkon- ur og mág og stækkaði sá hópur mjög ört og þótti Guðrúnu mjög vænt um þennan stóra hóp. Þetta eru fátækleg orð um góða og trausta vinkonu sem mun lifa í hjarta mínu um eilífð. Þakka þér kærleikann, hjartalag hlýtt, af gæsku þú gafst yl og hlýju. Í heimi guðsenglanna hafðu það blítt, uns hittumst við aftur að nýju. (Höf. ók.) Þín vinkona, Hlíf Berglind Óskarsdóttir. Við vildum með þessum fáu orðum minnast Guðrúnar vin- konu okkar. Er við rugluðum saman reyt- um fyrir nokkrum árum kom í ljós að bæði þekktum við Guð- rúnu. Valgerður og Guðrún höfðu verið saman í námi í verkefna- stjórnun í Háskóla Íslands og Kristinn og Svavar hafa verið góðir vinir til margra ára ásamt því að vinna saman. Við áttum margar góðar stundir saman, hittumst og borð- uðum góðan mat, ferðuðumst saman og duttum inn í kaffi eins og gerist og gengur. Það kom því eins og þruma úr heiðskíru lofti er Guðrún greind- ist með krabbamein fyrir rúmu einu og hálfu ári síðan enda þau hjón lifað heilsusamlegu lífi og stunduðu bæði útiveru og íþrótt- ir. Við fylgdumst með hetjulegri baráttu þeirra hjóna við þennan erfiða sjúkdóm en allt kom fyrir ekki. Það er erfitt að horfa uppá vinkonu sína vera tekna í burtu í blóma lífsins og orð eins og óskiljanlegt, ótímabært og ósann- gjarnt koma upp í hugann. Við vottum Svavari, Ella, Anastasiu, Viktori, Hermanni og Karenu ásamt öðrum aðstand- endum okkur dýpstu samúð. Megi guð styrkja ykkur á þess- um erfiðu tímum. Minningin um góða konu lifir með okkur. Elsku Guðrún, takk fyrir sam- fylgdina, Kristinn Gretarsson og Valgerður Vigfúsardóttir. Okkur langar að minnast vin- konu okkar, hennar Guðrúnar, og þakka fyrir allar samverustund- irnar og vináttuna frá því að við kynntumst fyrir 22 árum þegar þau Svavar voru nýtekin saman. Svo urðum við nágrannar á Reynimelnum skömmu síðar. Guðrún og Svavar í sinni fyrstu íbúð í kjallaranum á Reynimel 42 og við á 36, ung og ástfangin pör. Minningarnar eru margar, Þórsmerkurferðin fræga á Landrovernum sem við áttum saman, útilegurnar í fellihýsun- um, sjósundið á Akranesi, skíða- ferðin til Austurríkis, gamlárs- kvöldin o.fl. Það var alltaf gaman að koma til þeirra í Fannafoldina. Þau breyttu þar herbergjaskipaninni nokkrum sinnum og endurinn- réttuðu eftir því sem strákarnir stækkuðu og þarfir þeirra breytt- ust. Guðrún hugsaði vel um strákana sína. Hún var fyrir- hyggjusöm og varð mikið úr hlut- unum og þau Svavar ferðuðust mikið hér heima og erlendis og nutu líðandi stundar. Guðrún var góður vinur sem lagði ávallt gott til málanna, var jákvæð og gefandi í samskiptum. Minning Guðrúnar er falleg. Það voru forréttindi að vera vin- ur hennar. Við erum þess fullviss að henni verður vel tekið á næsta tilverustigi. Svavari og strákunum, Ella, Viktori, Hermanni og fjölskyld- um þeirra sendum við okkar inni- legustu samúðarkveðjur. Torfi, Þuríður og synir. Fyrir rétt tæpum tíu árum kynntumst við starfsmenn Guð- rúnu Hrefnu. Hún sótti um starf rekstrar- og bókhaldsfulltrúa á velferðarsviði Kópavogs. Ákvörð- un um ráðningu var auðtekin því mannkostir hennar voru augljósir og hæfni hennar og framkoma slík að aðdáun vakti. Við fengum að njóta frábærra starfskrafta hennar næstu árin, eða allt þar til hún veiktist af krabbameini og þurfti frá að hverfa til að takast á við þennan illvíga sjúkdóm. Það var harla lítið sem við starfsmenn gátum gert annað en fylgst með og reynt að telja Guðrúnu Hrefnu kjark þegar hún kom í heimsóknir á vinnustaðinn. Lengi vel fannst okkur eins og vel mundi fara, en þar kom að vonir brustu. Það var eftirtektarvert hversu samstarfsfólki Guðrúnar Hrefnu var umhugað um hana, líðan hennar og heilsu. Líklega segir það mest um persónuleika hennar. Hún hafði góða nærveru, fallega útgeislun, var rólynd, já- kvæð og alltaf reiðubúin í ný verk. Og brosið hennar var ekki aðeins fallegt heldur bar það með sér einlægni og góðlyndi sem smitaði út frá sér. Hún féll sér- staklega vel að starfsmannahópn- um þar sem hún var hvers manns hugljúfi. Guðrún Hrefna ræddi ekki mikið um sjálfa sig, var meira umhugað um hvernig öðr- um liði og að þeim farnaðist vel. Það leyndi sér ekki stolt henn- ar og ánægja með fjölskyldu sína, sérstaklega syni sína þrjá, og þegar veikindi hennar ágerðust komu fram áhyggjur af líðan þeirra ef mál hennar færu á versta veg. Þetta var einkenn- andi fyrir hana, að líta fremur til annarra en sjálfrar sín. Guðrún Hrefna annaðist ná- kvæmnisstarf, bæði eftirlit með útgjöldum og bókhald og það virtist sama hvað hún fékk í fang- ið, allt leysti hún með stakri prýði á sinn hægláta hátt. Starfsmenn velferðarsviðs sjá því ekki aðeins á eftir góðum starfsmanni með trega og sökn- uði heldur einnig eftir dýrmætum félaga sem skildi eftir sig fallega minningu. Fyrir hönd starfsmanna votta ég fjölskyldu hennar samúð okk- ar. Aðalsteinn Sigfússon, sviðsstjóri velferðarsviðs Kópavogsbæjar. Elsku Guðrún Hrefna, mág- kona okkar, lést langt fyrir aldur fram þann 23. september síðast- liðinn. Hún greindist með krabbamein í byrjun árs 2017. Síðustu ellefu vikurnar var hún á líknardeildinni í Kópavogi. Guðrúnu kynntumst við þegar við vorum 14 og 19 ára og leist okkur báðum vel á hana enda ekki annað hægt þegar um já- kvæða, einlæga og brosmilda stúlku er að ræða sem fékk stóra bróður til að svífa. Liggur við að hann hafi ekki þurft á skóm að halda þar sem hann snerti varla jörðina í marga mánuði, þvílík var hamingjan og ekki að ástæðulausu. Guðrún óx bara í áliti hjá okkur og sýndi og sann- aði að hún var þessi stúlka sem hafði þessa eiginleika allt sitt líf sem við sáum hjá henni í upphafi. Guðrúnu leist nú ekki alltaf jafn vel á okkur systurnar sem voru smá tíma að læra að hætta að ráðskast með bróður sinn. Ætli henni hafi ekki fundist við helst til frekar. En hún hefði aldrei viðurkennt það fyrir okk- ur. Alltaf tók Guðrún brosandi á móti öllum með hlýju og kær- leika. Alltaf passaði hún upp á að börnin fengju hressingu og að enginn færi út af hennar heimili án þess að fá vott né þurrt. Börn- in okkar minnast hennar sem góðrar manneskju sem alltaf var í góðu skapi og góð við alla. Guðrún hafði einstakt yfir- bragð, vottur af feimni og laut höfði eins og Díana prinsessa, lít- illát en bar sig vel. Þau hjónin voru alltaf að gera eitthvað saman. Áttu stóran og tryggan vinahóp sem þau vörðu miklum tíma með. Þau voru dug- leg að ferðast innanlands sem ut- an og fallegt var á að horfa hvernig þau sinntu sonum sínum og komu þeim til manns. Svabbi bróðir er tryggur og trúr sínum og stóð þétt og vel við bakið á Guðrúnu sinni alla tíð og í veikindum hennar. Hann fór með hana í gönguferðir nánast upp á hvern dag sem hún var á líkn- ardeildinni og keyrði hana um í hjólastólnum um allan Kópavog. Á sama tíma hélt hann okkur fjölskyldunni og vinum sínum upplýstum um stöðu mála í sjúk- dómsferlinu. Strákarnir og augasteinar Guðrúnar eru engin undantekn- ing í þeim málum og voru sem klettur með föður sínum við hlið móður sinnar. Missir þeirra allra er mikill. Erfitt var og ósanngjarnt frá mörgum sjónarhornum að sjá þessa duglegu, fallegu konu verða fyrir barðinu á krabbanum, en áfram bar hún sig vel og áfram var hún hjartahlý og ljúf við mann þegar maður heimsótti hana, þrátt fyrir miklar þrautir og skert lífsgæði. Við minnumst samverustunda, ferðalaga í Þórsmörk, í Hörgár- dalinn á ættarmót, heimsókna í bústaði, skíðaferða og fleira. Allt- af stutt í brosið og hláturinn. Minningarnar eru nú allt sem við höfum. Varðveitum þær og rifj- um upp með þakklæti fyrir að hafa kynnst einstakri manneskju sem hún Guðrún var. Við viljum trúa því að það sé vel tekið á móti Guðrúnu þar sem hún er núna eflaust í faðmi for- eldra sinna og bróður, laus við allar þjáningar. Elsku Guðrún, takk fyrir allt. Þín er sárt saknað. Elsku Svabbi, Elli, Viktor og Hermann, Eygló, Þröstur, Júlli og fjölskyldur. Megi Guð og góð- ar vættir styðja ykkur í að standa þétt saman, styrkja ykkur í sorginni og kenna að lifa með henni. Sigríður Svavarsdóttir, Ásta Kristín Svavarsdóttir og fjölskyldur. Komið er að kveðjustund hjá okkar kæru æskuvinkonu Guð- rúnu sem lést langt fyrir aldur fram. Lífið er svo sannarlega ekki alltaf sanngjarnt. En við æskuvinkonurnar erum afar þakklátar fyrir þann tíma sem við áttum saman. Við minnumst dýrmætra samverustunda yndis- legrar manneskju og góðrar vin- konu með hlýhug og gleði í hjarta. Þau ljós sem skærast lýsa, þau ljós sem skína glaðast þau bera mesta birtu en brenna líka hraðast og fyrr en okkur uggir fer um þau harður bylur er dauðans dómur fellur og dóm þann enginn skilur. (Friðrik Guðni Þorleifsson) Hvíl í friði, elsku vinkona. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Minning þín lifir um ókomin ár. Svava Margrét, Guðbjörg, Elísabet og Ann. ✝ Kristín SólborgÁrnadóttir fæddist í Stykkis- hólmi 24. júlí 1932. Hún lést á Hjúkr- unarheimilinu Sól- vangi í Hafnarfirði 29. september 2018. Foreldrar henn- ar voru Árni Jóns- son, f. 26. apríl 1895, d. 16. júlí 1962, og Guðbjörg Guðmundsdóttir, f. 10. júní 1904, d. 15. desember 1999. Eftirlif- andi systir Kristínar er Steinunn en látin eru Jón og Katrín. Eiginmaður Kristínar var Jón Magdal Bjarnason, f. 26. október 1931, d. 10. janúar 2011. Foreldrar hans voru Guðríður Jónsdóttir, f. 15. júlí 1893, d. 1. ágúst 1966, og Bjarni Gíslason, f. 11. september 1890, d. 4. októ- ber 1969. Kristín og Jón eignuðust þrjár dætur. 1) Guðríður Jóns- dóttir, fædd 10. september 1954. Eiginmaður hennar er Konráð Jónsson og eiga þau tvö börn. Kristín, f. 27. júní 1975. Eig- inmaður hennar er Einar Bjarnason og eru börn þeirra Haraldsson og eiga þau þrjú börn. Kristinn Geir, f. 16. sept- ember 1982 og er eiginkona hans Íris Dögg Gísladóttir og börn þeirra eru Arnór Máni og Guðný Ósk. Fyrir átti Íris Gísla Arnar. Áslaug, f. 23. febrúar 1986. Eiginmaður hennar er Hjörtur Freyr Jóhannsson. Dæt- ur þeirra eru Karitas Björk og Hrafntinna Björk. Tjörvi, f. 20. júní 1990. Fyrir átti Jón, eigin- maður Kristínar Sólborgar, dóttur, Örnu Hólmfríði, f. 10. september 1953. Eiginmaður hennar er Guðmundur Vignir Óskarsson. Sonur þeirra er Vignir Örn, er unnusta hans Sól- veig Sif Guðmundsdóttir og eiga þau eina dóttur. Fyrir átti Arna soninn Hrafn Kristjánsson. Eig- inkona hans er Maríanna Han- sen og eru synir þeirra Mikael Máni, Kristján Breki og Alexander Jan. Kristín fluttist 15 ára gömul til Reykjavíkur með fjölskyldu sinni. Eftir að hún giftist Jóni bjuggu þau allan sinn búskap í Hafnarfirði. Þau ráku raftækja- verslunina Ljós og raftæki í Hafnarfirði í mörg ár og vann hún þar alla tíð. Síðustu mánuðina dvaldi Kristín á Hjúkrunarheimilinu Sólvangi. Jarðarför Kristínar fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði í dag, 5. október 2018, og hefst at- höfnin klukkan 11. Áróra Ósk, Arnar Bjarni og Helena Ósk. Hrafn, f. 20. janúar 1980. Eigin- kona hans er Unnur Ósk Einarsdóttir og eru synir þeirra Al- exander Örn og Fannar Örn. Fyrir átti Hrafn fjórar dætur með Krist- jönu Ósk Jónsdótt- ur. Þær eru Elva Rós, Hekla Líf, Katla María og Lilja Rún. 2) Katrín Jónsdóttir, fædd 31.desember 1955. Eig- inmaður hennar var Björn J. Brandsson en hann lést 10. júní 2016 og eiga þau þrjú börn. Jón Karl Björnsson, f. 5. ágúst 1975, og á hann tvö börn, Róbert Daða og Ágústu Katrínu með Lindu Björk Ragnarsdóttur. Davíð Þór, f. 22. febrúar 1982, og er eiginkona hans Valgerður Brynja Viðarsdóttir, dóttir þeirra er Aþena Ýr. Fyrir átti Valgerður Ylfu Rán og Jakob Mána. Anna, fædd 1. ágúst 1989 og er unnusti hennar Tómas Helgi Tómasson. 3) Kolbrún Jónsdóttir, f. 5. júlí 1957 og er eiginmaður hennar Þorgeir Kær móðir okkar, Kristín Sólborg Árnadóttir, er látin eft- ir erfið veikindi undanfarin ár. Hún greindist með Alzheimer fyrir nokkrum árum og ágerð- ust einkenni sjúkdómsins ansi hratt síðustu mánuðina. Eftir að faðir okkar dó árið 2011, þá bjó hún ein í sinni íbúð þar til hún flutti á hjúkrunarheimilið Sólvang í Hafnarfirði í maí síð- ast liðnum. Þar var hugsað mjög vel um hana og viljum við þakka starfsfólki á annarri hæðinni kærlega fyrir hlýhug og umhyggju í hennar garð. Það er margs að minnast og sérstaklega höfum við systur verið að rifja upp hversu góða æsku við áttum í öruggum höndum foreldra okkar og einn- ig hversu öruggt og yndislegt umhverfið var sem við ólumst upp í. Við hugsum líka um allar útilegurnar og veiðiferðirnar sem við fórum í sem krakkar og auðvitað var alltaf gott veður. Á unglingsárunum gátum við leit- að til mömmu og hún ráðlagði okkur eins og best hún gat. Eftir að við eignuðumst kær- asta þá leiddist henni nú ekki að bjóða þeim í mat enda hafði hún mjög gaman af allri elda- mennsku og að stússast í kring- um fólkið sitt. Og eftir að barnabörnin komu í heiminn hvert á fætur öðru, þá áttu þau ætíð skjól og skemmtun hjá ömmu og afa. Foreldrar okkar ferðuðust mikið, bæði hér heima og er- lendis og það fannst mömmu sérstaklega gaman. Eftir að pabbi dó fór mamma að sækja handboltaleiki hjá Haukum með yndislegum og hressum konum sem allar áttu sitt fasta sæti á heimaleikjum. Það var gaman að fylgjast með þeim og sjá þær hvetja sitt lið vel og duglega. Það var mömmu erfitt að finna hvernig sjúkdómurinn tók öll völd en í lokin þá vissi hún nú lítið um sig. En þetta eru einkenni Alz- heimer sjúkdómsins. Nú er hún komin í Sumarlandið og vænt- anlega laus við gleymskuna sína og allar aðrar þjáningar. Guð blessi minningu hennar. Takk fyrir allt og allt, elsku mamma. Þínar dætur Guðríður, Katrín og Kol- brún (Guja, Kata og Kolla). Í dag kveðjum við elsku ömmu okkar, Kristínu Sólborgu Árnadóttur, sem fær nú að hvíl- ast við hlið afa okkar, Jóns Magdal Bjarnasonar sem lést í janúar 2011. Amma og afi voru duglegt og iðið fólk og eyddu miklum tíma saman í vinnu og tómstundum. Þau ráku saman verslunina Ljós og raftæki á Strandgöt- unni í Hafnarfirði og notuðu frí- tíma sinn til að ferðast um víða veröld, allt þar til afi veiktist. Þau voru mikið skíðafólk og fóru mörgum sinnum í skíða- ferðir til Ítalíu. Fengu eldri barnabörnin að njóta þess áhuga hér heima með ferðum í Bláfjöll og Kerlingarfjöll. Þá var smurt nesti, tekex með osti og heitt súkkulaði, borðað beint úr skottinu. Það var alltaf notalegt að koma til ömmu og afa í Þrast- arhraunið. Þar eyddum við tíma úti í heita pottinum, inni í gróð- urhúsinu innan um ótal rósir, runna og vínviði. Horfðum aftur og aftur á Tomma og Jenna, en amma og afi voru búin að taka upp margar VHS-spólur með þeim félögum. The Scarlet Pimpernel var einnig vinsæl til áhorfs hjá stelpunum. Við lék- um okkur á þrekhjólinu í kjall- aranum og í Rope Yoga-bönd- unum hennar ömmu sem voru fest við kjallarahurðina. Afi kenndi okkur að leggja kapal, amma og dætrþrjár tóku slátur, á borðum var ávaxtagrautur, normalbrauð með osti, undan- renna og lýsi. Góðar minningar. Við erum þakklát fyrir þess- ar góðu minningar og allan þann tíma sem við fengum með ömmu okkar og afa. Hvíl í friði, elsku amma Kristín. Kristín og Hrafn. Kristín Sólborg Árnadóttir Faðir okkar, tengdafaðir og afi, BJARNI GRÍMSSON, lést laugardaginn 25. ágúst. Útför hans hefur þegar farið fram í kyrrþey. Grímur Bjarnason María Bjarnadóttir Helga Bjarnadóttir Hilmar Bjarnason og aðrir aðstandendur Elsku hjartans sonur minn, bróðir okkar, mágur og frændi, KRISTJÁN KETILSSON, lést á heimili sínu, sambýlinu Hlein í Mosfellsbæ, í faðmi fjölskyldunnar miðvikudaginn 3. október. Útför fer fram frá Grafarvogskirkju mánudaginn 15. október kl. 13:00. Auður Ásta Sigríður Jónasdóttir Bára A. Ketilsdóttir Örn Gunnarsson Írunn Ketilsdóttir Tómas Sigurðsson Steinunn Ketilsdóttir Snorri Þórisson Jónas Ketilsson Sigríður M. Óskarsdóttir frændsystkin og fjölskyldur Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsam- lega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðs- lógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felli- glugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.