Morgunblaðið - 05.10.2018, Page 29

Morgunblaðið - 05.10.2018, Page 29
DÆGRADVÖL 29 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. OKTÓBER 2018 56 10 000 TAXI BSR Góð þjónusta yfir 90 ár10% afsláttur fyrir 67 ára og eldri Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Ræddu við þína nánustu um það hvernig þið getið skipt með ykkur hlutunum. Varastu samt að ganga of langt svo ekki komi til eftirmála. 20. apríl - 20. maí  Naut Jafnvel þótt nánustu sambönd þín hafi batnað að undanförnu eru ákveðin vandamál að koma upp á yfirborðið. Að gefa sér for- sendur getur komið þér í vandræði. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Það er óþarfi að stökkva upp á nef sér, þótt samstarfsmönnum verði eitthvað á. Þín sérgrein er að skipuleggja svo þú skalt vera óragur við að flagga þeim hæfileika þín- um. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þegar gera þarf áætlanir fram í tím- ann er nauðsynlegt að huga að þörfum heild- arinnar. Búðu þig þó undir vonbrigði, fólk á það til að lofa upp í ermina á sér. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Málstaður þinn vinnur æ fleiri á sitt band og mest munu gleðja þig sinnaskipti gamals vinar. Mundu bara að misnota ekki fólk sem er meira en tilbúið til að rétta þér hjálparhönd. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þú mátt ekki hunsa góðar tillögur, þótt þær komi frá öðrum. Betur sjá augu en auga og þú færð nýja sýn sem hjálpar þér að leysa málin. 23. sept. - 22. okt.  Vog Ekki er ólíklegt að tafir, ruglingur og við- líka ergi þig í dag. Láttu óþolinmæðina ekki ná tökum á þér því þá gæti farið illa. Mundu að aðgát skal höfð í nærveru sálar. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þótt aðrir sjái þig ekki í réttu ljósi núna mun verða breyting á því þegar árangur verka þinna kemur í ljós. Notaðu tækifærið og reyndu að koma sem mestu í verk. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Dagurinn hefur einkennst af gríð- arlegu annríki. Aðalverkefni dagsins felst í að leiða fólk - beina því í rétta átt, halda því við áætlunina þína svo það átti sig á þinni sýn. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þér nægja ekki hin daglegu verk í dag, vilt áorka einhverju meiru, takast á við eitthvað ferkst og nýtt. Hættu að kvarta og finndu leið til að létta byrðarnar. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Það er um að gera að njóta líðandi stundar, því hún kemur aldrei aftur og betra að hafa hana góða í minningunni. Láttu þínar þarfir ganga fyrir núna til tilbreytingar. 19. feb. - 20. mars Fiskar Láttu ekki viðfangsefnið ná of sterkum tökum á þér og mundu að þú átt að vera herra atburðarásarinnar. Njóttu athyglinnar en láttu allt oflæti lönd og leið. Ólafur Stefánsson skrifar á Leir:„Ég horfi á Heklu á hverjum degi og hún er til alls vís. Ég man gosið 1947 og hin sem á eftir komu. Hún er búin að vera tilbúin nokkuð lengi, en enginn veit hvenær hríð- irnar byrja. Heklufjall titrar og hristist öll jörð, heyrast í loftinu drunur. Fannirnar bráðna,það flæðir um börð, fyllast af hrauneðju bollar og skörð, í fjallinu fæðingarstunur. Lengi var beðið hins logheita goss. Líknsami drottinn vor, miskunna oss. Helga R. Einarssyni segist svo frá, að fyrir réttri viku hafi hann lit- ið á fréttirnar sem endranær og þar var Friðrik Ólafson að láta skoðun sína o. fl. í ljós á fyrirhugaðri hót- elbyggingu. Þá varð þetta til: Virðingarleysi Austurvöllurinn er ágætur, þykir mér, þó helber sé hneisa hótel að reisa á líkamsleifunum hér. Síðan segir Helgi að fyrst við séum komin niður á Austurvöll fái þessi að fylgja með, – „Augljóst mál“: Íslenska moldu skal erja og okkar landbúnað verja því huglausir menn hér finnast enn, sem hausum við steinana berja. Kötturinn Jósefína Meulengracht Dietrich heyrðist mjálma árla á laugardagsmorgun: Senn mun hundur elris ær urra hvað hann getur og brunagaddur brýna klær því brátt er kominn vetur. Síðan bætti hún því við að sér fyndist að sléttubönd ættu að vera hringhend: Hjalar ljóðin vísa væn, verður þjóðar prýði, malar óðinn kisa kæn, kæta hljóðin lýði. En var bent á að réttast mundi að hafa sléttuböndin síðbakhend eða jafnvel oddhend líka. – „Það er hár- rétt eins og hver heilvita köttur hlýtur að sjá“: Bætir þjóðar mestu mein, malar óðinn góðan, kætir, ljóðin yrkir ein, unnar glóða tróðan. Dýrast tróðan yrkir óð, unnar glóða braginn hírast ljóðin malar móð, mjálmar góðan daginn. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Af Heklu, Austurvelli og íslenskri mold Í klípu „YFIRLEITT GENGUR MÉR ÁGÆTLEGA EN ÉG VINN EKKI VEL UNDIR EFTIRLITI.“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „ÆI, FÉKKSTU SÓSU Á SKÓNA ÞÍNA?“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... stundum sársaukafull! GRETTIR, ÉG FANN GÖMLU ÚRKLIPPUBÓKINA ÞÍNA SJÁÐU… FYRSTA HÁRKÚLAN ÞÍN! ÞÚ ERT SVO YNDIS LEGA TIL- FINNINGA SAMUR FÖRUM Í SPILAVÍTIÐ? ALLS EKKI! ÞAÐ FER ALLT Á VERRI VEG ÞAR! VIÐ TÖPUM ALLTAF Í SPILUNUM EN BÆTUM Á OKKUR VIÐ MATARBORÐIÐ! Nú er Víkverji verulega hugsi ogveltir því fyrir sér hvort sam- félagið komi fram við erlent vinnuafl af sanngirni. x x x Víkverja var brugðið þegar hannhorfði á Kveik á RÚV þar sem af- hjúpaðar voru skelfilegar aðstæður erlendra verkamanna sem sumir hverjir virðast tældir hingað á fölskum forsendum, svo fölskum að það mæti hugsanlega kalla þær vinnumansal. x x x Er þetta það sem við viljum sjá á ís-lenskum vinnumarkaði? Þjónar slíkt atferli einhverjum tilgangi öðrum en þeim að nýta sér bágindi annarra í þágu gróðahagsmuna? Þetta eru stór- ar spurningar og kannski er svörin við þeim ekki eingöngu að finna hjá þeim fyrirtækjum sem misnota erlent vinnuafl. x x x Víkverji telur að íslenskt samfélageigi hlut að máli með því að bjóða upp á aðstæður sem leiða til misneyt- ingar á vinnumarkaði. Að sjálfsögðu er ábyrgð starfsmannaleiga og þeirra fyrirtækja sem kjósa að misnota er- lent vinnuafl mest. En samfélagið ber líka ábyrgð. Forsvarsmenn ríkis og bæja og fyrirtækja og almenningur geta haft augun opin þegar þjónusta býðst á óeðlilega lágu verði. Víkverji telur að almenningur í landinu geti lát- ið sig velferð náungans varða í meiri mæli. Upplýst samstarfsmenn um réttindi. Spurt við hvað kjör þeir búi. Ef í ljós kemur að maðkur er í mys- unni er hægt að leiðbeina viðkomandi um hvert hann geti leitað eða með leyfi hans að fara með málið í réttan feril. x x x Víkverji geldur varhug við því aðnýta sér bág kjör fólks frá öðrum löndum fyrir stundargróða. Það er engum til sóma og því síður til fram- dráttar. Það er innan við öld síðan ís- lensk þjóð rétti úr kútnum fjárhags- lega. Íslendingar hafa flúið til Kanada, Ástralíu, Noregs og fleiri landa þegar kreppt hefur að í íslenskum efnahag. Tökum á móti öðrum á Íslandi eins og við viljum láta taka á móti okkur. vikverji@mbl.is Víkverji En vér, lýður þinn og gæsluhjörð, munum þakka þér um aldur og ævi, syngja þér lof frá kyni til kyns. (Sálm: 79.13)

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.