Morgunblaðið - 20.10.2018, Síða 18

Morgunblaðið - 20.10.2018, Síða 18
18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. OKTÓBER 2018 Guðni Einarsson gudni@mbl.is Sjóvá fagnar því í dag að 100 ár eru liðin frá því að Sjóvátrygging- arfélag Íslands, forveri Sjóvár, var stofnað 20. október 1918. Það var fyrsta íslenska tryggingafélagið sem bauð upp á almenna vátrygg- ingastarfsemi. Stofnendur félags- ins voru aðallega athafnamenn í Reykjavík. Þeirra á meðal var Sveinn Björnsson, sem síðar varð fyrsti forseti lýðveldisins. Stofnun félagsins skömmu fyrir fullveldis- daginn 1. desember 1918 þykir táknræn fyrir vaxandi hug Íslend- inga í sókn þeirra til sjálfstæðis á sem flestum sviðum þjóðlífsins á þessum tíma. Fram að stofnun Sjóvátryggingarfélagsins höfðu Ís- lendingar þurft að kaupa vátrygg- ingar, nema brunatryggingar á húsum og lausafé, af erlendum vá- tryggingafélögum sem ráku hér umboðsskrifstofur. Stofnun félags- ins markaði því tímamót. Styður við slysavarnir Í fyrsta merki Sjóvátryggingar- félags Íslands var teikning af togaranum Jóni forseta RE 108, en það var fyrsti togarinn sem var smíðaður sérstaklega fyrir Íslend- inga og kom til landsins árið 1907. Togarinn strandaði við Stafnes á Reykjanesi 1928. Þar tókst að bjarga tíu mönnum úr áhöfninni en fimmtán fórust. Sama ár var Slysavarnafélag Íslands stofnað sem síðar sameinaðist Landsbjörg. Sjóvá hefur verið aðalstyrktaraðili Slysavarnafélagsins Landsbjargar frá sameiningu félaganna árið 1999. Sjóvátryggingarfélag Íslands helgaði sig sjóvátryggingum og farmtryggingum til að byrja með. Fyrsti vátryggingasamningurinn var gerður um sjóflutninga 15. janúar 1919 við Jóhann Ólafsson & Co. og er hann enn í gildi 100 árum síðar. Líftryggingadeild Sjóvátryggingarfélagsins var stofnuð 1934 en þá var ekkert inn- lent líftryggingafélag starfandi hér. Árið 1937 hóf félagið að selja bílatryggingar og í kjölfarið fylgdu flugvélatryggingar, jarðskjálfta- tryggingar, ferða- og slysatrygg- ingar og rekstrarstöðvunartrygg- ingar. Sjóvátryggingarfélagið keypti meirihluta í Hagtryggingu árið 1985 og var reksturinn sameinaður ári síðar. Almennar tryggingar, sem voru stofnaðar 1943, og Sjóvátryggingarfélag Íslands sam- einuðust svo árið 1989 í Sjóvá- Almennar tryggingar hf. sem í daglegu tali er nefnt Sjóvá. Félagið keypti Húsatryggingar Reykjavíkur hf. af Reykjavíkur- borg árið 1996 og eignaðist vátryggingarfélagið Ábyrgð hf. að fullu, en félögin höfðu átt í sam- starfi frá árinu 1991. Rúmlega 1.200 hluthafar Sigurjón Andrésson, markaðs- stjóri Sjóvár, sagði að félagið hefði lagað sig að þróun samfélagsins og þörfum viðskiptavina og lagt áherslu á að vera nútímalegt þótt byggt sé á 100 ára grunni. „Hlutverk félagsins hefur ekki breyst, það er að vera bakhjarl fólks og skapa því hugarró með því að selja því vernd gegn tjónum,“ sagði Sigurjón. „Við er- um með ríflega fjórðungshlutdeild á íslenskum tryggingamarkaði þegar litið er til einstaklinga og fyrirtækja. Reksturinn er traustur og eignarhaldið stöðugt. Hermann Björnsson forstjóri tók við stjórn félagsins árið 2011 og hefur stjórn þess að stærstum hluta setið frá þeim tíma eða fyrr. Félagið er skráð í kauphöll og eru hluthafar rúmlega 1.200 talsins. Um 175 manns starfa hjá Sjóvá um allt land. Við erum stolt af stöðu okkar á afmælisárinu. Sjóvá var valið Fyrirtæki ársins 2018 í vinnu- markaðskönnun VR, sem er sú umfangsmesta á Íslandi, og við leggjum mikla áherslu á að við- halda starfsánægju innan fyrir- tækisins. Við erum ánægð yfir að vera í hópi fimm stærri fyrirtækja sem fengu titilinn „framúrskarandi fyrirtæki“. Félagið náði því einnig að vera efst tryggingafélaga í Ánægjuvoginni sem mælir ánægju viðskiptavina á landsvísu. Þá vor- um við efst fjármálafyrirtækja í starfsánægju starfsfólks. Við vor- um í hópi fyrstu fyrirtækja sem fengu jafnlaunavottun VR og stöndum framarlega á öllum mæli- kvörðum sem viðkoma jafnrétti.“ Fyrsta íslenska tryggingafélagið  Sjóvá er nútímalegt tryggingafélag sem byggist á 100 ára gömlum grunni Morgunblaðið/Eggert Sjóvá 100 ára „Hlutverk félagsins hefur ekki breyst, það er að vera bakhjarl fólks og skapa því hugarró með því að selja því vernd gegn tjónum,“ sagði Sigurjón Andrésson, markaðsstjóri Sjóvár. Ljósmyndasafn Reykjavíkur/Karl Christian Nielsen Gullfoss I Þjóðverjar kyrrsettu flaggskip Eimskipafélagsins í Kaupmannahöfn 1940. Sjóvá greiddi skipið út. Það fannst eftir stríð illa farið í Kiel og hafði verið notað sem spítalaskip. Ljósmyndasafn Reykjavíkur/Sveinn Þormóðsson Lystadúnsbruninn Stórbruni varð í verksmiðju Lystadúns við Dugguvog í maí 1987. Starf- semin var tryggð hjá Sjóvá og hófu fyrirtækin uppbyggingu um leið og slökkvistarfinu lauk. Veðurstofan gaf í gær út gula við- vörun sem nær til allra landshluta í dag og sums staðar til morguns. Víðast er spáð suðvestan hvass- viðri, allt að 25 m/s, rigningu og skúrum. Hvassast verður á Norð- vesturlandi. Hviður geta orðið allt að 40 m/s við fjöll. Er almenningur hvattur til að huga að lausamunum við híbýli sín. Á höfuðborgarsvæðinu telur Veðurstofan varhugavert að vera á ferðinni með aftanívagna eða öku- tæki sem taka á sig mikinn vind. Einnig geti verið hvassir svipti- vindar í efri byggðum og við háar byggingar. Er fólk hvatt til að sýna aðgát og ganga frá lausum munum til að forðast tjón. Sams konar við- vörun gildir fyrir miðhálendið. Lögreglan á höfuðborgarsvæð- inu tók undir viðvörun Veðurstof- unnar í gærkvöldi. Spáð væri leið- indaveðri, sannkölluðu „inniveðri“. Minnt er á að ganga frá lausum munum. „Enginn vill þurfa að út- skýra fyrir nágrönnum sínum að þetta sé þeirra trampólín eða sól- bekkur sem hafi fokið af stað,“ segir á Facebook-vef lögreglunnar. Veðurstofan með gula viðvörun fyrir allt landið Til sölu Heildsölufyrirtæki Til sölu er vel rekin skuldlaus heildsala sem selur vörur og búnað til fyrirtækja í matvælaframleiðslu og sjávarútvegi. Velta 420 m. EBITDA 35 m. Nánari upplýsingar veittar á trúnaðarfundi hjá Firma Consulting. Sími 896 6665. Við vatnsverjum flíkina þína Traust og góð þjónusta í 65 ár Álfabakka 12, 109 Reykjavík, sími 557 2400, www.bjorg.is • Opið alla virka daga kl. 8-18

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.