Morgunblaðið - 20.10.2018, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 20.10.2018, Qupperneq 31
UMRÆÐAN 31 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. OKTÓBER 2018 Vantar þig ráðleggingar við sölu eignar þinnar? s 893 6001 Kópavogi | Selfossi | s 893 6001 | beggi@fasteignasalan.is Guðbergur Guðbergsson Löggiltur fasteignasali og leigumiðlari Síminn okkar er 515 4500 og netfangið nyhofn@nyhofnfasteignir.is Lárus Ómarsson | löggiltur fasteignasali Nýhöfn faste ignasa la ı Borgar túni 25 ı 105 Reyk jav ík ı S ími 515 4500 ı www.nýhöfn. i s Glæsileg hæð við Laugaveg Til sölu er glæsileg sérhæð í fallegu og vönduðu húsi á horni Laugavegar og Frakkastígs. Íbúðin er á annarri hæð en aðeins eru tvær íbúðir í húsinu ásamt verslunum sem eru á jarðhæð. Sérinngangur í báðar íbúðirnar eru frá Frakkastíg. Búið er að endurnýja skólplagnir og nýlega var allt parketið slípað og lakkað af fagmönnum. Söluskoðun óháðra fagmanna Frumherja liggur fyrir, eins og í öllum eignum sem Nýhöfn hefur til sölumeðferðar. Laugavegur 44 101 Reykjavík „Það að elska hverjir aðra, er það sama og að hata sameiginlegan óvin,“ sagði franski heimspekingurinn Jean-Paul Sartre. Sjálfur er ég ekki jafn bölsýnn á mannlegt eðli og Sartre en verð þó að viðurkenna að af- staða heimspekingsins endurspeglar sterka tilhneigingu í hóp- hegðun karla og kvenna. Má til dæm- is sjá hana í ríkulegum mæli í hópefli öfgafulls femínisma. Við ýmis tækifæri hef ég, sem tals- maður foreldrajafnréttis, vakið at- hygli á femínistaskjölunum svoköll- uðu, sem eru skjáskot af umræðum á Facebook, þar sem hópur ofstopa- fólks sem kennir sig við femínisma lagði á ráðin um að eyðileggja með skipulögðum hætti mannorð allra þeirra sem tala máli umgengnisfor- eldra sem ekki fá að umgangast börn sín. Þegar ég komst að þeim áform- um brást ég til varnar þegar í stað sem formaður Samtaka umgengnis- foreldra, og stuðlaði að stofnun Karlalistans vegna þátttöku stjórn- málamanna í aðförinni. Ég gerði mér hins vegar enga grein fyrir hversu langt þetta öfgafólk var reiðubúið til að ganga til að koma æru og mann- orði heiðarlega manna, og reyndar kvenna einnig, fyrir kattarnef. Á meðal gerenda voru prestur, verk- efnastjóri hjá Háskóla Íslands, lög- maður, ritstjóri Stundarinnar, þjóð- þekktur blaðamaður, formaður Kvennaathvarfsins, ráðgjafi for- sætisráðherra í jafnréttismálum og varaformaður Samfylkingarinnar. Um 2.400 manns horfðu á og klöpp- uðu ósómann upp. Þar fyrir utan fékk þetta öfgafólk umræðugrund- völl á Femínistaspjallinu á Facebook og átti náið samstarf við ritstjórn femíníska sorpmiðilsins Knuz.is. Hafa þessi nettröll gengið fram með slíkum mannorðs- meiðingum að óhætt er að fullyrða að annað eins hafi ekki sést á prenti. Þrátt fyrir þetta allt er forherðingin slík að þau sendu á dög- unum tölvupóst á alla alþingismenn, þar sem þingmenn voru hvattir til að hafna tálmunar- frumvarpi Brynjars Níelssonar, sem er í reynd eina vonarglæta þolenda tálmunar- ofbeldis til að sjá börn sín á ný. Skríllinn nam þó ekki staðar við óhæfuverk sín á Facebook, heldur tók upp á því að setja sig í samband við atvinnurekendur þeirra sem talað hafa máli þolenda umgengnistálm- ana til að freista þess að svipta þá æru og lífsviðurværi með lygum og ærumeiðingum. Að auki þurfa þeir sem eru í einkarekstri að sæta því að spillt er fyrir viðskiptasamböndum og tekjumöguleikum með sambæri- legum hætti. Nægilega mörg slík dæmi eru staðfest til að hægt sé að fullyrða að um skipulagða herferð sé að ræða, og í einhverjum tilfellum hefur öfgafólkið náð árangri. Hið óhugnanlega er hversu skipu- lega er gengið til þessara óhæfu- verka – og er það gert í nafni fem- ínismans. Ofstopafemínistar geta að sönnu elskað hverjir aðra – en aðeins ef þeir fá að hata alla þá sem eru þeim ósam- mála. Ást og hatur Sartre Eftir Gunnar Kristin Þórðarson Gunnar Kristinn Þórðarson » Ofstopafemínistar freista þess að svipta málsvara for- eldrajafnréttis æru og lífsviðurværi. Höfundur er með BA í guðfræði, MPA í opinberri stjórnsýslu, formað- ur Samtaka umgengnisforeldra og fyrrverandi formaður Karlalistans. Einstaklingum sem metnir eru til örorku hefur fjölgað ár frá ári. Fjölgun þeirra sem metnir hafa verið 75% öryrkjar er um 3,9% milli áranna 2016 og 2017. Fjölmargar ástæður liggja að baki örorku. Þó er einn sjúkdómur algengari hér á landi en víða erlendis sam- kvæmt svari við fyrirspurn minni til heilbrigðisráðherra á sl. vetri, en það er vefjagigt. Vefjagigtargreining var talin meðvirkandi þáttur í 75% örorku hjá 14% allra kvenna sem voru á örorku. Örorka vefjagigtarsjúklinga or- sakast oft af samverk- andi þáttum vefjagigt- ar, annarra stoðkerfis- sjúkdóma og geðsjúk- dóma. Konur í meirihluta Talið er að vefjagigt hrjái 2-13% fólks á hverjum tíma, hún er algengari hjá konum en körlum, eða 3-4 konur á móti einum karli. Ekki eru til heildarupplýsingar um fjölda Eftir Höllu Signýju Kristjánsdóttur Halla Signý Kristjánsdóttir »Heilbrigðiskerfið þarf að beina athygli að vefjagigt … einstaklinga sem greindir hafa verið hér á landi en í rannsókn frá 1998 reyndist algengi vefjagigtar vera 5,6% meðal 18 ára einstaklinga og eldri en erlendis er algengi vefja- gigtar oftast á bilinu 1-4%. Vefjagigt er yfirleitt langvinnur sjúkdómur sem ekki læknast og því fjölgar í hópi vefjagigtarsjúklinga með hækkandi aldri. Engar ritrýndar niðurstöður hafa verið birtar um árangur af meðferð á vefjagigt á Íslandi. Þraut – mið- stöð um vefjagigt hefur tekið saman upplýsingar um árangur endurhæf- ingar fyrir fjögurra ára tímabil, árin 2011-2015. Niðurstöðurnar voru annars vegar birtar í skýrslu Þraut- ar til Sjúkratrygginga Íslands árið 2014 og hins vegar í nýlokinni meist- araritgerð Sigríðar Björnsdóttur í sálfræði við Háskólann í Reykjavík. Niðurstöðurnar sýna þýðingar- mikinn, marktækan bata eftir endurhæfingu hvað varðar heildar- stöðu sjúklinganna, færni og lífs- gæði. Niðurstöðurnar sýna einnig að verkir, þreyta, andleg líðan og streitueinkenni batna marktækt eft- ir endurhæfingu. Ég hef lagt fram þingsályktunar- tillögu þess efnis að fela heilbrigðis- ráðherra að beita sér fyrir fræðslu til almennings um vefjagigt og endurskoða skipan sérhæfðrar endurhæfingarþjónustu með það að markmiði að styrkja greiningar- ferlið og geta boðið upp á heildræna meðferð byggða á niðurstöðum gagnreyndra rannsókna. Heilbrigðiskerfið þarf að leggja eyrun við þessum þögla sjúkdómi og viðurkenna hann sem stóran þátt í að fólk á öllum aldri sé að detta út af vinnumarkaði og einangrast heima með verkjasjúkdóm sem gerir ein- staklinginn óvirkan bæði á vinnu- markaði og sem þátttakanda í sam- félaginu. Höfundur er 7. þingmaður NV- kjördæmis. hallasigny@althingi.is Vefjagigt – hinn þögli sjúkdómur

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.