Morgunblaðið - 20.10.2018, Side 29
UMRÆÐAN 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. OKTÓBER 2018
á samkeppnishæfu verði!
Kletthálsi 2, 110 Reykjavík s.562-1717 bilalif.is
Við seljum líka nýja bíla
Range Rover Evoque
Ný sending af mjög vel útbúnum
Tjarnargata 4, 3. hæð | Sími 546 1100 | investis@investis.is | www.investis.is
Viðskiptatækifæri og
verðmat fyrirtækja
Við hjá Investis erum með um 50 fyrirtæki á
söluskrá. Um 600 fjárfestar fá reglulega tölvupóst
frá okkur um viðskiptatækifæri.
Þjónusta Investis:
• Sala og kaup á fyrirtækjum og rekstrar-
einingum.
• Umsjón með sameiningum fyrirtækja og
útreikningar skiptihlutfalla.
• Umsjón með fjárhagslegri endurskipulagningu
og fjármögnun fyrirtækja.
• Verðmat á fyrirtækjum og fjárfestakynningar.
• Öflun fjárfesta að fyrirtækjum.
• Mat og greining á þróunarverkefnum.
Við vinnum að sölu á fjölda fyrirtækja.
Hér eru nokkur dæmi:
• Holræsahreinsun með góðan tækjabúnað og
verkefni víða um land. Velta um 100 mkr.,
ebitda um 16 mkr. Áhugavert fyrirtæki á
stækkandi markaði.
• Vinsæl ísbúð/ísgerð. Ítölsk gelato aðferð.
Um 20 manns og mikill vöxtur.
• Öflugt fyrirtæki í verslun og þjónustu með
raftæki/heimilistæki. Velta um 3 milljarðar.
• Thai veitingastaður í 101 Reykjavík, velta um
100 mkr. Ebitda um 12 mkr. Hagstæður
leigusamningur.
• Öflug skiltagerð í Reykjavík, sérhæfir sig í
hönnun, ráðgjöf, framleiðslu, prentun og sölu
á hvers kyns merkingum og skiltum fyrir
fyrirtæki, stofnanir og heimili. Stöðug eftir-
spurn, sterk staða, góð ímynd.
• Nokkrir veitingastaðir í Reykjavík eru í
sölumeðferð hjá okkur, tækifæri fyrir
veitingamenn.
• Innflutningsfyrirtæki sem flytur inn húseiningar
og byggingar, veltir um 400 milljónum
• Blikkás Funi sem er iðnfyrirtæki og heildsala
á sviði loftræstinga og arinbúnaðar.
• Tvö fyrirtæki á sviði iðnaðarhurða og
iðnaðarhúsa. Jöfn sala og góð framlegð.
• Öflugt fyrirtæki með hreinsivörur sem
veltir um 300 mkr.
Við leitum að fjárfesti að öflugu innflutnings-
og smásölufyrirtæki í upplýsingatækni og
tengdum rekstrarvörum sem veltir um
1,3 milljörðum með framlegð um 450 mkr.
Thomas MöllerHaukur Þór Hauksson
Investis ehf. fyrirtækjaráðgjöf, Tjarnargötu 4,
101 Reykjavík (3. hæð) Sími 546-1100,
Haukur Þór Hauksson í síma 893 9855 eða
Thomas Möller í síma 893 9370.
Tvö íslensk taflfélög, Íslands-meistarar Víkingaklúbbs-ins og Taflfélag Reykja-víkur, tóku þátt í Evrópu-
keppni taflfélaga sem lauk í Porto
Carras í Grikklandi á fimmtudaginn.
Víkingaklúbburinn, sem stillti upp
sterkri sveit á Íslandsmóti skák-
félaga, lét sér nægja að senda hálf-
gert b-lið til keppni að þessu sinni
með þá Björn Þorfinnsson og Davíð
Kjartansson í fremstu víglínu og síð-
an fjóra mun stigalægri skákmenn.
Árangurinn var eftir væntingum;
liðinu var fyrir fram raðað í 47. sæti
af 61 þátttökuliði og endaði í 44. sæti
með 6 stig og 20½ vinning.
Taflfélag Reykjavíkur þurfti ekki
að gera miklar breytingar á sínu liði
frá Íslandsmótinu. Í borðaröð tefldi
TR fram Guðmundi Kjartanssyni,
Braga Þorfinnssyni, Úkraínu-
manninum Oleksandr Sulypa, Mar-
geiri Péturssyni, Arnari Gunnars-
syni og Omar Salama. Sveitin varð í
25. sæti en var fyrir fram raðað í það
nítjánda.
Svo fór að lokum að Péturs-
borgarliðið Mednyi Vsadnik vann
sigur með 12 stig og 30½ vinning en
þar í sveit var þó fyrstaborðsmaður-
inn Peter Svidler alveg úti á túni og
tapaði fyrstu fjórum skákum sínum.
Keppnin hefur undanfarin ár
dregið til sín marga af sterkustu
skákmönnum heims og nú mætti
heimsmeistarinn Magnús Carlsen til
leiks fyrir norsku sveitina Vålerenga
Sjakklubb, kvartaði að vísu undan
hita í skáksal og mætti til leiks í
stuttbuxum, sem gengur gegn
reglum FIDE um klæðaburð. Eng-
inn hreyfði þó andmælum. Tafl-
mennskan var furðu litlaus og hann
tók hálfpartinn „Petrosjan í stöð-
unni,“ vann eina skák og gerði sex
jafntefli. 9. nóvember hefst í London
einvígi hans um heimsmeistaratit-
ilinn við Bandaríkjamanninn Fa-
biano Caruana. Samkvæmt „lifandi
stigum“ er munurinn á þeim vart
marktækur, Magnús er með 2.835
Elo-stig og Caruana með 2.832.
Af íslensku skákmönnunum í báð-
um sveitunum náði Margeir Péturs-
son bestum árangri, hlaut 4½ vinn-
ing af sjö mögulegum. Hann var að
venju seigur í vörn og fléttaði
skemmtilega í eftirfarandi stöðu:
EM taflfélaga 20178; 2. umferð:
- Sjá stöðumynd -
Margeir – Ilja Mutschnik
Svartur er skiptamun yfir og f7-
peðið virðist vera að falla. En nú
kom …
31. Dh6+! Kxf7
Vitaskuld ekki 31. ... Kxh6 32.
f8(D)+ og hrókurinn fellur eftir 33.
Df7+ eða 33. Dg8+.
32. g5! Bxe4 33. Bxe4!?
Þessi leikur kemur úr reynslu-
bankanum og gefur í reynd betri
praktíska vinningsmöguleika ef and-
stæðingurinn er í tímahraki! Hinn
möguleikinn, 33. Bh5+, kom vissu-
lega til greina en eftir 33. ... Kg8 34.
gxf6 Dc7 35. f7+ Dxf7 36. Bxf7 Kxf7
ættu varnir svarts að halda.
33. ... De1?
33. ... fxg5 heldur jafntefli en nú
vinnur hvítur.
34. g6+! Ke7 35. Dh7+ Kd8 36. g7
He8 37. g8(D) Hxg8 38. Dxg8+ Ke7
39. Dg7+
- og svartur lagði niður vopnin.
Fífldjarfasti peðsleikur Evrópu-
mótsins kom svo fyrir í skák Guð-
mundar Kjartanssonar í loka-
umferðinni:
EM 2018; 7. umferð:
Guðmundur – Romain Eduard
16. g4??!
Er þessi leikur, sem stríðir gegn
ýmsum lögmálum skáklistarinnar,
birtist á skjánum tættu „vélarnar“
hann í sig. Svartur skuggi lagðist yf-
ir stöðu hvíts á „Chessbomb“ en þar
ræður „Stockfish“ ríkjum. Það hlá-
lega var að nokkru síðar var Guð-
mundur kominn með unnið tafl,
missti það að vísu niður í tapað tafl
aftur, en að lokum endaði skákin
með jafntefli. Mögnuð viðureign.
Þessi leikur
kemur úr reynslu-
bankanum
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
Ég las grein, sem hélt fram einni kynslóð á kostnað
annarrar. Það hefði ég talið til fordóma, en höfundur
var einmitt í því að sanna hversu fordómalaus hann
væri og þá líka unga kynslóðin sem hann kvað enga
fordóma hafa og taldi upp runu af því fordómaleysi.
Þessi kynslóð léti sér litaraft, trú, kynhneigð, stöðu
eða þjóðerni í léttu rúmi liggja og væri því þeirri
gömlu miklu fremri.
En höfundur flaskaði á því að tala um „gömlu“
kynslóðina sem vildi ráða of lengi og leyfði sér jafn-
vel eftir fimmtugt að kjósa „rangt“ þó að þeir
myndu varla þurfa að þola afleiðingar sinna „röngu“
ákvarðana eins lengi og þeir ungu sem yrðu þá þeim
mun lengur að búa við vitleysuna í gamlingjunum.
Þannig féll þessi skrifari lóðbeint í fordómagryfj-
una og var ekki annað að heyra en hann vildi taka
kosningarétt af stórum hópi fólks, líklega 60+, í síð-
asta lagi, og láta þá óreyndari um alla ákvarðana-
töku. „They Shoot Horses, Don’t They?“ var einu
sinni frægur titill á kvikmynd. Mætti endursýna.
Sunnlendingur
Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is
… eða fordómaleysi
Aldraðir Var ekki ann-
að að heyra en bréfrit-
ari vildi taka kosn-
ingarétt af stórum
hópi fólks, líklega 60+.