Morgunblaðið - 20.10.2018, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 20.10.2018, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. OKTÓBER 2018 PON Pétur O. Nikulásson ehf. Melabraut 21, 220 Hafnarfjörður | Sími: 580 0110 | pon.is skotbómulyftara AG línan frá Manitou býður meðal annars upp á nýtt ökumannshús með góðu aðgengi og útsýni. HANNAÐUR TIL AÐ VINNA VERKIN NÝ KYNSLÓÐ • DSB stjórntakkar • JSM stýripinni í fjaðrandi armi • Stýrð stjórnun og hraði á öllum glussahreyfingum • Virk dempun á bómu Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Fundurinn var mjög uppbyggilegur. Það eru fjölmargir snertifletir í áherslum þessara aðila,“ segir Hall- dór Benjamín Þorbergsson, fram- kvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Fyrsti fundur samninganefnda Samtaka atvinnulífsins og VR fyrir komandi kjarasamninga fór fram í húsakynnum VR í gærmorgun. Á fundinum fór fram kynning á kröfu- gerð verslunarmanna og samnings- áherslum atvinnurekenda. „Í kjölfar þess að hvor aðili fór yfir sínar áherslur var farið yfir viðræðu- áætlun sem vonandi verður skilað inn á mánudag. Í beinu framhaldi var ákveðið að beita mjög öguðum vinnu- brögðum næstu vikurnar,“ segir Hall- dór Benjamín. Hann segir að SA hafi gengið á eftir því á fundinum hvert sé kostnaðarmat við kröfugerð VR, bæði á hendur at- vinnurekendum og á hendur ríkinu. „Þau kostnaðarmöt liggja ekki fyrir af hálfu VR. Það er óheppilegt að mati Samtaka atvinnulífsins þar sem erfitt er að taka afstöðu til kröfugerðar þegar ekki er ljóst hver kostnaðurinn er né hvernig hann skiptist. Við hljót- um að kalla eftir slíku kostnaðar- mati.“ Halldór Benjamín ítrekar að fundurinn hafi verið uppbyggilegur, á honum hafi verið góð samtöl um þá snertifleti sem eru milli samnings- aðila. „Jafnvel þó við séum kannski ekki sammála um útfærslur þá eru tæki- færi, til að mynda í styttingu á heild- arvinnutíma, breytingu á dagvinnu- tíma og aðgerðum á húsnæðis- markaði,“ segir Halldór Benjamín Þorbergsson. Kröfurnar „skynsamar“ „Það eru allir mótiveraðir í að reyna að ná saman fyrir áramót og láta ekki orðræðuna trufla sig í því. Ég er tiltölulega bjartsýnn á að það náist lending enda tel ég kröfur okkur vera skynsamar,“ segir Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, en á fund- inum lögðu VR og Landssamband verslunarmanna fram sameiginlega kröfugerð. Ragnar segir að VR hafi kostnað- armetið allar kröfur félagsins en vill ekki upplýsa um matið á þessu stigi. „Kostnaðarmatið gagnvart SA liggur fyrir og er tilbúið en við ákváðum að leggja það ekki fram á þessum fundi út af þeirri orðræðu sem hefur verið að skapast. Við munum gera grein fyrir því á einhverju stigi málsins. Við höfum líka teiknað upp sviðsmyndir um útfærslur á kröfur gagnvart rík- inu, um persónuafslátt og fleira. Það er ekki tímabært að fara fram með þær útfærslur. Við þurfum að vera í samfloti við hin stéttarfélögin ef við eigum að ná fram kerfisbreytingum.“ „Fjölmargir snertifletir“ milli aðila Morgunblaðið/Eggert Fyrsti fundur Samninganefndir VR og SA funduðu í gærmorgun.  Fyrsti fundur samninganefnda SA og VR fór fram í gærmorgun  Bjartsýni á að samningar náist fyrir áramót  VR hefur ekki lagt fram kostnaðarmat við kröfur sínar  Viðræðuáætlun klár eftir helgi Samningskröfur VR » VR gerir kröfu um 41 til 42 þúsund króna hækkun á öll laun 1. janúar næstu þrjú ár og verða lágmarkslaun því 425 þúsund krónur í lok tíma- bilsins, eða 1. janúar 2021. » Þá gerir VR kröfu um að vinnuvika félagsmanna verði stytt í 35 stundir á viku án launaskerðingar. » Félagið gerir einnig þá kröfu að stjórnvöld endur- skoði persónuafslátt og tekju- tengingar. Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is „Það er mjög mikil samstaða um að hækka lægstu launin og tryggja þau,“ segir Sonja Ýr Þorbergs- dóttir, en hún var í gær kjörin nýr formaður BSRB með 86,3% greiddra atkvæða. Mótframbjóð- andi hennar, Vésteinn Valgarðs- son, hlaut 13,7%, en Elín Björg Jónsdóttir, fráfarandi formaður BSRB, gaf ekki kost á sér til áframhaldandi setu. Sonja Ýr segir í samtali við Morgunblaðið að ekki sé komin mynd á það hverjar kröfur BSRB verði í komandi kjaraviðræðum, og hvort þar verði lögð áhersla á krónutölu- eða prósentuhækkun. Hins vegar hafi hún orðið vör við mikla samstöðu á þingi BSRB sem haldið var síðustu daga, og nokkur mynd hafi komist á þá stefnumót- un sem verður, sér í lagi gagnvart stjórnvöldum. „Okkar félagsmenn finna fyrir því sama og félögin á almenna vinnumarkaðnum, að þær launahækkanir sem samdist um árið 2015 eru ekki að skila sér í vasa okkar launafólks eins og væntingar stóðu til, því stuðningur stjórnvalda í skattamálum fylgdi ekki eftir, heldur tók frá þeim kaupmáttaraukninguna,“ segir Sonja. Sonja segir jafnframt að gengið verði fast eftir því að loforð um launajöfnuð milli opinbera og al- menna vinnumarkaðarins sem gef- in voru í fyrra verði efnd, en þau fólu í sér um 17% launahækkun fyrir opinbera starfsmenn. „Í kjölfar breytinga á lífeyris- réttindum opinberra starfsmanna á síðasta ári fengum við loforð um það að launin yrðu jöfnuð milli al- menna og opinbera vinnumarkað- arins, þannig að þeirri kröfu verð- ur fylgt fast eftir.“ Vilja hækka lægstu launin  Sonja Ýr Þor- bergsdóttir nýr formaður BSRB Morgunblaðið/Eggert Formaður BSRB Sonja Ýr hlaut góða kosningu í embættið. Hringborð norðurslóða, einnig þekkt sem Arctic Circle ráð- stefnan, hófst í Hörpunni í gær, en því lýkur á sunnudaginn. Þar verða rædd ýmis málefni sem tengjast norður- slóðum en Ólafur Ragnar Gríms- son, fyrrverandi forseti lýðveld- isins og forsvars- maður ráðstefn- unnar, setti ráðstefnuna. Katrín Jakobs- dóttir forsætisráðherra var annar tveggja hátíðarræðumanna í gær og lagði hún sérstaka áherslu á umhverfismál í ræðu sinni. Sagði Katrín meðal annars að málefni norðurslóða væru forgangsmál hjá íslenskum stjórnvöldum. Þar væri efst á blaði mikilvægi umhverfis- verndar og sjálfbærrar nýtingar hafsins. Þá sagði Katrín einnig mikil- vægt að norðurslóðir yrðu skil- greindar sem herlaust svæði í framtíðinni, þannig að ekki myndi koma til átaka stórveldanna um þær. Hefur aldrei séð annað eins Meðal gesta á ráðstefnunni er Sergei Kislyak, öldungadeildar- þingmaður í Rússlandi og fyrrver- andi sendiherra landsins í Banda- ríkjunum. Í samtali við blaðamann mbl.is í gær þvertók Kislyak fyrir að Rússar hefðu reynt að hafa áhrif á forsetakosningarnar í Bandaríkjunum. „Við gerðum það ekki. Ég blandaði mér ekki í neitt sem getur mögulega talist af- skipti,“ sagði Kislyak. Sagði hann rannsóknina á Rússatengslunum vera innanlandsátök á milli demó- krata og repúblikana og að hann hefði aldrei séð Bandaríkin jafn- klofin í andstæðar fylkingar á þeim rúmu 40 árum sem liðin eru síðan hann kom fyrst til Bandaríkjanna. hjortur@mbl.is/sgs@mbl.is Mikilvægt að norðurslóðir verði herlausar  Neitar að Rúss- ar hafi skipt sér af kosningunum Morgunblaðið/Eggert Ráðstefna Arctic Circle, eða Hringborð norðurslóða, var sett í Hörpunni í gær og stendur fram á sunnudag. Hringborð norðurslóða, Arctic Circle, er haldið í Reykjavík um helgina Sergei Kislyak

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.