Morgunblaðið - 20.10.2018, Síða 27

Morgunblaðið - 20.10.2018, Síða 27
27 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. OKTÓBER 2018 Fortíð og framtíð Þessi gjörvilegu leikskólabörn sátu dúðuð og klædd öryggisvestum við styttu Ingólfs Arnarsonar á Arnarhóli og litu forvitin til vesturs, ef til vill í átt að nýbyggðu Hafnartorgi. Kristinn Magnússon Ég hef aldrei keypt Biblíu handa sjálfum mér. Mér hefur þó aldrei verið Biblíu- vant því ég hef verið svo lánsamur að hafa fengið margar Biblíur að gjöf. Ein af gjafa- biblíunum rataði í hendur mínar síðla árs 2003. Hún er ekki aðeins falleg hið innra heldur líka hið ytra, bundin í skinn og silfurslegin. Það þarf engan bókelskling eða biblíu- vitring til að sjá að þetta er mikið lesin bók. Ég var settur til afleysingar í Hallgrímskirkju haustið 2003. Af því ég hafði sungið í einum kórnum þekkti ég marga í starfsliði kirkj- unnar. Það var því ánægjulegt að koma til starfa fyrsta vinnudaginn. Eftir kaffibolla, hlátra og hlýjar móttökur héldu allir á sínar vinnustöðvar. Inni á skrifstofunni, sem mér var ætluð, var bókastafli á skjalaskápnum. Þarna voru gamlar bækur, Passíusálmar og guðsorðabækur. Þá sá ég kunnuglega Biblíu. Blóðið þaut fram í kinnar mínar. Ég þekkti hana því ég hafði svo oft hand- leikið hana í húsi við Sjafnargötu. Biblían var merkt Árna Þorleifssyni, sem hafði fengið hana að afmælisgjöf þegar hann varð sextugur árið 1937. Ég hafði ekki séð hana í meira en þrjátíu ár, þar til á þess- um degi í Hallgrímskirkju. Árni Þorleifsson var vinur for- eldra minna og þau kynntust í hans skjóli. Þegar þeim fæddist drengur bað hann um að sá stutti fengi líka að bera nafn hans því hann átti ekki börn sjálfur. Ég heiti því Árni og þar sem ég var afalaus gekk hann mér í afa stað. Árni missti sjón á gamals aldri og bað mig um að lesa fyrir sig. Ég fór til hans í hverri viku öll ung- lingsárin. Hann gaf mér smjör- köku eða vínarbrauð, við ræddum saman og svo bað hann mig oftast að lesa fyrir sig úr Biblíunni. Hann ákvað hvaða kaflar skyldu lesnir og ég tók bókina góðu og las upp- hátt. Við nutum samfélagsins og hann sá til þess að ég lærði að lesa í Biblíunni og skilja samhengi og dýrmæti. Síðan lést Árni og bækur hans og Biblíur hurfu mér einnig. Svo varð samsláttur atburða í tíma. Nokkrum dögum áður en ég hóf störf var Biblían afhent kirkj- unni að gjöf. Svo tók hún á móti mér. Hvaða verkfæri fær prestur betra en Biblíu við upphaf prests- starfs? Tákn um ábyrgð prests að rannsaka ritningarnar og leyfa lífsorði Guðs að streyma um sig í menningu og kirkju. Í árslok 2003 var mér svo gefin þessi Árnabiblía. Síðan hefur hún fylgt mér. Biblían kemur víða við sögu og flestir eiga sér einhverja persónu- lega minningu um hana. Persónur eða viðburðir Biblíunnar eiga sér afleggjara í bókmenntum, listum og sögu heimsins. Áhrifasaga Bibl- íunnar er mikilfengleg. En áherslur samfélaga breytast. Hvað í Biblíunni skiptir nútímafólk máli og hvað hefur hlutverki að gegna í menningu samtíðar? Á miðviku- dögum í október og nóvember er á dagskrá í hádeginu í Hallgríms- kirkju dagskrá um Biblíuna. Fyr- irlesarar segja frá eftirminnilegum biblíuviðburðum í lífi sínu og tala um hvað í Biblíunni skipti máli í menningunni eða eigin lífi. Bibl- íurnar koma til okkar með ýmsum hætti. Árnabiblían Eftir Sigurð Árna Þórðarson »Nokkrum dögum áð- ur en ég hóf störf var Biblían afhent kirkj- unni að gjöf. Svo tók hún á móti mér. Hvaða verkfæri fær prestur betra en Biblíu við upp- haf prestsstarfs? Sigurður Árni Þórðarson Höfundur er sóknarprestur Hallgrímskirkju. Hringborð norðurs- ins er alþjóðlegur sam- starfs- og samráðsvett- vangur um málefni norðurslóða og er sam- nefnt þing þess stærsta alþjóðlega samkoman þar sem málefni og framtíð þess svæðis eru til umfjöllunar. Málefni norðurslóða snerta nær allar hliðar íslensks samfélags og eru forgangsmál í stefnumótun stjórnvalda. Eitt af þeim málefnum sem efst eru á baugi á ráðstefnu Hringborðs norðursins sem nú stendur yfir í Reykjavík eru áskoranir sem örar samfélags- og náttúrufarsbreytingar vegna hlýn- unar jarðar hafa í för með sér fyrir íbúa á norðurslóðum. Viðbrögð okkar við þeim munu skipta miklu fyrir lífs- gæði framtíðarinnar og því er brýnt að stefnumótun ríkja á svæðinu byggist á gagnreyndri þekkingu, yf- irsýn og góðri samvinnu. Vísindarannsóknir Einn þáttur í alþjóðlegu samstarfi ríkjanna á norðurslóðum eru rann- sóknir á lífríki, umhverfi og sam- félögum norðurslóða. Vísindarann- sóknir og vöktun breytinga á svæðunum veita veigamikla undir- stöðu fyrir stefnumótun stjórnvalda en alþjóðlegt vísinda- samstarf er forsenda þess að unnt verði að skilja og bregðast við afleiðingum hlýnunar á umhverfi og samfélög norðurslóða. Íslenskir vísindamenn og stofn- anir búa yfir dýrmætri reynslu og þekkingu á fjölmörgum sviðum slíkra rannsókna, má þar sem dæmi nefna rannsóknir á sam- félagslegum áhrifum loftslagsbreytinga, jöklum, breyt- ingum á vistkerfi sjávar og kortlagn- ingu hafsbotnsins. Þá hýsir Ísland skrifstofur Alþjóðlegu norðurskauts- vísindanefndarinnar (IASC) sem er vettvangur opinberra stofnanna og samtaka á sviði norðurslóðarann- sókna frá yfir 20 ríkjum. Markmið vísindanefndarinnar er að stuðla að samstarfi um rannsóknir á Norður- heimskautssvæðinu og veita ráðgjöf til alþjóðasamfélagsins um málefni norðurslóða. Vettvangur sem þessi er mikilvægur fyrir íslenskt vísinda- samfélag og veitir vísindamönnum okkar aðgang að öflugasta tengsla- neti vísindamanna á norðurslóðum og eykur jafnframt möguleika þeirra til alþjóðlegs samstarfs. Íslensk stjórnvöld hafa einnig átt í farsælu samstarfi við Fulbright-stofnunina um samstarf á sviði norðurslóða- fræða, en á þeim vettvangi eru fræði- menn styrktir til kennslu og rann- sóknastarfa. Áhrif fólksins „Fólkið sem býr á norðurslóðum á næstum engan þátt í þeim breyt- ingum sem eiga sér stað, heldur stærri þjóðir sunnar á hnettinum,“ sagði Ragnar Axelsson ljósmyndari þegar hann tók á móti Íslensku bók- menntaverðlaununum fyrir ljós- myndabókina Andlit norðursins. Þetta eru athyglisverð orð og áminn- ing til okkar um mikilvægi þess að íbúar þessa svæðis komi að mótun stefnunnar. Til að meta til fulls þá margbrotnu félagslegu, menningar- legu og sögulegu þætti sem tengjast því stóra verkefni að aðlagast örum samfélags- og náttúrufarsbreyt- ingum er áríðandi að horfa til þess mannauðs og þekkingar sem til stað- ar er á hverju svæði fyrir sig. Í því felst til að mynda að efla þverfagleg- ar rannsóknir sem tengja sama hug- og félagsvísindi við raun- og náttúru- vísindi. Með þeim hætti má stuðla að Eftir Lilju Alfreðsdóttur »Norðurskautsráðið er þungamiðjan í okkar alþjóðasamstarfi á norðurslóðum og mun Ísland gegna for- mennsku í ráðinu frá og með næsta ári. Lilja Alfreðsdóttir Höfundur er mennta- og menningar- málaráðherra. Vísindasamstarf og norðurslóðir því að stefnumótun og ákvarð- anataka sé byggð á heildrænni sýn og að tekið sé tillit til viðhorfa og þekkingar íbúa á viðkomandi svæð- um. Norðurskautsráðið er þunga- miðjan í okkar alþjóðasamstarfi á norðurslóðum og mun Ísland gegna formennsku í ráðinu frá og með næsta ári. Megináherslur ráðsins á umhverfismál og sjálfbæra þróun gera það að verkum að vísindi og rannsóknir skipa stóran sess í störf- um þess. Ísland hefur nú þegar gert sig gildandi þegar kemur að framlagi til félags- og hugvísinda en frá árinu 2009 hefur Heimskautaréttarstofn- unin meðal annars unnið að lög- fræðilegum viðfangsefnum heim- skautasvæðanna með útgáfu rita um heimskautarétt. Þá veitir stofnunin einnig stuðning til framhaldsnáms í heimskautarétti sem kennt er við Háskólann á Akureyri þar sem nem- endur fræðast meðal annars um við- fangsefni öryggismála, leitar- og björgunarstarfa, auðlinda og líf- fræðilegs fjölbreytileika í tengslum við heimskautin tvö. Umhverfið nýtur vafans Ísland hefur mikilvæga sérstöðu sem norðurskautsríki þar sem stór hluti landhelgi okkar er innan norð- urslóða. Hagmunir Íslands felast í því að nýta tækifæri sem fylgja þeirri stöðu með ábyrgum og sjálfbærum hætti. Auknum siglingum og annarri starfsemi fylgja sóknarfæri en líka áskoranir fyrir umhverfi, lífríki og lífshætti. Viðkvæmt vistkerfi norð- urslóða á að njóta vafans og var mik- ilvægt skref í þá veru stigið í aðdrag- anda Parísarsáttmálans um loftslagsmál. Norðurskautsríkin hafa nú þegar gert þrjá lagalega bindandi samninga um; leit og björgun, varnir gegn olíumengun og samstarf á sviði vísinda. Þessir samningar eru þýð- ingarmiklir fyrir öryggi sjófarenda og umhverfisvernd á víðfeðmu og viðkvæmu hafsvæði. Ríkin hafa einnig átt þátt í gerð áætlunar um vöktun á líffræðilegum fjölbreyti- leika á norðurslóðum, aðgerð- aramma vegna sóts og metans, rammaáætlunar um friðuð hafsvæði og svo framvegis. Þessu til viðbótar hafa norðurskautsríkin í sameiningu komið að mótun siglingareglna á norðurslóðum, sem Alþjóðasiglinga- málastofnunin gefur út. Öll þessi samvinna miðar að því að auka um- hverfismeðvitund byggða á vísinda- legum rannsóknum. Ísland hefur margt fram að færa í málefnum norðurslóða eins og ég hef rakið hér að ofan. Við eigum að halda áfram að leggja áherslu á málefni norðurslóða í víðum skilningi; tryggja stöðu okkar sem strandríkis innan svæðisins og taka virkan þátt í alþjóðlegri vísindasamvinnu er því tengist.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.