Morgunblaðið - 24.10.2018, Qupperneq 1
M I Ð V I K U D A G U R 2 4. O K T Ó B E R 2 0 1 8
Stofnað 1913 250. tölublað 106. árgangur
LÍFIÐ VÆRI
LEIÐINLEGRA
ÁN SÚKKULAÐIS
SKAPAR ÖFL-
UGAR KVEN-
PERSÓNUR
SPYRJUM
HVERNIG ÞJÓÐ
VIÐ VILJUM VERA
GALE ANNE HURD 33 CYCLE-LISTAHÁTÍÐIN 30KÖKUBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Hari
Kvennafrí Baráttufundur verður á
Arnarhóli og víðar kl. 15.30 í dag.
Konur eru hvattar til að leggja niður
störf klukkan 14:55 í dag, á
kvennafrídeginum. Þá hafa þær unn-
ið fyrir launum sínum, sem sam-
kvæmt nýjustu tölum Hagstofu eru
74% af meðaldagvinnutekjum karla,
og sé miðað við fullan vinnudag sem
hefst klukkan níu og lýkur kl. 17
verður vinnudegi kvenna lokið eftir
fimm klukkustundir og 55 mínútur.
Síðast þegar kvennafrídagurinn
var haldinn, árið 2016, töldust konur
vera með um 70% af tekjum karla og
voru því hvattar til að leggja niður
störf klukkan 14:38. Þar áður var
dagurinn haldinn 2010, þá var þessi
tímasetning 14:25, og árið 2005 var
hún 14:08.
Á þeim 13 árum sem síðan eru lið-
in hefur tímasetningin því færst
fram um 47 mínútur. Það eru 3,6
mínútur á ári og haldi sú þróun
áfram verða laun karla og kvenna
jöfn sumarið 2053.
„Við ætlumst til að konum og körl-
um séu borguð sömu laun fyrir sam-
bærileg störf. Við höfum ítrekað
bent stjórnendum á nauðsyn þess að
nýta krafta allra starfsmanna
sinna,“ segir Halldór Benjamín Þor-
bergsson, framkvæmdastjóri Sam-
taka atvinnulífsins, um kvennafrí-
daginn og nauðsyn hans. Haldnir
verða baráttufundir víða um land í
dag, m.a. á Arnarhóli kl. 15:30 en
fundurinn er skipulagður af fjölda
samtaka kvenna og launafólks . »4
Áfram um
3,6 mín-
útur á ári
Sjötti kvennafrí-
dagurinn er í dag
Mun ýta undir leiguverð
» Forstjóri Reita segir áhrif
fasteignagjalda á leiguverð
atvinnuhúsnæðis ekki komin
fram nema að litlu leyti.
» Gjöldin hafi hækkað mikið.
Stefán E. Stefánsson
Baldur Arnarson
Nýtt álagspróf Seðlabankans sýnir
að efnahagur viðskiptabankanna
þriggja er traustur og þeir gætu
hæglega staðið af sér víðtæk áföll í
hagkerfinu. Bendir nýr aðstoðar-
seðlabankastjóri á að áhætta í fjár-
málakerfinu sé enn hófleg, þótt hún
hafi aukist, m.a. vegna harðrar
samkeppni á flugmarkaði og auk-
innar áhættu í tengslum við ferða-
þjónustuna. Niðurstöður álags-
prófsins eru kynntar í nýjustu
útgáfu Fjármálastöðugleika sem
Seðlabankinn gefur út tvisvar á ári.
Þar er einnig bent á að verð á at-
vinnuhúsnæði sé orðið hátt í sögu-
legu samhengi. Heimilin hafi „ótví-
ræðan hag af því að ekki byggist
upp óhófleg áhætta tengd markaði
með atvinnuhúsnæði“. Þá eru kaup-
endur fasteigna og lánveitendur
hvattir til að fara gætilega.
Guðjón Auðunsson, forstjóri
Reita, segir engin merki um bólu-
myndun á markaði með atvinnu-
húsnæði. Hvorki leiguverð né sölu-
verð standi undir byggingar-
kostnaði.
Áhættan í kerfinu hófleg
Nýtt álagspróf Seðlabankans sýnir að áhætta í fjármálakerfinu hefur aukist
Hún sé þó enn hófleg Bankarnir standa vel gagnvart mögulegum áföllum
MFasteignakaupendur »14 og 16
Morgunblaðið/Ómar
ASÍ Alþýðusambandsþing eru hald-
in annað hvert ár. Mynd frá 2016.
Tímamótaþing Alþýðusambands Ís-
lands (ASÍ) hefst í dag. Fyrir liggur
að um 300 þingfulltrúar úr 48 stétt-
arfélögum munu kjósa nýja forystu-
menn ASÍ á föstudag. Þingið mun
m.a. ræða tekjuskiptingu og jöfnuð,
jafnvægi atvinnuþátttöku og einka-
lífs, tækniþróun og skipulag vinn-
unnar, heilbrigðisþjónustu og vel-
ferðarkerfið og húsnæðismál.
Sumarliði Ísleifsson sagnfræðing-
ur, sem skrifaði sögu ASÍ, segir að
ástandið í verkalýðshreyfingunni nú
minni að sumu leyti á stöðuna um og
eftir miðja 20. öldina. Greinilegt sé
að tónninn sé harðari nú en hann hafi
verið mörg undanfarin ár. Svo virðist
sem andstaðan við ríkjandi öfl sé að
taka yfir.
Ágreiningur hefur verið innan
Landssambands verslunarmanna
(LÍV) um tilnefningar í miðstjórn
ASÍ. Ragnar Þór Ingólfsson, for-
maður VR, sagði að yfir 90% fé-
lagsmanna í LÍV væru í VR. Félagið
hefði gefið eftir sæti til landsbyggð-
arfélaga. Hann átti ekki von á að VR
myndi nýta vægi sitt til að fá fleiri
miðstjórnarmenn, en tók fram að
ekkert væri ákveðið um þetta. »6
Tímamótaþing ASÍ í dag
Þingið kýs nýja forystu Tekist á um miðstjórnarmenn
Með auknum vinsældum Íslands sem alþjóðlegs
áfangastaðar er ekki lengur óvenjulegt að verða
var við ferðamenn jafnvel þó að góða veðrið sjá-
ist æ sjaldnar. Þessir ferðamenn í Borgarnesi
létu til dæmis ekki haustnepjuna koma í veg fyr-
ir að þeir skoðuðu sig um. Virtu þeir meðal ann-
ars fyrir sér aðstæður við listaverkið Brákina.
Nokkuð svalt var í veðri á þessum slóðum, en úr-
koma var nánast engin.
Virtu fyrir sér Brákina í Borgarnesi
Morgunblaðið/Eggert
Ferðamannatíminn stendur langt fram eftir ári
Bandarísku herskipin USS New
York og USS Gunston Hall þurftu
að snúa aftur til hafnar í gær eftir
að hafa fengið á sig brotsjó. Lögð-
ust þau að bryggju við Skarfa-
bakka. Skipin sinna einkum her-
gagnaflutningum og voru á leiðinni
til Noregs eftir heræfingu Atlants-
hafsbandalagsins hér á landi, en
þau héldu út í fyrradag. Vont var í
sjóinn og þarf að sinna viðgerðum
á öðru skipinu vegna þeirra
skemmda sem það hlaut í óveðr-
inu.
Samkvæmt upplýsingum frá ut-
anríkisráðuneytinu slösuðust 12
manns vegna óveðursins en meiðsli
þeirra eru ekki talin alvarleg.
Þurftu að snúa
aftur til hafnar
Morgunblaðið/Eggert
Sneru við Skipin lögðust við
bryggju á Skarfabakka.