Morgunblaðið - 24.10.2018, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 24.10.2018, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. OKTÓBER 2018 Framleitt úr vistvænum virkum efnum sem brotna hratt niður í náttúrunni. UNDRAVÖRUR fyrir bílinn þinn Fást í betri byggingavöruverslunum, matvöruverslunum og bensínstöðvum. „Það eru gleðitíðindi að síðasta malarbílaplan í miðborg Reykjavík- ur verður hellulagt og malbikað á næstu dögum,“ segir Ari Matthías- son þjóðleikhússtjóri. Umrætt bíla- plan er austan við Þjóðleikhúsið og löngu kominn tími til að leggja á það bundið slitlag enda 68 ár síðan húsið var tekið í notkun. Að auki verður sett upp lýsing þannig að þeir sem yfir planið fara munu nú geta gengið á auðri og upp- lýstri jörð allan ársins hring, að sögn Ara. Þetta er gert samhliða því að nú hefur, eftir rúmlega 2ja ára bygg- ingartíma, lokið byggingu lyftuhúss austan megin við Þjóðleikhúsið sem hefur gjörbreytt aðkomu hreyfi- hamlaðra að gestarými í Þjóðleik- húsinu. Verkið er greitt af Ríkis- eignum og koma að því ýmsir verktakar. Verkefnastjóri er Einar Kr. Haraldsson. sisi@mbl.is Síðasta malarbílaplanið Morgunblaðið/sisi Bílaplanið Hitalagnirnar eru komnar og næst verður lagt á bundið slitlag. Guðni Einarsson gudni@mbl.is 43. þing ASÍ verður sett í dag á Hilton Reykjavík Nordica. Um 300 fulltrúar frá 48 stéttarfélögum móta þar stefnu sambandsins til næstu tveggja ára. Fimm málefni verða rædd sérstaklega: Tekju- skipting og jöfnuður. Jafnvægi at- vinnuþátttöku og einkalífs. Tækniþróun og skipulag vinnunn- ar. Heilbrigðisþjónusta og velferð- arkerfið og loks húsnæðismál. Ný forysta ASÍ verður kjörin á föstudag. Drífa Snædal, fram- kvæmdastjóri SGS, og Sverrir Mar Albertsson, framkvæmda- stjóri og stjórnarmaður Afls, hafa boðið sig fram til embættis for- seta. Kristján Þórður Snæbjörns- son, formaður RSÍ, Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, og Vil- hjálmur Birgisson, formaður VLFA, bjóða sig fram í embætti varaforseta. Miklar breytingar að verða á forystunni Það stefnir í sögulegt þing Al- þýðusambands Íslands (ASÍ), að mati Sumarliða Ísleifssonar, lekt- ors við sagnfræði- og heimspeki- deild Háskóla Íslands. Hann hefur skrifað sögu ASÍ og þekkir því vel sögu verkalýðshreyfingarinnar. „Það stefnir í miklar breytingar í forystu ASÍ, en maður veit ekki hvernig úr þeim spilast. Þarna býður nýtt fólk sig fram til æðstu embætta, en það verður að sýna sig hvernig það mun taka á mál- unum,“ sagði Sumarliði. „Það hafa áður orðið breytingar í Alþýðu- sambandinu og hörð barátta um yfirráð. Að sumu leyti minnir ástandið nú á stöðuna um og eftir miðja 20. öld og greinilegt að tónn- inn er harðari nú en hann hefur verið mörg undanfarin ár.“ Sumarliði segir að eftir miðjan 7. áratug síðustu aldar hafi mjög dregið úr átökum á Alþýðusam- bandsþingum og yfirleitt ekki skipt um forystu að stórum hluta, eins og stefnir í nú. Þó hafi oft verið gagnrýninn og róttækur minnihluti sem hafi látið að sér kveða á ASÍ-þingunum. Nú síðustu ár má nefna fulltrúa Verkalýðs- félags Akraness og Framsýnar á Húsavík. Svo bættist VR í hópinn og nú síðast forysta Eflingar. „Þessi andstaða virðist vera að taka yfir. Það er mjög mikil breyting frá því sem var þegar hófsöm forystan sigldi tiltölulega lygnan sjó. And- staðan hafði ekki þann styrk að hún gæti ýtt við forystunni sem heitið gæti,“ seg- ir Sumarliði. Hann bendir á að þó að ýmislegt sé líkt með stöðu verkalýðs- hreyfngarinnar nú og um og eftir miðja 20. öld sé samt margt ólíkt. Þá hafi andstæðar fylkingar í hreyfingunni verið nátengdar póli- tískum flokkum. Annars vegar öfl- ugum Sósíalistaflokki á landsvísu. Á hinn bóginn var Alþýðuflokk- urinn sem yfirleitt var í bandalagi við Sjálfstæðisflokkinn og Fram- sóknarflokkinn. En um og upp úr 8. áratug síðustu aldar fóru bein áhrif stjórnmálaflokka í verkalýðs- hreyfingunni þverrandi. Staðan nú er því ólík því sem þá var. Nýkjörin forysta Eflingar hefur verið orðuð við nýstofnaðan Sósíal- istaflokk Íslands en Sumarliði tel- ur óljóst hversu mikil þau áhrif séu auk þess sem núverandi sósíal- istaflokkur sé ekki öflugur á lands- vísu. Félagslegu þáttunum hefur ekki verið sinnt nóg „Mér sýnist að aðaláherslurnar í verkalýðshreyfingunni nú séu á tvennt: Annars vegar félagslegar umbætur vegna þess að þar séu mál komin í algjört óefni, sérstak- lega húsnæðismálin, og hins vegar málefni sem varða aðbúnað og réttindi fólks á vinnustöðum. Svo tengjast inn í þetta skattamál. Því hefur verið lýst að skattbyrðin á þá lægst launuðu hafi aukist mikið. Ég held að það sé samstaða innan verkalýðshreyfingarinnar um að taka þurfi á þessu. Það hefur ekki verið gert nægilega á undanförn- um árum og er meðal annars á ábyrgð verkalýðshreyfingarinnar.“ Hann telur að ástæðan fyrir því að andstaðan við ríkjandi öfl innan verkalýðshreyfingarinnar virðist vera að ná í gegn nú sé fyrst og fremst að félagslegu þáttunum hafi ekki verið sinnt nægilega vel undanfarin ár. Gert hafi verið átak í húsnæðismálum en það hafi kom- ið of seint og verið of lítið. „Fólki er misboðið og það sættir sig ekki við þetta lengur,“ segir Sumarliði. „Svo eru það launakröfurnar. Áherslurnar nú eru greinilega á að það þurfi að hækka laun hinna lægstlaunuðu sérstaklega. Um það er líklega nokkuð mikil samstaða en gæti verið meiningarmunur innan hreyfingarinnar um það hversu langt skuli ganga.“ Það stefnir í sögulegt Alþýðusambandsþing  300 þingfulltrúar frá 48 stéttarfélögum á þinginu  Kosin verður ný forysta ASÍ  Sagnfræðingur segir ástandið nú minna á stöðuna um og eftir miðja 20. öld Morgunblaðið/Ófeigur ASÍ-þing Um 300 fulltrúar koma saman í dag á þingi Alþýðusambandsins 2018. Þingin eru haldin annað hvert ár og þar er stefna sambandsins til næstu tveggja ára mótuð og línur lagðar. Myndin var tekin á ASÍ-þinginu 2016. Sumarliði Ísleifsson Ágreiningur hef- ur verið um til- nefningu fulltrúa Landssambands íslenskra versl- unarmanna (LÍV) til kjörs í mið- stjórn ASÍ, sam- kvæmt heim- ildum Morgun- blaðsins. Versl- unarmenn hafa átt fimm af 15 miðstjórnarmönnum. Í fráfarandi miðstjórn sitja þrír fulltrúar úr VR, formaður LÍV sem einnig er formaður Verslunar- mannafélags Suðurnesja og formað- ur Félags verslunar- og skrifstofu- fólks á Akureyri. Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, sagði að vel yfir 90% félagsmanna í LÍV kæmu úr VR. „Það hafa lengi verið skiptar skoð- anir innan VR um hlut félagsins í miðstjórn ASÍ. Þetta hefur komið upp fyrir öll ASÍ-þing síðan ég sett- ist í stjórn VR fyrir átta árum. Við höfum gefið eftir tvö sæti til lands- byggðarfélaganna og sumum finnst það of mikið. Ég á ekki von á að VR nýti vægi sitt til að koma fleiri mið- stjórnarmönnum inn. En það hefur ekkert verið endanlega ákveðið um þetta,“ sagði Ragnar Þór í gær. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins tengdist ágreiningurinn í stjórn LÍV meðal annars hug- myndum um fjármögnun á húsnæð- isfélögum. Ragnar Þór sagði að erf- iðlega hefði gengið að fjármagna félög eins og Blæ, sem er hliðarfélag íbúðafélagsins Bjargs, og er ætlað að byggja hagkvæmt leiguhúsnæði fyrir leigjendur úr öðrum tekjuhóp- um en Bjarg gerir. „Við viljum eiga samtal um þetta innan nýrrar forystu miðstjórnar ASÍ. Þetta er varla komið á um- ræðustig. Við höfum kynnt ýmsar hugmyndir og SA er með ákveðnar hugmyndir. Það eru allir sammála um að það sé þörf á þjóðarátaki en útfærslan er eftir,“ sagði Ragnar Þór. Hann sagði að það skorti þolin- mótt fjármagn til að koma Blæ af stað. Ein hugmyndin væri sú að líf- eyrissjóðirnir kæmu að fjármögnun- inni en líklega þyrfti að breyta lög- um til þess. Önnur hugmynd væri tímabundin tilfærsla á hækkuninni sem varð 2015 á lífeyrissjóðsiðgjaldi til að fjármagna húsnæðisfélög. Ragnar Þór sagði að engar þessara hugmynda yrðu að veruleika nema um þær ríkti breið sátt. gudni@mbl.is Tekist á um sæti í miðstjórn  Fjármögnun á húsnæðisfélögum Ragnar Þór Ingólfsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.